Morgunblaðið - 08.11.2018, Síða 56
56 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. NÓVEMBER 2018
✝ BergþóraHarpa Þór-
arinsdóttir fæddist
í Keflavík 15.
október 1965. Hún
lést á Heilbrigðis-
stofnun Suður-
nesja 26. október
2018.
Foreldrar henn-
ar eru Jónborg
Júlíana Ragnars-
dóttir, f. 5. febr-
úar 1943, og Þórarinn Sveinn
Guðbergsson, f. 3. nóvember
1944. Þau slitu samvistum. Al-
systir Bergþóru er Þórhildur
úar 1990, en hann lést af slys-
förum 17. júní 2005. Börn
Viktors eru þau Þóranna
Reyn, f. 7.3. 2009, Karitas
Emma, f. 8.11. 2012, og er
móðir þeirra Margrét Jak-
obsdóttir, f. 17.7. 1990, þá á
hann einnig börnin Júlíönu
Ruth, f. 13.3. 2011, Ragnar
Breka, f. 24.4. 2015, og Guð-
mund William, f. 17.5. 2018, og
er móðir þeirra þrigga Kristín
Jóna Hjaltadóttir, f. 22.8. 1991.
Seinna kynnist Bergþóra
kerfisfræðingnum Höskuldi
Einarssyni, en dóttir hans,
Hulda Hrund, á stúlkuna Auði
Maríu Elídóttur, f. 10.2. 2016,
sem Bergþóra tók sem sínu
eigin barnabarni.
Útför Bergþóru Hörpu fer
fram frá Útskálakirkju í dag,
8. nóvember 2018, og hefst at-
höfnin klukkan 14.
Ída, f. 1962, og á
hún þá samfeðra
bróðurinn Svein
Inga, f. 31. júlí
1975.
Bergþóra hóf
sambúð með Guð-
mundi Hirti Falk
Jóhannessyni, f.
18. september
1965, en þeirra
samvistir slitnuðu
um aldamót. Áttu
þau saman synina Viktor Agn-
ar Falk Guðmundsson, f. 28.
júní 1987, og Þórarin Samúel
Falk Guðmundsson, f. 4. febr-
Elsku mamma. Það var ekki
oft sem það gekk stirðlega í
samskiptum okkar á milli en
þessir síðustu dagar og vikur
voru erfið, ég vissi ekki hvert
stefndi og þykir leitt að hafa
ekki vitað af veikindum þínum
en þú vissir það ekki sjálf fyrr
en stuttu áður en við hittumst
uppi á spítala.
Það er gaman að rifja upp
þær stundir sem við höfum átt
saman, ferðirnar í húsdýra-
garðinn með krakkana mína og
um leið þær ferðir sem við fór-
um þangað í minni æsku. Það
vantaði aldrei að þú hugsaðir
vel um okkur og sömuleiðis um
börnin mín.
Elstu minningarnar mínar
eru allar úr Silfurtúninu, allra
elsta minningin er sennilega
þegar þú varst að skamma mig
fyrir að hoppa yfir síma-
snúruna, og sagðir orðrétt: „Þú
átt eftir að fótbrjóta þig ef þú
hættir ekki,“ og það stóðst eins
og stafur á bók, þetta endaði
allt saman með spítalaferð og
seinna var ég kominn heim í
gifsi.
Þú hafðir oftar en ekki rétt
fyrir þér, þó að ég hafi ekki
alltaf viljað viðurkenna það.
Það verður ekki tekið af þér
að þú varst mjög einlæg og
góð, þú reyndir alltaf að sjá að-
eins það besta í fólki. Ég man
að þú máttir ekkert aumt sjá,
og það eru nokkur sérstök at-
vik sem ég man alltaf mjög vel.
Ég vona að Dóri okkar taki
vel á móti þér með Blíðuna
okkar sér við hlið, það hefur
aðeins bæst í safnið hjá honum
af vinum sem hafa kvatt okkur
of snemma.
Ég hugsa mikið um þá
drauma sem þú áttir; að við
myndum ferðast saman á mót-
orhjólum eitthvað út á land eða
út í heim, en það var ný ástríða
sem Höskuldur kynnti fyrir
þér.
