Morgunblaðið - 01.09.2018, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 01.09.2018, Blaðsíða 27
27 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. SEPTEMBER 2018 Regnboginn af Jú, allt hefur sinn tíma, líka líftími regnbogans sem málaður var á Skólavörðustíginn fyrir gleðigönguna sem haldin var með pompi og prakt fyrir nokkru. Kristinn Magnússon Þegar þetta greinar- korn er skrifað er kom- inn höfuðdagur 29. ágúst, sem allt fram á okkar daga fylgdi átrúnaður um veðra- brigði, ýmist til hins betra eða verra eftir því hvernig sumarið hafði verið. Minna fór fyrir að menn rifjuðu upp tilefni nafnsins sem er afhöfðun Jó- hannesar skírara samkvæmt fornum sögum. Hætt er við að óskir manna nú um veðrabrigði séu ólíkar eftir landshlutum svo misskipt sem sumar og sólfar reyndist vestanlands og austan. Enn er þó mánuður til form- legrar haustkomu á Mikjálsmessu 29. september, en dofnað hefur yfir þeim tímamótum í seinni tíð og haustverk mörg hver, svo sem göng- ur og réttir, færst framar í sept- ember. Eins og sólskini var misskipt hagaði einnig til um berjasprettu, sem Austfirðingar nutu ríkulega þetta árið. Byggist það bæði á far- sælli blómgun að vori sem og óvenju- lega sólríku sumri. Uppskera sveitar- stjórnarkosninga En það er önnur uppskera en ber og fjallskil sem nú litar umræðuna hjá sveitarstjórnum víða um land. Þær eru að vonum upp- teknar við að fóta sig eftir úrslit vorkosning- anna 26. maí sl. Víða hafa orðið miklar breytingar í röðum kjörinna fulltrúa og á meirihlutasamstarfi. Endurspeglast það m.a. í ráðningu nýrra starfsmanna og mál- efnasamningum með breyttum áherslum. Í sveitarstjórnum ekki síður en á landsmála- vettvangi standa menn frammi fyrir örum breytingum sem reyna á þanþol og aðlögun sam- félagsins á hverjum stað. Starf full- trúa í sveitarstjórnum er í senn fjöl- þætt, afar mikilvægt og tímafrekt eigi það að vera leyst vel af hendi. Er það líklega ástæðan fyrir örari út- skiptum kjörinna fulltrúa en áður, líkt og sjá má einnig á Alþingi að undanförnu. Skiptir þá miklu að til staðar sé traustur grunnur og skil- virkni, einnig í samstarfi ríkis og sveitarfélaga. Sveitarfélögin hafa víðtækt skipulagsvald og ákvarðanir um landnotkun þarf að byggja á sem fyllstum upplýsingum um náttúrufar og aðra umhverfisþætti. Það sama á við um fornleifar sem ummerki byggðar fyrri alda og varðveislu á þeim takmarkaða húsakosti sem vitnar um aðstæður fólks fyrir einni öld. Víða er nú verið að taka aðal- skipulag sveitarfélaga og svæða- skipulag til endurskoðunar, m.a. á Austurlandi. Staðbundin þekking skiptir þá miklu máli og efla þarf þekkingarsetur, m.a. náttúrustofur landshlutanna, til að veita sveitar- stjórnum óháða ráðgjöf í skipulags- málum. Örar umhverfisbreytingar Það er ekki aðeins á sviði upplýs- ingatækni og mannlegra samskipta sem við upplifum örar breytingar. Þeirra gætir jafnframt í ytra um- hverfi okkar vegna loftslagsbreyt- inga af mannavöldum. Sá sem ekur þjóðveginn með suðurströndinni og hefur samanburð frá fyrri tíð verður nú árlega vitni að breyttu landslagi vegna rýrnunar jökla. Jökulsker eins og Nýjunúpar í Hoffellsjökli og Kárasker