Morgunblaðið - 08.11.2018, Page 32
hagkvæma og áreiðanlega póst-
þjónustu fyrir allt landið, m.a. með
því að tryggja aðgang að alþjón-
ustu, lágmarksþjónustu sem skil-
greind væri hverju sinni, og að
stuðla að samkeppni á markaði.
Í frumvarpinu er gert ráð fyrir
að rekstur póstþjónustu í atvinnu-
skyni verði ekki lengur leyfisskyld
starfsemi hér á landi svo sem ver-
ið hefur heldur skráningarskyld.
Lögaðilar innan EES-svæðisins
eða í aðildarríkjum Alþjóða-
viðskiptastofnunarinnar fá því al-
menna heimild til að veita póst-
þjónustu hér á landi að uppfylltum
skilyrðum ákvæða frumvarpsins.
Öll aðildarríki á Evrópska efna-
hagssvæðinu hafa þegar afnumið
einkarétt ríkis á póstþjónustu.
Í frumvarpinu er gerð grein fyr-
ir alþjónustu en sú þjónusta er
skilgreind sem tiltekin lágmarks-
þjónusta sem allir notendur póst-
þjónustu á landinu eiga rétt á,
óháð staðsetningu og á viðráðan-
legu verði. Alþjónusta nær bæði til
póstsendinga innanlands og til
annarra landa. Lagt er til að sama
þjónusta skuli standa þeim til boða
sem búa við sambærilegar að-
stæður og að alþjónusta taki mið
af tækni- og samfélagsþróun, hag-
rænum þáttum og þörfum not-
enda. Í alþjónustu felst aðgangur
að afgreiðslustað og póstkössum
en einnig skylda til að tryggja að
póstkassar sem falla undir alþjón-
ustu séu tæmdir a.m.k. tvisvar í
viku eða í samræmi við fjölda
dreifingardaga á viðkomandi
svæði. Ekki er gert ráð fyrir
breyttu fyrirkomulagi við póst-
útburð í fyrstu frá því sem nú er
og áfram miðað við útburð tvo
virka daga í viku.
Aukagjald á pakka frá Kína
Frumvarpið gerir ráð fyrir að
ráðherra hafi þrjár leiðir til að
velja þjónustuveitanda sem skylt
er að veita alþjónustu. Í fyrsta lagi
með samningi við tiltekinn póst-
rekanda með almenna heimild, í
öðru lagi með útnefningu póstrek-
Guðmundur Magnússon
gudmundur@mbl.is
Tímamót verða í póstþjónustu á
Íslandi ef lagafrumvarp Sigurðar
Inga Jóhannssonar, samgöngu- og
sveitarstjórnarráðherra, um það
efni verður að lögum. Samkvæmt
frumvarpinu verða síðustu leifar
einkaréttar ríkisins, póstburður
lokaðra áritaðra bréfa sem eru 50
grömm eða léttari, afnumdar.
Jafnframt gerir frumvarpið ráð
fyrir því að ríkið tryggi aðgang að
alþjónustu, skilgreindri lágmarks-
þjónustu óháð staðsetningu og á
viðráðanlegu verði. Um er að ræða
heildarendurskoðun á lögum um
póstþjónustu frá árinu 2002. Verði
frumvarpið samþykkt taka nýju
lögin gildi 1. janúar 2020. Með því
er verið að gera Íslandspósti, sem
er opinbert hlutafélag, kleift að
aðlaga sig breytingunni.
Breytingar á póstþjónustu
Ráðherra sagði í framsöguræðu
sinni fyrir frumvarpinu á þriðju-
daginn að miklar breytingar hefðu
orðið á eðli og rekstrarumhverfi
póstþjónustu á síðustu árum. Með
tilkomu nýrrar tækni og sam-
skiptalausna hefði dregið verulega
úr vægi hefðbundinnar póstþjón-
ustu. Almennum bréfasendingum
hefði til að mynda fækkað úr tæp-
um 60 milljónum árið 2008 í rúmar
20 milljónir 2017. Ráðherra sagði
póstþjónustu þó áfram gegna mik-
ilvægu hlutverki, ekki síst fyrir at-
vinnulífið, og að hún yrði áfram
nauðsynlegur þáttur í netverslun.
