Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.10.2018, Blaðsíða 16
Með fyrstu mótmælunum
Það var rólegt yfir hópnum sem mætti á mótmælatónleika Bubba Morthens á Austurvelli í hádeginu 8. október
á Austurvelli. Bubbi flutti nýtt lag, Ein stór fjölskylda, sem hann kallaði bjartsýnisóð til þjóðarinnar.
Morgunblaðið/Ómar
Opið sár
Hrunið setti miklar bygg-
ingaframkvæmdir í mið-
borginni í uppnám, þar á
meðal byggingu Tónlistar-
og ráðstefnuhússins og
upp kom umræða um að
hreinlega fylla upp í grunn-
inn og loka. Í viðtali nokkr-
um mánuðum eftir hrun
sagði Ólafur Elíasson, sem
hannaði glerhjúp suður-
hliðar hússins, að það væri
raunveruleg hætta á að Ís-
land sæti uppi með rúst í
miðborginni sem yrði
minnisvarði um þá ógæfu
sem dunið hefði yfir
landið.
Söfn og íþróttafélög í vanda
Á árunum fyrir hrun höfðu margar menningarstofnanir og íþróttafélög
treyst í auknum mæli á stuðning fyrirtækja. Sem dæmi hafði aðal-
styrktaraðili Sinfóníuhljómsveitar Íslands verið FL Group og Samsung
aðalstyrktaraðili Listasafns Íslands. Mörg íþróttafélög gripu til þess
ráðs að segja upp erlendum leikmönnum og þjálfurum.
Morgunblaðið/RAX
Álag á símaverum
Mikið álag var á hjálparlínum Rauða krossins og sérstakri upplýsingamiðstöð í utanríkisráðuneytinu
en þangað bárust um 200 símtöl á dag fyrstu vikurnar í október. Í alvarlegustu símtölunum til Rauða
krossins hafði fólk misst vonina vegna fjármálaástandsins.
Morgunblaðið/RAX
10 ÁR FRÁ HRUNI
16 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7.10. 2018