Morgunblaðið - 08.11.2018, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 08.11.2018, Qupperneq 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. NÓVEMBER 2018 Veður víða um heim 7.11., kl. 18.00 Reykjavík 5 súld Akureyri 3 skýjað Nuuk -8 heiðskírt Þórshöfn 10 rigning Ósló 7 alskýjað Kaupmannahöfn 8 þoka Stokkhólmur 7 þoka Helsinki 8 þoka Lúxemborg 11 skýjað Brussel 11 léttskýjað Dublin 8 skýjað Glasgow 10 skúrir London 12 skúrir París 13 alskýjað Amsterdam 12 léttskýjað Hamborg 12 heiðskírt Berlín 13 heiðskírt Vín 14 heiðskírt Moskva 2 þoka Algarve 18 léttskýjað Madríd 12 súld Barcelona 18 léttskýjað Mallorca 18 léttskýjað Róm 17 léttskýjað Aþena 17 léttskýjað Winnipeg -7 snjókoma Montreal 10 skýjað New York 14 heiðskírt Chicago 3 alskýjað Orlando 22 þoka  8. nóvember Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 9:34 16:50 ÍSAFJÖRÐUR 9:55 16:39 SIGLUFJÖRÐUR 9:38 16:21 DJÚPIVOGUR 9:08 16:15 VEÐUR KL. 12 Í DAG Á föstudag Austan 8-15 m/s, hvassast syðst. Rign- ing syðra og eystra, annars þurrt. Hiti 2 til 8 stig. Á laugardag Stíf norðaustanátt og rigning, einkum eystra, en þurrt suðvestantil. Hiti breytist lítið. Austan 10-18 m/s og væta, hvassast með suðurströndinni, en rofar til norðanlands. Hiti 2 til 10 stig, hlýjast á sunnanverðu landinu. Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Stýrivaxtahækkun Seðlabankans í gær er harðlega gagnrýnd á al- menna vinnumarkaðinum. Í yfirlýs- ingu miðstjórnar ASÍ í gær segir að hún muni ekki auðvelda að sátt náist í komandi kjaraviðræðum við Sam- tök atvinnulífsins. „Þetta eru ískaldar kveðjur frá Seðlabankanum inn í kjaraveturinn þar sem það er alveg klár krafa hreyfingarinnar að vextir lækki og að böndum verði komið á verðtrygg- inguna,“ segir Ragnar Þór Ing- ólfsson, formaður VR. „Þetta er al- gjörlega á skjön við þær leiðir sem við viljum fara og er mjög eldfimt útspil inn í mjög viðkvæmt ástand á vinnu- markaðinum. Þetta sýnir líka og undirstrikar að það þarf að fara í algjöra og gagngera endurskoðun á peningastefnu Seðlabankans og þeim sem henni stjórna. Þetta eru ískaldar kveðjur og mikil von- brigði,“ sagði Ragnar Þór í samtali skömmu fyrir fund miðstjórnar ASÍ í gær. Ragnar Þór segir að allt sé nú að komast á fullan snúning vegna und- irbúnings að endurnýjun kjara- samninga eftir þá miklu endurnýjun sem varð á forystu ASÍ á þingi sam- bandsins á dögunum. ,,Við höfum verið að bíða eftir því að geta farið að bretta upp ermar og tala saman eftir að þessi forystuskipti hafa farið fram, þannig að umboðið sem við höfum er alveg skýrt,“ segir hann. Fulltrúar verkalýðshreyfingar- innar ræða sín á milli þessa dagana og á Ragnar Þór von á stífum funda- höldum með Samtökum atvinnulífs- ins (SA) á næstunni auk viðræðna við stjórnvöld. ,,Þetta er loksins að fara í gang og það er jákvætt.“ Húsnæðismál í forgangi SA hafa átt einn formlegan fund með samninganefndum Starfs- greinasambandsins og VR og verð- ur fundað á ný í næstu viku, að sögn Halldórs Benjamíns Þorbergssonar, framkvæmdastjóra SA. Tilgangur þessara funda er að forgangsraða úr kröfugerðinni en forystumenn launaþegahreyfingarinnar og sam- taka atvinnurekenda funduðu einnig með ráðherrum og forsvarsmönnum sveitarfélaga í fyrradag. Verða að- gerðir og lausnir í húsnæðismálum efst á baugi fyrst í stað. ,,Það sem kom upp úr kafinu á þessum fundi er að það virðist vera samhljómur um það að þessar kjaraviðræður hverfist fyrst og fremst um húsnæðismál, sem ég tel að sé jákvætt,“ segir Halldór. Þar sé snertiflötur sem nauðsynlegt sé að ná á milli atvinnurekenda, verka- lýðshreyfingarinnar og stjórnvalda. „Þetta er hinn raunverulegi