Morgunblaðið - 30.10.2018, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 30.10.2018, Blaðsíða 12
Upprifjun Arndís Jóna Guðmundsdóttir gluggar í fróðleikinn. Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Við endurhæfingu skjólstæð-inga okkar byggjum við ástyrkleikum hvers og eins.Veikindi og áföll leiða oft til þess að fólk tapar færni á ákveðnum sviðum, en heldur þeim í öðru. Þá þætti er mikilvægt að styðja og örva, þannig að fólk öðlist að nýju getu og sjálfstraust til að geta að nýju sinnt athöfum daglegs lífs,“ segir Arndís Jóna Guðmundsdóttir, iðjuþjálfi á öldrunarlækningadeild Landspítal- ans á Landakoti í Reykjavík. Hugað að lífsgæðum Á hverjum tíma eru tugir sjúk- linga í þjálfun og þjónustu á Landa- koti, meðal annars undir handleiðslu iðjuþjálfanna sjö sem þar starfa. „Fólk kemur hingað gjarnan eft- ir að hafa verið á almennum legu- deildum sjúkrahússins,“ segir Arndís Jóna. „Misjafnt er hve dvöl fólks er löng en alltaf er unnið að því að fólk geti sinnt daglegum athöfnum og komist um heima hjá sér á öruggan máta. Oft þarf að fara vel yfir heim- ilisaðstæður og gera ráðstafanir, koma upp stuðningstækjum og svo framvegis. Stundum förum við líka heim til sjúklinga áður en að útskrift þeirra kemur og tökum út aðstæður þar,“ segir Arndís Jóna. Alþjóðadagur iðjuþjálfa var síð- astliðinn laugardag, 27. október, og af því tilefni kynntu iðjuþjálfara á Landakoti starf sitt í gær fyrir fjöl- miðlum. „Það er mikil framþróun í faginu og margt spennandi í deigl- unni. Í þjónustu við aldraðra er mikil- vægt að leita nýrra leiða í þjónustu. Fyrst og fremst erum við að huga að lífsgæðum fólks og hjálp til sjálfs- hjálpar en mikilvægur þáttur endur- hæfingarinnar er einnig að koma í veg fyrir að fólk þurfi vistun á hjúkr- unarheimilum. Vistun þar er mjög dýr fyrir samfélagið svo málið snýst meðal annars um kostnað, nú þegar mikil fjölgun eldra fólks er fyrir- sjáanleg.“ Peysa í stað skyrtu Á Landakoti er aðstaða fyrir iðjuþjálfun og margvísleg tæki og búnað, sem iðjuþjálfarnir kynntu fyr- ir blaðamanni. Á einum stað var verið að klæða sjúkling í sokka í rúmi, ann- ar fékk aðstoð við að klæða sig í föt og í litlum eldhúskróki fær fólk þjálf- un við að takast að nýju á við heim- ilisstörfin. Á baðherbergi mátti líka sjá ýmsan búnað sem stundum þarf að koma upp á heimilum fólks svo það geti komist á salernið og í bað eftir áföll. „Ef hreyfigeta fólks skerðist getur verið erfitt til dæmis að klæða sig. Við vissar aðstæður þarf fólk að- stoð við slíkt en stundum dugar að klæða sig frekar í íþróttafatnað í staðinn fyrir gallabuxur – og velja peysu í stað hnepptrar skyrtu. Svona smáatriði geta skipt sköpum, og fólk þarf stundum aðstoð við að finna þessar leiðir,“ segir Arndís og bætir við að í starfinu öllu sé byggt á marg- þættri matstækni. Þannig er lagt mat á getu skjólstæðinga og þörf á inn- gripi. Styrkleiki til sjálfshjálpar Iðjuþjálfar sinna mikilvægri endurhæfingu aldraðra. Oft er þörf á inngripi og aðstoð sem aukið getur lífs- gæði fólks, til dæmis eftir veikindi og áföll. Að sinna athöfnum daglegs lífs er stundum hægara sagt en gert. