Morgunblaðið - 01.09.2018, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 01.09.2018, Blaðsíða 36
36 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. SEPTEMBER 2018 HJARTAVERND Minningarkort 535 1800 www.hjarta.is ✝ Ingi Tryggva-son fæddist á Litlulaugum í Reykjadal 14. febr- úar 1921. Hann lést á Skógarbrekku, hjúkrunardeild Heilbrigðisstofn- unar Norðurlands 22. ágúst 2018. Foreldrar hans voru Tryggvi Sig- tryggsson, f. 20.11. 1884, d. 1.12. 1986, bóndi á Laugabóli í Reykjadal og kona hans Unnur Sigurjónsdóttir hús- freyja, f. 13.7. 1896, d. 14.3. 1993, dóttir Sigurjóns Friðjóns- sonar skálds og alþingismanns. Systkini Inga; 1) Haukur, f. 5.9. 1922, d. 17.3. 1940; 2) Eysteinn, f. 19.7. 1924; 3) Ágrímur, f. 16.5. 1926; 4) Kristín, f. 16.7. 1928, d. 28.12. 2017; 5) Helga, f. 26.5. 1930, d. 13.5. 2013; 6) Hjörtur, f. 30.3. 1932, d. 14.8. 1913; 7) Ing- unn, f. 9.12. 1933, d. 4.11. 2009; 8) Dagur, 21.7. 1937, d. 18.2. 2009; 9) Sveinn, f. 30.1. 1939, d. 18.1. 2003; og 10) Haukur, f. 20.8. 1941. Þann 17. október 1951 kvænt- ist Ingi Önnu Septímu Þorsteins- dóttur, f. 17.10. 1921, d. 22.3. 1986. Foreldrar Önnu voru Þor- steinn Jóhannsson bóndi í Götu á Árskógsströnd og kona hans Helga Einarsdóttir. Ingi og Anna eignuðust fimm syni; 1) Haukur Þór vélamaður, f. 24.3. 1952, d. 16. 4. 2018; 2) Tryggvi, bóndi á Kárhóli og Narfastöð- um, f. 18.10. 1953, d. 1.8. 1984. Sonur Tryggva og Sigríðar Guð- jónsdóttur er Guðjón Þór stýri- maður, f. 20.4. 1974. Dætur Tryggva og Ingibjargar Arn- kelsdóttur eru Brynja Dröfn hjúkrunarfræðingur, f. 13.2. 1976, og Eyrún Ýr kennari, f. 29.8. 1978. Dóttir Tryggva og Ingibjargar Ingadóttur er Anna Birta, f. 23.4. 1985. 3) Þorsteinn Helgi fyrrverandi útgerðar- son sinn og tengdadóttur, Unn- stein og Rósu Ösp, og var þar skógarbóndi til dánardags. Ingi var sparisjóðsstjóri Sparisjóðs Reykdæla (síðar Þingeyinga) 1952-1974, starfaði sem for- stöðumaður upplýsingaþjónustu landbúnaðarins 1970-1974 og forstöðumaður ullar- og skinna- verkefnis Útflutningsmiðstöðv- ar iðnaðarins 1978-1980. Ingi sat í stjórn Sparisjóðs Reykdæla 1952-1982. Í hrepps- nefnd Reykdælahrepps 1966- 1974. Í stjórn Sambands ís- lenskra sparisjóða 1967-1981. Í stjórn Stéttarsambands bænda 1969-1987, formaður stjórnar- innar frá 1981-1987. Skipaður 1971 í endurskoðunarnefnd laga um framleiðsluráð landbúnaðar- ins o. fl. Í Sexmannanefnd - verðlagsnefnd landbúnaðarins 1972-1987. Í skólanefnd Héraðs- skólans á Laugum 1974-1982, formaður 1974-1978. Í trygg- ingaráði 1974-1978. Í stjórn Landverndar 1975-1981. Í Framleiðsluráði landbúnaðarins 1976-1987, formaður þess frá 1980. Sat á allsherjarþingi Sam- einuðu þjóðanna 1978. Stjórnar- formaður Grænmetisverslunar landbúnaðarins 1980-1987. Í stjórn Norrænu bændasamtak- anna 1981-1987. Í stjórn Stofn- lánadeildar landbúnaðarins 1982-1990 og í stjórn Fram- leiðnisjóðs landbúnaðarins 1982-1988. Ingi kom að upp- byggingu Ferðaþjónustu bænda, sat þar í stjórn og lengi formað- ur. Ingi sat í stjórn kjördæmis- sambands Framsóknarmanna á Norðurlandi eystra og gegndi þar tímabundið formennsku, var formaður Framsóknarfélags Reykdæla um skeið og sat í mið- stjórn Framsóknarflokksins frá 1972. Ingi var varaþingmaður Framsóknarflokksins 1971-1974 og 1978-1979 og þingmaður Framsóknarflokksins 1974- 1978. Jarðsungið verður í dag, 1. september 2018, frá Einars- staðakirkju klukkan 14. maður og fiskverk- andi, f. 13.10. 