Morgunblaðið - 01.09.2018, Page 21

Morgunblaðið - 01.09.2018, Page 21
FRÉTTIR 21Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. SEPTEMBER 2018 Fyrstu fjárréttir haustsins verða í dag. Fjöldi smærri rétta er um helgina en einnig þekktar réttir eins og Hlíðarrétt og Baldurs- heimsrétt í Mývatnssveit sem báðar verða á morgun, sunnudag. Aðalréttahelgin verður þó eftir viku. Þannig verður réttað víða á Vestur- og Norðurlandi dagana 8. og 9. september, eins og sést á réttalista sem birtur er á vef Bændablaðsins, bbl.is. Tungnaréttir í Árnessýslu verða 8. september en Hrunaréttir, Reykjaréttir og Skaftholtsréttir viku síðar; föstudaginn 14. og laug- ardaginn 15. september. Helstu réttirnar í nágrenni höfuðborgarsvæðisins verða 15. og 16. september. Flestar stóðréttir eru undir lok september eða í byrjun október. Sú þekktasta, Laufskálarétt í Hjaltadal í Skagafirði, verður laugardaginn 29. september með tilheyrandi sýn- ingum og skemmtunum í héraði. Ekki rekið of hratt Matvælastofnun hefur sent frá sér tilkynningu þar sem bændur eru beðnir að huga að velferð dýr- anna þegar farið er í smala- mennskur á afréttum og sundur- drátt í réttum. Nefnt er að þannig skuli standa að smölun að féð hlaupi sig ekki uppgefið. Einkum þurfi að huga að því þegar notuð eru vélknúin farartæki sem aldrei þreytast og eru hraðskreiðari en hestar og kindur. Sérstaklega er vakin athygli á þeim mikla atgangi sem stundum verður þegar kindurnar eru reknar inn í almenning í réttum og þær dregnar í dilka. Mikilvægt sé að fullorðna fólkið sé þeim yngri til fyrirmyndar, fari vel að fénu og geri börnum grein fyrir því að kind- urnar eru ekki reiðskjótar. helgi@mbl.is Bændur hefja sundurdrátt fjár í fyrstu réttum haustsins  Mast biður bændur og búalið að huga að velferð fjárins Morgunblaðið/Eggert Straumur Fyrstu smalamennskur eru afstaðnar og réttað verður á nokkr- um stöðum í dag. Réttadagurinn er einn helsti hátíðisdagur sveitanna. Ljósmynd/Linda Björk Árnadóttir Stærsti stuðarinn Öryggi starfsmanna Vegagerðarinnar og vegfarenda hefur aukist til muna eftir að þessi öfluga varnarbifreið var tekin í notkun. Stærsti stuðarinn hefur reynst vel við vegagerð Þjónustustöð Vegagerðarinnar í Hafnarfirði tók í sumar í notkun öryggispúðabíl sem kallaður hefur verið stærsti stuðari á Íslandi. Bíllinn hefur verið notaður við stórframkvæmdir í sumar, til dæmis á Hellisheiði, þar sem um- fangsmiklar malbikunarfram- kvæmdir hafa staðið yfir. „Það hefur ekki verið keyrt á bílinn og við vonum að sjálfsögðu að svo verði ekki,“ segir G. Pétur Matthíasson, upplýsingafulltrúi Vegagerðarinnar. Að sögn G. Péturs finna starfs- menn sem eru að vinna út á veg- unum mikinn mun að hafa bílinn til varnar. „Bæði það að það fylgir því öryggistilfinning að hafa púðann til varnar og svo líka það að vera með þessi sterku, skæru og stóru ljós og ljósaör sem er aftan á bíln- um, sem vísar vegfarendum til hliðar.“ Ljósin virka þannig að umferðin hægir meira á sér þegar þessi bíll er úti heldur en að það séu bara vinnusvæðamerki út í vegkanti. Bílinn er gerður fyrir vegi þar sem hámarkshraði er 90 km og svo er Vegagerðin með tvo aðra púða- bíla sem eru fyrir minni hraða, eða 60 km. Þeir eru einnig notaðir á fáfarnari vegum. sisi@mbl.is HEKLA Höldur frábæru verði. Þannig er ŠKODA. Komdu og prófaðu þá nýjustu frá ŠKODA. Hlökkum til að sjá þig! Nú er tækifærið til að fá sér nýjan bíl frá ŠKODA á einstöku verði. Þegar styttist í veturinn er gott að vera á öruggum og öflugum bíl sem er sparneytinn, tæknilega vel útbúinn og á Besta Škodaverðið 3.750.000 kr. Škoda Octavia Limo Ambition / 1.6 TDI / Dísil / Sjálfskiptur Listaverð: 4.090.000 kr. 340.000 kr. Afsláttur · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ · BVA Egilsstöðum ŠKODA uppfyllir allar þínar óskir. Besta Škodaverðið 4.580.000 kr. Škoda Superb Limo Ambition / 2.0 TDI / Dísil / Sjálfskiptur Listaverð: 5.060.000 kr. 480.000 kr. Afsláttur 5 ár a áb yr gð fy lg ir fó lk sb ílu m H E K LU að up pf yl ltu m ák væ ðu m áb yr gð ar sk ilm ál a. Þ á er að fin na á w w w .h ek la .is /a by rg d

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.