vandi sem steðjar að þeim sem hafa fengið minnsta hækkun ráðstöfunartekna á undanförnum árum og ég hef sagt og verkalýðshreyfingin er farin að láta hafa það eftir sér líka, að við leysum ekki framboðsskort á fast- eignum með því að hækka laun. Við gerum það með því að byggja meira. Mér finnst mjög ánægjulegt að heyra að við séum efnislega sam- mála um þetta og að markmiðið sé að verða skýrt í kjaraviðræðunum, þ.e. að leysa þessa húsnæðiskreppu sem ríkir og ég er fullviss um að við munum leysa hana eins og við höf- um gert áður í sögunni,“ segir Hall- dór. Ragnar Þór segist vera ánægður með forgangsröðunina. ,,Það á að byrja á stóru málunum eins og hús- næðismálunum en þar er mesti sam- hljómurinn á milli aðila vinnumark- aðarins og stjórnvalda. Það er mikill vilji hjá öllum að koma með lausnir og raunveruleg úrræði. Við erum þannig að byrja á þeim enda sem ég tel að geti verið auðleystari endi kjaradeilunnar, sem er hárrétt nálg- un á viðfangsefnið að mínu mati. Það er stuttur tími til stefnu og við þurfum að hafa hraðar hendur.“ Hlakkaði til í fyrsta skipti að fara á fund miðstjórnar ASÍ Í gær kom nýkjörin miðstjórn ASÍ saman til fyrsta fundar eftir þá miklu endurnýjun sem átti sér stað á skipan hennar á ASÍ-þinginu. Ragnar Þór sagði miðstjórnina ræða hvernig unnið verði að brýn- um málum sem tekin verða fyrir á vettvangi ASÍ með markvissari hætti en áður og ákveðin verka- skipting til þess að blása lífi í og hraða málum. ,,Mér líst vel á þetta og hlakka mikið til,“ sagði hann. ,,Ég held að þetta sé í fyrsta skipti sem ég hlakka til að fara á mið- stjórnarfund.“ „Þetta eru ískaldar kveðjur“  Formaður VR segir vaxtahækkun Seðlabankans mjög eldfimt útspil  Kjaraviðræður í fullan gang  Framkvæmdastjóri SA segir samhljóm um að viðræður hverfist fyrst og fremst um húsnæðismál Morgunblaðið/Eggert Viðræður Fulltrúar ríkisstjórnar Íslands og heildarsamtaka á vinnumarkaði voru á meðal þeirra sem hittust á fundi í Ráðherrabústaðnum í gær. Ragnar Þór Ingólfsson „Við teljum að þessi hækkun vaxta sé ótímabær. Hefðum kosið að Seðlabankinn hefði haldið stýri- vöxtum óbreytt- um en verið með í staðinn sterk varnaðarorð varðandi kom- andi kjarasamn- inga og ekki síð- ur varðandi þróunina á vinnu- markaði,“ segir Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. „Mér finnst raunar með ólík- indum að Seðlabankinn komi ekki með sviðsmyndagreiningu um áhrif mismunandi niðurstaðna komandi kjarasamninga. Það væri mun sterkara innlegg fyrir aðila vinnumarkaðarins, þegar samn- ingar eru að hefjast, en eftir einn eða tvo mánuði þegar viðræður verða langt komnar,“ segir Halldór. Spurður um áhrif ákvörðunar- innar á kjarasamninga vildi Hall- dór Benjamín aðeins segja það að vaxtahækkun hafi ekki jákvæð áhrif á viðræður um kjarasamn- inga og vísar meðal annars til yf- irlýsinga forystumanna verkalýðs- félaga í gær. „Seðlabankinn segist vera að bregðast við hækkandi verðbólguvæntingum en gerir of lítið úr óvissu á vinnumarkaði. Það er einnig að renna upp fyrir sífellt fleiri Íslendingum að hagkerfið er að kólna hratt. Benda má á nýlegar sviptingar í flugheiminum. Seðla- bankinn lítur hins vegar í bak- sýnisspegilinn og er að bregðast við meiri hagvexti á fyrrihluta árs- ins en reiknað var með,“ segir Halldór. Hækkun vaxta er ótímabær FRAMKVÆMDASTJÓRI SAMTAKA ATVINNULÍFSINS Halldór Benjamín Þorbergsson FATNAÐUR Á ALLA FJÖLSKYLDUNA Borgartún 3, sími 847 1660, www.bambus.is, bambus@bambus.is bambus.is bambus.is • Opið mánudaga og fimmtudaga frá kl. 10-14 úr lífrænni ull og silki Kíktu á netverslun okkar bambus.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.