Morgunblaðið - 13.11.2018, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. NÓVEMBER 2018
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Þorgerður Anna Gunnarsdóttir
thorgerdur@mbl.is
„Þetta var algjörlega þeirra líf og
yndi,“ segir Rúnar Guðbjartsson,
faðir Kristins, fjallgöngumanns sem
týndist í fjallgöngu á Pu Mori í Nep-
al fyrir 30 árum. Fljótlega upp úr
fermingu báðu þeir Kristinn og Þor-
steinn Guðjónsson um leyfi til að
fara á Esjuna. „Ég gerði það að skil-
yrði að þeir yrðu að fara á námskeið
hjá skátunum og læra á áttavita áður
en þeir færu í fjöllin. Þeim fannst
það ekkert vitlaust og gerðu það.“
Þannig hófst ævintýri þeirra fé-
laga, en bandarískur fjallgöngumað-
ur gekk fram á lík þeirra á fjallinu á
dögunum, 30 árum eftir að þeir týnd-
ust.
Félagarnir og æskuvinirnir Krist-
inn og Þorsteinn höfðu klifið flesta
tinda Íslands áður en þeir eltu
fjallgöngudrauminn út í heim. Þeir
klifu meðal annars hæsta fjall Suður-
Ameríku og nokkur fjöll í Norður-
Ameríku áður en leiðin lá til Nepals
árið 1988, en þaðan sneru þeir ekki
aftur.
Sárt að fá fréttina
Rúnar minnist þess þegar hann
fékk fyrst fregnir af því að Kristinn
og Þorsteinn væru týndir. „Þetta var
alveg hræðilegt. Ég man að ég var að
keyra Miklubrautina og mætti elsta
syni mínum. Hann veifaði öllum öng-
um og ég hugsaði: „Hvað er að
drengnum?“ og stoppaði við Löngu-
hlíð. Hann sneri við og sagði mér að
hann hefði fengið þær fréttir frá
Alpaklúbbnum að þeir væru týndir.
Það er ekki hægt að lýsa þessu.
Þetta var alveg svakalega sárt,“ seg-
ir Rúnar. Allt hafi verið gert sem
mögulegt var til þess að leita að vin-
unum. Þyrla hafi
verið send í leit,
en hún ekki kom-
ist nægilega hátt.
Þá var fjall-
gönguhópur sem
átti leið á topp Pu
Mori beðinn að
svipast um eftir
þeim, en allt kom
fyrir ekki.
„Það voru allir
boðnir og búnir til
þess að hjálpa. Ég man að sam-
starfsfólk mitt hjá Flugleiðum safn-
aði peningum fyrir okkur og barns-
móður Kristins og það var
risaupphæð sem safnaðist,“ segir
Rúnar. Það hafi verið lán í óláni að
kærasta Kristins hafi verið ófrísk
þegar hann fórst.
„Fimm mánuðum eftir að hann er
yfirlýstur látinn þá fáum við hann
aftur,“ segir Rúnar og á við son
Kristins sem kom í heiminn árið eft-
ir. „Hann var lifandi eftirmynd af
pabba sínum. Það er ekki hægt að
lýsa því hvað það var mikið smyrsl á
sárin og gerði þetta miklu auðveld-
ara,“ segir Rúnar, en sonur Kristins
var skírður eftir þeim Þorsteini:
Kristinn Steinar.
Komust á toppinn
Nokkrum vikum eftir að Kristinn
og Þorsteinn týndust hringdi þáver-
andi forstjóri Landsímans, sem hafði
verið á ráðstefnu í Japan, í Rúnar.
Hann hafði hitt mann úr Eyjaálfu
sem var á fjallinu á sama tíma. Hann
var í hóp á niðurleið sem mætti
Kristni og Þorsteini á leiðinni upp.
Segir að hópurinn hafi verið í sjón-
línu við hópinn allan tímann og þegar
Þorsteinn og Kristinn hafi horfið
þeim sjónum hafi verið örstutt eftir á
toppinn.
