Morgunblaðið - 01.12.2018, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. DESEMBER 2018
Íminnisblaði frá 2009 kemur framað í október 2008 „kom í ljós að
bygging, sem var að rísa við Höfða-
torg í Reykjavík var farin að skyggja
á innsiglingavitann á Sjómannaskól-
anum og byggingin staðsett í stefnu-
línum vitans fyrir aðsiglingu að
Gömlu höfninni“.
Það kom sem sagt í ljós eftir þvísem byggingin kom í ljós að vit-
inn hvarf sýnum. Það eru út af fyrir
sig athyglisverð mistök.
Þetta er ástæða þess að í bókunsjálfstæðismanna á fundi
borgarráðs í fyrradag segir: „Vegna
mistaka í skipulagi borgarinnar var
nauðsynlegt að setja upp nýtt sigl-
ingaljós. Upphaflega var borgarráði
kynnt að Reykjavíkurborg þyrfti að
greiða 75 milljónir. Nú er gert ráð
fyrir að kostnaður borgarinnar verði
150 milljónir, en auk þess greiða
Faxaflóahafnir a.m.k. 25 milljónir.
Samtals 175 milljónir hið minnsta.“
Þá er bent á að verkinu sé langtþví frá að vera lokið en hafi átt
að ljúka í júní sl. Nú stefnir í að það
tefjist í um ár.
Hvort 175 milljónir króna er loka-tala veit svo enginn ef marka
má aðrar nýlegar framkvæmdir hjá
borginni.
Borgarfulltrúar meirihlutansreyna að gera lítið úr þessari
framúrkeyrslu, líkt og þeir gerðu
þegar braggamálið kom fyrst upp.
Ítrekuð mistök og framúrkeyrslur er
hins vegar ekki alltaf hægt að af-
greiða sem smámál.
STAKSTEINAR
Öllum að óvörum
hvarf vitinn sýnum
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
„Veitingastaðurinn er hátt í 600 fer-
metrar að stærð og rúmar um 250
manns í sæti, en við erum með hann
innréttaðan þannig að um 200
manns geta setið þar við borð,“ segir
Rosita YuFan Zhang, eigandi
Sjanghæ-veitingastaða, og vísar í
máli sínu til þess að verið sé að
undirbúa opnun nýs veitingastaðar,
þess þriðja sem gengur undir heit-
inu Sjanghæ, og verður hann til húsa
við Reykjavíkurveg í Hafnarfirði.
Fyrir eru staðir á Akureyri og við
Laugaveg í miðbæ Reykjavíkur.
Þegar Morgunblaðið náði af henni
tali var Rosita nýkomin frá Kína þar
sem hún var meðal annars að leita að
nýju starfsfólki, einkum kokkum, til
þess að vinna á nýjum veitinga-
stöðum Sjanghæ. Reiknar hún með
að reka alls fimm staði undir lok
næsta árs. Fjórði veitingastaðurinn
verður staðsettur skammt frá Al-
þingi, við hliðina á Hótel Borg, og sá
fimmti í Reykjanesbæ.
„Ég tel það mjög mikilvægt að
opna stað skammt frá Alþingi, í
póstnúmeri 101. Hann verður um
500 fermetrar og var sushi-staður
þarna áður. Ég hef bara ekki getað
opnað enn því mig sárvantar kokka,“
segir hún og hlær við. Segist Rosita
hafa verið í góðu samstarfi við Út-
lendingastofnun undanfarið til að fá
fleiri þjálfaða matreiðslumenn frá
Kína til starfa á veitingastöðunum.
Mikill áhugi á Íslandi í Asíu
Aðspurð segir hún mikinn áhuga
vera á Íslandi meðal ferðafólks frá
Asíu og hefur það meðal annars vak-
ið áhuga hennar á auknum rekstri.
„Þetta er stór hópur frá Kína, Mal-
asíu, Singapúr og víðar sem kemur.“
Stefnir á að reka
fimm veitingastaði
Fór til Kína í leit að nýjum kokkum
Morgunblaðið/RAX
Veitingaveldi Rosita YuFan Zhang,
eigandi Sjanghæ-veitingastaða.
Stjórnvöld gera ekki nóg til að leysa
húsnæðisvandann á Íslandi, segir
miðstjórn ASÍ í ályktun sem hún
sendi frá sér í gær. Húsnæðisvandinn
er orðinn sjálfstætt vandamál og
bagalegt ástandið þar skrifast meðal
annars á aðgerðalaus stjórnvöld og
sveitarstjórnir, segir jafnframt í
ályktuninni.
Meðal skrefa í átt að réttlátum hús-
næðismarkaði nefnir ályktunin fyrst
og fremst breytingu á skattkerfinu.
Þar þurfi breytta forgangsröð: „Það
er kominn tími til að hagsmunir lág-
og millitekjufólks verði hafðir að
leiðarljósi með breytingum á skatt-
kerfinu og hækkun á barna- og vaxta-
bótakerfinu.“ Í ályktuninni er bent á
að fjöldi fólks sé fastur í viðjum ok-
urleigu og húsnæðisóöryggis, geti
ekki keypt og margir búi einfaldlega
við óviðunandi aðstæður.
Gagnrýnir aðgerða-
leysi stjórnvalda
Morgunblaðið/Hari
ASÍ Samtökin segja stjórnvöld ekki gera nóg til að leysa húsnæðisvandann.