1955. Sonur hans og Guð- rúnar Bjartmarz var Brynjar, f. 19.8. 1980, d. 10.10. 2001; 4) Stein- grímur fram- kvæmdastjóri í Hveragerði, f. 3.3. 1960, maki Guðný Eygló Gunnars- dóttir. Sonur þeirra er Fannar Ingi, nemi, f. 7.10. 1998, og börn Eyglóar Guð- mundur Gunnar Guðnason, f. 18.10. 1980, og Thelma María Guðnadóttir, f. 27.9. 1983; 5) Unnsteinn framkvæmdastjóri, f. 16.2. 1966, maki Rósa Ösp Ás- geirsdóttir. Börn þeirra eru Anna Karen nemi, f. 16.7. 1997, og Ásgeir Ingi nemi, f. 22.3. 1999. Sambýliskona Inga var Unn- ur Kolbeinsdóttir kennari, f. 27.7. 1922, d. 14.9. 2016. Ingi ólst upp á Litlulaugum, en flutti með foreldrum sínum á nýbýlið Laugaból á níunda ald- ursári og ólst þar upp í stórum systkinahóp. Hann stundaði nám við Héraðsskólann á Laug- um, tók kennarapróf frá KÍ 1942, viðbótarnám við Kennara- skólann í Kaupmannahöfn 1946- 1947 og auk þess nám í ensku og enskum bókmenntum í London 1947-1948. Ingi stundaði kennslustörf til 1970, lengst af við Héraðsskól- ann á Laugum. Jafnhliða kennslu reisti Ingi ásamt Önnu nýbýlið Kárhól í Reykjadal árið 1954 og stundaði þar búskap samhliða öðrum störfum, lengst af með syni sínum Tryggva. Ingi og Anna héldu einnig heimili í Reykjavík frá 1971 til dánar- dægurs Önnu 1986. Árið 1988 hóf Ingi ferðaþjónustubúskap með dyggri aðstoð Unnar sam- býliskonu sinnar á Narfastöðum í sömu sveit, síðar í samvinnu við Nú er faðir minn genginn á vit feðra sinna eftir langa og farsæla ævi. Ég sé ævi hans fyrir mér í þremur nánast jafn löngum ævi- skeiðum. Hann tók að sér mörg verkefni á lífsleiðinni, sem sum- um við synir hans tókum þátt í. Og nú í minningunni verður fyrsta hlutverk mitt stærst og minnisstæðast. Sparisjóður Reykdæla hafði aðsetur í „aust- urherberginu“ á efri hæðinni á Kárhóli. Rammgerður peninga- skápurinn og risastórt skrifborð- ið hafði yfir sér nokkra dulúð í augum ungs drengs. Þessu her- bergi bar að sýna sérstaka virð- ingu. Og hana upplifði ég ríkulega endurgoldna, að fá að taka þátt í uppgjörum og þá sérstaklega áramótauppgjörinu. Handtrekkt reiknivélin var ekki afkastamikil og því heppilegra að lesa saman strimil og handskráða sjóðbókina með aðstoðarmanni, og upphefð- in var mikil fyrir dreng sem mældi aldur sinn í eins stafs tölu. Þessar stundir eru mér enn fimmtíu árum síðar ógleymanleg- ar. Í bústörfunum fengum við, orkumiklir og fljóthuga bræðurn- ir, útrás sem fullgildir vinnu- menn svo skjótt sem máttur leyfði, en máski ekki eftir nú- tímauppskrift. Eflaust mjög mót- andi umhverfi og við upplifðum í engu að við lifðum á útjaðri ver- aldar. Nú þegar Kárhólsfjölskyldan er orðin stærri handan okkar efn- isheims leitar hugurinn ekki að- eins til pabba, heldur ekki síður með honum til bræðra minna elstu, Hauks og Tryggva, sem hvorugur nutu langs ævikvölds og í auðmýkt til móður minnar Önnu sem af skilyrðislausri ást og ósérhlífni studdi pabba í einkalífi og í öllum þeim sam- félagslegu verkefnum sem hann hefði ekki einn mátt anna. Endurkoma pabba í Reykja- dalinn reyndist honum