Morgunblaðið - 08.11.2018, Page 16

Morgunblaðið - 08.11.2018, Page 16
16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. NÓVEMBER 2018 VIÐTAL Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Þetta er hefðbundin spennusaga, ráðgáta með smá reimleikum að baki til að krydda söguna. Það er í fyrsta sinn sem ég prófa það og það var mjög skemmtilegt,“ segir Ragnar Jónasson rithöfundur um nýjustu skáldsögu sína sem kom út í vikunni. Bókin nefnist Þorpið og í henni segir af Unu, ungum kennara úr höf- uðstaðnum sem ræður sig til starfa í skólanum á Skálum á Langanesi. Í þessu minnsta þorpi landsins árið 1985 búa aðeins tíu manns og nem- endur í skólanum eru tveir. Sam- félagið er afar lokað og Unu finnst eins og allir hafi eitthvað að fela. „Þorpið Skálar var til í gamla daga. Ég fór þarna norður þegar ég var að skrifa bókina og skoðaði rúst- ir þorpsins. Það var mjög skemmti- legt því þetta er sláandi staður fyrir þorp, eins afskekkt og hægt er. Mjög kalt og bert.“ Þetta er tíunda bók Ragnars á tíu árum. Bækur hans hafa notið mikilla vinsælda og má hiklaust setja Ragn- ar í flokk vinsælustu höfunda lands- ins. Þorpið er fyrsta „sjálfstæða“ bók Ragnars, bók sem er ekki hluti af stærri seríu. „Já, þetta er í fyrsta sinn sem ég er ekki bundinn af neinni sögu. Þetta eru alveg einnota persónur,“ segir hann í léttum dúr. „Það var gaman að gera þetta einu sinn. Svo snýr maður sér kannski að gömlum kar- akterum næst – eða glænýjum.“ Alltaf á metsölulista En það er ekki bara hér heima sem bækur Ragnars njóta vinsælda. Bækur hans hafa verið gefnar út víða um heim síðustu ár og verið vel tekið. Hvergi þó eins vel og í Frakk- landi. Fyrsta bókin kom út í Frakklandi í maí 2016 og síðan hafa tvær til við- bótar verið gefnar út. Bækurnar fengu einföld íslensk nöfn; Snjó- blinda kallast Snjór, Náttblinda kall- ast Mörk, Myrknætti kallast Nátt. Samtals hafa þessar þrjár bækur selst í yfir 300 þúsund eintökum. Fjórða bókin kom út á dögunum, Sótt, en íslenskir spennusagna- unnendur þekkja hana sem Rof. „Þetta er eiginlega stórkostlegt ævintýri þarna í Frakklandi. Að hafa selt 300 þúsund bækur á þessum tveimur árum. Það er held ég helm- ingurinn af því sem ég hef selt í heiminum á öllum þessum tíu árum,“ segir Ragnar. Aðspurður segist hann ekki vita hvað veldur því að Frakkar eru svo áhugasamir um verk hans. „Af ein- hverjum ástæðum var ég svo hepp- inn að finna þennan áhuga þarna. Það er náttúrlega mikill áhugi á ís- lenskum bókmenntum í Frakklandi og svo virðist það hafa virkað að gefa bókunum íslenska titla. EM í Frakk- landi hjálpaði eflaust eitthvað en svo reyni ég líka að fara þangað eins mikið og ég get og kynna bækurnar. Útgefandinn hefur líka verið dugleg- ur að koma með blaðamenn hingað til lands til kynningar. En það er samt sem áður magnað að bækurnar eru alltaf með mest seldu glæpasög- unum og rjúka inn á metsölulista.“ Um jólin kemur út kassi með þremur glæpasögum hjá stærsta kiljuútgefanda Frakklands eftir þrjá norræna höfunda: Henning Mankell, Arnald Indriðason og Ragnar. „Þetta er allt hálfóraunverulegt þetta ævintýr,“ segir Ragnar um þessa upphefð. Þrátt fyrir velgengnina og ófáar heimsóknir kveðst Ragnar ekki vera frönskumælandi. „Nei, því miður. Ég þarf að fara að bæta úr því. Ég skil auðvitað eitthvað og er byrjaður að læra setningar til að skrifa inn í bækurnar þegar ég árita. En mig langar mikið að læra frönsku.