„Hann heimtaði að fá að skrifa
bréf til okkar hérna heima, þar sem
hann kvittaði fyrir og staðfesti að
þeir hefðu náð toppnum. Forstjóri
Landsímans kom með bréfið til okk-
ar,“ segir Rúnar. Að ná toppnum
hafi verið draumur þeirra, en upp-
haflega var talið að þeir hefðu farist
á leiðinni upp og því ekki náð mark-
miði sínu.
Fjallið á það sem það tekur
Rúnar segir það enn óljóst hverjar
aðstæður eru á fjallinu og hvort
verði hægt að flytja lík þeirra Krist-
ins og Þorsteins niður og til Íslands.
Fyrir honum sé það ekki aðalmálið,
heldur að þeir séu fundnir og að í því
felist ákveðin málalok.
Þá hafi hann fengið símtal frá
barnabarninu, Kristni Steinari, í
morgun. „Hann sagði mér að bæði
Kristinn og Þorsteinn hefðu sagt áð-
ur en þeir fóru að ef eitthvað kæmi
upp á, þá ætti fjallið þá. Þeir vildu
ekki að fólk yrði sett í lífshættu við
að bjarga þeim. Fjallið ætti það sem
fjallið tæki.“
Nánar er rætt við Rúnar á mbl.is.
Var algerlega þeirra líf og yndi
Enn óljóst hvort hægt er að flytja lík
fjallgöngumannanna niður og heim
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Sorg Rúnar Guðbjartsson segir það hafa verið hræðilega stund þegar hann frétti af því að félagarnir væru týndir.
Kristinn
Rúnarsson
„Þetta viðtal vek-
ur óhug; hvernig
lífið gengur í
myrkustu afkim-
um þjóðfélags-
ins,“ ritar Ás-
mundur
Friðriksson,
þingmaður Sjálf-
stæðisflokksins í
Suðurkjördæmi,
á Facebook-síðu
sína í gærkvöldi.
Tilefnið er viðtal sem birtist í
Morgunblaðinu í gær við sr. Vigfús
Bjarna þar sem hann lýsti reynslu-
sögum úr hörðum fíkniefnaheimi
og hve hart handrukkarar ganga
orðið fram gagnvart fólki.
Hefur Ásmundur óskað eftir því
við formann velferðarnefndar Al-
þingis að sr. Vigfús Bjarni verði
kallaður fyrir nefndina og upplýsi
þingmenn um stöðuna.
Vill fá sr. Vigfús
fyrir velferðarnefnd
Ásmundur
Friðriksson
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Forsætisráðherra hefur óskað eftir greinargerð
bankaráðs Seðlabanka Íslands um mál Samherja.
Óskar ráðherrann meðal annars eftir útlistun á því
hvort og þá með hvaða hætti Seðlabankinn hyggst
bregðast við dómi Hæstaréttar og hvort dómsnið-
urstaðan kalli á úrbætur á stjórnsýslu bankans og
þá hverjar.
Málarekstur Seðlabankans gegn Samherja og
stjórnendum fyrirtækisins vegna meintra brota á
lögum um gjaldeyrismál stóð í hátt í sjö ár. Þegar
saksóknari ákvað að höfða ekki sakamál tók Seðla-
bankinn málið upp að nýju og lagði 15 milljóna
króna stjórnvaldssekt á fyrir-
tækið. Það dæmdi héraðsdómur
óheimilt og Hæstiréttur stað-
festi þann dóm í síðustu viku.
Í bréfi sem Katrín Jakobs-
dóttir forsætisráðherra sendi
bankaráði Seðlabanka Íslands í
gær er óskað eftir greinargerð
um málið frá upphafi. Sérstak-
lega er óskað eftir upplýsingum
um það hvað lá að baki ákvörð-
un Seðlabankans um að endur-
upptaka málið í lok mars 2016.
Katrín segir í samtali við Morgunblaðið að
bankaráðið hafi eftirlit með störfum Seðlabankans
og því séu það eðlileg viðbrögð hjá því að taka málið
til skoðunar. Hún segist hafa óskað eftir því í sam-
tölum við formann bankaráðsins um helgina og stað-
fest það með bréfinu.
