Morgunblaðið - 01.09.2018, Blaðsíða 27
27
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. SEPTEMBER 2018
Regnboginn af Jú, allt hefur sinn tíma, líka líftími regnbogans sem málaður var á Skólavörðustíginn fyrir gleðigönguna sem haldin var með pompi og prakt fyrir nokkru.
Kristinn Magnússon
Þegar þetta greinar-
korn er skrifað er kom-
inn höfuðdagur 29.
ágúst, sem allt fram á
okkar daga fylgdi
átrúnaður um veðra-
brigði, ýmist til hins
betra eða verra eftir
því hvernig sumarið
hafði verið. Minna fór
fyrir að menn rifjuðu
upp tilefni nafnsins
sem er afhöfðun Jó-
hannesar skírara samkvæmt fornum
sögum. Hætt er við að óskir manna
nú um veðrabrigði séu ólíkar eftir
landshlutum svo misskipt sem sumar
og sólfar reyndist vestanlands og
austan. Enn er þó mánuður til form-
legrar haustkomu á Mikjálsmessu
29. september, en dofnað hefur yfir
þeim tímamótum í seinni tíð og
haustverk mörg hver, svo sem göng-
ur og réttir, færst framar í sept-
ember. Eins og sólskini var misskipt
hagaði einnig til um berjasprettu,
sem Austfirðingar nutu ríkulega
þetta árið. Byggist það bæði á far-
sælli blómgun að vori sem og óvenju-
lega sólríku sumri.
Uppskera sveitar-
stjórnarkosninga
En það er önnur uppskera en ber
og fjallskil sem nú litar umræðuna
hjá sveitarstjórnum víða um land.
Þær eru að vonum upp-
teknar við að fóta sig
eftir úrslit vorkosning-
anna 26. maí sl. Víða
hafa orðið miklar
breytingar í röðum
kjörinna fulltrúa og á
meirihlutasamstarfi.
Endurspeglast það
m.a. í ráðningu nýrra
starfsmanna og mál-
efnasamningum með
breyttum áherslum. Í
sveitarstjórnum ekki
síður en á landsmála-
vettvangi standa menn
frammi fyrir örum breytingum sem
reyna á þanþol og aðlögun sam-
félagsins á hverjum stað. Starf full-
trúa í sveitarstjórnum er í senn fjöl-
þætt, afar mikilvægt og tímafrekt
eigi það að vera leyst vel af hendi. Er
það líklega ástæðan fyrir örari út-
skiptum kjörinna fulltrúa en áður,
líkt og sjá má einnig á Alþingi að
undanförnu. Skiptir þá miklu að til
staðar sé traustur grunnur og skil-
virkni, einnig í samstarfi ríkis og
sveitarfélaga. Sveitarfélögin hafa
víðtækt skipulagsvald og ákvarðanir
um landnotkun þarf að byggja á sem
fyllstum upplýsingum um náttúrufar
og aðra umhverfisþætti. Það sama á
við um fornleifar sem ummerki
byggðar fyrri alda og varðveislu á
þeim takmarkaða húsakosti sem
vitnar um aðstæður fólks fyrir einni
öld. Víða er nú verið að taka aðal-
skipulag sveitarfélaga og svæða-
skipulag til endurskoðunar, m.a. á
Austurlandi. Staðbundin þekking
skiptir þá miklu máli og efla þarf
þekkingarsetur, m.a. náttúrustofur
landshlutanna, til að veita sveitar-
stjórnum óháða ráðgjöf í skipulags-
málum.
Örar umhverfisbreytingar
Það er ekki aðeins á sviði upplýs-
ingatækni og mannlegra samskipta
sem við upplifum örar breytingar.
