Morgunblaðið - 08.11.2018, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. NÓVEMBER 2018
Reykjavíkurborg innheimtir 92milljarða króna af skatttekjum
á þessu ári, ríflega 7 milljörðum
meira en í fyrra.
Þetta felur í sér meira en 58 þús-und króna skattahækkun á
hvern íbúa í borginni á milli ára.
Samkvæmt nýrri fjárhagsáætluner gert ráð fyrir að skattar
hækki um yfir 8 milljarða á næsta ári
og verði rúmlega 100 milljarðar
króna.
Samkvæmt því hækka skattar áíbúa á næsta ári um 67 þúsund
krónur.
Samtals er þetta skattahækkunupp á 125 þúsund krónur á
hvern íbúa á tveimur árum.
Ætli Reykvíkingar telji sig betursetta sem þessu nemur?
Önnur spurning sem þeir hljóta aðspyrja sig er hvers vegna meiri-
hlutinn samþykkir ekki tillögur sjálf-
stæðismanna í borginni um lækkun
útsvars og fasteignaskatta.
Álagningarhlutföll í borginni eru íhæstu hæðum og við það bætist
að með stefnu borgarinnar, sem hef-
ur leitt af sér mikla hækkun húsnæð-
isverðs, fær borgin aukna skatta.
Er ekki allt í lagi að slaka aðeins áklónni gagnvart almenningi?
Eða er það hlutverk hins opinbera að
kreista allt það fé út úr fólki sem
hægt er?
Tímabært að
losa skattaklóna
STAKSTEINAR
Askalind 3 • 201 Kópavogur • Sími: 562 1500 • friform.is
Opið:
Mán. - fim. kl. 09 til 18
Föstudaga kl. 09 til 17
Laugardagar kl. 11 til 15
styrkur - ending - gæði
í öll herbergi heimilisins
hágæða DansKar innrÉTTingar
ÞvOTTahúsinnrÉTTingar
elDhúsinnrÉTTingar
baðherbergisinnrÉTTingar
FaTasKápar & rennihurðir
við gerum ÞÉr
hagsTæTT TilbOð
í innrÉTTingar,
raFTæKi, vasKa Og
blönDunarTæKi
vasKar & blönDunarTæKi
speglar
vasKar & blönDunarTæKi
hillur Og FylgihluTir
vasKar & blönDunarTæKi
raFTæKi
raFTæKi
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Samningarnefndarmenn atvinnu-
rekenda og launþega sátu náms-
stefnu í góðum samningaháttum á
B59 í Borgarnesi í gær. Ríkis-
sáttasemjari stendur fyrir náms-
stefnunum. Þrjár námsstefnur hafa
verið haldnar á árinu og sú fjórða
verður haldinn síðar í mánuðinum.
Bryndís Hlöðversdóttir ríkis-
sáttasemjari, sagði í samtali við
Morgunblaðið í fyrradag að aðsókn
hefði farið fram úr björtustu vonum
og ef næg eftirspurn yrði væri hugs-
anlegt að bætt yrði við námskeiði
eftir áramót.
Á námstefnunni, sem er að fyrir-
mynd IlO, Alþjóða vinnumálastofn-
unarinnar, er farið meðal annars yfir
góða samningahætti, samninga-
tækni, lagaumhverfi, efnahagslega
þætti og þagnarskyldu.
Þegar ljósmyndara Morgunblaðs-
ins bar að í gær voru þátttakendur í
hlutverkaleikum. Hópurinn sem
ljósmyndari hugðist taka mynd af
fjallaði um leka til fjölmiðla og tók
hlutverk sitt svo alvarlega að ljós-
myndari þurfti að svara því til hvort
hann hefði fengið leyfi til þess að
taka myndir áður en hann smellti af.
Morgunblaðið/Theodór Kr. Þórðarson
Samvinna Atvinnurekendur og verkalýðshreyfingin undirbúa sig af kost-
gæfni undir komandi kjarasamningsvetur og nýta tímann vel.
Fjölmiðlar tæklaðir
Atvinnurekendur og verkalýðs-
hreyfingin læra góða samningahætti
Tveir íslenskir ríkisborgarar á þrí-
tugsaldri eru í haldi lögreglunnar í
Ástralíu eftir að mikið magn fíkni-
efna fannst í fórum þeirra. Eru þeir
grunaðir um stórfelldan innflutning
á kókaíni til landsins.
Annar mannanna var handtekinn
á alþjóðaflugvellinum í Melbourne
eftir að landamæraverðir fundu mik-
ið magn fíkniefna í ferðatösku hans.
Var hann þá nýkominn til Ástralíu
með flugi frá Hong Kong. Hinn mað-
urinn var handtekinn eftir að fíkni-
efni fundust í húsleit á hótelherbergi
hans í Melbourne. Hafa mennirnir
tveir verið úrskurðaðir í gæsluvarð-
hald til 13. febrúar næstkomandi.
Sveinn H. Guðmarsson, upplýs-
ingafulltrúi utanríkisráðuneytisins,
segir málið komið inn á borð borg-
araþjónustu utanríkisráðuneytisins.
Geta starfsmenn ráðuneytisins veitt
Íslendingum sem komast í kast við
lögin erlendis ýmiss konar aðstoð,
s.s. við að finna lögmenn með sér-
þekkingu á viðkomandi sviði.
Með um sjö kíló af fíkniefnum
Samkvæmt upplýsingum frá lög-
reglunni í Melbourne var sá sem
handtekinn var á flugvellinum með
fjögur kíló af fíkniefnum falin í far-
angurstösku. Maðurinn á hótelinu er
sagður hafa verið með 2,7 kíló af kók-
aíni þar. Alls eru þetta því hátt í sjö
kíló af fíkniefnum.
Tveir teknir fyrir stórfellt smygl
Íslendingar í haldi lögreglunnar í Ástralíu Teknir með mikið magn af kókaíni
Ljósmynd/Australian Boarder Force
Teknir Fíkniefnin voru meðal ann-
ars falin inni í tösku Íslendingsins.