Morgunblaðið - 30.10.2018, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 30.10.2018, Blaðsíða 16
16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. OKTÓBER 2018 Spariskór SMÁRALIND www.skornirthinir.is Fallegir spariskór með litlum hæl. Ristarband fest með riflás. Verð 5.995 Stærðir 28 - 35 30. október 2018 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 120.36 120.94 120.65 Sterlingspund 153.95 154.69 154.32 Kanadadalur 91.53 92.07 91.8 Dönsk króna 18.295 18.403 18.349 Norsk króna 14.349 14.433 14.391 Sænsk króna 13.112 13.188 13.15 Svissn. franki 120.2 120.88 120.54 Japanskt jen 1.0746 1.0808 1.0777 SDR 166.48 167.48 166.98 Evra 136.52 137.28 136.9 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 166.1755 Hrávöruverð Gull 1236.05 ($/únsa) Ál 1960.0 ($/tonn) LME Hráolía 76.6 ($/fatið) Brent Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á ● Arion banki hefur birt nýja hagspá sína fyrir tímabilið 2018-2021. Sam- kvæmt henni verður hagvöxtur á þessu ári 4,6% en í fyrri spá bank- ans, sem birt var í júlí síðastliðnum, var gert ráð fyrir um 3% hagvexti. Flest bendir til þess að kröftugur hag- vöxtur yfirstandandi árs sé fyrst og síðast drifinn áfram af aukinni einka- neyslu. Greiningardeild bankans telur hins vegar að hratt muni draga úr hag- vextinum og að á næsta ári verði hann 1,3% í stað 3% eins og áður var gert ráð fyrir. Gerir spáin ráð fyrir því að sá vöxtur sem þó verði muni helst verða drifinn áfram af einkaneyslu. Ár- ið 2020 verði vöxturinn hins vegar aftur kominn í 3% en fyrri spá gerði ráð fyrir 2,5% hagvexti það ár. Þá muni fjárfesting taka við sér í auknum mæli. Árið 2021 gerir bankinn ráð fyr- ir að hagvöxtur muni mælast 1,9% og að þá muni utanríkisverslun eiga lykil- þátt í vextinum. Arion banki hækkar hagspá fyrir þetta ár STUTT BAKSVIÐ Pétur Hreinsson peturhreins@mbl.is Hlutabréfaverð í Eimskipafélagi Ís- lands lækkaði um tæp 13% í 58 millj- óna viðskiptum með félagið í Kaup- höll Íslands í gær. Lækkunin kom í kjölfar uppfærðrar afkomuspár Eimskips frá því á föstudag. Í henni var vænt afkoma ársins 2018 lækkuð um 15% þar sem afkomuspáin fer úr 57 til 63 milljóna evra rekstrarhagn- aði (EBITDA) í 49 til 53 milljónir evra. Sé litið til tæplega eins árs aft- ur í tímann hefur gengi Eimskips lækkað um tæp 36% en þann 16. nóv- ember árið 2017 var gengi félagsins 279,5 krónur. Verð á bréfum félags- ins í gær nam aftur á móti 180 krón- um. „Viðbrögð markaðarins koma ekki á óvart. Það var vitað mál að Eim- skipi yrði refsað í dag,“ segir Jóhann Viðar Ívarsson hjá ráðgjafarfyrir- tækinu IFS og tekur það fram að um þriðju neikvæðu afkomuviðvörunina sé að ræða á árinu og slíkt sé ekki uppskrift að hærra markaðsvirði. Nýjar leiðir valda vonbrigðum Eins og greint var frá í Morgun- blaðinu á laugardag var ein ástæðan fyrir lakari afkomu Eimskips hægari uppbygging á fluttu magni á tveimur siglingaleiðum fyrirtækisins, yfir Atlantshafið og á strandleiðum þess. Í ljósi magnaukningar á þeim leiðum á fyrri árshelmingi eru það vonbrigði að mati Jóhanns að þær leiðir séu að valda lakari afkomu en áður var ráð fyrir gert. „Það voru helstu von- brigðin. Fyrirtækið jók þarna veru- lega þjónustu um áramótin og tvö- faldaði skipafjöldann úr tveimur í fjögur. Við það snarjókst framboðið og fylla þurfti í nýju flutningsgetuna. Eimskip hefur birt magnaukningar- tölur fyrir fyrsta og annan fjórðung og það var mikill og hækkandi vöxt- ur í fluttu magni á fyrri hluta árs miðað við fyrra ár. Bæði við og for- ráðamenn Eimskips voru ánægðir með það,“ segir Jóhann Viðar. „En það veldur þeim viðbótar föstum kostnaði á ári upp á hátt í 10 millj- ónir evra. Það skýrir að hluta til hvers vegna fyrri helmingur ársins var