Morgunblaðið - 08.11.2018, Side 53

Morgunblaðið - 08.11.2018, Side 53
MINNINGAR 53 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. NÓVEMBER 2018 ✝ Brynjar BergGuðmundsson fæddist 2. júlí 1987 á Landspítalanum. Hann lést 29. októ- ber 2018. Móðir Brynjars er Anna S. Ein- arsdóttir, f. 21.3. 1964. Þegar Brynj- ar var tveggja ára hóf Anna búskap með Guðmundi V. Guðsteinssyni, f. 12.2. 1967, sem síðar gekk Brynjari í föðurstað. Þau eignuðust saman dæturnar Írisi, f. 3.9. 1990, Söru, f. 12.9. 1995, d. 12.9. 1995, Soffíu, f. 12.9. 1995, d. 16.9. 1995, og Soffíu, f. 2.8. 1996. Anna og Guðmundur skildu árið 2002. Eiginmaður Önnu frá árinu 2007 er Gísli Gíslason, f. 23.8. 1953. Börn Gísla eru Íris, Hilda Jana, Gísli Tryggvi og Dagur. Guðmundur kvæntist Svövu B. Svavarsdóttur. Börn Svövu eru Jón Hall og Sunna Líf. Unnusta Brynjars frá árinu 2007 er Kristín Sif Björgvins- dóttir, f. 2.12. 1983. Börn þeirra eru Heiðar Berg, f. 30.3. 2011, og Sara Björg, f. 17.11. 2012. Þau bjuggu saman alla tíð síðan. Brynjar var í björgunarsveit og hafði unun af fjallaferðum. Lengst af starfaði hann sem hljóðmaður en einnig starfaði hann við jeppaferðaþjónustu og fleira. Útför Brynjars fer fram frá Hallgrímskirkju í dag, 8. nóvember 2018, klukkan 15. Hann verður jarðsettur á Borg á Mýrum 9. nóvember 2018 klukkan 14. Móðurást. Í móðurkviði ég gleðina fann, fann fyrir friði er fæddist hann. Drengurinn minn. Í móðurkviði ég sársauka finn. Hvíldu í friði, sonurinn minn. Elsku drengurinn minn. Mamma. Þegar ég kynntist Önnu, mömmu hans Brynjars, þá sagði Brynjar mér hvað hann elskaði hana mikið með þessum orðum: Ef þú verður einhverntíma vondur við hana mömmu, þá buffa ég þig! Mér hefur alltaf þótt þetta með fallegri ástarjátningum sem ég hef heyrt frá syni til móður. Hann leit upp til mömmu sinnar og leyndi aldrei vænt- umþykju sinni og umhyggju sem hann bar í brjósti fyrir henni. Það var alltaf stutt í prakk- arann, grallarann og sprelligos- ann, maður gat alltaf átt von á smá hrekk eða stríðni en alltaf allt í góðu. Hann gat „platað“ mann í allskonar vitleysu. Þvílíkur dugnaðardrengur og með sannfæringarkraft af guðs náð, hann gat alltaf fengið okk- ur til að trúa að næstu bílakaup væru tækifæri sem alls ekki mátti missa af. Ég sem hef átt frekar fáa bíla um ævina og þekki varla eina einustu tegund – sá nú Brynjar koma og fara á nýjum bílum á nokkurra mán- aða fresti – í allskonar litum og allskonar tegundum – einn og einn tjaldvagn slæddist með og alltaf græddi drengurinn á bíla- skiptum og viðskiptum. – Þessi bíll, sagði hann og benti á nýj- asta bílinn, átti að kosta 850 þúsund en ég fékk hann á 490 og svo fékk ég ný nagladekk með – mér leið eins og illa gerðum hlut við hliðina á þess- um mikla bisnessmanni. Eitt árið sannfærði hann okkur Önnu um að það væri frábær hugmynd að kaupa stóran og glæsilegan fjalla- jeppa og fara í ferðabransann. Og allt í einu var ég kominn í túristabransann, ég sem hafði ekkert vit á túristabransanum. Lýkur með því sama frásögn- inni af þessu skemmtilega fyrirtæki. Frá því ég kynntist Brynjari fyrir 11 árum höfum við lengst- um búið í sama húsi. Fyrst í Mávakletti í Borgarnesi og svo hvor á sinni hæðinni í húsi á fallegum stað í Úlfarsárdalnum. Aldrei