Það er komið að kveðju-
stund, fyrr en ég átti nokkurn
tíma von á að þurfa að kveðja
þig.
Ég mun alltaf geyma þig í
minningum mínum, elska þig
alltaf.
Létt er að stíga lífsins spor,
ljúf er gleðin sanna,
þegar eilíft æskuvor,
er í hugum manna.
(RG)
Þinn sonur,
Viktor Agnar Falk
Guðmundsson.
Minningabrot streyma fram.
Fyrsta minningin um Bessý er
þegar mamma og pabbi héldu
hvort í sitt handfangið á tusku-
burðarrúmi með hana ný-
fædda, við erum að labba á
miðjum vegi fyrir framan
Garðsstaði, það er gott veður
og ég þriggja ára elti, ægilega
stolt af litlu systur minni.
Minningar um það þegar eitt-
hvað mikið stóð til, eins og
löng ferðalög, þar sem hossast
var eftir malarvegum til Ak-
ureyrar á silfurlitaðri Volkswa-
gen-bjöllu, við Bessý í aftur-
sætinu, náðum varla upp til að
sjá út og fannst ferðin aldrei
ætla að taka enda. Gist hjá
Möggu tvíburasystur mömmu
á Eiðsvallagötunni, sofnað með
skuggamyndir á veggjum af
dansandi snákum sem við litla
systir mín horfðum óttaslegnar
á, þar til næsta dag að dregið
var frá gluggum og iðjagræn
laufblöð dingluðu á stórum
trjágreinum. Enn aðrar minn-
ingar frá ferðalögum til Möggu
frænku í Akurgerðið, leikið
daglangt við Ella og Óla bróð-
ur hans, en líka við Herdísi og
bróður hennar og reyndar
fleiri börn í barnmörgu og
skemmtilegu hverfi. Labbað
niður Þingvallastrætið, með
birkiilm í fanginu í rigningu,
farið í sund, komið aftur heim
til frænku, sem endalaust gat
galdrað fram veitingar. Best af
öllu fannst okkur framandi
djúpsteikt ýsa í orly-deigi og
svalandi var að fá mjólk úr
belju sem var geymd í ísskápn-
um. Alltaf var komið við hjá
ömmu Ídu í Hríseyjargötunni,
sem spilaði stundum á harm-
ónikku fyrir okkur. Ég man að
eitt skipti sem við komum
norður, þá hafði frændi fengið
ótrúlega flott, stórt svart reið-
hjól, með stærðarinnar böggla-
bera að framan og minni að
aftan. Við suðuðum þangað til
við fengum að fara hring.
Bessý systir var sett upp á
bögglaberann að framan og ég
aftan á. Síðan þutum við eftir
götunum á eyrinni og okkur
fannst lífið dásamlegt, alveg
þangað til Bessý hrökk af
bögglaberanum í einni holunni,
því hún var bæði lítil og létt og
endaði með því að þurfa upp á
spítala þar sem vörin var
saumuð. Við pabba sagði lækn-
irinn: „Hún kemur til með að
búa á hér á Akureyri, því að
þegar fólk kemur á nýjan stað
og dettur, þá er það kallað að
detta heim.“ Þetta höfðum við
aldrei heyrt áður og það
reyndist nú ekki þannig.
Árin líða og við verðum
sjálfstæðar konur og eignumst
okkar eigið líf. Bessý var fyrst
og fremst yndisleg móðir og
þótti afskaplega vænt um
drengina sína tvo. Hún var fal-
leg, það var stutt í kímni og
stutt í bros. Hún var persóna,
sem ég held að hafi hvort
tveggja sótt orku í að vera ein
og líða vel með sjálfri sér en
líka fengið orku af því að vera
innan um annað fólk. Hún
hafði yndislega nærveru, var
góð og hæfileikarík. Hógvær.
Bessý kynntist Höskuldi 2008
og mér fannst þau passa vel
saman.
Það er erfitt að hafa lifað af
að fá krabbamein, fara í brjóst-
nám, þunga lyfjameðferð,
geisla og gera allt sem hægt er
til að lifa. Lifa og njóta hvers
einasta dags. Vera á lífi en
þurfa að horfa á yngri systur
sína deyja úr krabbameini.
