Morgunblaðið - 13.11.2018, Síða 26
26 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. NÓVEMBER 2018
Ég er staddur í Stokkhólmi ásamt frúnni að halda upp á afmælið.Ég hef verið mikið í Svíþjóð, hef unnið þriðjung af starfsævinnihérna og þykir vænt um Svíþjóð,“ segir Ólafur Þór Ævarsson
geðlæknir sem á 60 ára afmæli í dag.
Í tilefni dagsins ætla hjónin í óperuna að sjá Aidu eftir Verdi. „Ég er
tónlistarunnandi, syng í Karlakór Kópavogs og er úr tónlistarfjölskyldu
og hef alltaf notið þess að hafa tónlistina í lífinu.“
Ólafur er stofnandi og einn eigenda Forvarna sem beitir sér fyrir
fræðslu um geðheilbrigðismál og geðheilsueflingu og rekur Lækninga-
og fræðslusetur ásamt Streitumóttökunni og Streituskólanum. „Við
stofnuðum Forvarnir fyrir átján árum og teljumst til frumkvöðla á
þessu sviði. Þar er ég að vinna í öflugu þverfaglegu teymi sem er vinna
að því að koma fólki í form, en margir leita til okkar ef þeir telja sig
finna fyrir kulnun eða streitu í starfi. Við vinnum líka með félagsþjón-
ustunni úti á landi og á höfuðborgarsvæðinu og sinnum einnig fyr-
irtækjum og hópum.“
Þegar Ólafur varð fimmtugur stofnaði hann ásamt fleirum Forvarna-
og fræðslusjóðinn ÞÚ GETUR! þar sem sjálfboðaliðar hafa hjálpað fólki
með geðraskanir til að fara aftur í nám. „Á þessum tíma höfum við stutt
um 150 manns í námi.“
Eiginkona Ólafs er Marta Lárusdóttir, heilsugæslulæknir í Glæsibæ,
og börn þeirra eru Ragnhildur, lögfræðingur hjá Lykli, Ævar viðskipta-
fræðingur hjá Deloitte, Rafnar nemi í tölvunarfræði í HÍ og Sigrún Júl-
ía nemi í Menntaskólanum í Kópavogi. Barnabörnin eru orðin tvö.
Hjónin Læknarnir Marta Lárusdóttir og Ólafur Þór Ævarsson.
Ætlar í óperuna í
Stokkhólmi í kvöld
Ólafur Þór Ævarsson er sextugur í dag
Þ
órdís Kristmundsdóttir
fæddist í Reykjavík
13.11. 1948 og ólst þar
upp. Hún lauk stúdents-
prófi frá MR 1968, M.Sc-
prófi í lyfjafræði og síðar dokt-
orsprófi frá háskólanum í Manchest-
er á Englandi 1976 og var Post-
Doctoral Research Fellow á vegum
I.C.I. Pharmaceuticals við sama skóla
1977-79.
Þórdís hóf störf við lyfjafræði lyf-
sala við HÍ haustið 1979, varð pró-
fessor í lyfjagerðarfræði þar 1986,
sem er hennar sérsvið. Hún varð önn-
ur konan sem skipuð var prófessor
við HÍ.
Rannsóknir Þórdísar á síðustu ár-
um hafa einkum beinst að þróun og
prófunum á lyfjaformum, sem inni-
halda sýkladrepandi fitusýrur og mó-
nóglýseríð, sem virk efni, í þeim til-
gangi að fyrirbyggja smit um
slímhimnur og til meðferðar á húð- og
slímhimnusýkingum. Hún hefur ritað
fjölda greina og bókarkafla um við-
fangsefni sín.
Þórdís var ritstjóri Tímarits um
lyfjafræði 1980-84, framkvæmda-
stjóri Lyfjafræðingafélags Íslands
1979-91, sat í framhaldsmennt-
unarráði félagsins 1994-96, í stjórn
Norrænu samtakanna um menntun
lyfjafræðinga 1997-2001, átti sæti í
stjórn Lyfjafræðistofnunar HÍ 1997-
99, í stjórnarnefnd lyfjafræði lyfsala
og formaður stjórnar 1986-1987,
1989-91,1993-1995 og 1997-1999,
2000-03 og 2009-11 og kjörin fyrsti
deildarforseti lyfafræðideildar er hún
var stofnuð. Hún sat í deildarráði
læknadeildar 1988-92 og 1996- 2000,
var í forystu, ásamt Þorsteini Lofts-
syni prófessor, við uppbyggingu
lyfjafræðideildar í Haga og stjórn-
arformaður Reykjavíkurapóteks-
Háskólapóteks.
Þórdís var fulltrúi heilbrigðisvís-
indasviðs í háskólaráði 2006-2008,átti
sæti í nefnd háskólaráðs til að endur-
skoða ákvæði laga og reglna um dóm-
nefndir og fleiri þætti ráðningarmála
2000-2002, var fulltrúi heilbrigðisvís-
indasviðs í úthlutunarnefnd Rannís
1987-94 og varaformaður ráðsins
1991-94, sat í stjórn fagráðs Tækni-
sjóðs Rannís1998-2002, átti sæti í vís-
indasjóði HÍ 1995-2005, í vís-
indanefnd skólans 2001-2005 og
2011-2014, og í fagráði heilbrigðisvís-
inda vegna úthlutunar úr Eimskipa-
félagssjóði 2002.
Þórdís sat í stjórnarnefnd norrænu
rannsóknarnámskeiðanna 1990-91,
fulltrúi Íslands í norræna vís-
indasjóðnum 1991-96, sat í stjórn vís-
indasjóðs Krabbameinsfélags Íslands
1989-92, var varaformaður 1990-91 og
Þórdís Kristmundsdóttir, prófessor í lyfjafræði við HÍ – 70 ára
Með barnabörnum Þórdís og Eiríkur í góðum félagsskap á Tenerife í sumar.
Hún varð annar kven-
prófessorinn við HÍ
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Afmælisbarnið Þórdís, nýskipaður
prófessor við HÍ árið 1986.
Ólafsvík Birna Rós
fæddist 10 janúar
2018 kl. 12.46. Hún
vó 4.155 g og var 53
cm löng. Foreldrar
hennar eru Þórunn
Káradóttir og Ólaf-
ur Fannar
Guðbjörnsson.
Nýr borgari
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
DUXIANA Reykjavik | Ármuli 10 | Reykjavik | +354 5 68 99 50 | www.duxiana.is
GÆÐI OG ÞÆGINDI
SÍÐAN 1926
DUX 8008 – UNDRAVERÐUR SVEIGJANLEIKI
Háþróuð tækni, alvöru handverk, strangar prófanir og vandlega valin efni tryggja góðan nætursvefn
og passa upp á að líkaminn fái góða hvíld þegar þú þarf mest á því að halda.
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is