Morgunblaðið - 01.12.2018, Page 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. DESEMBER 2018
Lars Løkke Rasmussen, forsætisráð-
herra Dana, er á landinu og tekur þátt
í hátíðahöldunum í dag. Þau eru af
ýmsum toga og er haldið upp á full-
veldisafmælið víða um bæ.
Løkke lenti á Íslandi í gær ásamt
eiginkonu sinni, Sólrúnu Løkke
Rasmussen. Þetta verður tveggja
daga heimsókn þeirra hjóna hingað í
tilefni af 100 ára fullveldisafmæli ís-
lensku þjóðarinnar.
Løkke fundaði með Katrínu
Jakobsdóttur forsætisráðherra í gær
í Ráðherrabústaðnum við Tjarnar-
götu. Þar snæddu þau svo saman há-
tíðarkvöldverð í gær.
Í tilkynningu frá forsætisráðuneyt-
inu er greint frá þjappaðri dagskrá
Løkke. Hann heimsótti Marel, fékk
kynningu á fyrirtækjunum HS Orku
og Carbon Recycling International og
hélt blaðamannafund með Katrínu.
Fullveldishátíðin verður sett
klukkan eitt við Stjórnarráðið og eftir
það verður opið hús í Alþingi til
klukkan sex síðdegis.
Forsætisráðherrar funduðu
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Fullveldisafmæli Mikil viðhöfn er í tilefni afmælisins og er heimsókn Løkke
liður í henni. Hann snæddi hátíðarkvöldverð í boði Katrínar í gærkvöld.
Forsætisráðherra
Dana í heimsókn í til-
efni fullveldishátíðar
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Alþingishúsið verður opið almenn-
ingi í dag milli klukkan 13.30 og
18.00. Tilefnið er að 100 ár eru liðin
frá því að sambandslagasamningur-
inn tók gildi og Ísland varð frjálst
og fullvalda ríki árið 1918. Alþingis-
menn og starfsmenn skrifstofu Al-
þingis munu veita leiðsögn um húsið
og tala við gesti. Af þessu tilefni
verða opnuð ýmis rými hússins sem
að jafnaði eru ekki opin almenningi.
Í Skála verður sýning á ljós-
myndum, skjölum og völdum tilvitn-
unum úr umræðum á þingi um
sambandslagasamninginn.
Helgi Bernódusson, skrifstofu-
stjóri Alþingis, sýndi blaðamanni og
ljósmyndara nokkur herbergjanna
sem verða opnuð almenningi í dag.
Hann rifjaði upp þau mörgu hlut-
verk sem hinar ýmsu vistarverur
hússins hafa gegnt. Sagan er í
heiðri höfð í Alþingishúsinu og
prýðir það fjöldi listaverka sem
mörg eru gjafir frá vinaþjóðum.
Einnig eru þar myndir af mörgum
þingmönnum fyrr og síðar, öllum
ráðherrum landsins og forsetum Al-
þingis.
Söfn, háskóli og löggjafinn
Alþingishúsið var hlaðið úr grjóti
úr Þingholtunum og tekið í notkun
árið 1881. Ferdinand Meldahl, húsa-
meistari og forseti Listaháskólans í
Kaupmannahöfn, teiknaði húsið.
Það var reist til að minnast þúsund
ára Íslandsbyggðar sem haldið var
upp á árið 1874.
Viðbyggingin Kringlan var byggð
árið 1908. Danski arkitektinn Fred-
erik Kjörboe teiknaði hana. Hún er
í allt öðrum stíl en eldra húsið og
skrautlegri. Gulllögð rósetta í lofti
og rósasveigur yfir inngangi setja
svip á Kringluna. Hún var upp-
haflega risnuherbergi og móttöku-
stofa ráðherra. Kringlan var svo
veitingastofa Alþingis til 1973. Al-
þingismenn geta nú sest þar niður
og rætt málin. Lengi var taflborð í
Kringlunni þar sem þingmenn öttu
kappi í skák. Skálinn, nýjasta við-
byggingin sem hýsir ýmsa þjónustu,
var tekinn í notkun árið 2002.
Auk þess að hýsa Alþingi hefur
Alþingishúsið gegnt veigamiklum
hlutverkum í tímans rás. Helstu
söfn þjóðarinnar voru þar fyrst til
húsa, það eru forverar Landsbóka-
safnsins, Þjóðminjasafnsins og
Þjóðskjalasafnsins. Listasafnið var
einnig í Alþingishúsinu. Landsbóka-
safnið og Landsskjalasafnið fluttu í
Safnahúsið við Hverfisgötu á ár-
unum 1908-1909.
Háskóli Íslands var stofnaður
1911 og var hann í Alþingishúsinu
frá stofnun til 1940 að skólinn flutti
í eigin byggingu. Skrifstofur emb-
ættis forseta Íslands voru einnig í
Alþingishúsinu til ársins 1973.
Allir eru velkomnir í Alþingis-
húsið í dag og er aðgangur ókeypis.
Inngangur er um aðaldyr Skálans.
Kringlan Helgi Bernódusson, skrifstofustjóri Alþingis, í viðbyggingunni sem var reist við suðurhlið Alþingishússins
1908. Kringlan er í allt öðrum stíl og skrautlegri en aðrir hlutar þinghússins. Fyrir framan er Alþingisgarðurinn.
Fundarherbergi forsætisnefndar Þar er tekið á móti sérstökum gestum.
Fyrir endanum er málverk sem var gjöf frá færeyska lögþinginu 1930.
Löng og mikil saga í merku húsi
Alþingishúsið verður opið almenningi í dag kl. 13.30-18.00 Auk þess að hýsa þingið voru helstu
söfn þjóðarinnar þar til að byrja með Háskóli Íslands var í húsinu frá stofnun 1911 og til 1940
Morgunblaðið/RAX
Móttökuherbergi forseta Alþingis Þegar Háskóli Íslands var í Alþingishúsinu var þetta herbergi húsvarðar
skólans. Herbergið prýða falleg listaverk, meðal annars málverk eftir Júlíönu Sveinsdóttur og Jóhannes Kjarval.
Fullveldishátíð verður sett
klukkan 13 í dag framan við
Stjórnarráðshúsið við Lækjar-
götu. Katrín Jakobsdóttir for-
sætisráðherra setur hátíðina og
verða haldin stutt ávörp í bland
við tónlistarflutning. Á meðal
gesta verða Guðni Th. Jó-
hannesson, forseti Íslands,
Margrét II. Danadrottning og
Lars Løkke Rasmussen, for-
sætisráðherra Danmerkur.
Ungmennaráð Heimsmark-
miða Sameinuðu þjóðanna tek-
ur þátt í athöfninni og munu
þau Kristbjörg Mekkín Helga-
dóttir og Mathias Bragi Ölvis-
son flytja ávörp og eins Jelena
Ciric tónlistarkona.
Söngfólk ásamt blásarasveit
annast tónlistarflutning. Tón-
listarstjóri er Samúel Jón Sam-
úelsson. Kórarnir sem fram
koma eru Hinsegin kórinn,
Skólakór Kársness, Kvennakór-
inn Katla, Múltíkúltíkórinn,
Söngfélagið, Karlakór Kjalnes-
inga, Ekkó kórinn og Léttsveitin,
ásamt tveimur söngvurum sem
syngja á íslensku táknmáli.
Sýnt verður beint frá athöfn-
inni í Ríkissjónvarpinu.
Ávörp og
tónlist
FULLVELDISHÁTÍÐ Í DAG