Morgunblaðið - 01.09.2018, Blaðsíða 30
30 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. SEPTEMBER 2018
Nú þegar sumri
hallar og verið er að
malbika yfir verstu
vegarskemmdir
vetrarins er gott til
þess að vita að það
styttist í að ný sam-
gönguáætlun stjórn-
valda líti dagsins ljós.
Í þeirri áætlun
munu birtast fyrir-
ætlanir samgöngu-
ráðherra um að uppfæra vegakerf-
ið að þeirri umferð sem um það
fer, en eins og allir vita hefur ver-
ið misbrestur á því mörg síðustu
ár.
Það er eins og að bera í bakka-
fullan lækinn að benda á þá brýnu
þörf sem við blasir um nauðsyn á
endurbótum á vegakerfi landsins.
Allt of víða má sjá holur, sprungur
og lægðir á þjóðvegunum, örmjóa
vegi, einbreiðar brýr og slæma
vegarkafla. Umferðarþunginn
eykst ár frá ári svo talið er í tug-
um prósenta og margir vegir sem
voru fáfarnir fyrir fáum árum eru
það ekki lengur.
Ekki þarf heldur að minna á að
samsetning vegfarenda hefur tekið
verulegum breytingum. Nú er
varla unnt að aka bæjarleið án
þess að þurfa að nauðhemla
nokkrum sinnum þar sem einhver
erlendur ferðalangurinn hefur
stöðvað bifreið sína úti í kanti og
að sjálfsögðu svolítið inn á þröng-
um veginum og er að
dást að íslenska hest-
inum, nú eða bara
náttúrunni, sem við
kannski aldrei tókum
eftir.
Allt of langt mál er
að telja upp alla þá
vegarkafla sem nauð-
synlegt er að laga án
tafar, gera tvíbreiða
eða endurnýja. Áætl-
að hefur verið að það
kosti tugi milljarða að
ráðast í brýnustu
vegaframkvæmdir á þeim þremur
leiðum sem liggja út úr höfuð-
borginni.
Þessari uppsöfnuðu þörf fyrir
aðgerðir í vegamálum þjóðarinnar
hefur ekki verið mætt. Þó lagðir
séu rúmir fimm milljarðar ári í
þrjú ár til að kítta í stærstu holur
vegakerfisins dugir það skammt
þegar við blasir að milljarðatuga
framkvæmdir eru ekki aðeins
brýnar, heldur bráðnauðsynlegar.
Það er auðvitað sjálfsagt að bú-
ast við því af þjóð sem lifir nú orð-
ið að stórum hluta á ferðalögum
ferðamanna um landið, að í nýrri
samgönguáætlun munum við sjá
fyrirætlanir um að kippa þessu
ófremdarástandi í liðinn. Þar verð-
ur að vera áætlun um að gera tví-
breiða vegi út úr höfuðborginni til
flugstöðvarinnar, á Selfoss og í
Borgarnes.
En þá er ekki allt upp talið, því
nauðsynlegt er að ganga strax í að
byggja nýja brú yfir Ölfusá norð-
an við Selfoss. Núverandi ástand
veldur ekki bara daglegum töfum
við gömlu brúna, heldur skerðir
öryggi íbúa verulega, þar sem lög-
regla og hjálparlið kemst ekki
hindrunarlaust leiðar sinnar á
mestu álagstímum.
Ljónið á veginum er kostnaður-
inn og þar koma ýmis efni til
skoðunar. Bent hefur verið á að
nýta þær álögur á bifreiðaeig-
endur sem hafa árum saman
gengið til annarra hluta en til end-
urbóta á vegakerfinu. Veggjöld
voru mikið í umræðunni fyrir
réttu ári síðan en var stungið ofan
í skúffu sem sumir segja að nauð-
synlegt sé að opna að nýju.
Hvernig sem þessu verður hátt-
að er ekki í boði að gera ekki
neitt, eins og segir í auglýsing-
unni. Vegfarendur vænta þess að
vegakerfið verði uppfært til nú-
tímans.
Samgöngubætur
og ný Ölfusárbrú
Eftir Karl Gauta
Hjaltason »Hvernig sem þessu
verður háttað er
ekki í boði að gera ekki
neitt. Vegfarendur
vænta þess að vega-
kerfið verði uppfært
til nútímans.
Karl Gauti Hjaltason
Höfundur er þingmaður
Flokks fólksins.
kgauti@althingi.is
Það er eins og sumum finnist það
gáfumerki að agnúast út í þjóð-
sönginn, eins og hann hafi gert
þjóðinni eitthvað illt.
Sr. Matthías var innblásið skáld
og þessi lofsöngur er bæði hátíðleg-
ur og upphafinn og hreyfir við fólki
í gleði og sorg.
Hvað er hægt að biðja um
meira? Að lagið sé erfitt gerir ekk-
ert til. Við höfum góða kóra til að
flytja hann af kunnáttu og list.