nokkurn tímann varð okkur sundurorða allan þann tíma. Hann var alltaf hlýr og notalegur við mig (eftir að hann setti mér reglurnar varðandi mömmu sína). Ég vissi að hann var endan- lega búinn að samþykkja mig þegar hann leiddi mömmu sína upp að altarinu þegar við Anna giftum okkur. Þegar hann komst að því að ég hafði aldrei í Þórsmörk komið þá skipulagði hann helgi með fjölskyldunni til að sýna gamla herlegheitin. Ógleyman- leg ferð í alla staði og Brynjar sýndi mér sínar bestu hliðar sem ökumaður, leiðsögumaður, kokkur, skemmtikraftur og vinur. Ég á alltaf eftir að geyma skemmtilegan og góðan vin, Brynjar Berg, í hjarta mínu. Gísli Gíslason. Brynjar systursonur minn og afskaplega kær vinur hefur yfir- gefið þessa jarðvist og missirinn er mikill. Það voru forréttindi að fá að fylgja og fylgjast með manni eins og Brynjari frá vöggu og í gegnum lífið, það vafðist aldrei neitt fyrir honum. Hann gat allt og gerði allt fádæma vel. Til að lýsa örlítið atorkusemi Brynjars kemur hér örstutt saga sem við áttum saman, sem hann skipulagði uppá eigin spýt- ur og náði hann að skapa einn minn besta dag. Brynjar bankar upp hjá mér snemma á sunnu- dagsmorgni og segir, „góðan daginn, frændi, klæddu þig nú vel og komdu með okkur í bíl- túr“, þetta var seint í mars 2010 og við vorum sem sagt á leiðinni á Fimmvörðuháls til að skoða nýhafið eldgos þar. Keyrt var frá Reykjavík og austur undir Mýrdalsjökul og síðan ekið yfir Mýrdalsjökul og að gosstöðvunum. Þessi dagur var einn minn eftirminnilegasti en bara enn einn dagurinn hjá honum. Hjá Brynjari voru allir dagar fullir af lífi og ævintýrum og hann var einstaklega orð- heppinn og hnyttinn í tilsvörum. Hann kryddaði einnig gráan hversdagsleikann oft á tíðum með óhefðbundnum klæðaburði, samt alltaf smekklegur. Alls staðar í kringum Brynjar var sprell og gleði og hann fékk alla til að brosa alltaf og nálægð hans og hans hlýja hjarta bættu alla sem voru með honum. Það vildu allir eiga Brynjar sem sinn besta vin og hann var besti vinur svo margra. Elsku fjölskylda, guð veri með ykkur öllum. Þorgeir Einarsson. Elsku Brynjar okkar. Þótt vinátta okkar hafi ekki varað lengi, þá risti hún djúpt. Það fór ekki fram hjá okkur hversu lífsglaður og hjartahlýr þú varst. Væntumþykja þín var augljós, þú gast alltaf látið okk- ur hlæja og hughreyst okkur þegar eitthvað bjátaði á. Aldrei hefði okkur dottið í hug að þú yrðir næstur. Þín er sárt saknað. Að eiga vin er vandmeðfarið, að eiga vin er dýrmæt gjöf. Vin, sem huggar, hlustar, styður, hughreystir og gefur von. Vin sem biður bænir þínar, brosandi þér gefur ráð. Eflir þig í hversdagsleika, til að drýgja nýja dáð. (Ingibjörg Sigurðardóttir) Vottum Kristínu Sif og börn- um, fjölskyldu og öðrum að- standendum okkar dýpstu sam- úð. Megi minningin um góðan dreng lifa um ókomna tíð. Atli, Brynja, Valgerður og Þuríður. Brynjar Berg Guðmundsson ✝ Birna ÓskBjörnsdóttir fæddist á Mjóeyri á Eskifirði 16. ágúst 1938. Hún lést á Landspít- alanum 23. októ- ber 2018. Foreldrar Birnu voru Björn Tómas Ingimar Jónasson, f. á Eskifirði 17. febrúar 1901, d. 12. júní 1971, og Kristín Elsa- bet Ásmundsdóttir, f. á Fá- skrúðsfirði 2. nóvember 1898, d. 5. mars 1973. Birna var fimmta í aldursröð sjö syst- kina. Hin systkinin