Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.10.2018, Page 17

Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.10.2018, Page 17
Ekki góðæri á landsbyggðinni „Þið getið leitað ráða hjá okkur, við höfum búið við kreppu í tíu ár, stöndum enn sæmilega upprétt og getum brosað,“ sagði Úlfar Ágústsson þegar Morg- unblaðið heimsótti hann og félaga hans á kaffistofu Vélsmiðju Ísafjarðar. Frá landsbyggðinni heyrðust víða raddir fólks sem sagði góðærið aldrei hafa náð til landsbyggðarinnar. Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Lifandi, áþreifanleg hlutabréf „Góður hestur er góð fjárfesting og miklu skynsamlegri heldur en hlutabréf- in. Hesturinn er alltaf til staðar en hitt er horfið,“ sagði Gunnar Arnarson hestamaður. Áhugi erlendis frá var einnig mikill þar sem menn sáu sér hag í að kaupa dýran hest hér á landi í ljósi gengis íslensku krónunnar. Hópknús Mikið mæddi á bankastarfs- mönnum, sem og flestum lands- mönnum, þær vik- ur og mánuði sem í hönd fóru. Um miðjan október áttu starfsmenn Glitnis sam- verustund á bíla- planinu við Kirkju- sand. Morgunblaðið/Árni Sæberg Vildu staðgreiðslu Íslensk innflutnings- fyrirtæki lentu mörg hver í því að vera beðin um að stað- greiða vörur frá er- lendum birgjum. Þrátt fyrir heims- endatilfinningu og hamstur sagði fram- kvæmdastjóri Félags íslenskra stórkaup- manna að innflutn- ingur væri ekki í hættu og skemmur heildsala voru fullar af vörum um miðjan október. Morgunblaðið/Árni Sæberg Gömul búhyggindi rifjuð upp Helga Árnadóttir, fyrrverandi heim- ilisfræðikennari, kallaði dætur sín- ar og ömmustelp- ur saman eitt kvöldið til að kenna þeim að baka hollt brauð í kreppunni og að stoppa í sokka. Nýtnin í fyrirrúmi Stoppa átti í sokka, prjóna leppa, tína ber og frysta mat. Helga sýndi dætrum sínum hvernig átti að gera þetta. Sala hannyrða- bóka jókst um 600% á einu ári eftir hrun. Morgunblaðið/Árni Sæberg Þjóðinni þjappað saman Ólafur Ragnar Grímsson og Dorrit Moussaieff heimsóttu ýmsa vinnustaði á haustmánuðum til að sýna fólki samhug í þrengingunum og um miðjan október komu þau við á Múlalundi. Straumur atvinnulausra lá í skólana Mönnun leik- og grunnskóla gekk betur en mörg undanfarin ár í október 2008. Staðan hafði verið slæm undir lok september en snarbreyttist á nokkrum vikum. Morgunblaðið/Árni Sæberg Morgunblaðið/Golli 7.10. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.