Morgunblaðið - 08.11.2018, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 08.11.2018, Blaðsíða 46
46 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. NÓVEMBER 2018 Okkur þykir öllum ofurvænt um tungu- málið okkar, íslensk- una. Tökum okkur því verulega á og heitum því að vanda okkur með hana. Látum ekki Norðurlandamálin trufla hana, og ekki enskuna heldur, enda þótt við séum þessum málum handgengin og notum þau þegar á þarf að halda – og jafnvel þykir ofboð lítið vænt um þau líka! Reynum þess vegna að halda því til haga hvað er íslenska og hvað danska, enska, norska o.s.frv. Og þó að danskan sé orðin alvarlega blönd- uð ensku og fleiri málum ættum við ekki endilega að láta fara eins hjá okkur. Við erum því miður komin áleiðis, orðin talsvert smituð og þurf- um því að vera vel á varðbergi. Stöndum saman. Í fyrsta lagi: Á íslensku segjum við auðvitað alls ekki: fyrir það fyrsta. Við segjum í fyrsta lagi – fyrst að telja – fyrst og fremst – fyrst að nefna – (stund- um við aukaáherslu: fyrst og síðast) við eig- um til allrar hamingju um margt fallegt að velja. Né heldur segjum við: Ég þarf að halda dampi – eða koma upp dampi – hvernig þá? Við viljum halda okkar striki – vinna af eldmóði – flýta för – halda velli – halda góðum hraða, eða bara hamast – er það ekki? Líka í íþróttum. Svo erum við ekki á íslensku svag fyrir einhverju! Hvorki fyrir fatnaði, búningum né einhverjum mat. Við hrífumst af búningum, fatnaði og slíku og erum í mesta lagi veik fyrir góðum mat! Aldrei svag! Heilt yfir … hverjum datt eig- inlega í hug að fara að nota þetta orðalag? (Ég er ekki að leita að blóra- böggli, bara að velta vöngum). Heilt yfir – í íþróttum, heilt yfir þetta og hitt hvaða, hvaða? Fram undir þetta hefur gengið svo ágæta vel að nota stórgott orð: yfirleitt. Svo er til fleira, eins og á heildina litið, í stórum dráttum, í heild, þegar allt er skoð- að, en orðið yfirleitt er það albesta. Notum það. Enga dönsku hér eða ensku, takk. Erlendu glósurnar eru mjög laumulegar – þær læðast aftan að okkur: Talað er um mat sem gúrmet-i (við beygjum það jafnvel), þetta orð er notað bæði sem nafnorð þegar sagt er frá afbragðs góðum mat og sem lýsingarorð um veislur. Um dag- inn heyrðist: Veislan var algjört gúr- met! Æi. Ýmislegt meikar sens í tíma og ótíma – forljótt orðalag – það er alveg nóg að hafa tekið í sátt orðið meik um andlitsfarða þó að þessu sé ekki bætt við. Ættum við ekki að tala um að eitthvað komi heim við það sem um er rætt – eitthvað eigi við – skiljist – og ef eitthvað meikar ekki sens ætt- um við að geta sagt að það sé óviðeig- andi, gangi ekki – komi ekki til greina o.s.frv. Tískumyndir voru sýndar á skján- um og: „nokkur lúkk voru eyðilögð með óþörfum sokkabuxum“ var text- inn sem fylgdi! Hugsa sér. Lúkk! Hvenær samþykktum við þetta orð? Aldrei. Ekki heldur orðið trend. Þetta er notað óspart, helst auðvitað af yngri kynslóðinni. Hvað er til ráða? Ég viðurkenni að erfitt er að finna góð orð fyrir þessi hugtök, en það má nú reyna. Lúkk: Augnablik, við augnakast, við skoðun – og trend: Áherslur, tíska, þættir, atriði allt eft- ir því hvað er til umræðu hverju sinni. Í fuglaþætti heyrði ég nýverið að lundinn er ekki svo góður að fljúga! Ósköp er hann eitthvað vondur, greyið. Vill hann ekki fljúga? Ótrú- legt. Á íslensku er sagt: Lundinn