Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.09.2018, Síða 21

Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.09.2018, Síða 21
Ralph Lauren hélt upp á 50 ára afmæli sam-nefnds tískuhúss síns á tískuvikunni íNew York. Hátíðarhöldin fóru fram und- ir beru lofti í Central Park og var þar sannkall- aður stjörnufans enda hefur hann eignast marga trygga aðdáendur í gegnum tíðina eins og Hillary Clinton og Oprah Winfrey, sem hélt ræðu eftir sýningu á fatalínunni fyrir haustið 2018. Þar sagði hún sögu frá því hún var ungur fréttamaður í Baltimore. „Þá snerist hugmynd mín um að fagna velgengni ekki um að fara út að kaupa fín- an bíl eða skartgripi. Heldur um skáp fullan af handklæðum frá Ralph Lauren. Fyrir mér stóðu þau fyrir þægindi, lúxus og að vera á uppleið,“ sagði hún. Alls tóku 170 fyrirsætur þátt í tískusýningunni og gengu pallinn við lög bandarísku söngvaskáld- Ralph Lauren sjálfur ásamt ungri fyrirsætu. AFP Jarðbundinn glamúr Ralph Lauren hefur rekið samnefnt tískuhús sitt í hálfa öld og fagnaði því með viðamikilli tískusýningu og veislu á tískuvikunni í New York. Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is Rose Huntington-Whiteley Anne Hathaway Chiara Ferragni Iman Jessica Chastain Lauren er þekktur fyrir að líta til (villta) vestursins til að fá innblástur. anna Bobs Dylan og Neil Diamond og voru fötin brot af því besta af ferli hans. Lauren er konungur bandarískrar, afslappaðrar tísku með bæði íþrótta- og indjánaívafi. Það sem einkennir hann er afslapp- aður glamúr. Hann hefur sagt í viðtölum að hann vilji að fólki líði vel í fötunum hans. Lauren hannaði jakkafötin sem Diane Keaton klæddist í hlutverki sínu sem Annie Hall. Síðar hannaði hann svarta buxnadragt fyrir eiginkonu sína Ricky og hefur hann sagt að þetta sé einn uppáhaldskvöldklæðnaður hans fyrir konur. „Hvorugu okkar líkar við það þegar fólk lítur út fyrir að vera að reyna of mikið,“ sagði hann í viðtali við blaðamann Telegraph fyrir nokkrum árum. „Mér finnst konur líta best út þegar þær eru af- slappaðar, þegar manni finnst að þær hafi notað fötin og að glamúrinn sé ekki of áberandi.“ Dæmigert útlit fyrir Lauren þar sem hvers- dagslegri flík er bland- að við glamúrflík. FRÆGA FÓLKIÐ FJÖLMENNTI Á SÝNINGUNA Föt úr haust- línunni 2018. Það er ekki hægt að verða kalt í þessum frakka. 16.9. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.