Morgunblaðið - 08.11.2018, Side 20

Morgunblaðið - 08.11.2018, Side 20
20 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. NÓVEMBER 2018 Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Um ellefu kílómetrar af farvegi Grenlækjar í Landbroti rétt vestan Kirkjubæjarklausturs voru á þurru í um tvo mánuði vorið 2016. Vatns- þurrðin virðist hafa haft veruleg áhrif til skerðingar á tveimur til þremur árgöngum urriða. Það bitn- ar beint á stofnstærð og mun að lík- indum koma fram í minni fiskgengd að 3-6 árum liðum. Þetta er meðal þess sem fram kemur í nýrri skýrslu um vatns- þurrðina og áhrif á lífríki í vatni. Höfundar eru þau Magnús Jóhanns- son, Ragnhildur Þ. Magnúsdóttir, Eydís Salome Eiríksdóttir og Ben- óný Jónsson, sérfræðingar á Haf- rannsóknastofn. Í skýrslunni kemur fram að vatnsþurrðin hafði mikil nei- kvæð áhrif á vatnalíf. Á stórum svæðum þar sem vatn þraut drapst allur þörungur og mosi. Frumframleiðsla (magn blaðgrænu) var þar enn mjög lítil tveimur mán- uðum eftir að vatn komst á aftur en hafði vaxið töluvert ári síðar. Smá- dýralíf á árbotninum varð fyrir mikl- um skakkaföllum og hefur líklega stærsti hluti þess drepist. Varlega verði farið í veiðinýtingu Á vatnasvæði Grenlækjar er stunduð umtalsverð stangveiði. Mest veiðist af urriða eða sjóbirtingi og er hann að miklu leyti sjógeng- inn, en bleikjan sem veiðist er lík- lega að mestu staðbundin. Veiði- svæðin eru í Grenlæk, Jónskvísl og Sýrlæk. Stórt Skaftárlaup varð haustið 2015 sem olli því að varnar- garðar ofan við Árhól, sem eiga að varna því að Skaftá berist út á Eld- hraunið, brustu og mikill aur barst þangað í hlaupinu. Um áhrif á veiðinýtingu er bent á að sambærileg vatnsþurrð hafi orðið 1998 og í kjölfarið hafi mesti sam- drátturinn í veiði orðið 3–6 árum síð- ar þegar árgangar sem urðu verst úti voru í veiðinni. Haustið 2016 gekk talsvert af sjó- birtingi á hrygningarstöðvarnar, sem höfðu farið á þurrt fyrr um sumarið. Sá fiskur hefur að líkindum náð að hrygna þar. Þessi hluti stofnsins hefur líklega að mestu ver- ið genginn í sjó um vorið þegar vatnsþurrðin varð. Árið 2017 var þar talsvert af urriðaseiðum á fyrsta ári, en seiðamælingarnar benda til að eldri árgangar hafi mikið til drepist, segir í skýrslunni. Þar segir að við þær aðstæður sem nú séu á vatnasvæði Grenlækj- ar sé vert að fara varlega í veiðinýt- ingu. Til að hlífa fiskstofnum fyrir veiði ætti að takmarka þann fjölda fiska sem má aflífa. Hófleg veiði á komandi árum ætti að stuðla að því að minnka þá lægð sem vænta má vegna vatnsþurrðarinnar 2016. Ljósmynd/Benóný Jónsson Skakkaföll Vatn seytlar á neðri hluta Grenlækjar í júli 2016, en vatn þraut þá á efri hlutanum. Vatnsþurrðin bitnaði á 2-3 árgöngum urriða  Hafði mikil neikvæð áhrif á vatnalíf í Grenlæk Kringlunni 4c – Sími 568 4900 MIÐNÆTUR SPRENGJA Í KRINGLUNNI í kvöld 8. nóvember 20% AFSLÁTTUR AF ÖLLUM VÖRUM Opið til miðnættis Íslenskar orkurannsóknir, ÍSOR, auk innlendra og erlendra sam- starfsaðila, hafa hlotið rúmlega tveggja milljarða króna styrk úr Horizon 2020, rannsókna- og ný- sköpunaráætlun Evrópusambands- ins, til verkefnisins GECO. Verkefn- ið, sem er til fjögurra ára, snýst um að þróa áfram aðferðir til sporlausr- ar nýtingar jarðhita. „Markmið GECO-verkefnisins, sem stendur fyrir Geothermal Emission Control, er að þróa jarð- hitavirkjanir með sem allra minnsta losun koltvíoxíðs (CO2) og brenni- steinsvetnis (H2S). Það byggist að stórum hluta á CarbFix-niðurdæl- ingaraðferðinni sem þróuð hefur verið við Hellisheiðarvirkjun undan- farinn áratug. Þar er koltvíoxíð og brennisteinsvetni leyst upp í vatni og dælt niður í berggrunninn þar sem það binst í steindunum kalsíti og pýríti. Aðferðin verður nú þróuð enn frekar og niðurdæling reynd á Ítalíu, Tyrklandi og Þýskalandi. Auk þess verður unnið að því hagnýta jarð- hitagastegundir en lykillinn að því er að skilja að brennisteinsvetni og koltvíoxíð. Innan GECO verður einnig unnið að aðferðum til um- hverfisvöktunar á jarðhitasvæðum og að því