Morgunblaðið - 30.10.2018, Page 33
MENNING 33
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. OKTÓBER 2018
Marrið í stiganum eftirEvu Björg Ægisdótturhlaut Svartfuglinn2018. Svartfuglinn eru
spennusagnaverðlaun rit-
höfundanna Ragnars Jón-
assonar og Yrsu Sigurðar-
dóttur sem veitt voru í
fyrsta sinn í ár og eru ætl-
uð höfundum sem senda
frá sér skáldsögu í fyrsta
sinn. Í umsögn dómnefnd-
ar um vinningsbókina segir
að fléttan í henni sé fag-
mannlega unnin, söguþráð-
urinn sterkur og sagan komi les-
andanum á óvart.
Glæpasagan Marrið í stiganum
gerist á Akranesi, þaðan sem höf-
undurinn er ættaður. Akurnesing-
urinn og lögreglukonan Elma er ný-
flutt á heimaslóðir þegar lík af konu
finnst við vitann á Akranesi. Fljót-
lega kemur í ljós að um morð er að
ræða. Hin myrta hafði búið á Akra-
nesi sem barn við slæmar aðstæður
og ofbeldi af hálfu móður sinnar og
fleiri. Þegar konan var myrt bjó
hún skammt frá Akranesi með
eiginmanni og tveimur sonum.
Rannsókn lögreglunnar beinist í
fyrstu að eiginmanni konunnar.
Hægt gengur að upplýsa málið í
byrjun en smátt og smátt kemst
lögreglan nær sannleikanum og
málið leysist í lokin á óvæntan hátt.
Málið upplýsist á þann hátt
að morðinginn játar en fróð-
legt væri að vita hvað verð-
ur um aðrar persónur sög-
unnar. Hugsanlega endar
Marrið í stiganum á þann
hátt sem hún gerir í þeim
tilgangi að halda opnum
möguleikanum á því að gefa
út fleiri bækur með per-
sónum sem koma við sögu í
bókinni.
Marrið í stiganum er trúverðug
saga sem lýsir varnarleysi barna
gagnvart ofbeldi, einelti, höfnun,
klíkumyndun, baktali, þöggun og
meðvirkni fullorðinna sem grunar
að ekki sé allt með feldu á heimili
barna en gera lítið sem ekkert í því.
Evu Björgu tekst vel að lýsa því
hversu mikil áhrif ofbeldi, einelti og
höfnun hafa og hve lengi þau vara.
Hin látna og Elma áttu það sam-
eiginlegt að hafa ekki viljað flytja
aftur á Akranes vegna fyrri reynslu
af búsetu þar og afleiðingar slæmra
atburða og upplifunar í æsku.
Persónusköpun í verkinu er ágæt
en á köflum klisjukennd. Persónu-
sköpun konunnar sem myrt var er
trúverðug þegar hún segir frá sem
barn og lýsingin á henni sem full-
orðinni konu en dýpka hefði mátt
persónusköpun Elmu sem aðal-
persónu bókarinnar. Bókin er full
löng og hefði að ósekju mátt fækka
þeim persónum sem kynntar voru
til sögunnar en gegndu litlu hlut-
verki í henni.
Marrið í stiganum er fyrsta bók
Evu Bjargar Ægisdóttur. Hún er
efnilegur rithöfundur og söguþráð-
ur og flétta bókarinnar góð sem hélt
lesanda vel við efnið.
Vinsælasta stelpan, flottasti
strákurinn, broddborgararnir, öf-
undin, grimmdin, leyndarmálin og
smásálirnar fá öll sitt pláss í bókinni
eins og þau fá í samfélagi nútímans.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Ofbeldi og morð á Akranesi
Skáldsaga
Marrið í stiganum bbbmn
Eftir Evu Björg Ægisdóttur.
Veröld gefur út, 2018. 384 bls.
GUÐRÚN
ERLINGSDÓTTIR
BÆKUR
Verðlaunabók
Marrið í stig-
anum er fyrsta
skáldsaga Evu
Bjargar Ægis-
dóttur.
Bandaríski leikarinn Robert De Niro hvetur landa sína til
að kjósa í komandi þingkosningum í Bandaríkjunum. Þessu
greinir BBC frá.
De Niro var einn þeirra sem fengu senda sprengju til sín í
síðustu viku, en sprengjurnar voru sendar til fjölmiðilsins
CNN, demókrata á borð við Barack Obama, Joe Biden og
Hillary Clinton sem og annarra sem gagnrýnt hafa Donald
Trump Bandaríkjaforseta.
„Guði sé lof að enginn meiddist. Ég þakka hugrökku og
úrræðagóðu öryggis- og lögreglufólki fyrir að vernda okk-
ur,“ sagði De Niro þegar hann tjáði sig um málið í fyrsta sinn opinberlega.
„Það er nokkuð sem er enn öflugra en sprengjur og það eru atkvæði ykkar.