Markmið laganna væri að tryggja
anda eða í þriðja lagi með útboði.
Sigurður Ingi sagði í framsögu
sinni á Alþingi um þetta efni:
„Það liggur fyrir að útboð er ekki
vænlegt strax, verði frumvarpið
að lögum, og líklegt þykir að
samningaleiðin verði reynd áður
en gripið verði til útnefningar. Í
frumvarpinu er byggt á því að
ákjósanlegast sé að alþjónusta
verði einfaldlega veitt á markaðs-
legum forsendum.“
Í frumvarpinu er tekið sér-
staklega á vanda sem Íslands-
póstur hefur að undanförnu nefnt
sem ástæðu versnandi rekstrar-
stöðu sinnar. Fyrirtækið hefur í
reynd þurft að niðurgreiða sívax-
andi póstsendingar með ýmiss
konar varningi frá Kína sem neyt-
endur kaupa á netinu. Vegna
samnings innan vébanda Alþjóða-
póstssambandsins, sem Ísland er
aðili að, ber íslenskum stjórnvöld-
um að niðurgreiða póstsendingar
sem berast frá þróunarlöndum.
Greint hefur verið frá því að tap
Íslandspósts vegna þessa nemi um
475 milljónum króna á ári. Í frum-
varpinu segir að gjaldskrár fyrir
alþjónustu, þar á meðal gjald-
skrár vegna pakkasendinga til
landsins, skuli taka mið af raun-
kostnaði við að veita þjónustuna
að viðbættum hæfilegum hagnaði.
Þannig mun alþjónustuveitanda
vera heimilt að leggja gjald á
hvern pakka innan 20 kg sem
kemur til landsins. Neytandinn
mun þá greiða gjaldið en ekki ís-
lenska ríkið.
Síðustu leifar
einkaréttar
afnumdar
Póstþjónusta á Íslandi verður sam-
ræmd reglum í Evrópu, samkvæmt
nýju frumvarpi á Alþingi
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Póstþjónusta Breytingar eru framundan í póstinum, verði frumvarpið samþykkt. Starfsmaður Íslandspósts brun-
ar í hlað í höfuðstöðvum Morgunblaðsins í Hádegismóum. Enn berst mikið af bréfum og bögglum til blaðsins.
Fækkun bréfasendinga 2000 til 2017
60
50
40
30
20
10
0
Milljónir bréfa
’00 ’01 ’02 ’03 ’04 ’05 ’06 ’07 ’08 ’09 ’10 ’11 ’12 ’13 ’14 ’15 ’16 ’17
Heimild: Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið
22
51
57
32 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. NÓVEMBER 2018
Í frumvarpinu um póstþjónustu er sérstakt ákvæði um óumbeðnar fjölda-
sendingar. Það er nýmæli. Lagt er til að póstrekendum verði skylt að
virða merkingar sem kveða á um að viðtakandi óski ekki eftir óumbeðn-
um fjöldasendingum, svo sem fjölpósti, fríblöðum eða almennu kynning-
arefni frá fyrirtækjum. Þetta mun þó ekki gilda um tilkynningar veitu-
fyrirtækja, kynningarefni stjórnvalda vegna kosninga, tilkynningar
sveitarfélaga til íbúa og loks tilkynningar stjórnvalda sem varða al-
mannahag og almannaöryggi. Áfram er gert ráð fyrir að póstrekendur
haldi skrá yfir þá sem vilja ekki fjöldasendingar.
Í núverandi kerfi geta menn haft samband við Íslandspóst og fengið
sendan límmiða til að setja við póstkassa eða póstlúgu og afþakka fjöl-
póst og/eða fríblöð. Þetta gildir þó aðeins um sendingar sem Íslands-
póstur dreifir. Verði ákvæðið að lögum mun það einnig gilda um auglýs-
ingapésa og blöð sem einkafyrirtæki bera út, svo sem Fréttablaðið,
Mannlíf og Morgunblaðið þegar það er í frídreifingu.
Hægt verður að afþakka fríblöðin
PÓSTÞJÓNUSTA
Eltak sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum
Bjóðum MESTA úrval
á Íslandi af smáum
og stórum vogum
Smiðjuvegi 9 · 200 Kópavogi
Sími 535 4300 · axis.is
Vandaðar íslenskar innréttingar