að auka skilning á hegðun og afdrifum jarðhitagassins eftir nið- urdælingu. Þættir ÍSOR í verkefninu lúta að líkangerð byggðri á jarðfræði, forða- fræði og jarðefnafræði, umhverfis- vöktun og fjarkönnun m.a. með dróna og þróun efnagreiningar- aðferða og staðla,“ að því er segir í frétt á heimasíðu Íslenskra orku- rannsókna, ÍSOR. Fjölþjóðlegt samstarf Innlendir þátttakendur í verkefn- inu eru, auk ÍSOR og Orkuveitu Reykjavíkur, GEORG (rannsókn- arklasi í jarðhita), Orka náttúrunnar og Háskóli Íslands. Auk þeirra taka þátt í verkefninu þátttakendur frá Frakklandi, Ítalíu, Spáni, Hollandi, Tyrklandi, Bretlandi, Þýskalandi og Noregi. gudni@mbl.is Fengu styrk upp á tvo milljarða króna  Þróa sporlausa nýtingu jarðhita Morgunblaðið/Kristinn Jarðhiti Margar þjóðir taka þátt í að þróa nýtingu jarðhitans. Allt tiltækt lið björgunarsveita á Suðurlandi var kallað út eftir að til- kynnt var um ferðamann sem varð viðskila við hóp í Reynisfjöru í gær. Maðurinn fannst, heill á húfi, áður en víðtæk leit að honum hófst. Ágúst Leó Sigurðsson, svæðis- stjóri björgunarsveita, sagði að boð hefðu komið frá lögreglu um að 25 manna hópur hefði verið í Reynis- fjöru og einn úr hópnum væri týnd- ur. „Þá settum við mikið viðbragð í gang,“ segir Ágúst í samtali við mbl.is. Björgunarsveitir frá Vík voru kallaðar út og að sögn Ágústs átti að kalla þyrlu Gæslunnar til leitar með hitamyndavél. Auk þess voru björgunarsveitir í Vestmanna- eyjum boðaðar en þaðan áttu menn að koma á björgunarbáti. „Við ætl- uðum að einblína á ströndina og leita í fjörunni,“ segir hann. Til þess kom þó ekki því mað- urinn fannst áður en víðtæk leit hófst. Einn hópur björgunarsveit- armanna var kominn á vettvang þegar maðurinn skilaði sér. „Hann týndist þó í töluverðan tíma og hef- ur greinilega labbað út frá hópnum. Hann fór allavega ekki í fjöruna,“ segir Ágúst. Ferðamaður fannst áður en leit hófst Álagningarhlutfall fasteignaskatts verður lækkað í Hafnarfirði á næsta ári, samkvæmt frumvarpi að fjár- hagsáætlun bæjarins sem lagt verð- ur fram til fyrri umræðu 14. nóvem- ber næstkom- andi. Þá verður komið til móts við barnafjölskyldur með auknum systkinaafslætti af leikskólagjöld- um auk þess sem þriðja systkini fær frítt fæðis- gjald í grunnskól- um. Gert er ráð fyr- ir því að álagningarhlutfall fast- eignaskatts af atvinnuhúsnæði lækki úr 1,57% í 1,4% og af íbúðarhúsnæði úr 0,28% í 0,26%. Í frétt á vef bæj- arins kemur fram að það eru við- brögð við mikilli hækkun á reiknuðu fasteignamati í Hafnarfirði. Útsvar verður óbreytt, 14,48%. Fjárfest í félagslegum íbúðum Gert er ráð fyrir áframhaldandi jákvæðri rekstrarniðurstöðu. Á næsta ári verða tekjur umfram gjöld 985 milljónir kr. en áætlað er að hagnaðurinn verði tæpar 800 millj- ónir á árinu 2018. Skuldaviðmið heldur áfram að lækka og verður um 120% við lok næsta árs, samkvæmt áætluninni. Boðuð er áframhaldandi uppbygg- ing og aukin þjónusta við íbúa á öll- um sviðum. Þannig verður félagsleg- um íbúðum fjölgað og keyptar íbúðir fyrir um 500 milljónir kr. á ári næstu fjögur árin. Auknum fjármunum verður varið til þess að halda áfram að þróa og festa nýja snemmtæka þjónustu í sessi en unnið hefur verið að verkefninu allt árið. Verkefnið snýst um um að finna leiðir til þess að bæta félags-, skóla- og geðheil- brigðisþjónustu við leik- og grunn- skólabörn og fjölskyldur þeirra. Þannig hefur sálfræðingum til að sinna börnum verið fjölgað mjög á árinu. Á vef bæjarins kemur fram að markmiðið er að sinna forvarnar- hlutverki enn frekar, halda nám- skeið og ganga á biðlista. Áfram verður unnið að fjölþættri heilsurækt eldri íbúa í Hafnarfirði og að þróa og bæta þjónustu við eldri borgara í heimahúsum svo sem með nýtingu velferðartækni. Gert er ráð fyrir að síðari umræða um fjárhagsáætlun fyrir næsta ár og fjögurra ára áætlun verði afgreidd í bæjarstjórn á fundi í desember. Lækka álagningu fasteignaskatta  Góður afgangur hjá Hafnarfjarðarbæ Rósa Guðbjartsdóttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.