Þeirra gætir jafnframt í ytra um-
hverfi okkar vegna loftslagsbreyt-
inga af mannavöldum. Sá sem ekur
þjóðveginn með suðurströndinni og
hefur samanburð frá fyrri tíð verður
nú árlega vitni að breyttu landslagi
vegna rýrnunar jökla. Jökulsker eins
og Nýjunúpar í Hoffellsjökli og
Kárasker í Breiðamerkurjökli sem
fyrst urðu sýnileg fyrir tæpri öld
stækka nú óðum og ný auð svæði
koma árlega í ljós langt inni á Vatna-
jökli. Sú mynd um bráðnun og brott-
hvarf jökla landsins sem brugðið er
upp á margmiðlunarsýningu í Perl-
unni fær staðfestingu af augljósri
þróun sem er í fullum gangi. Stækk-
un lóna við sporða skriðjöklanna er
ævintýri líkust og gjörbreyttir far-
vegir jökulánna sem færast nú í það
horf sem heimildir eru um frá fyrstu
öldum Íslandsbyggðar. Endurnýjuð
Lómagnúpsá í farvegi Gýgjukvíslar
á Skeiðarársandi og brúin yfir þurr-
an farveg Skeiðarár eru ljós vottur
um ótrúlegar umhverfisbreytingar í
tíð einnar kynslóðar.
Breytingarnar í gróðurríkinu
Svipuð saga og um rýrnun jökla
endurspeglast nú í gróðurríkinu. Þar
er náttúruleg uppgræðsla birkis á
Skeiðarársandi ljós vottur en sem
einnig kemur fram hvarvetna í gróð-
urlendum þar sem land hefur verið
friðað fyrir beit eða úr henni verið
dregið að ráði. Í Hrafnkelsdal eystra
er þannig birki orðið sýnilegt í fjalls-
hlíðum ofan við 400 m hæð, þar sem
ekkert var að sjá af slíku fyrir fáum
áratugum. Að þessu leyti birtist okk-
ur hækkun meðalhita enn með já-
kvæðum hætti hérlendis þótt hún sé
almennt ógnvaldur fyrir heims-
byggðina á heildina litið. Í mótsögn
við þessa jákvæðu endurgræðslu
innlendra tegunda birtist okkur
geigvænleg útbreiðsla lúpínu sem
ágengrar tegundar og viðbrögð við
þeim háska eru enn fálmkennd af op-
inberri hálfu. Einnig sú öfugþróun
blasir við frá hringveginum. Forysta
Landgræðslu ríkisins hefur nú viður-
kennt að notkun lúpínu til land-
græðslu hafi verið vanhugsuð (Mbl.
10. ágúst sl., s. 35) og sé nú úr sög-
unni af hálfu stofnunarinnar. Það
sama verður ekki sagt um talsmenn
Skógræktarinnar, en frá reitum
hennar hefur lúpínan dreifst víða um
land. Á heildina litið vantar skýra
gróðurverndarstefnu hérlendis og í
því samhengi hefur þáttur íslenska
birkisins til endurgræðslu verið van-
metinn.
Ferðamenn og akstur utan vega
Stökkbreyting í fjölda ferðamanna
birtist hverjum þeim sem ekur um
þjóðvegi landsins, ekki síst sunnan-
lands. Það er þróun langt úr hófi og
sér ekki fyrir endann á. Örtröðin á
fjölsóttustu stöðunum er þegar farin
að bitna á annars jákvæðri upplifun,
Þingvellir, Gullfoss, Skaftafell og
Jökulsárlón augljós dæmi. Mikið
vantar á að af opinberri hálfu hafi
verið brugðist við þessum fjölda með
fjárveitingum til gagnaðgerða, svo
sem virkrar landvörslu, hreinlætis-
aðstöðu og með skýrum leiðbein-
ingum. Að sjálfsögðu á atvinnugrein-
in líka að leggja sitt af mörkum, því
að ella er hún að grafa sína eigin
gröf. Akstur utan vega blasir víða
við, þó að hvergi jafn áberandi við al-
faraleið og á Skeiðarársandi utan
þjóðgarðs, einkum sunnan vegar.
Þar sýnist fátt annað en öflug snúra
eða girðing fram með þjóðveginum
duga til að taka fyrir ósómann.
Eftir Hjörleif
Guttormsson » Í sveitarstjórnum
ekki síður en á
landsmálavettvangi
standa menn frammi
fyrir örum breytingum
sem reyna á þanþol og
aðlögun samfélagsins.
Hjörleifur
Guttormsson
Höfundur er náttúrufræðingur.
Sumri hallar og mörg haustverkin eru framundan