sérlega ánægjuleg, kominn á eftirlaun og búinn að kaupa Narfastaði. Upp- bygging ferðaþjónustunnar með Unni og síðar Unnsteini og Rósu og enn frekar er á leið skógrækt- in, sem átti hug hans allan allt til hinsta dags. Í samvinnu við Bændaskóga plantaði hann á þremur áratug- um til dagsins í dag yfir 397 þús- und trjáplöntum sem nú eru vöxtulegur skógur þær elstu. Í ánægjulegri grisjunarferð fyrir tveimur árum viðurkenndi hann af hógværð, að hann hefði nú ekki búist við að sjá sjálfur svona stór tré í sínum skógi. En það var ekki aðeins skóg- ræktin sem gæddi líf pabba á hans langa ævikvöldi. Mikil gæfa og gleði fylgdi Unni Kolbeinsdóttur, sambýliskonu hans til tæpra þriggja áratuga, og þau héldu heimili í Reykjavík fram á vor fyrir tveimur árum. Þökk sé Unni og hennar fjöl- skyldu voru veturnir í Reykjavík fullir menningarviðburða og lífi, og fyrr en varði var komið vor í Reykjadal og tími kominn til að hefjast handa með móður jörð. Sveitin kæra, yfir öllu þínu andi drottins vaki nótt sem dag. Ég vil þar mega halla höfði mínu, í hljóðri bæn, við fagurt sólarlag. (Guðmundur Halldórsson.) Steingrímur. Ingi var elsti bróðir hennar mömmu og hefur staðið okkur nærri allt mitt líf. Þegar ég var að alast upp var Ingi bóndi á Kár- hóli í Reykjadal en jafnframt því sinnti hann ýmsum öðrum störf- um sem ég tel ekki upp hér. Á Kárhóli var stórt heimili og alltaf mikið um að vera. Þar bjuggu þau hjónin, hann og Anna S. Þor- steinsdóttir, fimm synir þeirra, foreldrar Önnu, og vinnufólk. Þangað fannst mér gaman að koma. Alltaf eitthvað að gerast, fólk að koma og fara því margir áttu erindi við Inga og frændur mínir skemmtilegir og uppátækjasam- ir. Þegar ég varð fullorðin og kynntist honum betur kunni ég alltaf betur og betur að meta þennan merka mann. Hann var ótrúlega duglegur, hugurinn allt- af síungur og ótrúlegt hverju hann kom í verk. Ingi varð fyrir tveim þungum áföllum, þá kom- inn á sjötugsaldur þegar Tryggvi sonur hans lést 1984, 30 ára að aldri og tæpum tveim árum seinna lést Anna konan hans. Hann tók þessu af æðruleysi og eftir þetta skipti hann um starfsvettvang og eignaðist sambýliskonu til nærri 28 ára, Unni Kolbeinsdóttir sem varð honum mikils virði. Unnur lést í september árið 2016. Ingi byggði upp heilmikla ferðaþjón- ustu á Narfastöðum í Reykjadal og stundaði skógrækt af miklum áhuga og dugnaði þar til yfir lauk. Ingi var um margt óvenju- legur maður. Hann var fé- lagslyndur og hafði mjög gaman af að segja frá. Þær munu lifa með okkur áfram, margar af skemmtilegu sögunum sem hann sagði. Hann hafði alltaf framtíðarsýn og var stöðugt með hugann við það sem hann ætlaði að gera næst. Þegar við fórum með hon- um síðast á „apparatinu“ til að skoða skógræktina sýndi hann okkur hvar næst ætti að planta og hverju ætti að breyta. Hann var svo áhugasamur að hann gat varla gefið sér tíma til að fara í aðgerð á hné þó að það væri orðið honum til vandræða. Hann fór svo loks í aðgerðina, kominn á tí- ræðisaldur. Ingi var glaðvær, og ótrúlega fróður og gaman að hlusta á hann rifja upp liðna tíð. Hann hafði farið víða bæði hér á landi og erlendis og kynnst ýmsu bæði í leik og starfi og hafði frá svo mörgu að segja. Hann var alltaf góður frændi. Þegar