Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.09.2018, Side 14

Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.09.2018, Side 14
Spurður hvernig þetta hafi komið til kveðst Þröstur hafa kynnst Klaus Ortlieb og boðið honum í mat. Hótelstjóranum þýska líkaði svo vel að hann kom aftur. Og aft- ur. „Raunar fannst honum mat- urinn minn svo góður að hann hvatti mig til að opna veitingastað. Það þótti mér heldur róttæk hug- mynd en þegar kokkurinn hérna á Hlemmur Square fór í frí í sumar bauð Klaus mér að leysa hann af í tvær vikur. Ég ákvað að slá til og það gekk bara ágætlega. Alla vega er ég kominn hingað aftur.“ Þröstur segir erfitt að áætla hversu margir koma í mat á hverju kvöldi. Það geti verið tveir og það geti verið 32. „Maður reynir að vera með nóg hráefni en það má heldur ekki vera of mikið því gangi það ekki út fer það að miklu leyti í súg- inn; alla vega fiskurinn. Hann þarf að vera ferskur. Ég hef lent í því að eiga ekki nóg og það var ekki góð tilfinning. Eitt kvöldið var ég með hráefni í tvo fiskrétti en þá kom pöntun fyrir fimm. Góð ráð voru dýr og fyrst fólkið var búið að panta vildi ég ekki fara fram og afsaka mig. Niðurstaðan var sú að ég minnkaði bara fiskskammtinn og jók við meðlætið. Og enginn kvart- aði.“ Raunar hefur Þröstur aðeins einu sinni fengið kvörtun og hún sneri ekki að matnum sem slíkum, heldur hafði diskurinn rekist í gluggatjald á leiðinni fram í sal og eilítið ryk sest á hann. „Það bjargaðist allt saman.“ Vanur að vinna hratt Engin tvö kvöld eru eins í eldhús- inu, allt eftir álaginu. „Sum kvöld eru bara róleg en önnur kvöld er ég hreinlega að springa,“ segir hann brosandi. „Ég var einn í sumar en Þ etta er köllun hans; gleymdu leikhúsinu, hann er miklu betri í eldhúsinu,“ segir Klaus Ortlieb, hótelstjóri Hlemmur Square, og tekur þétt- ingsfast utan um matreiðslumann- inn sinn, Þröst Leó Gunnarsson. Hafandi séð Þröst margoft á sviði, í sjónvarpi og á hvíta tjaldinu leyfi ég mér að efast um þessa fullyrðingu en vöflur koma þó á mig eftir að Þröstur hefur gefið mér að smakka reyktan lax sem hann sækir í ís- skápinn í eldhúsinu á Hlemmur Square. Hvur djöfullinn, hrekkur upp úr mér, eins og manninum forð- um. Þetta er hrikalega gott! „Já, er það ekki?“ svarar Þröstur brosandi og hótelstjórinn skín eins og sól í heiði við hliðina á honum. „Ég hef alla vega fengið mjög góð viðbrögð hingað til hjá þeim sem hafa smakkað laxinn hjá mér. Verst að þetta er búið að eyðileggja fyrir mér að kaupa lax úti í búð. Slysist ég til þess fer hann bara beint í ruslið.“ Kokkurinn brosir. Já, Þröstur er sumsé að reykja og grafa lax sjálfur; hefur dundað sér við það undanfarin fimm ár eða svo. Þá er hann farinn að gera tilraunir með heitreyktan lax en vill þróa þá aðferð aðeins betur áður en hann fer að bjóða fólki upp á slíka rétti. „Ég byrjaði að reykja lax fyrir vestan fyrir tíu árum,“ útskýrir Þröstur, þegar við höfum komið okkur makindalega fyrir í setustofu hótelsins, en hann á hús á Bíldudal, þar sem hann er uppalinn. „Bjó til reykofn úr gömlum ísskáp. Fyrir tveimur árum leigði ég síðan hús- næði hérna fyrir sunnan og hef ver- ið að þróa aðferðina síðan. Ég er lengi að þessu, fimm til sex sólar- hringa, meðan flestir gera þetta á einum eða tveimur sólarhringum.“ Alls staðar fengið 10 – Þetta hljómar eins og ástríða? „Já, það má alveg segja það. Ég stefni meira að segja á að færa út kvíarnar; er að leita að stærra hús- næði, svona hundrað fermetra at- vinnuhúsnæði. Það þarf að vera þrí- skipt; sérrými fyrir reykinn, flökunina og pökkunina. Fyrst þetta virkar svona vel er gaman að halda áfram. Næsta skref er að fá vottun til að geta selt fiskinn. Kokkar hafa verið að smakka hjá mér og ég hef alls staðar fengið 10 í einkunn. Það yrði því enginn hörgull á við- skiptavinum.“ – Einhvers staðar sá ég haft eftir þér að þú hefðir samt ekki áhuga á fjöldaframleiðslu, þá færi sjarminn af þessu. „Já, það er rétt. En kannski kem- ur græðgin upp í manni! Það er erf- itt að vera blankur leikari.“ Hann hlær. Þröstur hefur alla tíð haft yndi af matseld. „Ég hef alltaf eldað mikið; ætli hlutfallið sé ekki svona 80-90% á heimilinu. Mér finnst líka gaman að gera tilraunir í eldhúsinu með margvíslegt hráefni. Þegar ég var á sjónum hirti ég alls konar tegundir, til dæmis sólkola og rauðsprettu sem ég fyllti til dæmis með svepp- um, beikoni og jafnvel reyktum laxi.