Fólk verður að kjósa!“ De Niro hefur ítrekað lýst andúð sinni á Trump, kall-
að hann „fífl“ og „heimskingja“ og sagt hann vera þjóðinni til skammar.
Atkvæði eru kraftmeiri en sprengjur
Robert De Niro
Jeppe Brixvold,
rektor Rithöf-
undaskólans
(Forfatterskolen)
í Danmörku, hef-
ur verið rekinn
eftir aðeins þrjú
ár í starfi. Stjórn
skólans tók þessa
ákvörðun í fram-
haldi af bréfi 55
rithöfunda sem birtist í Berlingske
fyrr í þessum mánuði þar sem
stjórnin var hvött til að hreinsa til í
skólanum og rannsaka orðróm um
kynferðislega áreitni. Meðal þeirra
sem undirrita bréfið eru virtir höf-
undar á borð við Line Knutzon,
Katrine Marie Guldager og Naja
Marie Aidt.
Samhliða uppsögninni hefur ver-
ið komið á verkferli þannig að nem-
endur geti nafnlaust komið ábend-
ingum um ofbeldi á framfæri við
stjórnendur skólans. Í samtali við
Politiken segir Bodil Marie Stavn-
ing Thomsen stjórnarformaður að
Brixvold hafi mistekist að tryggja
frið innan skólans og að stjórnin
vilji byrja með hreint borð. Lög-
mannsstofunni Sirius advokater
hefur verið falið að rannsaka fyrr-
nefndan orðróm og mun hún skila
niðurstöðu í desember. Pablo
Llambias, forveri Brixvold í
rektorsstarfi, var neyddur til að
hætta 2015 þegar upp komst að
hann hefði áreitt nemanda við skól-
ann kynferðislega. Samkvæmt frétt
Politiken er ekki vitað til þess að
Brixvold hafi verið sakaður um
óviðurkvæmilega hegðun í starfi.
Jeppe Brixvold
Hreinsa til í Rithöfundaskólanum
Kvartett saxófónleikarans Hauks
Gröndal kemur fram á djass-
kvöldi Kex hostels í kvöld kl.
20.30 og er aðgangur að tónleik-
unum ókeypis, eins og alltaf á
djasskvöldum.
Auk Hauks skipa kvartettinn
þeir Ásgeir Ásgeirsson á gítar,
Sigmar Þór Matthíasson á kontra-
bassa og Erik Qvick á trommur.
Á efnisskránni verða vel valdir
djassslagarar úr amerísku söng-
bókinni með sérstakri áherslu á
sveiflu og almennan hressleika,
eins og því er lýst í tilkynningu.
Kex hostel er að Skúlagötu 28.
Kvartett flytur vel
valda djassslagara
Forsprakkinn Haukur Gröndal.
Kvikmyndin A Star Is Born
var sú mest sótta um
helgina, tæplega 3.000
manns sáu hana og miða-
sölutekjur námu um fjór-
um milljónum króna. Næst-
vinsælust var hrollvekjan
Halloween með um 2.500
gesti og tekjur upp á um
3,5 milljónir króna.
Johnny English var sú
þriðja tekjuhæsta eins og
helgina á undan og í fjórða
sæti er toppmynd helgar-
innar á undan, Venom, sem
1.330 manns sáu að þessu
sinni.
Bíóaðsókn helgarinnar
Stjarna á toppnum
A Star Is Born (2018) 2 4
Halloween Ný Ný
Johnny English Strikes Again 3 4
Venom 1 3
Smallfoot 4 6
Hunter Killer Ný Ný
Lof mér að falla 5 8
Here Comes the Grump 7 3
Dywizjon 303 (Squadron 303) Ný Ný
Undir halastjörnu 8 3
Bíólistinn 26.–28. október 2018
Nr.
Var
síðast
Vikur
á listaKvikmynd
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
Stjörnur Bradley Cooper og Lady Gaga í A
Star Is Born sem nýtur góðrar aðsóknar.
ICQC 2018-20
DRAUMAEIGN Á SPÁNI
Nánar á www.spanareignir.is
ÞÚ ERT Í ÖRUGGUMHÖNDUMHJÁ OKKUR
Aðalheiður Karlsdóttir
Löggiltur fasteignasali
adalheidur@spanareignir.is
Sími 893 2495
Ármúla 4-6, Reykjavík
Karl Bernburg
Viðskiptafræðingur
karl@spanareignir.is
Sími 777 4277
Ármúla 4-6, Reykjavík
FLOTTAR EIGNIR - GÓÐAR STAÐSETNINGAR
FJÖLBREYTT ÚRVAL - EITTHVAÐ FYRIR ALLA
Flamenca Village, Playa Flamenca Arenales del Sol, Los Arenales
Mare Nostrum, Guardamar
Gala, Villamartin
Muna, Los DolsesAllegra, Dona Pepa