við keyptum Kárhól af honum gerði hann allt sem hann gat til að það gengi vel hjá okkur. Hann sýndi mér og fjölskyldunni allri hlýju og nærgætni í gegnum árin, sem aldrei gleymist. Það er eiginlega óskiljanlegt að Ingi skuli vera farinn. Ég held að ég hafi verið farin að halda að hann yrði alltaf hér með okkur. Ingi missti Hauk, elsta son sinn, skyndilega síðastliðið vor en því tók hann með æðruleysi eins og öðru því sem að höndum bar. Ég veit að hann fór sáttur, þó það sé ekki langt síðan hann sagðist gjarnan vilja lifa lengur því enn langaði hann til að rækta meira. Honum leið vel á Húsavík og er fjölskylda hans starfsfólki sjúkrahússins á Húsavík afar þakklát fyrir góða umönnun. Ég kveð þennan kæra frænda minn með söknuði en jafnframt þakk- læti fyrir allar góðu stundirnar og sendi Þorsteini, Steingrími, Unnsteini og ástvinum öllum, mínar innilegustu samúðarkveðj- ur. Unnur Harðardóttir Á þessari kveðjustund kemur í huga þakklæti fyrir að hafa verið í fjölskyldutengslum við Inga í um þrjá áratugi. Margt ber að þakka, m.a. allar áhugaverðuμ samræðurnar. Hann var hafsjór af fróðleik og skemmtilegum frá- sögnum og fylgdist vel með öllum dægurmálum. Sérlega gaman var að hlusta á hann lýsa dvöl sinni og lífskjörum í Kaupmannahöfn og London á árunum eftir stríð en þangað tókst honum að komast, rekinn áfram af löngun til að afla sér aukinnar menntunar. Eins var frásögn hans af því er hann hóf sitt fyrsta kennslustarf. Hann þurfti að komast úr Reykjadal austur á land en sökum veðurs voru engar samgöngur. Það var ekki í hans stíl að mæta ekki á réttum tíma fyrsta daginn í vinn- una, jafnvel þótt ófært væri. Vopnaður gönguskíðunum lagði hann einn af stað yfir Öræfin. Þessi frásögn af Inga ungum sýn- ir skýrt þá eiginleika sem voru áberandi í fari hans; samvisku- semi og ábyrgðartilfinning en líka kraftur og þor til að takast á við krefjandi aðstæður. Því Ingi var ekki smeykur við að takast á við ný verkefni og verkefnin voru ávallt mörg. Það nægði honum ekki að vera kennari heldur var hann einnig bóndi á nýbýli. Það nægði honum heldur ekki að vera ferðaþjónustubóndi heldur var hann einnig stórvirkur skóg- ræktarbóndi. Fyrir nú utan öll félagsmálin. Eftir annasama og farsæla starfsævi, þegar flestir fara að setjast í helgan stein þá breytti hann um enn einu sinni, og hellti sér út í ferðaþjónustu og var einn helstu frumkvöðla á því sviði á Ís- landi á þeim tíma. Ég var með honum fyrstu tvö sumur ferða- þjónustunnar á Narfastöðum, það var gott að vinna með honum og við áttum alltaf, allt fram á síð- ustu stund, gott spjall um ferða- mál á Íslandi. Raffaele, sonur minn, var fjögurra ára þegar hann kom með mér á Narfastaði til sumardvalar en hann unni dvöl sinni þar svo vel að hvert einasta vor, er skólanum lauk hjá honum á Ítalíu, vildi hann á Narfastaði og var þar langt fram á unglings- ár við leik og síðar störf. Inga er ég þakklát fyrir þetta og jafnvel einnig fyrir það að stráksi talaði hálfgerða norðlensku sín fyrstu ár. Skólasystkinin úr Kennara- skólanum, Ingi og mamma, áttu góða tíma saman eftir að þau voru bæði orðin ekkjufólk. Þau áttu margt sameiginlegt t.d. áhugann á því að ferðast því ein- hvern veginn tókst Inga að losa mömmu við