Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.09.2018, Blaðsíða 19
Þóra féllst á að gefa lesendum
Sunnudagsblaðs Morgunblaðsins
nokkur einföld en áhrifarík ráð til
að minnka sorpið. Aðalatriðið seg-
ir hún vera að minnka sorpið með
því að annars vegar kaupa minna
og hinsvegar að vanda valið á því
sem keypt er. Eftirfarandi ráð hafa
allavega reynst henni vel.
Hafa í huga að allt sem maður
dregur inn á heimilið verður að
rusli fyrr eða síðar. Kaupa minna
með því að vera vakandi við öll
innkaup og gera greinarmun á al-
vöruþörfum og gerviþörfum.
Hugsa í lausnum og velja sig frá
plasti og öðrum óvistvænum efn-
um.
Minnka matarsóun með því að
huga að réttum skammtastærðum,
elda úr matarafgöngum og frysta.
Kaupa notaða hluti með því að
fara á nytjamarkaði, leita á þar til
gerðum sölusíðum á netinu eða
spyrjast fyrir meðal ættingja og
vina.
Afþakka alla plastpoka. Nota í
staðinn fjölnota innkaupapoka,
veski, töskur eða jafnvel bara hend-
urnar. Léttir, fjölnota pokar henta
vel fyrir ávaxta- og grænmet-
isdeildina og jafnvel nammibarinn
líka.
Hætta notkun á einnota borð-
búnaði.
Í eldhúsinu: Hætta notkun á
kaffihylkjum og eldhúspappír, grípa
í box með loki í staðinn fyrir plast-
filmu og álpappír, nota sápustykki í
uppvaskið.
Á salerninu: Nota sápustykki í
hand- og hárþvott, bambustann-
bursta, umbúðalaust tannkrem,
fjölnota bómullarskífur, taudömu-
bindi, álfabikar og taubleiur.
SJÖ LEIÐIR TIL AÐ
MINNKA SORPIÐ
Vanda valið og
kaupa minna
Það er ekki síðra
að leika sér með
notuð leikföng.
Þessar sápur eru ekki aðeins fallegar held-
ur þurfa þær engar plastumbúðir.
Það þarf ekki að
nota plastpoka
við garðvinnuna
heldur er vel
hægt að nota
margnota ílát.
hún og bendir á að eftir því sem eftirspurnin
breytist þá breytist vonandi líka framboðið.
Og það hefur verið hlustað á Þóru en hún veit
um nokkur dæmi þar sem hún hefur komið með
ábendingu sem farið hefur verið eftir. Ein versl-
un hætti við að panta plastpoka og fór að nota
pappírspoka í staðinn eftir að Þóra hafði sam-
band. Hún kom líka með ábendingar til leik-
skóla drengjanna um að skipta út einnota plast-
málum og öðrum plastvarningi fyrir vistvænni
hluti. Ýmsar breytingar í þá áttina voru gerðar
strax í kjölfarið. „Það er hægt að hafa áhrif með
því að senda vinsamlegar ábendingar og hug-
myndir um hvað betur mætti fara.“
Þroskandi ferli
Hvað hefur komið þér mest á óvart eftir að þú
byrjaðir í þessu?
„Mér finnst þetta hafa verið mjög þroskandi.
Maður hefur kynnst nýjum mat, sem maður
hefði ekki annars kynnst, eins og mörgum nýj-
um tegundum af grænmeti sem manni hefði
ekki dottið í hug að kaupa. Þetta er líka svo
skemmtilegt og maður er alltaf að læra eitthvað
nýtt. Maður er alltaf að finna nýjar lausnir. Við
erum ekki heilagri en páfinn, þess vegna kalla ég
þetta lærdómsferli hjá okkur. Við erum bara að
gera það sem við getum og hver og einn verður
bara að fara eftir sinni samvisku. Stundum verð-
ur maður að finna einhverja málamiðlun.“
Hún vill að lokum leggja áherslu á að svona
breytingar eigi sér stað smám saman. „Svona
breyting gerist ekki á einni nóttu heldur smám
saman, annars myndi maður gefast strax upp.
Hver einasta neyslubreyting skiptir máli;
margt smátt gerir eitt stórt.“
Fjölskyldan öll heima í Sviss; hjónin Ögmundur
Hrafn Magnússon og Þóra Margrét Þorgeirsdóttir,
ásamt börnunum þremur sem heita Þorgerður Erla
(10 ára), Magnús (5 ára) og Theodór Hrafn (4 ára).
16.9. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19
Sorp fjölskyldunnar á einum mánuði. Lengst til hægri í pokanum er eina ruslið sem ekki er hægt að endurvinna. Þau vigta sorpið eftir
hvern mánuð til að fylgjast með þróun mála og birta niðurstöðurnar á minnasorp.com. Óendurvinnanlega sorpið er að meðaltali 3,1 kg en
hefur mest verið 10,8 kg og minnst 1,1 kg. Endurvinnanlega ruslið er síðan flokkað í plast, gler, pappa, pappír og ál. Að sögn Þóru hafa þau
komist niður í 1,1 kg af plasti á mánuði og er markmiðið að komast einhvern tímann niður fyrir 1 kg. Til samanburðar áætlar Umhverfis-
stofnun að fjögurra manna fjölskylda fari með 13 kg af plasti á mánuði.
SORPIÐ VIGTAÐ
Takmarkið að komast niður fyrir kílóið