í Breiðamerkurjökli sem fyrst urðu sýnileg fyrir tæpri öld stækka nú óðum og ný auð svæði koma árlega í ljós langt inni á Vatna- jökli. Sú mynd um bráðnun og brott- hvarf jökla landsins sem brugðið er upp á margmiðlunarsýningu í Perl- unni fær staðfestingu af augljósri þróun sem er í fullum gangi. Stækk- un lóna við sporða skriðjöklanna er ævintýri líkust og gjörbreyttir far- vegir jökulánna sem færast nú í það horf sem heimildir eru um frá fyrstu öldum Íslandsbyggðar. Endurnýjuð Lómagnúpsá í farvegi Gýgjukvíslar á Skeiðarársandi og brúin yfir þurr- an farveg Skeiðarár eru ljós vottur um ótrúlegar umhverfisbreytingar í tíð einnar kynslóðar. Breytingarnar í gróðurríkinu Svipuð saga og um rýrnun jökla endurspeglast nú í gróðurríkinu. Þar er náttúruleg uppgræðsla birkis á Skeiðarársandi ljós vottur en sem einnig kemur fram hvarvetna í gróð- urlendum þar sem land hefur verið friðað fyrir beit eða úr henni verið dregið að ráði. Í Hrafnkelsdal eystra er þannig birki orðið sýnilegt í fjalls- hlíðum ofan við 400 m hæð, þar sem ekkert var að sjá af slíku fyrir fáum áratugum. Að þessu leyti birtist okk- ur hækkun meðalhita enn með já- kvæðum hætti hérlendis þótt hún sé almennt ógnvaldur fyrir heims- byggðina á heildina litið. Í mótsögn við þessa jákvæðu endurgræðslu innlendra tegunda birtist okkur geigvænleg útbreiðsla lúpínu sem ágengrar tegundar og viðbrögð við þeim háska eru enn fálmkennd af op- inberri hálfu. Einnig sú öfugþróun blasir við frá hringveginum. Forysta Landgræðslu ríkisins hefur nú viður- kennt að notkun lúpínu til land- græðslu hafi verið vanhugsuð (Mbl. 10. ágúst sl., s. 35) og sé nú úr sög- unni af hálfu stofnunarinnar. Það sama verður ekki sagt um talsmenn Skógræktarinnar, en frá reitum hennar hefur lúpínan dreifst víða um land. Á heildina litið vantar skýra gróðurverndarstefnu hérlendis og í því samhengi hefur þáttur íslenska birkisins til endurgræðslu verið van- metinn. Ferðamenn og akstur utan vega Stökkbreyting í fjölda ferðamanna birtist hverjum þeim sem ekur um þjóðvegi landsins, ekki síst sunnan- lands. Það er þróun langt úr hófi og sér ekki fyrir endann á. Örtröðin á fjölsóttustu stöðunum er þegar farin að bitna á annars jákvæðri upplifun, Þingvellir, Gullfoss, Skaftafell og Jökulsárlón augljós dæmi. Mikið vantar á að af opinberri hálfu hafi verið brugðist við þessum fjölda með fjárveitingum til gagnaðgerða, svo sem virkrar landvörslu, hreinlætis- aðstöðu og með skýrum leiðbein- ingum. Að sjálfsögðu á atvinnugrein- in líka að leggja sitt af mörkum, því að ella er hún að grafa sína eigin gröf. Akstur utan vega blasir víða við, þó að hvergi jafn áberandi við al- faraleið og á Skeiðarársandi utan þjóðgarðs, einkum sunnan vegar. Þar sýnist fátt annað en öflug snúra eða girðing fram með þjóðveginum duga til að taka fyrir ósómann. Eftir Hjörleif Guttormsson » Í sveitarstjórnum ekki síður en á landsmálavettvangi standa menn frammi fyrir örum breytingum sem reyna á þanþol og aðlögun samfélagsins. Hjörleifur Guttormsson Höfundur er náttúrufræðingur. Sumri hallar og mörg haustverkin eru framundan

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.