Engin orð lýsa tilfinningunni.
Ída og fjölskylda.
Bergþóra Harpa
Þórarinsdóttir
HINSTA KVEÐJA
Ég elska þig amma, get
ekki trúað því að þú sért
farin. Ég á ótrúlega góðar
minningar um þig og mig
langar ekki að missa þær.
Þú varst besta kona í öllum
heiminum, við brölluðum
margt saman og ég mun
aldrei gleyma þér. Þú varst
ein af þeim mikilvægustu í
lífinu mínu.
Þinn ömmudemantur,
Þóranna Reyn.
Elsku Bessý amma.
Takk fyrir að kenna mér
að sauma. Ég elska þig rosa
mikið. Ég vona að þú hafir
það gott og passir Arí,
hundinn okkar, í himninum.
Til sætu ömmu minnar
frá ömmudemantinum
Júlíönu.
✝ Birna fæddistí Reykjavík 6.
ágúst 1932. Hún
lést á hjúkrunar-
heimilinu Eir í
Reykjavík 26.
október 2018.
Foreldrar
Birnu voru Jón
Þorbergur
Bjarnason og
Guðmunda Mar-
grét Sigurjóns-
dóttir, hún lést þegar Birna
var um tveggja ára aldur og
ólst Birna upp hjá föður-
ömmu sinni og afa í Reykja-
vík til sex ára aldurs en eftir
það í Vestmannaeyjum, hjá
móðurömmu sinni og hennar
fjölskyldu. Birna var ein-
birni.
Birna stundaði nám á
Reykjum í Hrútafirði einn
vetur og síðan í leiklistar-
skóla Ævars Kvaran í
Reykjavík, þá stundaði hún
einnig nám í ballett.
Birna giftist Sveinbirni
Helga Blöndal 18.6. 1955.
Hann lést 7.4. 2010. Þeim
varð fjögurra barna auðið. 1)
Elsa Lára, f.
24.9. 1955, 2)
Magnús Bjarni, f.
12.1. 1959, d. 7.9.
2001, 3) Kristján
Jón, f. 6.10.
1963, 4) Númi
Orri, f. 4.7. 1966.
Barnabörnin eru
fjögur. Sóley
Elsa, f. 13.5.
1986, er dóttir
Magnúsar. Börn
Orra eru Elísabet, f. 9.12.
1992, Birna, f. 23.4. 1995, og
Sveinbjörn Högni, f. 31.7.
2008. Þá eru barnabarna-
börnin tvö. Magnús Þór, f.
8.8. 2017, er sonur Sóleyjar
Elsu, og óskírður, f. 26.10.
2018, er sonur Elísabetar.
Mestan sinn búskap
bjuggu Birna og Sveinbjörn
á Skagaströnd en 2001 fluttu
þau til Hafnarfjarðar.
Á Skagaströnd var Birna
virk í félagsmálum og vann
þar hin ýmsu störf.
Útförin fer fram frá
Hafnarfjarðarkirkju í dag, 8.
nóvember 2018, og hefst at-
höfnin klukkan 13.
Elsku fallega Birna amma
mín. Ég á þér svo margt að
þakka og langar að skrifa
nokkur orð um þig. Þú varst
svo hlý og góð amma. Ég man
hvað mér fannst gaman að þú
leyfðir mér alltaf að gramsa í
snyrtiborðinu þínu og prufa
alla skartgripina þína, ég fékk
að skoða og máta allar slæð-
urnar, alla hanskana, alla hatt-
ana og öll veskin, mikið sem
mér fannst það gaman og gat
alveg gleymt mér í öllu þessu.
Þú áttir svo mikið af fallegum
hlutum og þér fannst það nú
ekki leiðinlegt að klæða þig
upp í þitt fínasta púss og fara á
kaffihús eða leikhús og njóta
enda verður þú alltaf glæsileg-
asta konan og amman sem ég
hef séð.
Þú varst svo glöð og kát og
þér fannst svo gaman að hlæja,
jihh minn hvað þú varst með
smitandi og yndislegan hlátur.
