Morgunblaðið - 08.11.2018, Síða 66

Morgunblaðið - 08.11.2018, Síða 66
66 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. NÓVEMBER 2018 múgastúlkunni Maríu með heita skapið. Leiðir Maríu og Þórðar lágu þar saman í Skálholti en í þessari bók kemur María aftur við sögu, því hún flyst heim til Þórðar þar sem hann þjónar sem prestur í Reykjadal í Hrunamannahreppi. Þessi nýja bók er skáldsaga, rétt eins og sú fyrri, en margt í henni á sér hliðstæðu í sögu- legum veruleika, Þórður þessi var til og eru skráðar heimildir til um hann. Sögusviðið er Gullhrepparnir, þær sveitir sem veldi Skálholts náði yfir, nema í upphafsköflum bókarinnar, þá erum við stödd Kaupmannahöfn, þangað sem Þórður fer ungur maður til náms. Það verður örlagrík dvöl, því þar kynnist hann í bönnuðum bókum byltingarkenndum hugmyndum, guð- lausum fullyrðingum: ,,Með því að náttúra mannsins er partur af guðdómnum er hún þókn- anleg Guði, því að Guð er náttúran og veröldin … Því harðar sem þjappað er að fríheitum mannsþankans, þeim mun harðar fjarlægjum við hann Guði og Guðs sköpunarverki.“ Þetta talar beint til Þórðar, hvers náttúra má ekki uppljóstrast, en hann er samkynhneigður, sem var lítt þóknanlegt þeirri ströngu kirkju sem hann tilheyrir heima á Íslandi. Hug- myndin um frjálsan huga mannsins á líka upp á pallborðið hjá honum, því Þórður er í eðli sínu afskaplega vítt þenkjandi manneskja, umburðar- lyndur og opinn fyrir nýjungum. En hann á í miklum átökum við sína sam- visku, því allt togast þetta á við það sem honum hefur verið innrætt. En holdið er veikt, og í Köben lendir hann í sjóðheitu ástarævintýri með öðrum manni. Án þess að gefa meira upp um þau samskipti er vert að taka fram að leiftrandi skemmtilegt þótti mér að fylgjast með Þórði í Kaup- mannahöfn, þessari tilfinninga- og kynveru sem tekst á við sinn Guð og samvisku, milli þess sem hann nýtur ásta með velgjörðarmanni sínum og hjartavin. En það er erfitt og sárt fyr- sem til stóð. Þórð- ur er bráð- skemmtilegur og þess tíma kringi- menni, uppreisn- argjarn með leiftrandi húmor, kirkjunnar maður sem þarf að glíma við breyskleika á mörgum sviðum allt sitt líf. En fyrst og fremst er hann manneskja sem auðvelt er að finna til með. Í nýjustu bók Bjarna, Í Gull- hreppum, segir frá lífshlaupi Þórðar, en hann var kynntur fyrir lesendum sem ein af persónum þeirrar bókar sem þessi er sjálfstætt framhald af, Í skugga drottins, en þar sagði frá al- Ég er ekkert hissa þóátjándu aldar maðurinnséra Þórður Jónsson hafiyfirtekið líf Bjarna Harð- arsonar, eins og hann sagði sjálfur í nýlegu útvarpsviðtali, og orðið aðal- persóna nýjustu bókar hans, ólíkt því ir Þórð að geta ekki samsamað sig veröldinni, vera utangátta: „Það hefur aldrei hvarflað að Þórði að hann verði hluti af neinum blóma, aldrei innundir hjá neinum heldur sí- fellt og ævarandi hjábarn veraldar.“ Að loknu námi í Kaupmannahöfn siglir Þórður heim en nýstárlegar hugmyndirnar sem hann kemur með að utan eiga ekki upp á pallborðið í Gullhreppum. Hann er settur prestur yfir Reykjadal, heldur aumu brauði, og vogar sér að viðra sínar byltinga- kenndu hugmyndir um að ,,Guð sjálf- ur sé jörðin sem við göngum á“. Hann mætir miklu mótlæti, er nán- ast talinn hættulegur og álitinn gal- inn villutrúarmaður. Mótlætið er ekki síður í einkalífinu, því ekki var væn- legt fyrir samkynhneigðan prest að finna ástina eða njóta samlífis á þess- um tímum. Allt er heldur niður á við bæði í lífi Þórðar og umhverfi eftir því sem fram vindur sögunni, enda Skálholts- stóll fallandi veldi, en frásögnin er samt skemmtileg, því ýmislegt drífur á dagana og forvitnilegar persónur koma við sögu. Þar má nefna Katrínu dóttur Maríu og ástmann hennar, en þeirra saga verður saga innan sög- unnar. Þórður er með eindæmum mikill búskussi og honum er slétt sama um veraldleg gæði og framapot. Hann gefur í raun lífsbaráttuna upp á bát- inn, eins og títt er um þá sem búa við örbirgð. Og hann fyrirlítur yfirvaldið, sem hann þó er hluti af, og þess stjórnunaraðferðir. Biskupar og sýslumenn eru hyski í hans augum sem mergsýgur og þrælkar lýðinn. Hann dregur í efa að þeirra verk og yfirgangur séu drottni þóknanleg: „Þeim faríseum þessa lands, þeim sem vilja drottna yfir hjörtum og nýr- um sinna náunga og þykjast gera í þínu umboði, ó Drottinn.