“ Hann veit fátt skemmtilegra en að bjóða fólki í mat, bæði heim til sín og svo hefur hann alltaf haldið stóra veislu í fjöruborðinu á Bíldu- dal einu sinni til tvisvar á sumri. Þar koma gjarnan saman tugir manna og mest hefur fjöldinn farið í 120. Það er fleira en lax á matseðl- inum á Hlemmur Square. Þröstur nefnir þorsk og rauðsprettu og svo gamla góða „hrygginn hennar mömmu“. „Hann klikkar aldrei.“ Hann er sumsé í kjötinu líka. Kom aftur og aftur í mat Þröstur var fyrst gestakokkur á Hlemmur Square snemma í sumar og kom aftur til starfa fyrir rúmri viku og mun gegna sama hlutverki fram að mánaðamótum eða svo. núna fæ ég sem betur fer hjálp. Annars er ég svo sem vanur látum og því að vinna hratt. Þegar ég var á sjónum var ég oft kokkur líka; hljóp niður eftir vakt á dekkinu og eldaði matinn fyrir áhöfnina og vaskaði upp strax á eftir. Það geri ég líka heima og konan mín botnar ekkert í látunum. Vill sjálf gera þetta með hægðinni.“ Hann hlær. Talandi um eiginkonu Þrastar, Helgu Sveindísi Helgadóttur, þá mun hún leggja honum lið á hót- elinu næstu vikurnar, eins og flest börnin hans en þau eru sjö talsins. „Þær koma hérna annað slagið og hjálpa mér aðeins.“ Þröstur hefur stundum tíma til að blanda geði við matargesti á hót- elinu enda mikilvægt fyrir mat- reiðslumann að fá viðbrögð við rétt- um sínum. Erlend hjón, sem dvöldust á hótelinu, voru svo ánægð að þau komu aftur kvöldið eftir. Þá spurðu þau hvort hægt væri að fá góða bleikju á Íslandi. Þröstur hélt það nú; hún væri að vísu ekki á mat- seðlinum hjá honum en ef hjónin kæmu aftur þriðja kvöldið myndi hann kaupa og elda hana fyrir þau. „Þau voru alveg í skýjunum með þetta.“ Kokkurinn lék í Trainspotting Svo var það Bandaríkjamaðurinn sem tilkynnti Þresti þegar hann pantaði að hann væri sérfræðingur í að elda fisk. „Ég kaldsvitnaði auð- vitað,“ segir Þröstur, „og vandaði mig eins og ég gat.“ Það dugði til og þegar hann kvaddi var Bandaríkja- maðurinn á leið í mikla naflaskoðun. „Miðað við þessa máltíð þá kann ég greinilega ekki neitt!“ sagði hann við Þröst. „Þetta var gaman að heyra. Það er nefnilega alls ekki auðvelt að elda fisk; algengt að hann sé annaðhvort of eða van. Það er mikil kúnst að ná honum alveg mátulegum.“ Loks voru það Skotarnir sex sem fréttu að kokkurinn á hótelinu hefði leikið í Trainspotting. „Fram með manninn, undir eins!“ gall í þeim. „Þegar í ljós kom að ég hafði ekki leikið í kvikmyndinni, heldur bara íslensku sviðsuppfærslunni í Loft- kastalanum, misstu þeir fljótt áhug- ann. Þótti það heldur rýrt.“ Hann brosir. Menning og listir eru aldrei langt undan þegar Þröstur Leó Gunn- arsson er annars vegar og næstu vik- urnar mun Hlemmur Square standa fyrir dagskrá bæði á miðviku- og fimmtudagskvöldum. „Hugmyndin er að fólk geti dottið inn, fengið sér litla rétti, léttvínsglas eða bjór og hlustað á upplestur eða tónlist á meðan. Á miðvikudögum verðum við með rit- höfunda, til dæmis Einar Má Guðmundsson og nafna hans Kára- son, Gerði Kristnýju, Steinunni Helgadóttur, Elísabetu Jökulsdóttur, Auði Jónsdóttur og fleiri. Á fimmtu- dögum verður svo lifandi tónlist og það verður „sörpræs“ hverju sinni,“ segir Þröstur. Hann reiknar ekki með að kokka lengur en þessar fjórar vikur á hót- elinu og sér sig ekki fyrir sér í þessu hlutverki í framtíðinni. „Ekki Ótrúlegt hvernig kvíðinn getur komið aftan að manni Kvíði í kjölfar sjóslyss gerði það að verkum að Þröstur Leó Gunnarsson treysti sér ekki leng- ur til að vinna í leikhúsinu, þar sem hann hefur unnið marga sigrana gegnum tíðina. Hann starfar nú tímabundið sem kokkur á hóteli í Reykjavík og reykir og grefur lax sér til yndisauka. Hann er breyttur maður eftir slysið en er eigi að síður fullur af orku og horfir björtum augum fram veginn. Eitt á hann þó aldrei eftir að gera aftur: Fara á sjó. Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is ’ Loks voru það Skotarnir sex sem fréttu að kokk-urinn á hótelinu hefði leikið í Trainspotting. „Frammeð manninn, undir eins!“ gall í þeim. „Þegar í ljóskom að ég hafði ekki leikið í kvikmyndinni, heldur bara íslensku sviðsuppfærslunni í Loftkastalanum, misstu þeir fljótt áhugann. Þótti það heldur rýrt.“ VIÐTAL 14 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16.9. 2018

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.