Morgunblaðið - 08.11.2018, Blaðsíða 61

Morgunblaðið - 08.11.2018, Blaðsíða 61
DÆGRADVÖL 61 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. NÓVEMBER 2018 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Það er töluvert álag á þér núna bæði í einkalífi og starfi. Vinnufélagi þinn kemur þér á óvart og þú skalt vera jákvæður í hans garð, þegar undrunin rennur af þér. 20. apríl - 20. maí  Naut Það getur valdið andvaraleysi að allir hlutir gangi refjalaust fyrir sig. Ekki falla í þá freistni að sýna öðrum óheilindi þó að þú sleppir kannski við ágreining með því. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Það getur stundum reynst erfitt að velja á milli, þegar mál eru flókin og margar leiðir til lausnar. Líttu ekki til annarra um for- ystu mála. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Skarpskyggni þín hjálpar þér við að greiða úr flækjunum í einkalífinu. Vertu ekki að tvínóna við hlutina og gakktu hreint til verks. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Það sem þér finnst erfiðast að gefa upp á bátinn, er þörfin fyrir að hafa alltaf rétt fyrir þér. Vendu þig á að taka strax á málum og leysa þau. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Líðan þín byggist á því hvernig vinnan gengur. Gættu þess að fara ekki yfir strikið og varastu að biðja um hluti sem þú telur ólíklegt að þú munir fá. 23. sept. - 22. okt.  Vog Gættu þess að ganga ekki of nærri sjálf- um þér þótt mikið liggi við að sýna mikil af- köst. Ef þú helgar þig göfugum málstað tekst þér að ná þínum metnaðarfyllstu markmiðum. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Nú eru vitsmunalegir kraftar málið og þú slærð í gegn hvar sem þú keppir á því sviði. Gerðu það að takmarki þínu að gera sem mest úr hæfileikum þínum. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Nú væri ekki vitlaust að byrja á einhverju af þeim verkefnum sem eru á döf- inni fyrir heimilið. Veldu þau af kostgæfni og hafðu til hliðsjónar það gagn sem þau gera. 22. des. - 19. janúar Steingeit Þú ert órólegur því fjárstuðningur sem þú hefur gert ráð fyrir virðist ekki ætla að skila sér. Nú ríður á að þú látir ekki deigan síga. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Aðstæður í vinnunni draga úr þér kjark þar sem þér finnst þér og öðrum mis- boðið. Gefstu ekki upp þótt illa gangi því öll él birtir upp um síðir. 19. feb. - 20. mars Fiskar Þú hefur tilhneigingu til að vantreysta sjálfum þér og ættir að forðast það og fara eftir sannfæringu þinni. Aðeins þannig tekst þér vel upp. Ámánudag skrifaði SigmundurBenediktsson í Leirinn: Hér er snjókoma og allt orðið hvítt, um- hverfðist því í vetrargírinn: Skermar völlinn skýjahöll skraut þó snjöllust ali, hrynur mjöllin ofan öll yfir fjöll og dali. Svo að hinn forsjáli Pétur Stef- ánsson getur glaður raulað stöku sína „Nagladekk“: Nú er hann genginn í norðantrekk, nú blæs hann kaldur um móa. Nú er ég kominn á nagladekk; nú má hann fara að snjóa. Um „Fegurð haustsins“ yrkir hann: Þó að vindur kuli kinn og kvelji líf úr blómi; ávallt heillar huga minn haustsins dýrðarblómi. Þetta eru fallegar hugleiðingar hjá Ragnheiði Stefánsdóttur á Boðn- armiði: Þú átt í huga þínum margar myndir og minningar um það sem áður var. Hlátur, gleði, ást og sætar syndir en sorgin á sér líka bústað þar. Seinna þegar göngu