slappur. Það leit út fyrir að þeir væru að ná góðum árangri eftir fyrstu sex mánuðina en svo nefna þeir þetta sem eina ástæðu fyrir lak- ari afkomu og það eru helstu von- brigðin. Það bendir til þess að þriðji ársfjórðungur hafi verið slappur,“ segir Jóhann Viðar sem segir að aðr- ar ástæður sem voru nefndar, t.a.m. erfiður Noregsmarkaður og minni innflutningur til Íslands, hafi verið þekktar. Kostnaður vegna bilana sé aldrei fyrirséður en eðlilegur hluti af starfsemi flutningafélags. Einskiptiskostnaður vegna upp- sagna hefði líklega átt að vera stjórnendum ljós með góðum fyrir- vara. Höfðu ekki trú á afkomuspá „Þetta kom ekki sérstaklega á óvart. Við færðum Eimskip mikið niður í síðasta verðmati, um 10%. Við töldum að fyrri afkomuspá félagsins myndi ekki ganga eftir,“ segir Snorri Jakobsson, hjá fjármála- og hag- fræðiráðgjöf Capacent. Í ljósi erfiðs fyrri árshelmings Eimskips, þar sem EBITDA félagsins, hagnaður fyrir skatta, afskriftir og fjármagnsliði, var 22,2 milljónir evra, og um 14,8% minni en árið áður, undrar Snorri sig á því hvers vegna afkomuspánni var ekki breytt fyrr en nú. „Miðað við afkomu fyrstu sex mánaða fyrirtækisins þá var bara mjög ólíklegt að þeir myndu ná þess- ari spá,“ segir Snorri. Um miðjan júlí var tilkynnt um kaup Samherja Holding ehf. á 25,3% hlut The Yucaipa Company í Eim- skipafélaginu á 11,1 milljarð króna. Kaupin bíða nú samþykktar yfir- valda. Við kaupin stóðu bréf félags- ins í 201 kr. á hlut en kaupin gengu í gegn á 220 kr. á hlut. Virði hlutar Samherja er nú um 2 milljörðum lægra en viðmiðunargengið í kaup- um Samherja á fjórðungshlut í félag- inu gerði ráð fyrir. Hörð viðbrögð markað- arins koma ekki á óvart 300 275 250 225 200 175 150 nóv. des. jan. feb. mars apríl maí júní júlí ágúst sept. okt. 2017 2018 Gengi hlutabréfa Eimskipafélags Íslands sl. 12 mánuði 16.11.2017 278,6 29.10.2018 180,0 30.5.2018 188,0  Gengi Eimskips lækkaði um 13% í kjölfar þriðju neikvæðu afkomuviðvörunarinnar Verslunarfyrirtækið Hagar hf., sem rekur meðal annars Bónus og Hag- kaup, hagnaðist um rúma 1,4 millj- arða króna á öðrum ársfjórðungi, en hann stendur frá 1. mars - 31. ágúst. Dregst hagnaðurinn saman um 100 milljónir frá sama tímabili í fyrra. Í tilkynningu frá fyrirtækinu segir að hagnaðurinn nú jafngildi 3,8% af veltu félagsins. Vörusala á tímabilinu nam 37.734 milljónum króna, samanborið við 37.169 milljónir á sama tímabili í fyrra, og er það 1,5% aukning. Framlegð var 24,3%. Heildareignir samstæðunnar námu rúmum 30 milljörðum króna í lok tímabilsins og eigið fé rúmum 18 milljörðum. Eiginfjárhlutfall fyrir- tækisins var 60%. Handbært fé fé- lagsins í lok tímabilsins nam 354 milljónum króna. Í tilkynningu félagsins til Kaup- hallar segir að söluaukning í mat- vöruhluta félagsins hafi verið 1,8% í krónum talið, en seldum stykkjum hafi fækkað um 0,6%. Þá kemur fram að fjöldi viðskiptavina hefur aukist um 0,4%. Rekstrarkostnaður Haga lækkaði um 37 milljónir króna á tímabilinu, eða 0,5% milli ára. Kostnaðarhlut- fallið lækkaði úr 18,6% í 18,2%. Í tilkynningunni segir að undan- farið hafi verið unnið að nýrri versl- un Bónuss í Skeifunni 11 en fyrir- hugað er að flytja verslunina úr Faxafeni yfir í hið nýja húsnæði. „Stefnt er að opnun 1. desember nk. en hin nýja verslun verður um 1.200 fermetrar að stærð. Þá var fyrirhug- að að flytja verslun Bónuss í Mos- fellsbæ nú á haustmánuðum í nýtt húsnæði en ljóst er að vegna ófyr- irsjáanlegra atvika mun það verkefni frestast fram á nýtt rekstrarár,“ segir að lokum. tobj@mbl.is Verslun Hagar segja fyrri helming- ing ársins standast væntingar. Hagar hagnast um 1,4 milljarða  Vörusala eykst um 565 milljónir á milli ára

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.