flughræðsluna. Svo vel að þau fóru m.a. til fjarlægari heimsálfa eins og Asíu, Afríku, Norður-Ameríku og víðar. Marg- oft komu þau og heimsóttu mig og ég fór með þau um allan Ítal- íuskagann og þær ferðir renna seint úr minni því skemmtilegri ferðafélagar verða vart fundnir. Atburðir dagsins voru rifjaðir upp og þá iðulega í bundnu máli. Sama var um ferðir innanlands, minnisstæðust er ferð hans með okkur um Laxárdal og Bárðardal fyrir örfáum árum, þar sem Ingi fræddi okkur um menn og mál- efni sveitanna og hafði engu gleymt. Kveðjustundin við Inga, þenn- an stórhuga, réttsýna og fé- lagssinnaða framámann, er því miður runnin upp. Við Raffaele og Ásmundur þökkum allt og sendum öllum ættingjum innileg- ar samúðarkveðjur. Guðrún Sigurðardóttir. Kær félagi og viðskiptavinur til 30 ára, Ingi á Narfastöðum, er nú fallinn frá. Samstarf okkar hefur verið farsælt og ánægju- legt frá fyrstu tíð. Á þeim tíma er við kynntumst var alls ekki sjálf- gefið að bændur hefðu hug á að hýsa erlenda ferðamenn í híbýl- um sínum. Þegar eftir því var leitað var eins og íslenski bónd- inn vildi vera sjálfstæður, sinn eiginn herra og of stoltur til að sinna þjónustustörfum. Þetta átti ekki við um Inga, hann var víð- sýnn og veraldarvanur. Hann hafði að því leyti gott veganesti í ferðabúskapinn og hafði þor og þrautseigju til að takast á við nýj- ungar. Það hefur þó á þessum tíma varla verið auðvelt fyrir fyrrverandi formann íslenskra bændasamtaka að hætta hefð- bundnum búskap og fara í ferða- þjónustu. Það var gaman að fylgjast með uppbyggingunni á Narfastöðum, Ingi og Unnur kona hans kunnu að sníða sér stakk eftir vexti. Fyrst var fjárhúsinu breytt í gistiheimili og aðeins fáein her- bergi í senn. Héldu margir hann snarruglaðan þegar hann byrjaði að rífa innan úr fjárhúsinu og þá á gamalsaldri. Þegar aðsóknin jókst var hlaðan tekin í gegn og úr urðu fullkomin hótelherbergi. Síðast var gamli bærinn í tún- jaðrinum endurbyggður. Sam- tímis þessum framkvæmdum var allt umhverfið bætt og var ætíð hið smekklegasta. Það var ekki bara nærumhverfið heima við bæ sem hann nostraði við heldur gróðursetti hann um allar trissur á landareigninni alls um það bil hálfa milljón trjáplantna. Ingi var afar stoltur af skóginum sín- um og naut ég þess oft að sitja með honum á sexhjólinu um þess- ar fögru torfærur, nú síðast þeg- ar hann var 94 ára undir stýri. Ingi og Unnur voru sérlega góðir gestgjafar, hann tók á móti hóp- unum í hlaði, spjallaði gjarnan við þá í setustofu og veifaði bros- andi til þeirra í kveðjuskyni. Við leiðsögumenn og bílstjórar sát- um oft með Inga í matsalnum í nokkurskonar kennslustund í sögu og náttúrufræði: Er brand- uglan ennþá á sínum stað, verpti lóan í heimreiðinni í sumar, kom húsöndin á Brunatjörnina? Í ár- legum skoðanakönnunum á gæðamati gististaða hjá erlend- um gestum okkar voru Narfasta- ðir iðulega í efstu sætum og eru enn, því það vill svo vel til að son- ur og tengdadóttir tóku yfir reksturinn og hefur tekist að þróa starfsemina áfram í anda Inga Tryggvasonar. Hörður Erlingsson. reistu í verki viljans merki, – vilji er allt sem þarf. Þessar ljóðlínur úr Íslands- ljóði Einars Benediktssonar koma mér í hug þegar ég sest niður til að minnast vinar míns