Morgunblaðið - 01.09.2018, Blaðsíða 24
24 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. SEPTEMBER 2018
Washington. Ottawa. AFP | Ekki
tókst að ná samkomulagi á milli
Bandaríkjanna og Kanada í viðræð-
um ríkjanna um breytingar á frí-
verslunarsamningi Norður-Amer-
íku, öðru nafni NAFTA. Stóðu
viðræður yfir mestallan daginn þar
til slitnaði upp úr þeim um kvöldið.
Justin Trudeau, forsætisráðherra
Kanada, hafði verið bjartsýnn á að
hægt yrði að landa góðri niðurstöðu í
viðræðunum, en hann tók þó fram að
Kanadamenn hefðu sett fram sín
„rauðu strik“ sem yrði að virða.
Bandaríkjamenn og Mexíkóar
sömdu fyrr í vikunni um breytingar
á samkomulaginu en Donald Trump
Bandaríkjaforseti hefur verið mjög
áfram um að því verði breytt.
Tímamörkin í gær voru gefin þar
sem Bandaríkjaþing þarf 90 daga til
þess að staðfesta samkomulagið við
Mexíkó en mexíkósk stjórnvöld vilja
að það verði gengið í gildi fyrir 1.
desember næstkomandi en þann dag
tekur ný ríkisstjórn við völdum.
Trudeau tók fram að fyrir sér væri
„ekkert NAFTA-samkomulag betra
en slæmt samkomulag“, en ljóst var
að aðila greindi einkum á um kan-
adíska tolla á mjólkurvörur. Viðræð-
unum verður haldið áfram í næstu
viku. Trump hefur afhent Banda-
ríkjaþingi tilkynningu um að hann
hyggist undirrita breytta útgáfu af
fríverslunarsamningnum við Mexíkó
fyrir lok nóvember.
Bæði Trump og Andrés Manuel
López Obrador, verðandi forseti
Mexíkó, höfðu verið bjartsýnir á að
samkomulag myndi nást milli
Bandaríkjanna og Kanada. Chrystia
Freeland, utanríkisráðherra Kan-
ada, sagði að samningur sem geðj-
aðist öllum þremur ríkjunum væri
„innan seilingar“ en til að ná honum
fram þyrftu ríkin að vera sveigjanleg
í samningaviðræðunum.
Flosnar upp úr viðræðum
Bandaríkjunum og Kanada mistókst að ná samkomulagi um NAFTA í gær
AFP
NAFTA Jared Kushner, ráðgjafi
Trumps, mætir til viðræðnanna.
Þessir bleiku kádiljákar settu svip sinn á útför sálar-
söngkonunnar Arethu Franklin, sem fram fór í gær í
Detroit. Múgur og margmenni sótti jarðarförina og
voru þar margir af þekktustu tónlistarmönnum heims-
ins, auk ýmissa fyrirmenna. Útförin stóð í um sex
klukkutíma og fluttu Stevie Wonder, Ariana Grande og
Jennifer Hudson tónlistaratriði meðal annarra. Þá
fluttu Bill Clinton og Smokey Robinson eftirmæli.
AFP
Aretha Franklin var borin til hinstu hvílu í gær
Margt stórstirnið vottaði virðingu sína
Sádi-arabískur
embættismaður
gaf í skyn í gær
að ríkisstjórn
hans væri að
undirbúa gerð
skurðar til að
skilja nágranna-
ríkið Katar frá
meginlandi
Arabíuskaga.
„Ég bíð í of-
væni eftir upp-
lýsingum um
framkvæmd Salwaeyjuverkefnis-
ins, mikils og sögulegs verkefnis
sem mun breyta landslagi svæðis-
ins,“ sagði Saud al Qahtani, ráð-
gjafi krónprinsins Mohammeds bin
Salman, á Twitter. Kalt er á milli
stjórna Katar og Sádi-Arabíu. Sád-
ar rufu stjórnarsamband við Katar
í júní í fyrra og hafa sakað Katara
um að styðja hryðjuverkamenn.
Fimm fyrirtækjum hefur verið boð-
ið að að taka verkefnið að sér. Valið
verður tilkynnt í september.
Hyggjast breyta
Katar í eyju
Eyja? Gervihnatt-
armynd af Katar.
KATAR, SÁDI-ARABÍA
Ríkisstjórn Dani-
els Ortega, for-
seta Níkaragva,
vísaði í gær
sendinefnd Sam-
einuðu þjóðanna,
sem ætlað var að
fylgjast með
mannréttinda-
málum í landinu,
úr landi.