voru Ás- mundur, Vigdís Júlíana, Jónas Guðgeir, Valsteinn Þórir sem öll eru látin og Olga Aðal- björg. Birna giftist árið 1959 Valtý Guðmundssyni sýslumanni, síð- ar borgarfógeta, f. 28. febrúar 1920, d. 21. febrúar 1981. Val- týr var sonur hjónanna Guð- mundar Sæmundssonar bónda 1990; sambýlismaður hennar er Hafþór Örn Stefánsson, f. 15. desember 1988 og eiga þau tvo syni, Viktor Inga og Alex- ander Björn, og Birnu Ósk, f. 8. ágúst 1993. Valtýr Björn á auk þess eina stjúpdóttur af fyrra hjónabandi, Sif Vil- hjálmsdóttur, f. 24. nóvember 1982. Hún á tvo syni, Adam Orra og Aron Darra. Birna ólst upp á Eskifirði, fyrst á Mjóeyri og síðan í Ekru þar sem hún bjó þar til hún gifti sig árið 1959. Birna og Valtýr bjuggu á Eskifirði þar sem hann var fyrst sýslu- fulltrúi en síðan sýslumaður til ársins 1976 þegar þau fluttu í Kópavog. Valtýr starfaði síðan sem borgarfógeti í Reykjavík þar til hann lést árið 1981. Árið 1986 hóf Birna sambúð með Ingvari Júlíusi Óskarssyni bifvélavirkja, f. 13. september 1943, og bjó með honum til dauðadags. Ingvar á þrjú börn af fyrra hjónabandi; Óskar, Halldóru og Jónínu. Birna starfaði um árabil í Leikfélagi Eskifjarðar þar sem hún tók þátt í fjölmörgum leik- sýningum. Útför Birnu fer fram frá Hjallakirkju í dag, 8. nóv- ember 2018, klukkan 13. og Valgerðar Jó- hannesdóttur hús- freyju á Lómatjörn í Grýtubakka- hreppi. Birna og Valtýr eignuðust þrjú börn. Þau eru: 1) Helena, f. 7. ágúst 1959, framhaldsskóla- kennari á Akra- nesi. 2) Vala, f. 27. nóvember 1961, lögmaður, gift Gísla Óskars- syni, þau eiga Valtý, f. 14. mars 1991, og Kolbrúnu Klöru, f. 10. maí 1993, dætur Gísla eru auk þess María Vera, f. 7. október 1982, gift Aroni Frey Jónssyni en þau eiga tvö börn, Arnrúnu Ósk og Gunnar Jökul, og Sandra Björk, f. 6. nóvem- ber 1983, sambýlismaður henn- ar er Baldur Jónasson, f. 10. febrúar 1982, þau eiga einn son, Jón Þór. 3) Valtýr Björn, f. 2. maí 1963, íþróttafrétta- maður, hann á tvær dætur, Svanhvíti, f. 17. nóvember Elsku yndislega mamma mín. Það er mjög svo erfitt að sitja hér tárvotur og skrifa minningarorð um þig, erfiðara en orð fá lýst. Þú sem varst svo stór hluti af mínu lífi. Síðan pabbi lést þegar ég var 17 ára varst þú mín stoð og stytta og ekki leið sá dagur að ég hitti þig ekki. Það er margs að minnast og of langt að rekja hér í nokkrum línum. Þó ætla að ég að minn- ast okkar tíma þegar ég var að koma í mína daglegu göngu- túra. Ávallt spjölluðum við mikið saman og nærvera þín var mér mikils virði. Þú hafðir miklar og sterkar skoðanir á málefnum líðandi stundar, póli- tík, íþróttum, menningu, prest- um og hverju sem er. Í okkar skoðanaskiptum fylgdi hæfileg- ur slatti af blótsyrðum eftir því hvernig þér líkaði umræðuefn- ið. Ég mun sakna þessa alls það sem ég á eftir ólifað svo ekki sé minnst á baksturinn. Hverja helgi frá því ég man eftir mér bakaðir þú og byrj- aðir ávallt á föstudegi. Það voru forréttindi að eiga svona ynd- islega mömmu. Elsku mamma, ég á von á því að systkini þín og pabbi hafi tekið á móti þér við för þína og ég bið að heilsa öllum með kossum og faðmlagi. Sjáumst síðar. Takk elsku mamma fyrir allt og allt. Ég flyt þér, móðir, þakkir þúsundfaldar, og þjóðin öll má heyra kvæði mitt. Er Íslands mestu mæður