Þú varst með svo hlýtt faðmlag
og við knúsuðumst alltaf svo
innilega þegar við hittumst. Ég
er svo þakklát fyrir að hafa al-
ist upp með ykkur afa í sama
bænum, ég var alltaf velkomin
til ykkar sama hvað klukkan
var enda var ég mikið hjá ykk-
ur sem krakki og unglingur,
það er ómetanlegt að alast upp
með ömmu og afa sér við hlið.
Margar eru minningarnar
um þig elsku amma og mun ég
varðveita þær vel og ég er svo
þakklát fyrir að hafa fengið að
halda í höndina á þér þangað
til þú gast ekki meir. Núna
ertu komin til afa og Magga
sonar þíns, pabba míns, sem þú
saknaðir alltaf svo ósköp sárt
enda voruð þið alltaf svo góðir
vinir og áttuð fallegt móður-
og sonarsamband. Ég vona að
sambandið milli mín og sonar
míns hans Magga litla Blöndal
verði eins og sambandið ykkar
var.
Takk elsku amma fyrir allt
sem þú gerðir fyrir mig og ég
bið að heilsa.
Þín sonardóttir,
Sóley Elsa.
Birna Ingibjörg
Jónsdóttir
✝ Birgir Krist-jánsson raf-
virkjameistari
fæddist á Akureyri
26. janúar 1948.
Hann lést 26. októ-
ber 2018.
Foreldrar hans
voru Kristján Frið-
rik Helgason, f. 15.
desember 1894, d.
17. júlí 1987, og
Vilborg Guðjóns-
dóttir, f. 13. febrúar 1905, d.
10. mars 1994. Systkini Birgis
eru Sverrir, f. 7. janúar 1931,
d. 9. febrúar 1993, Guðrún
Margrét, f. 9. janúar 1934, og
Bryndís, f. 26. janúar 1948.
Karlsson og saman eiga þau
synina Þórhall og Þórarin.
Maki Helgu er Óskar Helgi
Adamsson. Fyrir átti Birgir
dótturina Rósu, f. 1974, með
Heiðrúnu Hallgrímsdóttur.
Maki Rósu er Sverrir Ingi-
mundarson. Dætur hennar eru
Karen Sunníva og Lena Rós
Káradætur.
Birgir ólst upp á Akureyri
og hlaut sveinsréttindi frá Iðn-
skóla Akureyrar til rafvirkj-
unar. Hann hlaut meistararétt-
indi í rafvirkjun árið 1972. Frá
1981 til 2016 starfrækti hann
fyrirtæki sitt, Rafós. Aðal-
áhugamál Birgis voru bílar, þá
helst amerískir, og ferðalög.
Var hann í Gæsavatnafélaginu
og starfaði fyrir Flugbjörg-
unarsveitina á árum áður.
Útför Birgis fer fram frá
Akureyrarkirkju í dag, 8.
nóvember 2018, og hefst at-
höfnin klukkan 13.30.
Birgir kvæntist
12. nóvember 1977
Elísabetu Gests-
dóttur, f. 10. jan-
úar 1954. For-
eldrar hennar eru
Gestur Ottó Jóns-
son, f. 26. sept-
ember 1929, d. 2.
maí 1999, og Guð-
rún Jónsdóttir, f.
14. desember
1930. Birgir og
Elísabet eignuðust þrjár dætur;
Hörpu, Huldu og Helgu. Maki
Hörpu er Magni Rúnar Magn-
ússon og saman eiga þau börn-
in Birgi Frey og Kristbjörgu
Evu. Maki Huldu er Eyvindur
Elsku pabbi, kallið er kom-
ið. Svo fljótt, svo snöggt og svo
sárt. Albúm minninganna
hellist yfir og veitir mér hugg-
un á erfiðum stundum. Við átt-
um góðar stundir saman í
Gæsavötnum í sumar þar sem
þér leið hvergi betur. Fjalla-
hringinn varst þú með á hreinu
og þreyttist aldrei á að segja
mér hvað fjöllin sem við sáum,
og staðirnir sem við komum á,
heita. Sagan á hverjum stað
beint í æð, enda þekktir þú há-
lendi Íslands eins og lófann á
þér. Ófáar ferðir rifjast upp
þar sem ég sat aftur í með ryk-
ið í nösunum vegna misþéttra
fararskjóta. Þú varst mikill
bílaáhugamaður og ekkert var
nógu gott nema það væri am-
erískt og þá allra helst Chevr-
olet.