á erfitt um flug, er þungur til flugs, á erfitt með að hefja sig á loft, er léleg- ur flugfugl. Þegar blessuð börnin eru farin að svara spurningum með slettum erum við afar illa stödd. Barnið sem svaraði með einu orði: „Scary“ mundi ekkert íslenskt orð þegar það var spurt hvernig hefði verið að prófa sér- stakan tölvuleik. Enda eru litlu börn- in okkar sum talsvert farin að leika sér saman á ensku. Varúð. Gætum orða okkar – alltaf. Við hin fullorðnu erum ekkert betur stödd þegar við „slettum“ þó að við bætum við litlu afsökunarsetningunni: „Ef ég má sletta“. Munum svo að bjóða öðrum góðan dag þegar við hittumst – síður góðan daginn. Undirskilið ég býð þér góðan dag. Um mælt mál Eftir Rúnu Gísladóttur Rúna Gísladóttir » Þegar blessuð börnin eru farin að svara spurningum með slettum erum við afar illa stödd. Höfundur er myndlistarmaður og fyrrverandi kennari. Þegar maður einn mælti fóstureyðingu í móti komst hann svo að orði: „Það ætti ekki að meina neinum aðganginn að hinu dýrlega ævintýri lífs- ins.“ Nú er því ef til vill til að svara, að líf- ið verður varla mikið ævintýri því barni, er fæðist foreldrum, sem ekki vilja eignast það eða hafa ekki ráð á því að eignast það eða eru einhvern veginn óhæf til þess að annast um það og munu líklega enda með því að láta það af- skiptalaust eða vera jafnvel vondir við það. Og samt. Hver veit hvað lífið mun færa slíku barni eða hve dýr- legt ævintýri það kann sjálft að verða, þegar það vex upp? Að fæða barn, jafnvel við hinar ákjósanleg- ustu aðstæður, eða á hinn bóginn að eyða fóstri vegna ömurlegra kringumstæðna – áhættan er í raun gasaleg hvort heldur sem er – og útkoman með öllu ófyrirsjáanleg. Þannig megum við Íslendingar þakka Guði fyrir það, að mad- dama Þórdís á Rafns- eyri skyldi ekki láta eyða fóstri sínu um jólaleytið 1810. Aftur mundu ýmsir kalla, að það hefði verið bættur skaðinn (Guð fyrirgefi mér), þótt frú Klara (fædd Pölzl) í Braunau am Inn í Austurríki hefði gjört svo haustið 1888. (Núna er fóstureyðing nefnd þungunarrof, sem er dálítið eins og mannvíg væri kallað ævilyktir.) En hvað segir Jesús sjálfur, hann, sem við hyllum réttilega sem höfðingja lífsins? Hann lætur svo ummælt á einum stað, að það séu ekki þau, sem deyða líkamann, en fá ekki deytt sálina – ekki þau, segir hann, sem við ættum að ótt- ast mest, heldur sá, sem getur tor- tímt bæði líkama og sál; vænt- anlega á sama hátt og sá heimur, sem barn fæðist í, getur deytt það barn, sem ekki er elskað, barnið, sem ekki var óskað eftir (Matt 10.28). Kannski að niðurstaðan gæti orð- ið sú til bráðabirgða, að í ófull- komnum heimi er ekki að finna neinar fullkomnar lausnir. Við get- um því ekki annað gert en að syndga hraustlega, eins og Lúter ráðlagði, sem þýðir (a) að við ger- um okkur grein fyrir því, að bæði það að eignast barn og að láta eyða fóstri kann að hafa í för með sér, að afleiðingin verði hörmuleg fyrir hlutaðeigandi, og samt (b) að vera hughraust, vitandi að jafnvel slík stórmerki geta ekki gert okkur við- skila við fyrirgefandi kærleika Guðs. Eftir Gunnar Björnsson Gunnar Björnsson » Þannig megum við Íslendingar þakka Guði fyrir það, að maddama Þórdís á Rafnseyri skyldi ekki láta eyða fóstri sínu um jólaleytið 1810. Höfundur er pastor emeritus. Fóstureyðing
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.