Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.09.2018, Page 27

Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.09.2018, Page 27
African Queen er enn eitt dæmið um hve veitingastaðir Frankfurt eru fjölbreyttir. Eþíóp- ískur matur er þar í fyrirrúmi og endilega ræðið við þjónana um hvað er gott að panta því flestum Íslendingum er þessi matur frekar framandi, þjónarnir eru mjög hjálpleg- ir. Ævintýralega góður matur og gaman að prófa al- gjörlega eitt- hvað nýtt. Restaurant Francais er svo frönsk mat- argerð eins og hún gerist best, á dásamlega fallegum stað í miðborginni, hvítdúkaður með kon- unglegum blómaskreytingum. Vínáhugamenn lofa þennan stað í hástert þar sem vínlistinn þykir framúrskarandi. Það versta við að yfirgefa Frank- furt er að geta ekki prófað fleiri veitingastaði. Undirrituð hefur borðað á velflestum staðanna sem hér er mælt með: Namaste India býður upp á ind- verskan mat á heimsklassa. Stað- urinn er lítill og huggulegur og Þjóðverjar sjálfir elska staðinn. Staðurinn er eilítið út fyrir miðju borgarinnar og það er talsverð þraut að fá bílastæði og það er því gott að leggja tím- anlega af stað því það þarf aðeins að hring- sóla í leit að stæði. Raunar er starfs- fólkið svo al- mennilegt að einn þjónninn endaði á að leyfa okkur að leggja í starfs- mannastæðið sitt. Veitingastaðurinn Medici er ekki einn af ódýru stöðum borg- arinnar en sannarlega einn af þeim bestu og fáguðustu. Ef það er aspasuppskera skuluð þið a.m.k. kosti fá ykkur einhvern rétt með aspas, jafnvel smakk- seðil í því þema. Geggjað carpaccio og rækjur í risotto voru m.a. á okkur matseðli. Margir sækja staðinn til að gæða sér á 60 mánaða gam- alli íberíko-skinku sem bráðnar í munni. Zu den 12 Aposteln er stað- urinn fyrir kvöldstund með heimamönnum yfir þýskum bjór og hefðbundnum þýskum mat í stórum skömmtum og margir réttirnir eru ætl- aðir til að deila. Þeir sem eru að stíga sín fyrstu skref í þýskum matarkúltúr gætu til dæmis pantað sér Frankfurter-plattann til að deila og svo spennandi steik með. Borða meira og meira Maturinn á Medici minnir á listaverk. Restaurant Francais er rómantískur franskur staður í miðborginni. African Queen er einn af bestu ódýrari veit- ingastöðum Frankfurt. 16.9. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27 --- ALLT A EINUM STAD � HÓT E L R E K S T U R Komdu og skoðaðu úrvalið í glæsilegri verslun að Hátúni 6a Hágæða rúmföt, handklæði og fallegar hönnunarvörur fyrir heimilið Eigum úrval af sængurvera settum Percale ofin – Micro bómul l, egypskri og indverskri bó mull Hátúni 6a, 105 Reykjavík | Sími 822 1574 | hotelrekstur.isjakkafatajoga.is ÁNÆGJA EFLING AFKÖST Að fylla ferðatöskurnar af fatnaði og alls kyn smávöru er einstaklega auðvelt í Frankfurt. Verðið er hag- stæðara en hérlendis og hægt er að finna hvað sem er í borginni. Fyrir allt það flottasta í fatnaði á ágætis verði má mæla með Peek og Cloppenburg sem hefur að geyma fjöldann allan af tískumerkjum á nokkrum hæðum undir einu þaki við eina skemmtilegustu göngu- götu borgarinnar; Zeil. Margar fá- bærar verslanir og verslunarmið- stöðvar, standa við Zeil og er mikið líf á götunni sjálfri. Góð kaup á lúxusvarningi er hægt gera á Goethestrasse sem er raunar köll- uð „lúxusgatan“ af heimamönn- um. Ekki er síður skemmtilegt að skoða í gluggana. Schillerstrasse er virkilega skemmtileg á föstudögum þegar götumarkaðir eru settir upp með ávöxtum, handgerðum munum og fleiru. Á þessu svæði færðu jafn- framt minjagripina. Berger Strasse sýnir svo eilítið öðruvísi hlið borg- arinnar, með sérverslunum ungra hönnuða, notuðum tískufatnaði. Eftir langan verslunardag er gott að slaka á á einum af kaffihúsum, ís- búðum eða veitingastöðum gúr- met-götunnar“ Grosse Bockenhei- mer Strasse. Aukataska fyrir innkaup Gómsæt smjörkaka á kaffihúsi Grosse Bockenheimer Strasse. Zeil er suðandi mann- lífspunktur með spenn- andi verslanir hvarvetna. Goethestrasse er heimavöllur lúxuspésa, með skartgripum, snyrtivörum og hátísku. Eitt skemmtilegasta safn borgarinnar er Senckenberg náttúrugripasafnið sem á stærsta safn beinagrinda stærri risaeðlna í Evrópu. Staedel listasafnið ætti einnig að vera á lista ferðamanna, þar sem þeir skoða verk gömlu meistar- anna, svo sem Botticellis, upp í frægustu listaverk nálægari tíma; Monet, Degas, Picasso og miklu fleiri. Bílaáhugamönnum má benda á Klassikstadt, sem gerir klassískum bílategundum fyrri tíma góð skil á stóru sýningarsvæði. Einnig er stutt að skreppa út fyrir Frankfurt í dagsferð, til dæmis Heidelberg og Roth- enburg og drekka þar í sig miðaldir, gamla háskóla og tíma liðinna alda. Margir vilja helst ekki yfirgefa borgir án þess að sjá almennilega yfir þær. Þá er Main-turninn, eitt helsta kennileiti borgarinnar, best til þess fall- inn. Þetta 200 hæða háhýsi, það fjórða hæsta í Þýskalandi öllu, er eini skýjakljúfur borgarinnar sem er með sérstakan útsýnispall opinn al- menningi. Risaeðlur og Picasso

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.