Ákvörðun ríkisstjórnarinnar var
tekin í kjölfar þess að Sameinuðu
þjóðirnar gagnrýndu ríkisstjórnina
vegna þess hvernig hún hefði brotið
á bak aftur mótmæli gegn sér með
valdi. Meira en 300 manns hafa lát-
ist í kjölfar mótmæla í landinu á síð-
ustu mánuðum.
Gagnrýndu Sameinuðu þjóðirnar
einnig hvernig lögreglan hefði
komið fram, en hún var sökuð um
mannrán, fangelsanir án réttar-
heimilda og pyndingar. Ortega
sagði á móti að SÞ væru „tæki
hryðjuverka og lyga“.
Ortega vísar sendi-
nefnd SÞ úr landi
Daniel Ortega
NÍKARAGVA
Michel Barnier, aðalsamningamaður
Evrópusambandsins í viðræðunum
um útgöngu Breta úr sambandinu,
varaði við því í gær að þrætan um
landamæri Írlands og Norður-
Írlands gæti enn orðið til þess að
koma í veg fyrir að samkomulag
næðist.
Sagði Barnier brýna þörf á því að
finna lausn svo að landamærin
myndu ekki lokast eftir að Bretar
ganga úr sambandinu í maí á næsta
ári, en hann lét ummæli sín falla eftir
að hafa fundað í Brussel með Dom-
inic Raab, ráðherra Brexit-mála.
Fagnaði Barnier þar þeim árangri
sem hefði náðst í öryggis- og varnar-
málum á síðustu vikum en sagði jafn-
framt að enn væru erfið viðfangsefni
sem ætti eftir að ná sáttum um.
Tillaga Evrópusambandsins felur
í sér að Norður-Írland verði „til
þrautavara“ áfram hluti af Evrópu-
sambandinu, náist ekki samkomulag
um annað, en markmið þess er að
halda landamærunum opnum. Opin
landamæri á milli Írlands og
Norður-Írlands voru á sínum tíma
mikilvægur þáttur í friðarferlinu í
deilunum á milli lýðveldissinna og
sambandssinna á Norður-Írlandi.
Bretar hafa hins vegar lagt til að
þrautavarinn verði frekar sá að allt
landið verði „talið til“ Evrópusam-
bandsins á vissum sviðum fram til
ársloka 2021, þar sem óttast er að til-
laga Evrópusambandsins myndi ein-
ungis slíta N-Írland frá hinum lönd-
unum í Stóra-Bretlandi. Sagði Raab
eftir fund sinn við Barnier að hann
væri enn „þrjóskur og bjartsýnn“ á
að samkomulag næðist í tæka tíð fyr-
ir útgönguna á næsta ári.
Írsku landamærin
Þrándur í Götu
ESB segir
Brexit-samkomu-
lag í hættu
AFP
Brexit Vel fór á með þeim Raab og
Barnier eftir fundinn í gær.
Evrópusambandið hyggst leggja til
að aðildarríkin hætti þeim sið að
breyta klukkunni tvisvar á ári.
Ákvörðunin kemur í kjölfar þess að
um 84% þeirra sem tóku þátt í net-
könnun á vegum sambandsins sögð-
ust andvígir breytingunum. Um 4,6
milljónir manna svöruðu könnun-
inni.
Samkvæmt framkvæmdastjórn
Evrópusambandsins leiddi könnunin
í ljós að mikill meirihluti þeirra sem
svöruðu henni liti á klukkubreyting-
arnar sem óþægindi sem yllu svefn-
og heilsufarsvandamálum, auk þess
sem þær ykju líkurnar á umferðar-
slysum.
Violeta Bulc, yfirmaður sam-
göngumála í framkvæmdastjórninni,
sagði fjölmiðlum í gær að breytingin
gæti tekið gildi annaðhvort árið 2020
eða 2021. Angela Merkel Þýska-
landskanslari sagði að þetta yrði for-
gangsmál hjá sér, en könnunin leiddi
í ljós mikinn stuðning Þjóðverja við
að afnema breytingarnar á klukk-
unni.
Munu hætta
að breyta
klukkunni
ESB fylgir niður-
stöðu könnunar
Hlíðasmára 11 · 201 Kópavogur · Sími 534 9600 · heyrn.is
GÓÐ HEYRN
GLÆÐIR SAMSKIPTI!
Með þeim heyrist talmál sérstaklega vel
vegna þess að þau þekkja tal betur
en önnur tæki.
Tæknin sem
þekkir tal
Nýju ReSound LiNX 3D
eru framúrskarandi heyrnartæki
ReSound LiNX3