Morgunblaðið - 30.10.2018, Qupperneq 26
26 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. OKTÓBER 2018
Ég ætla út að borða með vinkonum mínum í hádeginu þar semvæntanlega verður skálað í kampavíni og svo fer ég á hrekkja-vökuball með dóttur minni,“ segir Sigríður Hrönn Guðmunds-
dóttir, sem sér um Lottóið í sjónvarpinu á laugardögum, en hún á 40 ára
afmæli í dag. Dóttir hennar heitir Sunna og er átta ára gömul.
„Deginum verður því eytt í að baka einhverjar hrekkjavökubolla-
kökur, sem verður spennandi að finna út úr, og mála barnið mitt sem
vampíru. Hún ætlar að reyna að troða mér líka í vampírubúning, svo ég
verð kannski að finna vígtennur á mig líka. Svo verður smá skemmtun
um helgina í tilefni dagsins.“ Afmælisfögnuðinum er þó ekki þar með
lokið, því Sigríður ætlar með vinkonum sínum úr MH í fertugs-
afmælisferð til Rómar eftir þrjár vikur. „Ég hef einu sinni áður komið
til Rómar, það var fyrir fimmtán árum þegar ég fór í tveggja vikna ferð
um Ítalíu. Núna ætlum við að halda okkur í Róm og förum svo aðeins til
London, en ein okkar býr þar.“
Sigríður hefur einmitt mjög gaman af því að ferðast og finnst gaman
að fara í lengri ferðalög og á framandi slóðir. „Ég hef samt farið mikið
á sömu staðina. Ég hef til dæmis tíu sinnum komið til Dubai en hef líka
farið í bakpokaferðalag um Mið-Ameríku og var þar í fjóra mánuði og
einnig lærði ég köfun á Maldíveyjum.“
Sigríður starfaði lengi sem fyrirsæta, meðal annars í tvö ár á Ind-
landi og lék í tveimur Bollywood-myndum og það kemur öðru hverju
fyrir að hún leiki í auglýsingum, bæði innlendum og erlendum.
Mæðgurnar Sigríður og Sunna staddar rétt fyrir utan London í sumar.
Fer á hrekkjavöku-
ball með dóttur sinni
Sigríður Hrönn Guðmundsdóttir er fertug
J
ón Helgi Gestsson fæddist í
Múla í Aðaldal í Suður-
Þingeyjarsýslu 30.10. 1943
og ólst þar upp við öll al-
menn sveitastörf þess
tíma. Hann lauk grunnskólaprófi frá
barnaskólanum í Aðaldal, var einn
vetur við Héraðsskólann á Laugum,
stundaði nám við Bændaskólann á
Hvanneyri og lauk þaðan búfræði-
prófi 1962.
Að námi loknu stundaði Jón Helgi
áfram bústörf með foreldrum sínum
í Múla og sinnti mjólkurflutningum
á árunum 1964-68. Þá flutti hann til
Húsavíkur og stundaði akstur með
kísil frá Kísilverksmiðjunni við Mý-
vatn og til Húsavíkur á árunum
1968-78. Hann dvaldi og starfaði í
Gautaborg í Svíþjóð 1978-79 en eftir
heimkomuna starfaði hann á Bif-
reiðaverkstæði Jóns Þorgrímssonar
Jón Helgi Gestsson, fv. framkvæmdastjóri á Húsavík – 75 ára
Í Svíþjóð Fr.v.: afmælisbarnið, Guðrún Halla, Heiðrún, Heiðveig, Brynja, Díana, Jón Helgi, Halldóra og Sara Dögg.
Lagstur í ferðalög á
sínum efri árum
Hjónin Halldóra María og Jón Helgi. Þau eiga gullbrúðkaup á gamlársdag.
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Vagnhöfði 7, 110 Reykjavík | Sími: 517 5000 | stalogstansar.is
Ekki bara jeppar
2013
- 2017
DRIFSKÖFT
LAGFÆRUM – SMÍÐUM
JAFNVÆGISSTILLUM
OG SELJUM NÝ
Hjöruliðir og íhlutir í flestar gerðir bifreiða
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu
mynd af nýjum borgara eða
mynd af brúðhjónum fá fría
áskrift að Morgunblaðinu í
einn mánuð.
Hægt er að senda mynd
og texta af slóðinnimbl.
is/islendingar eða á
islendingar@mbl.is
Á „Íslendinga“ síðum
Morgunblaðsins er
meðal annars sagt frá
merkum viðburðum
í lífi fólks, svo sem
hjónavígslum,
barnsfæðingum
eða öðrum
tímamótum.