verða taldar, þá mun það hljóma fagurt, nafnið þitt. Blessuð sé öll þín barátta og vinna. Blessað sé hús þitt, garður feðra minna, sem geymir lengi gömul spor. Haf hjartans þakkir, blessun barna þinna, – og bráðum kemur eilíft vor. (Davíð Stefánsson) Þinn sonur, Valtýr Björn. Því aðeins færð þú heiðrað og metið þína móður, að minning hennar verði þér alltaf hrein og skír, og veki hjá þér löngun til að vera öðrum góður og vaxa inn í himin – þar sem kærleikurinn býr. (Davíð Stefánsson) Elskuleg móðir okkar, Birna Ósk Björnsdóttir, er til grafar borin í dag eftir stutt veikindi. Mamma ólst upp á Eskifirði í stórum systkinahópi, fimmta í röðinni af sjö systkinum og er nú aðeins Olga, sú yngsta, ein eftir. Hún kynntist föður okkar þegar hann kom austur til að vinna á sýsluskrifstofunni og þau giftust árið 1959. Við systkinin vorum heppin í því að við höfðum afar gott að- gengi að foreldrum okkar þegar við vorum að alast upp, sýslu- skrifstofurnar voru á neðri hæð hússins okkar og þar var pabbi iðulega innan seilingar og mamma var yfirleitt heima við. Hún vann þó stöku sinnum úti og er sérstaklega eftirminnilegt þegar hún fór í síldarvinnu, bæði vegna þess hversu mikið líf og fjör var í kringum síldarplan- ið og einnig vegna þess að frétt um sýslumannsfrúna í síldinni birtist í Morgunblaðinu. Mamma var mjög glaðlynd kona og skemmtileg. Hún starf- aði um árabil í Leikfélagi Eski- fjarðar og tók þátt í sýningum þar. Hún hafði afar fallega rödd, bæði til söngs og tals og nutum við börnin góðs af en hún las iðulega fyrir okkur sögur á kvöldin. Sköpunargáfa hennar kom ekki bara fram í leiksýningum heldur einna helst í matreiðslu en hún var frábær kokkur og besti bakari í heimi. Þegar við vorum börn bakaði hún gjarnan piparkökuhús fyrir jólin og hjálpaði okkur að skreyta egg fyrir páskana. En auk þessa prjónaði hún og saumaði á okk- ur næstum öll föt þegar við vor- um lítil. Mamma varð fyrir miklu áfalli þegar faðir okkar varð bráðkvaddur á dansleik og lést samstundis fyrir rúmum 38 ár- um. Áfallið var sérstaklega mik- ið þar sem hún stóð við hlið hans þegar þetta átti sér stað og var hún töluverðan tíma að komast yfir þennan atburð. Hún kynntist hins vegar góð- um manni, Ingvari Óskarssyni, nokkrum árum síðar og hefur hann verið hennar lífsförunaut- ur síðan þá og lifir hana. Það verða töluverð viðbrigði í lífi okkar núna því að við hitt- umst gjarnan mörg í fjölskyld- unni í Efstahjallanum um helg- ar, oftast á laugardögum. Hún var alltaf til staðar fyrir okkur, bæði þegar við vorum að alast upp og einnig eftir að við uxum úr grasi og þurftum á henni að halda. Við systur erum ákaflega þakklátar fyrir að hafa haft mömmu hjá okkur þetta lengi og hennar verður sárt saknað af okkur börnum hennar, barna- börnum og barnabarnabörnum, sem og af Ingvari, vinum henn- ar og öðrum ættingjum. Hvíl í friði, elsku mamma. Helena Valtýsdóttir og Vala Valtýsdóttir. Elsku besta tegndamamma, Birna Björnsdóttir. Nú hefur þú fengið kallið og hefur yfirgefið okkur. Margs er að minnast um þig í þau 35 ár sem ég er búinn að þekkja þig. Það eru nokkur atriði sem mér finnst hafa ein- kennt þig; snögg tilsvör og oft beitt; bakstur og eldamennska og síðast en ekki síst góð amma, mamma og frábær