Sælkeri fram í fingurgóma
sem fannst súkkulaði, Coca
Cola og Cocoa Puffs bráðnauð-
synlegt á hverjum degi. Þú
varst vanur að koma heim til
okkar á Naust í kaffi nánast
daglega með ýmislegt brall í
farteskinu. Hvort sem það var
að ræða bíla eða nýjustu tækni
í rafmagni fram og til baka við
Magna eða lesa leiðbeining-
arnar á öllum heimsins tungu-
málum, þá brosti ég oft í
kampinn yfir umræðum við
eldhúsborðið. Nauðsynlegt var
að eiga sykurmola með kaffinu
eða kringlur til að dýfa í. Þú
kallaðir mig alltaf búbbulínu
eða búbú og flestir sem þú
þekktir fengu önnur nöfn en
þeim var upphaflega gefið eins
og t.d. baddajúi og skóbaddiló-
baddi á meðan aðrir fengu alls-
kyns ennþá skrítnari viður-
nefni sem maður þurfti að
leggja mikið á sig til að læra
til þess að botna eitthvað í um
hvern þú værir að tala og
hvert þú værir að fara.
Þú varst ævintýrakarl og
sagðir sögur af tröllum, huldu-
fólki og draugum. Kuldaboli
var í miklu uppáhaldi og
stríddir þú okkur systrum oft.
Einn af uppáhaldsdögunum
þínum var 1. apríl, þar sem þú
lést vini þína og fjölskyldu iðu-
lega hlaupa 1. apríl og hlóst
manna mest í sófanum heima
þegar þú varst búinn að senda
fólk upp í fjall að hjálpa þér
við að losa bílinn sem dæmi.
Góðmennska, gjafmildi og
óeigingirni voru þín aðals-
merki og þú hafðir alltaf næg-
an tíma fyrir okkur. „Ég sef
bara seinna“ sagðir þú og nú
er komið að svefninum langa,
elsku pabbi. Hafðu bestu
þakkir fyrir samfylgdina í
gegnum árin.
Þín verður sárt saknað.
Margs er að minnast, margs er að
sakna.
Vildi óska að þú gætir vaknað.
Albúm minninganna um þig og mig
skoðum við saman þegar ég fer á
næsta stig.
Harpa.
Birgir
KristjánssonÁstkær eiginmaður minn og besti vinur,faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
GUNNAR STEINÞÓRSSON
sjómaður,
Brekkugötu 36, Akureyri,
lést í faðmi ástvina 1. nóvember.
Útförin fer fram frá Akureyrarkirkju fimmtudaginn 15. nóvember
klukkan 13.30.
Heiða Björk Pétursdóttir
Ívar Gunnarsson Svanbjörg Jóhannsdóttir
Pétur Steinþór Gunnarsson Dröfn Erlingsdóttir
Hafdís Gunnarsdóttir Kári Páll Jónasson
Guðrún Bryndís Gunnarsd. Guðmundur H. Steingrímsson
Gunnar Gunnarsson Guðbjörg Benónýsdóttir
afa- og langafabörn
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð,
hlýhug og vináttu vegna fráfalls elskulegrar
systur okkar og mágkonu,
INGIBJARGAR GUÐJÓNSDÓTTUR,
Ofanleiti 5, Reykjavík.
Sérstakar þakkir færum við líknardeild
Landspítalans í Kópavogi og Rebekkustúkunni Soffíu nr. 10
fyrir veitta aðstoð.
Sigríður Guðjónsdóttir Jón Ingvarsson
Guðjón Axel Guðjónsson Katrín Björk Eyvindsdóttir
Kristín Laufey Guðjónsdóttir Óðinn Vignir Jónasson
Kristmann Óskarsson Bergljót Hermundsdóttir