Morgunblaðið - 01.09.2018, Qupperneq 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. SEPTEMBER 2018
Unnið er að gerð frumvarps að nýj-
um heildarlögum um veiðigjöld.
„Markmið mitt er að frumvarpið sem
fram kemur í haust taki á þeim ágöll-
um sem finna má í núverandi kerfi,
og þá er stærsta atriðið í rauninni
það að reyna að færa álagningu þess-
ara gjalda sem næst okkur í tíma,“
segir Kristján Þór Júlíusson sjávar-
útvegsráðherra, í samtali við 200
mílur sérblað Morgunblaðsins um
sjávarútveg.
Megum ekki drukkna
í hugmyndafræði
Í blaðinu er rætt við Lilju Rafn-
eyju Magnúsdóttur, þingmann VG
og formann atvinnuveganefndar
þingsins: „Veiðigjöldin þarf að
endurskoða með tilliti til þess að litlu
og meðalstóru fyrirtækin geti lifað
af. Við sem sitjum á Alþingi megum
ekki drukkna í útópíu eða hug-
myndafræði um hvað sé hægt að
leggja á há veiðigjöld án tillits til
ólíkrar afkomu, samfélags- og
byggðarsjónarmiða,“ segir Lilja
Rafney meðal annars.
Heiðrún Lind Marteinsdóttir,
framkvæmdastjóri Samtaka fyrir-
tækja í sjávarútvegi, segir ánægju-
legt að sjá ný skip koma inn í ís-
lenska fiskiskipaflotann og fá að
fylgjast með þeirri uppbyggingu
sem nú eigi sér stað í landvinnslu,
eins og á Dalvík og Grundarfirði. Á
sama tíma sé erfitt að horfa upp á
ónýttar aflaheimildir í tegundum á
borð við blálöngu, keilu og gulllax,
sér í lagi þegar því valdi einna helst
há veiðigjöld stjórnvalda.
Gunnþór Ingvason, framkvæmda-
stjóri Síldarvinnslunnar í Neskaup-
stað, segir í samtali við 200 mílur að
sú staðreynd sé öllum ljós að veiði-
gjöld séu orðin mjög há.
„Veiðigjöld eru orðin um 13% af
aflaverðmæti ísfisktogara, eða næst-
stærsti gjaldaliður á eftir launum.
Þegar við erum farin að horfa upp á
þrettán prósent af aflaverðmæti
hverfa í veiðigjöld þá er það ansi hátt
hlutfall. Þá er alveg sama hvort út-
gerðin er stór, meðalstór eða lítil.
Veiðigjöld þurfa að taka mið af af-
komu tegunda og vera með þeim
hætti að allir greiði sama gjald fyrir
sama fiskinn,“ segir Gunnþór.
Vilja róa á sunnudögum
Fram kemur í blaðinu að nýtt
kerfi strandveiða hafi gengið vel í
sumar. Farið verður yfir reynsluna
af þessu kerfi í haust og segir Örn
Pálsson, framkvæmdastjóri Lands-
sambands smábátaeigenda, í samtali
við Morgunblaðið, að sambandið vilji
skoða að leyft verði að róa fimm daga
í viku í stað fjögurra og sunnudögum
verði þá bætt við.
Tekið verði á göllum í gildandi kerfi
Frumvarp um veiðigjöld í smíðum Eru um 13% af aflaverðmæti ísfisktogara Nýtt fiskveiðiár
M200 mílur
Fiskistofa hefur úthlutað aflamarki fyrir fiskveiðiárið 2018/2019 sem
hefst í dag og er aukning á milli ára um 18.800 þorskígildistonn. Það
skip sem fær úthlutað mestu aflamarki er Sólberg ÓF, 12.005 þorsk-
ígildistonnum. Togarar eru nú 42 og fjölgar um þrjá eftir árvissa
fækkun undanfarin ár. Þeir eru þó 14 færri en við upphaf fiskveiðiárs-
ins 2013/2014.
