Morgunblaðið - 08.11.2018, Qupperneq 41
FRÉTTIR 41Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. NÓVEMBER 2018
öldungadeildinni, en hann atti kappi
við repúblikanann Ted Cruz. Hafði
O’Rourke safnað metfjárhæðum í
kosningasjóð sinn, um 60 milljónum
bandaríkjadala, en tókst ekki ætl-
unarverkið. Sigraði Cruz með 2,6%.
Athygli vakti að O’Rourke heim-
sótti allar 254 sýslur Texas og í stað
þess að færa sig inn á miðju litrófs
stjórnmálanna til að ná til kjósenda
repúblikana hélt hann sig við frjáls-
lyndan málflutning sem teljast
myndi til vinstri arms demókrata.
Ríkisstjórakosningarnar voru
sérlega mikilvægar þar sem ný
íbúatalning í Bandaríkjunum kemur
út árið 2020 sem hefur m.a. áhrif á
það hvernig kjördæmum verður
skipt, en ríkisstjórar hafa mikið
vald í þessum málum. Þetta skiptir
miklu fyrir kosningar í Bandaríkj-
unum næstu tíu ár á eftir. Demó-
kratar höfðu sjö ríkisstjórastóla af
repúblikönum: í Nevada, Nýju-
Mexíkó, Kansas, Wisconsin, Illinois,
Michigan og Maine. Þegar þetta er
skrifað höfðu demókratar 22 rík-
isstjórastóla og repúblikanar 25.
Meðal ríkja þar sem repúblikanar
eiga nú ríkisstjóra eru Ohio og
Flórída, tvö ríki þar sem búist er
við hörðum átökum í forsetakosn-
ingunum árið 2020.
Sigri fagnað í báðum flokkum
Báðir flokkar hafa fagnað sigri
með niðurstöðu kosninganna. Do-
nald Trump, Bandaríkjaforseti,
lýsti yfir stórsigri í kosningunum í
gær, en með öldungadeildina á
valdi repúblikana mun hann geta
skipað íhaldsfólk í alríkisdómstóla
landsins og Hæstarétt Bandaríkj-
anna einnig komi sú staða upp á
kjörtímabili hans. Með fulltrúa-
deildina á sínu valdi munu demó-
kratar aftur geta staðið í vegi fyrir
Trump, breytt lagafrumvörpum for-
setans og samþykkt eigin mál. Með
öldungadeildina í greipum sér
munu repúblikanar þó geta haft
áhrif, en mál fulltrúadeildar þurfa
einnig samþykki öldungadeildar.
Demókratar hafa boðað rann-
sóknir á hendur forsetanum í skjóli
meirihluta síns í fulltrúadeild, með-
al annars á skattaskýrslum forset-
ans sem hann hefur neitað að birta.
Einnig hefur verið boðað að heil-
brigðisstefna Baracks Obama, fyrr-
um forseta, verði varin í fulltrúa-
deildinni. Með meirihluta í
fulltrúadeild munu demókratar
einnig geta höfðað mál á hendur
Trump til embættismissis.
Trump er þó talinn geta hagnast
á því ef demókratar ganga of hart
fram gegn honum. Áður hafi forset-
ar Bandaríkjanna nýtt sér slíkt í
baráttu um endurkjör, en forseta-
kosningar fara næst fram árið 2020.
Pelosi snýr að líkindum aftur
Líklegt er talið að Nancy Pelosi,
leiðtogi demókrata, snúi aftur í stól
þingforseta fulltrúadeildarinnar og
taki við af Paul Ryan, repúblikana
sem áður gegndi embættinu. Óvænt
gaf hann ekki kost á sér í 1. kjör-
dæmi Wisconsin-ríkis líkt og hann
hefur gert frá árinu 1998.
„Dagurinn í dag snýst um meira
en demókrata og repúblikana. Þess-
ar kosningar snúast um aðhald
gegn stjórn Trump forseta,“ sagði
Pelosi í aðdraganda kosninganna,
en hún reyndist stjórn George
Bush yngri erfið þegar hún gegndi
embætti þingforseta á árunum
2007-2008. „Demókratar munu leita
lausna til að stuðla að samheldni.
Við höfum öll fengið nóg af sundr-
ungu,“ sagði hún eftir að demókrat-
ar tryggðu sér meirihlutann í full-
trúadeildinni.
AFP AFP
Kjördagur Tveir kjósendur í Houston
í Texas ganga gegnum haf auglýs-
inga frá frambjóðendum á leið á kjör-
stað í kjördæmi sínu á þriðjudag.
BL ehf
Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík
525 8000 / www.bl.is
GE bílar
Reykjanesbæ
www.gebilar.is
420 0400
Bílasalan Bílás
Akranesi
www.bilas.is
431 2622
Bílasala Akureyrar
Akureyri
www.bilak.is
461 2533
Bílaverkstæði Austurlands
Egilsstöðum
www.bva.is
470 5070
IB ehf.
Selfossi
www.ib.is
480 8080
BL söluumboð
Vestmannaeyjum
481 1313
862 2516
KOMDU OG
REYNSLUAKTU
NÝJUM NISSANMICRA
NISSANMICRA
VERÐ FRÁ: 2.350.000 KR.
NISSAN hlaut viðurkenningu bílasöluritsins AutoTrader sem BEST BÚNI BÍLLINN 2018.
Viðurkenningin er byggð á könnun meðal rúmlega 40 þúsund bíleigenda á því hvaða
framleiðandi uppfylli best þarfir um staðalbúnað í nýjum bifreiðum.
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
8
9
7
6
4
*M
ið
að
vi
ð
up
pg
ef
na
rt
öl
ur
fra
m
le
ið
an
da
um
el
ds
ne
yt
is
no
tk
un
íb
lö
nd
uð
um
ak
st
ri.
B
íll
á
m
yn
d
N
is
sa
n
M
ic
ra
Te
kn
a.
Ve
rð
2
.7
9
0
.0
0
0
kr
.