Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.09.2018, Page 8
Hvorki datt né draup af þessum gæðingi þegar Ragnar Axelsson ljósmyndari átti leið um
Árbæjarhjáleigu fyrir skemmstu. Hann virkar saddur og sæll að sjá enda engu líkara en
hann gangi hér út úr heyrúllunni á túninu. Íslenski hesturinn er víðkunnur töffari. Hann
státar af jafnaðargeði og vingjarnlegu eðlisfari og fyrir það hefur hann aflað sér aðdáunar
og vinsælda. Einnig er hermt að hann sé sterkari á taugum en mörg stærri hestakyn en á
móti kemur að hann getur verið þrjóskari og óþekkari en aðrar tegundir, enda ræktaður
með það í huga að selflytja fólk sem kann ekki á hesta og verður því að vita sjálfur betur en
knapinn hvað rétt sé og hvert ferðinni sé heitið, ef marka má frjálsa alfræðiritið Wikipediu.
RAX
VETTVANGUR
8 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16.9. 2018
Það er stundum undarlegt að vinna á fjölmiðlum.Maður getur verið algjörlega sannfærður um aðfrétt sem maður skrifar skipti svo miklu máli að
enginn gangi ósnortinn frá lestri eða standi óbreyttur
maður upp úr sófanum eftir að hafa séð hana. Hún sé
svo mikilvæg og merkileg að enginn megi láta hana
framhjá sér fara. Hún ætti að vera efst á listanum yfir
mest lesnu fréttirnar.
Staðreyndin er hins vegar sú að jafnvel bestu fréttir
tapa alltaf fyrir Kardashian-fjölskyldunni. Það er ná-
kvæmlega sama hvað hún er að gera. Hver myndi ekki
smella á fréttina: „Kim Kardashian málar barna-
herbergi gult.“ Jafnvel þótt ekki sé, með góðu móti,
hægt að hugsa sér nokkurn hlut jafn óáhugaverðan og
að mála herbergi. „Khloe setur saman Hemnes-
kommóðu“ virkar meira að segja spennandi. Og trúið
mér: Það er ekkert spennandi við að setja saman
Hemnes-kommóðu.
Annað sem alltaf má sjá efst á listum yfir mest
lesnu fréttir er framhjáhald, ný pör, pör sem eru ekki
lengur pör og íbúðir fræga fólksins. Það þarf jafnvel
ekki að vera frægt: „Sigrún úr Ástarfleyinu selur fal-
legu kjallaraíbúðina sína“ er nokkuð örugglega að fara
að vera með mest lesnu fréttum dagsins. Jafnvel þótt
enginn viti hver þessi Sigrún er og við höfum öll eytt
síðustu árum í að reyna að gleyma Ástarfleyinu.
Blaðamönnum hættir til að taka þessu illa. Verða
pínu fúlir yfir því að fólk hafi ekki áhuga á alvöru-
fréttum. Gera jafnvel lítið úr lesendum og muldra eitt-
hvað um perlur fyrir svín. Af hverju er þetta fólk ekki
að hella sér yfir fimm síðna grein um mögulega virkj-
anakosti á Suðurlandi eða áhrif þriðja orkupakkans á
fullveldið og stöðu Íslands innan EES?
Blaðamönnum hættir nefnilega stundum til að elta
fréttir sem hafa ekki mikla tengingu við fólk. Fólki er
jafnvel alveg sama um það sem blaðamenn kalla skúbb
og setja á forsíðuna. Það eru í alvöru fínar fréttir en
það er bara eins og fólk tengi ekki við þær.
Einu sinni tók ég viðtal við konu sem var að gefa út
tímarit með aukablaði sem var dauðanum leiðinlegra.
Hún sagði að það skipti ekki máli hve margir læsu
þetta heldur að elítan læsi þetta. (Þetta var löngu áður
en elítan fór úr tísku.) Mér fannst það frekar glatað
viðmið og finnst það enn. Fjölmiðlar eru ekkert án les-
enda og áhorfenda.
En það getur verið frekar erfitt að horfast í augu
við það að við erum ekki öll eins. Og reyndar, þegar
maður hugsar út í það, þá eru fleiri sem eru ekki eins.
Fólk vill fá eitthvað sem því finnst forvitnilegt og
spennandi. Eða jafnvel eitthvað sem hefur áhrif á líf
þess. Í ljósi þess að við erum fæst að fara að virkja á
Suðurlandi og erum lítið að skipta okkur af innri mál-
um Evrópusambandsins
er alveg hægt að búast
við að við hlaupum ekki
út á náttfötunum fyrir
svoleiðis fréttir.
Kannski vill fólk bara
hafa gaman og nennir
ekki endalaust að hafa
áhyggjur af fjármálum, stjórnsýslu, pólitík og utanrík-
ismálum. Vill bara smella á spennandi fyrirsagnir.
Enda kemur þetta mér ekkert á óvart. Ástkær eigin-
kona mín virðist til dæmis helst nota netið til að skoða
myndir af kettlingum. Og hún er sko enginn vitleys-
ingur.
Getur verið, í ljósi þess hvernig listar yfir mest
lesnu fréttir líta út, að við séum eitthvað að misskilja
þetta? Getur kannski verið að fólk fái stundum nóg af
fréttum og vilji leita í eitthvað annað? Og er það ekki
bara í fínasta lagi?
Khloe setur saman Hemnes-kommóðu
’Annað sem alltaf má sjáefst á listum yfir mest lesnufréttir er framhjáhald, ný pör,pör sem eru ekki lengur pör og
íbúðir fræga fólksins.
Á meðan ég man
Logi Bergmann
logi@mbl.is