tengda- mamma. Ég man alltaf þegar ég hringdi fyrst í Völu og þú svar- aðir símanum, ég spurði er Val- gerður heima (ég var viss um að Vala héti Valgerður á þessum tíma) og þú svaraðir snögglega: hér býr engin Valgerður og skelltir á. Ógleymanlegar eru allar stundirnar fyrir austan í Hlé- skógum hjá Egilsstöðum, þarna fann maður að þér leið mjög vel. Auk þess sem maður fann að Eskifjörður var stór hluti af lífi þínu og barna þinna og var allt- af talað fallega um þann stað. Að lokum get ég ekki annað en minnst á einn ósóma sem mér finnst reyndar mjög skemmtilegur og lýsandi fyrir þig, það er að þú bölvaðir nokk- uð oft og mikið og hafa börn þín og barnabörn tekið þetta í arf og lifir þessi karakter þinn því áfram. Ingvar minn, ég sendi þér innilegar samúðarkveðjur og ég veit að þetta verður erfitt án hennar. Helena, Vala og Valtýr Björn, innilegar samúðar- kveðjur. Birna mín, ég kveð þig og mun minnast þín. Þín verður sárt saknað, takk fyrir allt og hvíl í friði. Þinn tengdasonur, Gísli. Alltaf kemur það flatt upp á mann þegar kallið kemur eins óvænt og hjá Birnu Ósk mág- konu minni. Það hlýtur að vera gott að fá að fara svona snöggt fyrir þann sem fer, en erfitt er það fyrir þá sem eftir eru. Nú hafa þau kvatt öll systkinin frá Ekru, nema Olga mín, sem er ein eftir af þessum sjö systkina hópi. Kynni okkar Birnu hófust fyrir tæpri hálfri öld þegar ég kom inn í Ekru-fjölskylduna með Olgu. Aldrei bar skugga á þau kynni allan þennan tíma. Eftir að við vorum flutt suður og Birna bjó í Kópavoginum, þá gætti hún þess ávallt að eiga til sardínur í tómatsósu út á brauð ef mágur hennar rækist inn í sunnudagskaffi. Minnisstæð- asta minning mín um Birnu er trúlega þegar hún einu sinni fór með mér austur á Eskifjörð þegar við Olga bjuggum þar. Vinafólk okkar af Suðurlandi var á leið austur á firði í heim- sókn til okkar og náðum við þeim á Höfn. Stefnt var að því að vera komin heim í kvöldmat til Olgu. Við lögðum af stað, en þegar við vorum komin á móts við Gautavík í Berufirði þá sprakk hjá vinafólkinu sem var á nýlegum bíl. Það þótti svo sem ekki tíðindum sæta á þess- um árum, en þetta hélt áfram. Næst þegar sprakk þá urðum við að fara til baka með tvö dekk til Breiðdalsvíkur og láta gera við þau. Á þessum tíma- punkti var komið undir kvöld- mat en allt í góðu með það, bíll- inn kominn á öll dekkin heil og varadekkið líka í lagi. En Adam var ekki lengi í Paradís. Um miðnætti urðum við að skilja bíl vinafólksins eftir efst í Hólma- hálsinum þegar hafði sprungið tvisvar sinnum á honum í við- bót. Við gátum ekkert látið vita af okkur og Olga beið alltaf með matinn. Þetta var fyrir tíma farsímans þó ekki séu nema rúm 30 ár síðan. Það sem kom mér mest á óvart á þessu ferða- lagi sem reyndi bæði á taugar og þolinmæði, var hversu róleg mágkona mín var, sem hafði oft orð á sér fyrir annað en róleg- heit. Birna mín, ég minnist á þetta hér því ég vona að þú hafir átt betri ferð á leið þinni í Sumar- landið. Við Olga vottum Helenu, Völu og Valtý Birni ásamt fjöl- skyldum þeirra og Ingvari okk- ar dýpstu samúð. Hvíl þú í friði, kæra mág- kona. Jón Ingi. Birna Ósk Björnsdóttir Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dög- um fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.