Áheyrendur geta svo tekið undir
ef þeir passa sig á að hafa ekki of
hátt.
Þjóðsöngvar nágrannalanda okk-
ar eru ekki allir stórbrotnir, mest
land- og náttúrulýsingar og lof-
gjörðir til „besta lands í heimi“, en
lögin svona allt í lagi.
Okkar lag er stórbrotið og vold-
ugt, en það er þjóðsöngur Rúss-
lands líka, sem ég hlustaði dolfall-
inn á kl. 12 á miðnætti, þær nætur
sem ég dvaldi á Hótel National í
Moskvu 1965, en þá voru reyndar
Sovétríkin enn við lýði, en þeir
voru ekkert að skipta um lag þegar
þeir hoppuðu yfir í gamla Rúss-
land. Tryggari en þeir Íslendingar
sem henda vilja þjóðsöngnum fyrir
eitthvað annað.
Sunnlendingur.
Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12 velvakandi@mbl.is
Þjóðsöngurinn enn og aftur
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Sími 555 2992 og 698 7999
Hátt hlutfall Omega 3 fitusýra
Gott fyrir:
• Maga- og þarmastarfsemi
• Hjarta og æðar
• Ónæmiskerfið
• Kolesterol
• Liðina
Læknar mæla með selaolíunni
Selaolían fæst í: Apótekum, Þín verslun Seljabraut, heilsuhúsum, Fjarðarkaupum, Fiskbúðinni Trönuhrauni, Hafrúnu og Melabúð
Óblönduð
– meiri virkni Selaolía
Ég heyrði fyrst um Selaolíuna í gegnum kunningja minn en
konan hans hafði lengi glímt við það sama og ég, - stirðleika
í öllum liðum og tilheyrandi verki. Reynsla hennar var það góð
að ég ákvað að prufa. Fyrstu tvo mánuðina fann ég litlar
breytingar, en eftir þrjá mánuði var ég farin að geta gengið
niður stiga á vinnustað mínum sem ég hafði ekki getað
áður. Ein góð „aukaverkun“ fylgdi í kjölfarið, ég var
með frekar þurra húð um allan líkamann, en eftir
að ég fór að nota Selaolíuna hvarf sá þurrkur og
húð mín varð silkimjúk. Ég hef nú notað
Selaolíuna í eitt og hálft ár og þakka henni
bætta líðan og heilsu.
Guðfinna Sigurgeirsdóttir.
„Eftir þrjá mánuði var ég farin að geta gengið niður stiga
á vinnustað mínum sem ég hafði ekki getað áður.“
H
a
u
ku
r
0
1
.1
6
Viðskiptatækifæri á www.kontakt.is
• Rótgróið iðnfyrtæki sem sérhæfir sig í framleiðslu á vörum úr plasti.
Ársvelta á bilinu 250-300 mkr.
• Ein þekktasta hárvöruheildverslun landsins með mjög þekkt merki
fyrir fagaðila. Góð velta og afkoma.
• Fyrirtæki sem sérhæfir sig í greiðslulausnum á afmörkuðu en þekktu
sviði leitar eftir auknu hlutafé. Spennandi fjárfestingakostur með
miklum möguleikum á arðsemi, gangi áætlanir eftir.
• Mjög gott fyrirtæki sem sérhæfir sig í lagningu á þakdúk sem það
flytur sjálft inn. Veltan á bilinu 150-200 mkr. og afkoman mjög góð.
Eigendur tilbúnir að vinna áfram eins og þörf krefur.
• Bakarí með nokkra útsölustaði á höfuðborgarsvæðinu. Gefur ýmsa
möguleika til þróunar.
• Þekkt herrafataverslun með góð merki. Veltan hefur verið stöðug
undanfarin ár og afkoma ágæt. Veltan árið 2017 var um 90 mkr. og
EBITDA mjög góð eða um 20 mkr. Félagið er skuldlétt.
• Spennandi hótelverkefni á góðum stað í Reykjavík.
• Skypark, trampólíngarðurinn var opnaður á síðasta ári og hefur
fengið góðar viðtökur. Hann er um 900 fermetrar að stærð í
leiguhúsnæði, vel hannaður og flottur á allan hátt. Mikil tækifæri
felast í að taka til í rekstri og markaðssetja betur.
• Einn vinsælasti og þekktasti veitingastaður landsins sem staðsettur er
í miðbæ Reykjavíkur. Mikill og vaxandi hagnaður. Langur
leigusamningur.
Guðni Halldórsson
lögfræðingur,
gudni@kontakt.is
Þórarinn Arnar Sævarsson
fasteignaráðgjafi,
thorarinn@kontakt.is
Gunnar Svavarsson
viðskiptafræðingur,
gunnar@kontakt.is
Brynhildur Bergþórsdóttir
rekstrarhagfræðingur,
brynhildur@kontakt.is
Sigurður A. Þóroddsson
hæstaréttarlögmaður,
sigurdur@kontakt.is
Atvinna