“ Hjábarn veraldar Skáldsaga Í Gullhreppum bbbbn Eftir Bjarna Harðarson. Sæmundur bókaútgáfa, 2018. Innb., 237 bls. KRISTÍN HEIÐA KRISTINSDÓTTIR BÆKUR Höfundur Átjándu aldar maðurinn séra Þórður yfirtók líf Bjarna Harðarsonar við bókarskrifin. Árni Matthíasson arnim@mbl.is Fyrir stuttu komu út fyrstu bæk- urnar sem AM forlag gefur út, fimm bækur alls og allar eftir sama höf- und, Sverri Norland. Bækurnar eru seldar saman í knippi, sem sjá má á meðfylgjandi mynd; þrjár skáldsög- ur í hæfilegri lengd, eins og Sverrir orðar það, Fallegasta kynslóðin er alltaf sú sem kemur næst, Hið aga- lausa tívolí og Manneskjusafnið, smásagnasafnið Heimafólk og ljóða- bókin Erfðaskrá á útdauðu tungu- máli. Bækurnar eru í litlu broti og þær má lesa á einni kvöldstund. Sverrir nefnir að sér finnist íslenskar bækur oft of stórar og of þungar. „Það skipt- ir mig líka máli hvernig bók er hönn- uð: þessar eru snotrar, stílhreinar og passa í vasa. Þá finnst mér bókaverð á Íslandi orðið ansi hátt. Ég kaupi mikið af bókum og mér finnst sjö þúsund króna bókaverð benda til þess að bók sé gjafavara frekar en vitsmunafóður. Gef því út fimm bæk- ur á verði einnar skáldsögu sem góð- látlega ábendingu.“ Forlagið gaf út síðustu tvær skáld- sögur Sverris, Kvíðasnillingana (2014) og Fyrir allra augum (2016), og hann segist enn á mála þar. „AM forlag hefur hins vegar aðrar fagur- fræðilegar áherslur, sem hentuðu vel þessu verkefni. Ég er síðan að leggj- ast í svolítil ferðalög og svo að fara í framhaldsnám í umhverfisfræðum í París á næsta ári þannig að ég ákvað að læða frá mér þessari ástarjátn- ingu minni til íslenskunnar og til sagnalistarinnar nú í haust. Og þetta er brýning og áeggjun: Lesum bæk- ur.“ — Hvað segir þú mér af AM for- lagi? „Þetta litla forlag er rekið af fjöl- skyldu og vinum, konan mín hannar útlitið á bókunum og það stendur til að gefa út fleiri bækur, sem betur fer ekki einungis eftir mig. Það verða einnig litlar bækur, sem ég held að henti nútímafólki ágætlega, og svo koma vonandi barnabækur í framtíð- inni. En við stígum varlega til jarð- ar.“ Bækurnar fimm eru skrifaðar á síðustu tveimur árum að sögn Sverr- is. „Hið agalausa tívolí skrifaði ég að stórum þræði í sumar, glæpasögu þar sem framið er morð á Kaffi Best og löggurnar nota þá tækni í upplýs- ingaáreiti samtímans að reyna að viða ekki að sér upplýsingum, að reyna að loka á allt og leysa glæpinn þannig. Manneskjusafnið og Falleg- asta kynslóðin er alltaf sú sem kemur næst skrifaði ég 2016. Heimafólk og Erfðaskrá á útdauðu tungumáli eru sögur og ljóð sem hafa orðið til á þessum árum. Margir okkar bestu höfunda – fólk sem ég dái mikið og hef oft lesið í heild sinni – eru að kryfja fortíðina og fiska þaðan sögu- efni. Ég virðist, án þess að það sé meðvitað, glíma meira við samtím- ann. Ég held að það sé okkur hollt, sem þjóð, að skrifa um líðandi stund og hugsa um – og endurhugsa – sam- félagið í dag, í skáldskap. Þessar bækur fjalla allar um fólk sem er rót- laust í flóknum og sítengdum sam- tíma og á floti menningarlega. Hvernig skilgreinum við heimili okk- ar í dag? Landmæri mást út, þökk sé Ástarjátning til sagnalistarinnar  Fimm bækur koma út eftir Sverri Norland fyrir jólin, pakkað saman í nett knippi, skáldsögur, smásögur og ljóð Knippi Bækurnar eru seldar fimm saman í bókavöndli. Fjölhæfur Sverrir Norland gefur út fimm bækur í senn. www.hitataekni.is | S: 5886070 | Smiðjuvegur 10 | 200 Kópavogi Margverðlaunuð baðvifta Einstaklega hljóðlát 17-25dB (A) Innbyggður raka-, hita- og hreyfiskynjari. Vinnur sjálfvirkt 3W

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.