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Aðstoð Margrét Eva Sigurðardóttir var í hlutverki sjúklings sem var færður í sjúkrasokka. Það verk önnuðust frá vinstri talið, þær Helga Atladóttir, Jóhanna Elíasdóttir og Unnur Birgitta Halldórsdóttir sem hér sjást. Lagni Það getur verið hægara sagt en gert að komast í buxurnar. 12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. OKTÓBER 2018 Sundagörðum 2 I 104 Reykjavík I 480 7000 I birta.is Gættu lífeyrisréttinda þinna – fylgstu með að iðgjaldið skili sér Sjóðfélagar Birtu lífeyrissjóðs fá næstu daga send yfirlit um iðgjaldagreiðslur sl. 6 mánuði. Mikilvægt er að bera saman upplýsingar um greidd iðgjöld við launaseðla því lífeyrisréttindi geta tapast vegna vanskila. Vanti innborganir eða berist ekki yfirlitið má hafa samband við starfsfólk Birtu í síma 480 7000 eða á netfanginu birta@birta.is. Minningavinna sem svo er kölluð er veigamikill þáttur í endurhæfingar- starfinu á Landakoti. Þá er sest niður með fólki sem glímir við minnis- sjúkdóma og er að missa færni og það fengið til að rifja upp gamla daga. Þekkt er að þegar óminnis- hegrinn læðist aftan að fólki hverfur nútíminn því fjótt en gamlar stundir lifa í hugskoti. Myndir af þeim má svo glæða með því að hverfa á vit fortíðar. Tilfinningin er góð „Það er ótrúlegt hvað gamlar minningar lifa sterkt og lengi með fólki. Tilfinningin er góð og styrkir fólk og hefur jákvæð áhrif á andlega líðan, minnkar pirring og eirðar- leysi,“ sagði Fanney Magga Jóns- dóttir iðjuþjálfi þegar hún sýndi blaðamanni svonefnda Betri stofu. Það eru tvö samliggjandi herbergi, þar sem inni eru húsgögn og myndir í gamla stílnum, ýmis eldhúsáhöld sem algeng voru fyrr á dögum, Sing- er-saumavél og á borðum bækur og myndir frá liðinni öld. Út úr skáp var svo tekinn Hagkaupssloppur eins og ófáar íslenskar konur áttu og klædd- ust enda þægilegur klæðnaður til dæmis við heimilisstörf. Af því spunnust ýmsar sögur enda þótti sumum þetta einum of hvunndags- legar flíkur og ekki beinlínis af fínni sortinni. Slopparnir voru í tísku fyrir hálfri öld eða svo – og konur sem þeim klæddust gjarnan fæddar á árabilinu 1920-1940. Og nú er farið að kvarn- ast úr þeim hópi og kannski þörf á yngri fötum til að sýna í betri Stof- unna. Útvíðar buxur og mussur í anda blómabyltingar og jakkaföt með lakkrísbindi verða sennilega næst. Kynslóðin sem klæddist þann- ig fötum er fólk nú um sjötugt og farið að nálgast öldrunardeildir og minnissjúkdóma. Þurfa Bítlalög „Við þurfum líka að uppfæra tón- listina sem hér ómar. Fara að spila Bítlana, Rolling Stones og slíkt. Skipta út eldri tónlist,“ sagði einn iðjuþjálfinn þegar um stofuna ómaði söngur Ragnars Bjarnasonar og Ellyj- ar Vilhjálms í laginu fallega, Hvert er farið blómið blátt. Jú, blómið fannst á Landakoti þar sem iðjuþjálfar að- stoða fólk við leit – sem skilar skjól- stæðingum þeirra alveg ótvírætt betra lífi. Lagt til atlögu við óminnishegrann á endurhæfingardeild Hagkaupssloppur og blómið blátt hjálpa í minningavinnunni Morgunblaðið/Sigurður Bogi Landakot Fanney Magga Jónsdóttir iðjuþjálfi í Betri stofunni með hinn eina sanna Hagkaupsslopp.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.