Fimmtíu stærstu fyrirtækin fá úthlutað sem nemur um 86,1% af
því aflamarki sem úthlutað er og er það 1,7 prósentustigum lægri
tala en í fyrra, segir á heimasíðu Fiskistofu. HB Grandi fær mestu út-
hlutað til sinna skipa, eða 8,9% af heildinni, næst kemur Samherji
með 6,3% og þá Þorbjörn hf. með 5,5%. Þetta er sama röð og
undanfarin ár.
Mest fer til skipa með heimahöfn í Reykjavík, eða 11,7% af heild-
inni samanborið við 12,3% í fyrra, Grindavík er í öðru sæti með 11,1%
af heildinni samanborið við 10,8% á fyrra ári. Skip með heimahöfn í
Vestmannaeyjum ráða fyrir 10,8% úthlutunarinnar, en 9,9% í fyrra.
HB Grandi með hæst aflamark
SÓLBERG ÓF 1 MEÐ MESTAN KVÓTA ÍSLENSKRA FISKISKIPA
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Stefán Einar
Stefánsson hefur
verið ráðinn
fréttastjóri við-
skipta á Morgun-
blaðinu. Hann
tekur við starfinu
af Sigurði Nor-
dal, sem hefur
látið af störfum.
Stefán hefur
starfað á
Morgunblaðinu frá ársbyrjun 2015
og hefur verið aðstoðarfréttastjóri
viðskipta frá 2016.
Stefán var formaður VR og
Landssambands íslenskra versl-
unarmanna á árunum 2011-2013.
Hann hefur auk þess sinnt kennslu
við Háskólann í Reykjavík, Háskóla
Íslands og Opna háskólann. Stefán
er með meistaragráðu í viðskiptasið-
fræði frá Háskóla Íslands og
cand.theol.-próf frá sama skóla.
Stefán Einar
Stefánsson
Ráðinn
fréttastjóri
viðskipta
Mjólkurvörur sem sæta opinberri
verðlagningu verðlagsnefndar bú-
vara hækka í verði í dag um ná-
lægt 5%. Mjólkurlítrinn hækkar
um 6 krónur, í 132 krónur sem er
4,8% hækkun. Smásöluverð er
frjálst þannig að endanlegt verð út
úr búð getur breyst meira eða
minna. Heildsöluverð á undan-
rennu, rjóma og osti hækkar um
nálægt 5% en smjör hækkar
meira, eða um 15%.
Grundvöllur verðlagningarinnar
er hækkun mjólkurverðs til bænda
og hækkun vinnslukostnaðar
mjólkursamlaga. Lágmarksverð á
mjólkurlítra sem afurðastöðvar
eiga að greiða kúabændum hækk-
ar um rúmar 3 krónur, í 90,48
krónur sem er 3,5% hækkun.
Margrét Gísladóttir, fram-
kvæmdastjóri Landssambands
kúabænda, vekur athygli á því að
verð mjólkurvara hafi ekki breyst
í 20 mánuði. Hækkunin nú sé til að
standa undir auknum kostnaði við
búreksturinn, meðal annars vegna
launahækkana annars staðar í
samfélaginu. Þá hafi verð fyrir
nautgripakjöt lækkað.
helgi@mbl.is
Mjólkurlítr-
inn hækkar
um 6 krónur
Hækka vegna auk-
ins kostnaðar kúabúa
Menningar- og fjölskylduhátíðin Ljósanótt er nú í full-
um gangi, en hátíðin var formlega sett á fimmtudag-
inn. Í gær gæddu þessir lögregluþjónar sér á kjötsúpu
Skólamatar sem var á sínum stað við Smábátahöfnina.
Gestir hátíðarinnar létu ekki veðrið á sig fá, en blautt
var á svæðinu líkt og annars staðar á landinu. Um
kvöldið hélt stuðið áfram á Heimatónleikum í gamla
bænum og lauk dagskrá með Bryggjuballi við höfnina.