Garðar G. Gíslason, lögmaður Samherja, segir í
opnu bréfi til forsætisráðherra sem birt er í blaðinu í
dag að Már Guðmundsson seðlabankastjóri hafi svo
sannarlega misfarið með vald sitt í meðferð málsins.
Sá sem misfer með opinbert vald á ekki að fá að
halda því, skrifar Garðar.
Katrín segir að skýrslan verði tekin til skoðunar í
ráðuneytinu þegar hún berst. Spurð um stöðu Más
Guðmundssonar seðlabankastjóra segir hún ekkert
augljóst í þessu máli sem bendi til að hrófla eigi við
stöðu hans. »19
Óskað eftir greinargerð
bankaráðs um Samherjamál
Forsætisráðherra spyr hvort Seðlabankinn hyggist bregðast við niðurstöðunni
Katrín
Jakobsdóttir
Ökumaður bifreiðar sem valt á
Borgarfjarðarbraut á sunnudags-
kvöld rétt norðan við Flókadalsá
var úrskurðaður látinn skömmu
eftir komu á slysadeild.
Lögreglan á Vesturlandi greindi
frá þessu í tilkynningu í gær. Hún
segir enn fremur að tildrög slyssins
og orsakir liggi ekki fyrir og áfram
sé unnið að rannsókn málsins.
Slysið varð á sjöunda tímanum á
sunnudagskvöld. Beita varð klipp-
um til að ná ökumanninum, sem var
einn á ferð, úr bifreiðinni. Á vef
Skessuhorns segir að maðurinn
hafi verið erlendur og starfað á
svínabúi í Hálsasveit.
Lést í bílveltu á
Borgarfjarðarbraut
Banaslys varð á Sæbraut í Reykja-
vík í gær þegar ekið var á gangandi
vegfaranda. Sæbraut var lokað í
vesturátt frá Kringlumýrarbraut
vegna slyssins. Opnað var að nýju
fyrir umferð upp úr hádeginu.
Slysið varð um klukkan 11:30 og
var vegfarandinn fluttur á slysa-
deild, þar sem hann var úrskurð-
aður látinn.
RÚV greindi frá að erlendur
karlmaður hefði látist. Tildrög
slyssins eru ókunn og hefur lög-
reglan óskað eftir því að vitni gefi
sig fram, annaðhvort í síma 444
1000 eða í gegnum netfangið
gudmundur.pall@lrh.is.
Gangandi vegfar-
andi lést á Sæbraut
Bjarni Benediktsson fjármálaráð-
herra kynnti í ríkisstjórn í gær til-
lögur um breytingar á fjárlagafrum-
varpi fyrir árið 2019. Verða þær
lagðar fyrir fjárlaganefnd á fundi ár-
degis í dag.
Nefndadagur er á Alþingi í dag
þar sem störf fjárlaganefndar verða í
forgangi. Willum Þór Þórsson, for-
maður nefndarinnar, reiknar með að
nefndin ljúki umræðu um breyting-
artillögur fyrir aðra umræðu síðdeg-
is í dag og nefndarálit og tillögur
verði birt á morgun. Áformað er að
önnur umræða um fjárlagafrum-
varpið hefjist í þinginu á fimmtudag.
Samkvæmt starfsáætlun þingsins
átti önnur umræða að fara fram í
dag. Henni seinkar því um tvo daga.
Ný hagspá
Willum segir að nefndin hafi unnið
eins og umræðan yrði í samræmi við
starfsáætlun, alveg fram á síðasta
dag. Hins vegar hafi þurft að breyta
grunni fjárlagafrumvarpsins vegna
nýrrar hagspár Hagstofu Íslands og
hún hafi komið heldur seinna en
reiknað var með.
helgi@mbl.is
Önnur umræða á fimmtudag
Willum Þór
Þórsson
Bjarni
Benediktsson
Fjárlaganefnd fundar í dag Breytingartillögur kynntar í ríkisstjórn