“ Skrifar á hverjum degi Þrátt fyrir velgengnina segir Ragnar að það hafi ekki hvarflað að sér að hætta í dagvinnunni og snúa sér alfarið að ritstörfum. Ragnar starfar sem kunnugt er sem yfir- lögfræðingur hjá Gamma. „Nei. Ég hef mjög gaman af því að vinna í lögfræði og í fjármálaheim- inum. Ég held að ég kæmi ekkert meiru í verk þótt ég væri bara að skrifa. Þetta þarf að vinnast hægt, jafnt og þétt. Mér finnst ágætt að gefa mér stuttan tíma á hverjum degi í skriftir. Þetta er smá tími í lok hvers dags þar sem ég tæmi hugann og á hverju ári kemur á endanum út bók. Þessi nýja bók er sú tíunda, ég hefði ekki trúað því þegar ég fór af stað skömmu eftir hrun,“ segir Ragnar sem leggur á það ríka áherslu hvað hann fái mikið út úr því að skrifa. „Mér finnst þetta alveg ótrúlega gaman. Án skrifanna myndi ég fyllast tómleikatilfinningu. Ef ég væri ekki að skrifa bækur væri ég bara að skrifa eitthvað annað. Allt- af.“ Salan „stórkostlegt ævintýri“  Ragnar Jónasson hefur slegið í gegn í Frakklandi  Hefur selt yfir 300 þúsund bækur á skömmum tíma  Ný bók gerist á Langanesi  Nýtur þess enn að sinna lögfræðistörfum meðfram skrifunum Morgunblaðið/Árni Sæberg Vinsæll í Frans Ragnar Jónasson hefur gefið út tíu bækur á jafnmörgum árum. Fjórar hafa komið út í Frakklandi. 10 glæpasögur hefur Ragnar gefið út á 10 árum Ragnar Jónasson 300.000 eintökhafa selst af bókum Ragnars í Frakklandi 600.000 einök hafaselst af bókum Ragnars á heimsvísu 79.000 ein-tök seldust af fyrstu bók Ragnars í Frakklandi árið sem hún kom út. Það er þrisvar sinnum meiri sala en af fyrstu bók Arnaldar Indriðasonar, Mýrinni, á fyrsta ári þar í landi, skv. upplýsingum frá útgefanda Ragnars 11.000 eintökvoru prentuð af nýjustu bók Ragnars, Þorpinu, sem kom út í vikunni Rithöfundurinn er aðeins 42 ára gamall og gæti því átt langan feril fyrir höndum. Til samanburðar var Ragnar fjórum árum yngri en Arnaldur Indriðason þegar fyrstu bækur þeirra komu út 20 tungumál hafabækur Ragnars verið þýddar á. Þær hafa verið gefnar út í hátt í 30 löndum Þótt Frakkland sé stærsti markaðurinn fyrir bækur Ragnars hafa þær verið þýddar á fjölda tungumála og komið út víða síðustu ár. „Já, þetta er komið ansi víða. Það er búið að þýða bækurnar á um tuttugu tungumál og þær hafa verið gefnar út í hátt í þrjátíu löndum. Það var uppboð á bókunum meðal útgefenda á Spáni í sumar. Þar fyrir utan er þetta komið til stærstu landanna, Bandaríkjanna, Bretlands og Þýskalands, en líka til Japans og Kóreu og meira að segja til Armeníu og Eþíópíu,“ segir Ragnar. Gefinn út í Armeníu og Eþíópíu BÆKUR RAGNARS KOMA ÚT Á FJÖLDA TUNGUMÁLA TORMEK Brýnsluvélar s Tormek T-4 Verð 56.980 Allar stýringar fyrirliggjandiOp ið v irka dag a frá 9-18 lau frá 1 0-16 Laugavegi 29 | sími 552 4320 | www.brynja.is | verslun@brynja.is s Tormek T-8 Verð 96.800 Verslunin Brynja er umboðsaðili TORMEK á Íslandi Ný vefvers lun brynja.i s

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.