lífsins lýkur og leggur þú í ferð á æðra stig. Verður einhver hér af reynslu ríkur að rifja upp góðar minningar um þig. Ármann Þorgrímsson sendir Reykvíkingum vinarkveðju að norðan: Virðast fjármál vera í hnút versnar stöðugt ástandið breytið þessu, bjóðið út borgarstjóra hásætið. Hallmundur Kristinsson segir að svona limrur yrki sig sjálfar!: Hallgrímur bóndi að Búðum brá sér austur að Flúðum. Ljósku þar sá sem leist honum á og lét þá vaða á súðum. Halldór Halldórsson sagði frænkur sínar á Flúðum ekki láta bjóða sér hvað sem er: Ljóskurnar fögru á Flúðum forðuðust Hallgrím frá Búðum. Þær sáu hann góna með grasið og skóna, geggjaðan vaðandi’ á súðum! Hallmundur Kristinsson hafði uppi varnaðarorð: Þú gengur með grasið í skónum eftir Gunnum og Siggum og Jónum. En þekkja mátt þú þetta me too! Þær vilja ekki vera með dónum. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Snjókoma og ljóskurnar á Flúðum „KAUPTU TVENN OG ÉG HÆTTI AÐ VÆLA Í ÞÉR.” „ANSANS! SJÁÐU HVAR ÉG SKILDI GAMLA GÍTARINN HANS PABBA EFTIR.” Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... dásamleg dóttir. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann JÓN KEYPTI MINNI DALL HANDA MÉR … SVO ÉG BORÐI MINNA GOTT PLAN VIÐ MUNUM EKKI UNNA OKKUR HVÍLDAR FYRR EN ÞIÐ HAFIÐ SKILAÐ GULLINU OKKAR, ÞJÓFA - HYSKI!! HVÍL Í FRIÐI! Víkverji hatar fátt meira í lífinu enað skafa bílrúður. Honum var því skiljanlega lítt skemmt um daginn þegar hann leit út um gluggann og sá að fyrsti snjór vetrarins hafði ákveðið að blessa götur Reykjavíkur um nótt- ina. x x x Víkverja varð það þó til happs aðhonum hafði verið sagt frá töfratónik sem verslunarhimnaríkið Costco ku víst bjóða upp á í formi rúðupiss, sem á að geta brætt snjó í flestum veðrum alveg niður í 23° frost. Víkverji sat því spakur í bílnum sínum og lét pissið og rúðuþurrk- urnar sjá um mestu vinnuna. Var Víkverji því bara mjög sáttur, eða þar til hann leit til beggja handa og áttaði sig á því að kraftaverkameðalið úr Costco dreif víst ekki á hliðarrúð- urnar. Neyddist hann því út að skafa. x x x Það kom því Víkverja þægilega áóvart þegar hann vaknaði daginn eftir og sá að nær allur snjórinn var horfinn af götunum. Víkverji er þó eldri en tvævetur og veit því að þegar kemur að veðurfarinu hér á landi er aldrei á vísan að róa. Á sama tíma er Víkverji ekkert spenntur fyrir því að þurfa að skafa fleiri rúður, að minnsta kosti fram til næstu ára- móta. x x x Hann er því alvarlega að spá hvortað hann eigi að koma sér upp birgðum af niðursuðudósum til þess að geyma í bílnum sínum, svona ef hann skyldi snjóa aftur síðar á árinu og Víkverji neyðist til þess að bíða veturinn af sér í sínum óskafna Costco-rúðupissbíl. x x x Hinn valmöguleikinn er auðvitað sáað horfast í augu við það að Vík- verji býr á Íslandi, og að land með þvílíkt nafn er líklega að fara að sjá sinn skerf af snjó yfir veturinn. Vík- verji er þó heldur minna spenntur fyrir því en niðursuðudósunum. Eini gallinn sem Víkverji sér er að hann gengur ekki með dósaopnara á sér dags daglega. Það gæti kallað á vand- ræði næst þegar snjóar. vikverji@mbl.is Víkverji Játið að Drottinn er Guð, hann hefur skapað oss og hans erum vér, lýður hans og gæsluhjörð. (Sálmarnir 100.3) www.gilbert.is VELDU ÚR MEÐ SÁL 101 Afmælisútgáfa
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.