Víkurfréttir/Hilmar Bragi
Kjötsúpan hélt hita á gestum Ljósanætur
Ljósanótt í Reykjanesbæ
Nína Guðrún Geirsdóttir
ninag@mbl.is
Ljósmæður boðuðu til félagsfundar
síðdegis í gær þar sem úrskurður
gerðardóms í kjaradeilu við ríkið var
kynntur. Að sögn Katrínar Sifjar
Sigurgeirsdóttur, formanns samn-
inganefndar ljósmæðra, var mikill
hiti í viðstöddum, en fundurinn var
einnig aðgengilegur eftir rafrænum
leiðum svo að ljósmæður um land
allt gætu tekið þátt. „Maður fann
bara fyrir mikilli reiði og sköpuðust
þarna miklar umræður sem lituðust
af vonbrigðum. Fyrstu viðbrögð eru
reiði, þar sem ljósmæður bundu
miklar vonir við
að nú væri komið
að því að við sæj-
um réttláta með-
ferð af hálfu
ríkisins, en upp-
lifunin er önnur.“
Að sögn Katr-
ínar vakti m.a.
mikla furðu með-
al ljósmæðra að
dómurinn kvæði
á um að ljósmæðranemar fengju
laun. „Það kom okkur á óvart að
nemalaunin skyldu vera tekin inn í
þetta, þetta er gríðarlega ánægju-
legt og nokkuð sem hefði aldrei átt
að vera tekið af á sínum tíma, en
okkur fannst þetta ekki eiga heima
þarna, þar sem þetta hefur ekki ver-
ið til umræðu í þessari kjarabaráttu
og nemar eru ekki einu sinni fé-
lagsmenn í ljósmæðrafélaginu.“
Að sögn Katrínar eru næstu skref
að undirbúa næstu lotu, en núver-
andi samningur gildir út apríl og
verða ljósmæður þá samningslausar
aftur. „Þetta er sem betur fer
skammtímasamningur enda lítið
innihald í honum. Maður trúði ekki
öðru en að gerðardómurinn yrði
sanngjarn í sínum úrskurði en þar
sem hann virðir kröfu okkar að vett-
ugi erum við ekki að fara í jafn ró-
lega og hógværa samningagerð og
við áttum von á. Það verður því að
vera meiri harka og við þurfum að
beita öllum leiðum sem við mögu-
lega getum til að halda lífi í stéttinni
og halda þeim sem eftir eru, það
verður verðugt verkefni. Ég hef
hreinlega áhyggjur af þróun stétt-
arinnar.“
Katrín Sif segir mikinn fólksflótta
hafa átt sér stað í stéttinni á undan-
förnum mánuðum sem sjái ekki fyrir
endann á. „Það er verið að bjóða
ljósmæðrum mjög vel í öðrum lönd-
um og við fáum reglulega gylliboð
frá t.d. Bretlandi og Svíþjóð þar sem
vantar mikið ljósmæður.“
Boða hörku í næstu lotu
Niðurstöður gerðardóms voru kynntar fyrir ljósmæðrum á félagsfundi í gær
Ermar uppbrettar fyrir næstu lotu Hefur áhyggjur af framtíð stéttarinnar
Katrín Sif
Sigurgeirsdóttir
Erlend kona drukknaði í Stein-
holtsá við Þórsmörk í gær. Tilkynnt
var um bíl í ánni um miðjan dag í
gær. Erlend hjón voru í bílnum og
höfðu þau gert tilraun til að þvera
ána en bíllinn setið fastur. Töluvert
var af vatni í ánni. Náði maðurinn
að koma sér úr bílnum og á þurrt
en konan féll í ána. Var maðurinn
blautur og kaldur þegar björgunar-
sveitin kom á staðinn. Hjónin voru í
kjölfarið flutt á slysadeild með
þyrlu Landhelgisgæslunnar og var
konan úrskurðuð látin þegar komið
var á Landspítalann. Málið er til
rannsóknar hjá lögreglunni á
Suðurlandi.
Kona drukknaði
í Steinholtsá
Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu
barst tilkynning um alvarlega
líkamsárás um kvöldmatarleytið í
gær við verslun Krónunnar í
Grafarholti. Er lögreglu bar að
kom í ljós að ráðist hafði verið á
karlmann og hann stunginn. Var
maðurinn fluttur á slysadeild en
hann er ekki talinn í lífshættu. Þrír
menn á tvítugs- og fertugsaldri
voru handteknir vegna málsins og
biðu þeir yfirheyrslu í gærkvöld. Er
málið til rannsóknar hjá lögreglu.
Maður stunginn
í Grafarholti