Morgunblaðið - 08.11.2018, Blaðsíða 70
70 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. NÓVEMBER 2018
AF LJÓSMYNDUN
Einar Falur Ingólfsson
efi@mbl.is
Þeir sem ferðast um Kína standa
iðulega orðlausir frammi fyrir
gríðarstórum nýbyggingum sem
rjúka upp úti um allt hið stóra land,
heilu háhýsaröðunum sem fólk hefur
enn ekki flutt inn
í, og að þeim og
allt um kring
liggja margreina
akbrautir, oft á
steinsteyptum
brúm hátt yfir
höfði manna. Og inni á milli steypu-
bíla, byggingakrana og iðandi
verkamanna má oft sjá hávaxin tré,
stundum greinastýfð og innpökkuð í
plast, sem hafa verið flutt á
byggingasvæðin til að gera þau vist-
legri – og fasteignirnar jafnfram
verðmætari. Það eru þessi tré sem
ljósmyndarinn Yan Wang Preston
hefur gert að viðfangsefni sínu og
hefur hlotið lof fyrir, sem og The
Syngenta-ljósmyndaverðlaunin. Við
veitingu þeirra verðlauna er sjónum
beint að umhverfislegum áskor-
unum sem maðurinn stendur
frammi fyrir. Í tengslum við verð-
launin hefur hið þekkta þýska forlag
Hatje Cantz, sem er sérhæft í út-
gáfu ljósmynda- og myndlistarbóka,
gefið út veglegt safn verka Preston í
bókinni Forest.
Yan Wang Preston hlaut menntun
sem svæfingarlæknir í Kína en flutti
síðan til Bretlands og lauk meistara-
námi í ljósmyndun. Í fyrsta viða-
mikla ljósmyndaverkefni hennar,
Mother River, sneri hún aftur til
Kína, ferðaðist eftir Yangtze-fljóti,
alla 6.211 kílómetrana, og tók á 100
km fresti mynd á stóra blaðfilmu-
myndavél sína. Afrasturinn kom út
á bók og hefur verið sýndur víða. Og
við þetta verkefni um trén beitti
Preston aftur blaðfilmuvélinni,
tækni sem býður upp á afar hlut-
læga nálgun, með ríkulegu magni
upplýsinga í hverri mynd.
Fjöllin mótuð upp á nýtt
Bókinni er skipt í tvo hluta, eftir
þeim svæðum þar sem Preston hef-
ur einkum ljósmyndað trén sem
flutt hafa verið til og plantað að nýju
í manngerðu umhverfi. Annars veg-
ar er það við borgina Dali í Yunnan-
héraði, sem er afar vinsælt meðal
ferðamanna. Á hæðum austan við
Dali rís nú ný borg, Haidong, sem er
ætlað að vera „vísindalegt þróunar-
svæði, vistvæn borg, og alþjóðlegur
viðkomustaður“. Náttúrulegu lands-
lagi og þeim byggðum sem fyrir eru
er algjörlega umbylt, nýir byggða-
kjarnar rísa og inni á milli mótaðir
garðar og græn svæði. Preston segir
í eftirmála bókarinnar að þar sem
hæðirnar og fellin í Haidong hafi
þótt skorta „fagurfræðileg gæði“
hafi efsta lag þeirra verið endur-
mótað með rauðum og frjósamari
jarðvegi og gróðri – þar á meðal að-
fluttum trjám sem mörg eru komin
vel á aldur og eru keypt í þorpum í
landsbyggðinni eða af bændum, oft
fyrir háar upphæðir. Preston mynd-
aði talsvert á svæðinu á undan-
förnum árum og segir að þrátt fyrir
að framkvæmdirnar hafi tekið mörg
ár og svæðinu hafi verið gjörbreytt
séu fáir fluttir þangað og Haidong
sé enn draugabær.
300 ára tré á flakki
Hitt viðfangsefni þesarar rann-
sóknar Preston á tilfluttum trjám er
ofurborgin Chongqing, ofarlega við
Yangtze-fljótið, en þar búa um 30
milljónir íbúa. Gríðarlegur vöxtur
hefur verið í borginni síðustu ára-
tugi og ákváðu yfirvöld árið 2008 að
Chongqing yrði „skógarborg“, sem
leiddi til þess að gríðarlegu magni
trjáa var plantað víða í og við borg-
ina, ekki síst á svæðum sem voru í
byggingu. Hinni opinberu stefnu
hefur síðan verið breytt og dregið úr
áherslu á tré, en engu að síður segir
Preston framkvæmdamenn og fyrir-
tæki hafa haldið áfram að planta
trjám, enda sé gróðurinn vinsæll.
Tveir listfræðingar setja í inn-
gangsorðum bókarinnar verk
Preston í samhengi við verk annarra
landslagsljósmyndara fyrr og nú, en
á síðustu áratugum hafa margir
skapandi ljósmyndarar unnið með
núning hins manngerða og náttúru-
lega á áhugaverðan hátt. Preston
segir þessar tvær borgir sem hún
beinir sjónum að í verkunum á eng-
an hátt einstakar fyrir þróun mála í
Kína hvað flutning á trjágróðri varð-
ar en hún velji þær sem dæmi um
þróunina. Og táknræn er saga trés-
ins Frank. Frank myndaði hún fyrst
í mars árið 2013 í þorpi við Yangtze-
fljótið sem átti að fara á kaf í uppi-
stöðulón. Tréð var 300 ára og fyr-
irtæki sem hugðist byggja fimm
stjörnu hótel þar nærri keypti það
til að prýða hótellóðina.
Næst myndaði Preston Frank í
júní 2013 og þá hafði tréð, sem búið
var að saga greinaþykknið af, verið
gróðursett á fyrirhuguðu
byggingarsvæði og stóð þar pakkað
inn í plast að mestu. Þegar Preston
kom aftur fjórum árum seinna að
mynda Frank kom í ljós að tréð
hafði drepist tveimur árum fyrr,
hafði ekki þolað flutninginn.
Myndröð Yan Wang Preston af
trjáflutningunum í Kína er for-
vitnileg og vel unnin. Í henni birtist
vel þrá manna eftir að halda í
tengslin við náttúruna, jafnvel þótt
umhverfið sé allt meira og minna
manngert og náttúran þurfi sífellt
að láta undan síga fyrir manninum.
Tré á flakki og manngerð náttúra
Náttúruklæðning Ein af ljósmyndum Yan Wang Preston frá 2017 sem sýna verkefni við svo-
kallaðar Puhejing-námur sem snýst um að endurheimta náttúru á framkvæmdasvæði.
Ferðalangur Frank, 300 ára gamalt tré í júní 2013, eftir að það var flutt úr þorpi sem var fært á
kaf vegna virkjanaframkvæmda í Yangtze-fljóti. Tréð átti að vera í hóteli en drapst árið 2015.
Ljósmyndarinn Yan Wang Preston hefur á undanförnum árum myndað flutning trjáa í Kína inn á
framkvæmdasvæði Þráin eftir náttúru í manngerðum heimi er viðfangsefni bókar hennar
Ljósmyndir/Yan Wang Preston
Náttúrulegt Aðflutt tré mynduð í Egongyan-garði árið 2017, innan um
burðarstólpa hraðbrautarbrúa, í stórborginni Chongqing.