Morgunblaðið - 08.11.2018, Síða 50

Morgunblaðið - 08.11.2018, Síða 50
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. NÓVEMBER 2018 HIN FAGRA OG FORNA ALBANÍA ALBANÍA WWW.TRANSATLANTIC.IS SÍMI: 588 8900 Albanía hefur nú loksins opnast fyrir erlendum ferðamönnum. Enn hefur alþjóðavæðingin ekki náð að festa þar rætur og er lítt sjáanleg. Þar má sjá ævaforna menningu, söguna á hverju horni, gríðar fallega náttúru og fagrar strendur og kynnast einstakri gestrisni heimamanna þar sem gömul gildi eru í hávegum höfð. PÁSKA- FERÐ16. - 26. apríl VERÐ 266.900.- á mann í 2ja manna herbergi miðað við gengi dagsins. Innifalið: Flug, hótel í London, hótel með hálfu fæði í Albaníu, öll keyrsla í Albaníu, allar skoðunarferðir, ísl. fararstjóri, skattar og aðgangur þar sem við á. Þau náðu Steinda glóðvolgum þar sem hann hafði nýlega rætt þetta við konuna sína. „Ég held að þið les- ið hugsanir,“ svaraði Steindi þegar þau náðu í hann. „Ég var að ræða þetta við konuna mína og ég var bú- inn að stinga upp á heimalagaðri pítsu.“ Spurður út í áleggstegundir ofan á pítsuna segist hann setja allt sem til er í ísskápnum, s.s. rauðlauk, papriku, ost og þetta helsta. „Og svo er maður með teilara á kantinum og svona,“ útskýrir Steindi en þar á hann við kokteilsósuna góðu. Það kom þó í ljós í viðtalinu að konan hafði betur í ákvörðuninni um kvöldverðinn þann daginn og bjúgu með uppstúfi urðu ofan á. Uppstúf- urinn, eða hin uppbakaða mjólkur- sósa, var því ræddur vel og mikið enda sagðist Steindi ekki kunna að búa hann til, en Logi sagðist kunna það og gaf honum uppskrift í beinni. Steindi deildi því með hlustendum að í fyrsta og eina sinn sem hann hefði reynt að búa til uppstúf hefði hann klúðrast. Hann hefði orðið að fara tvisvar út í búð að sækja nýtt hráefni! Sér þyki þetta því ekki létt- vægt verk enda þurfi að standa yfir pottunum til að þetta takist. „Þetta tekur mig svona fjóra til fimm tíma, þannig að ég gef krakkanum örugg- lega bara pylsu eða eitthvað þægi- legt, svo svæfi ég bara og nostra svo bara við einhvern uppstúf þegar konan kemur heim.“ Steindi hló að lokum að allri vit- leysunni í kringum matargerð heim- ilisins í upphafi vikunnar. „Sjáið hvað þetta er mikill rússíbani á mánudegi heima hjá mér. Það átti að vera heimatilbúin pítsa, en svo er ég að fara að sjóða pylsur en þykist vera að fara að gera uppstúf!“ Rússíbani í matseldinni Steindi jr. var til svara í dagskrárliðnum Hvað er í matinn? hjá Huldu og Loga á mánudegi en þau eru sammála um að þetta sé mögulega leiðinlegasta spurning dagsins og alltaf sami vandræðagang- urinn heima fyrir að velja kvöldmatinn. Ljósmynd/Aðsend Steindi ætlaði að sjá um matseldina á heimilinu á mánudegi. Hugmynd hans var heimatilbúin pizza en niðurstaðan varð allt önnur að lokum. Í raun er hugmyndin sú að þú setjir á þig ákveðin gleraugu sem færa þér annan heim, eða alltumlykjandi sýndarveruleika, sem færir þér um leið hugarró. Notandinn getur snúið sér í 360° hring og umhverfið birtist þér um leið, sama hvert þú snýrð þér. Flow VR býður upp á sex mis- munandi útgáfur af hugleiðslu, en sem dæmi má nefna öndun, hreyf- ingu og að sleppa takinu. Tæki sem róar fólk