Inga Tryggvasonar. Þótt hann hefði næstum því lifað í heila öld gekk ellinni ekkert að vinna á honum, hlaðinn vilja og kjarki og nýjum eldmóði með blik hug- sjónanna að leiðarljósi átti hann margan starfsdag og kom fleiru í verk en flestir aðrir menn sem ég þekki. „Hann bognaði ekki en brotn- aði í bylnum stóra síðast,“og nú eru þeir báðir horfnir, hann og Hafliði Jósteinsson, sem gerðu garðinn frægan í Skógarbrekku síðustu árin með söng og sögum ungmennafélagsmannanna. Það er gott að minnast Inga Tryggvasonar, hann var hlýr í viðmóti, vinfastur og trúr upp- runa sínum, frændmargur meðal Þingeyinga og sprottinn úr þeim jarðvegi hugsjóna- og samvinnu- manna sem mótuðu hið nýja Ís- land tuttugustu aldarinnar. Ingi var fyrst og fremst bóndi og kennari og hvar sem maður hitti hann var hann að miðla af þekk- ingu og reynslu lífs síns. Ingi hlaut í vöggugjöf góðar gáfur og mannkosti sem hann ávaxtaði vel og naut góðrar skólagöngu, bæði heima og erlendis, sem víkkaði sjóndeildarhring hans og kenn- aramenntunin varð honum nota- drjúg. Hann fylgdist vel með stefnu og straumum tímans, naut mikils trausts meðal samferðamanna sinna og er það einstakt hvað hann kom víða við í félagsmálum, bæði í héraði og á landsvísu, al- þingismaður kennari og skóla- stjóri, formaður Stéttarsam- bands bænda, sparisjóðsstjóri svo lítið eitt sé nefnt. Hann var frumkvöðull og brautryðjandi, brotnaði ekki undan stórum áföll- um í einkalífi sínu þegar hann missti konu sína og son á tveggja ára tímabili, þá kominn á aldur þeirra sem eru að setjast í helgan stein. Egill Skallagrímsson orti sitt sonatorrek en Ingi tók hins vegar haka og plóg sér í hönd og hóf nýja og nýstárlega sókn, flutti sig að Narfastöðum og gerðist leið- togi tveggja nýrra búgreina. Annarsvegar breytti hann fjár- húsi sonar síns í glæsihótel, lagð- prúðar ær viku fyrir prúðbúnum gestum hvaðanæva úr veröldinni. Ingi var góður gestgjafi og magnaður sögumaður og hug- sjónaeldurinn heillaði gestina og saga lands og þjóðar lá honum létt á tungu, svo ekki sé talað um þegar hann tók að lýsa fegurð landsins. Jafnframt gerðist hann skógarbóndi tók tvö hundruð hektara lands undir nytjaskóg, báðar þessar atvinnugreinar hafa reynst líf og nýtt tækifæri byggð- anna. Og það munaði um Inga sem talsmann þeirra beggja því enginn leit á það sem atvinnu að rækta skóg eða selja útlending- um gistingu fyrir þrjátíu árum síðan. Þeir sem áttu þess kost að fara um skóginn hans Inga munu seint gleyma þyt laufanna og bóndanum sem var að bæta og prýða landið og byggja upp at- vinnu og lífsstarf komandi kyn- slóða. Hann unni héraði sínu og vildi veg landbúnaðarins og landsbyggðarinnar sem mestan, hann var góður málsvari, fé- lagslyndur, umtalsgóður, prýði- legur ræðumaður, flutti mál sitt án orðalenginga og kunni þá list að hitta á kjarna málsins. Hann talaði gullaldarmál með skýrum og hreinum rómi Þingeyingsins. Hvar sem hann var í forystu eða stýrði umræðu var honum kapps- mál að hlusta á sjónarmið ann- arra og að allir væru virkir í starfinu. Sagt er að lífsgleðin gefi mönnum þúsund ráð og opni nýja vegi og einn daginn stóð Unnur Kolbeinsdóttir prúðbúin á hlaði Ingi Tryggvason

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.