Streita, áreiti og hraði er eitthvað sem flestir kannast við og eru marg- ir leitandi inn á við eftir friði og hug- arró. Veikindi og kulnun á vinnu- markaði kosta fyrirtæki orðið mikið og því ákváðu Tristan og Þóra Björk að reyna að finna lausn á hugleiðslu sem virkar fyrir menn og markaði. Hugleiðsla virkar og hefur verið sýnt fram á það vísindalega og í dag er stafræn hugleiðsla ört vaxandi at- vinnugrein. Þær hafa þróað lausnina Flow VR, sem er sýndarveruleiki í gegnum Oculus GO höfuðsettin eða Samsung Gear VR. Þóra Björk segir fyrirtæki geta nýtt sér þetta fyrir starfsmenn sína og á aðeins fjórum mínútum getur starfsmaður fengið íhugun sem annars tæki klukku- stund í sal úti í bæ. Í viðtalinu setti Logi á sig sýnd- arveruleikatækið og á aðeins sek- úndum var hann kominn inn í um- hverfið á Þingvöllum, með róandi tóna í tækinu þannig að tilveran var gjörbreytt á nokkrum sekúndum og auðvelt að leiða hugann að öðru en amstri hversdagsins. Þær segjast vera með þá sérstöðu á markaðnum að bjóða upp á 360° af hreinni ís- lenskri náttúru og vandaða íslenska tónlist undir frá alþjóðlegum tónlist- armönnum á borð við Sigur Rós. Raunverulegt á toppi Everest Þær stöllur voru á Startup nám- skeiðinu þegar Tristan var fengin til að lesa inn á myndband frá leikja- framleiðandanum Sólfari, sem fram- leiðir meðal annars Everest upplifunarumhverfi. Tristan segist hafa upplifað eitthvað magnað og þar hafi hún virkilega fengið hug- ljómun og trú á því að billjónir manna myndu kunna að meta ná- kvæmlega þessa upplifun. Að fá að vera á toppi veraldar í gegnum tæki hlyti að vera eitthvað sem ætti erindi til margra. „Eftir að Facebook keypti Oculus þá segja þeir að það séu tvær billj- ónir sem þeir muni vilja selja þessi headset,“ útskýrir Þóra Björk spurð um markhópinn og kaupandann að tækjum og smá símaforritum sem þessum. Hún segir þær ætla að ein- beita sér að fyrirtækjamarkaði fyrst um sinn, enda sé kulnun og streita eitthvað sem kallar á að fyrirtæki geti boðið upp á einhver úrræði. Þetta er sagt árangursríkt, jafnvel á fjölmennum háværum stöðum svo sem á flugvöllum og fjölmennum vinnustöðum. Og tækifærin virðast endalaus, enda ekki bara fyrir aktívt fólk að íhuga og gleyma sér í nokkr- ar mínútur, heldur einnig tækifæri fyrir fólk sem kemst hvergi, að fá tækifæri til að ferðast um heiminn, upp á fjöll, út í geim eða um fallega íslenska náttúru með Flow VR. Þær stöllur eru greinilega bara rétt að byrja og í lok þessa mánaðar keyra þær í gang pilot-verkefni á Norð- urlöndunum. hulda@mbl.is Hugleiðsla í alltumlykj- andi sýndarveruleika Tristan og Þóra Björk lentu í 1. sæti í Gullegginu, frumkvöðlakeppni Icelandic Startups, með fyrirbærið Flow VR. Viðskiptahugmyndin Flow VR vann Gulleggið 2018, frumkvöðlakeppni Icelandic Startups. Þóra Björk Elvarsdóttir og Tristan Elizabeth Gribbin kíktu til Huldu og Loga til að segja frá hugmyndinni og uppsprettu tækifæra í öllum heiminum með þetta fyrirbæri. Þáttastjórnandinn Logi Bergmann prófaði Oculus GO tækið og hvarf inn í fallega íslenska náttúru. Flow VR er með þá sérstöðu að bjóða upp á ró og íhugun í íslenskri náttúru.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.