Morgunblaðið - 01.12.2018, Blaðsíða 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. DESEMBER 2018
Allt um sjávarútveg
Borgarráðsfull-
trúar meirihlut-
ans felldu á síð-
asta fundi tillögu
Kolbrúnar Bald-
ursdóttur,
áheyrnarfulltrúa
Flokks fólksins,
um að borgar-
stjóri hætti að
ferðast um með
einkabílstjóra.
Borgarráðsfulltrúar Samfylking-
ar, Viðreisnar, Pírata og Vinstri
grænna bókuðu að það væri afar
mikilvægt að sú manneskja sem
gegnir embætti borgarstjóra á
hverjum tíma gæti komist hratt og
örugglega milli staða enda gæti dag-
skrá borgarstjóra á hverjum tíma
verið þétt. „Að auki er það mikilvægt
fyrir borgarstjóra að hann geti virt
þær skuldbindingar sem embættið
hefur tekist á hendur. Þá hefur
borgarstjóri haft bílstjóra um ára-
tugaskeið, allt frá þeim tíma þegar
íbúafjöldi taldi nokkra tugi þúsunda
og borgin var mun minni um sig.
Eins og ítrekað hefur komið fram
sinnir bílstjóri borgarstjóra einnig
öðrum skyldum.“
Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins
bókaði að hann leitaði logandi ljósi að
fé sem hann teldi að varið væri í
óþarfa. Með þessu mætti bæta hag
eldri borgara, öryrkja og barnafjöl-
skyldna. „Margt smátt gerir eitt
stórt.“ sisi@mbl.is
Borgarstjóri með
bílstjóra áfram
Tillaga Flokks fólksins var felld
Dagur B.
Eggertsson
Úrslit í samkeppni um hönnun við-
byggingar við Stjórnarráðshúsið og
skipulag á Stjórnarráðsreit liggja
fyrir. Úrslit verða tilkynnt og verð-
laun afhent í Safnahúsinu við
Hverfisgötu mánudaginn 3. desem-
ber, að því er fram kemur í frétt á
heimasíðu Framkvæmdasýslu ríkis-
ins.
Alls bárust þrjátíu tillögur um
hönnun viðbyggingar við Stjórnar-
ráðshúsið og átta tillögur í hug-
myndasamkeppni um skipulag
Stjórnarráðsreits.
Framkvæmdasýslan hefur haft
umsjón með verkefninu fyrir hönd
forsætisráðuneytisins. Samkeppnin
um bæði verkefnin er unnin í sam-
vinnu við Arkitektafélag Íslands en
hugmyndasamkeppnin um skipulag
Stjórnarráðsreits er einnig unnin í
samvinnu við Félag íslenskra lands-
lagsarkitekta.
Í október 2016 samþykkti Alþingi
ályktun um það meðal annars að
fela ríkisstjórninni að efna til sam-
keppna um þessi tvö verkefni.
Þingsályktunin var samþykkt í til-
efni aldarafmælis sjálfstæðis og
fullveldis Íslands. sisi@mbl.is
Úrslit í Stjórnarráðssam-
keppni kynnt eftir helgi
Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is
Vinsælu náttfötin
komin!
Verð 8.980 - 100% bómull
Öllum gjöfum er pakkað
í fallegar gjafaöskjur
gisting.dk
499 20 40 (Íslenskur sími) 32 55 20 44 (Danskur sími)
Herbergi frá Dkk 300 Íbúðir frá Dkk 900
Kaupmannahöfn
Skoðið LAXDAL.is/yfirhafnir
Skipholti 29b • S. 551 4422
MAX & MOI
fágaðar og flottar
úlpukápur
Fullveldishatia
Hreyfing
sjalfstil!clissinna
i Evr6pumalum
fiilag ungs folks gegn ESB acJlld
�* * �t� Nfil_V�D ESB*'
í tilefni af 100 ára afmæli
fullveldis Íslands
1. desember að Ármúla 4-6,
í kaffihúsi Orange, kl. 20:00-22:00
Hátíðarræða: Bjarni Harðarson
Heiðursgestur: Eirik Faret Sakariassen
Tónlist og léttar veitingar
Allir velkomnir
Heimssýn
Hreyfing
sjalfstil!clissinna
i Evr6pumalum
fiilag ungs folks gegn ESB acJlld
* * �t� Nfil_V�D ESB*'
Verð 8.900.-
Str. S-XXL
2 litir
Opið í dag frá 11-16
Bæjarlind 6 | sími 554 7030
Við erum á facebook
Blússa
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Þrátt fyrir að Evrópusambandið,
Noregur og Færeyjar hafi minnkað
sameiginlegan heildarkvóta í mak-
rílveiðum um
20% er kvótinn
meira en tvöfalt
meiri en Alþjóða-
hafrannsókna-
ráðið, ICES, ráð-
leggur. Þá er að
hluta til ótalinn
sá kvóti sem Ís-
land, Grænland
og Rússland
munu væntan-
lega taka sér einhliða í kjölfarið. Ís-
lendingar fengu ekki aðild að samn-
ingum strandríkjahópsins svo-
kallaða þrátt fyrir að hafa óskað
eindregið eftir því.
„Það eru vonbrigði að samnings-
aðilar vildu ekki taka upp raunveru-
legar viðræður við Ísland um skipt-
ingu veiðiheimilda sem hefðu getað
orðið til þess að við yrðum aðilar að
strandríkjasamningi um stjórnun
makrílveiðanna,“ segir Kristján Þór
Júlíusson sjávarútvegsráðherra.
Samningar ESB, Noregs og Fær-
eyja voru að renna út og því lagði
Ísland mikla áherslu á að reyna að
komast að samningaborðinu og taka
þátt í samningum sem ábyrgt
strandríki, eins og Stefán Ásmunds-
son, skrifstofustjóri í atvinnuvega-
ráðuneytinu og einn af samninga-
mönnum Íslands, tekur til orða.
Þótt samningamönnum Íslands
væri ekki hleypt að borðinu komu
þeir sjónarmiðum sínum rækilega á
framfæri.
Framlengdu samning sinn
ICES ráðlagði að heildarveiðar
úr markrílstofninum færu ekki yfir
318 þúsund tonn. Það er 40%
minnkun frá ráðgjöfinni á síðasta
ári en veiðarnar hafa á undanförn-
um árum verið langt yfir ráðgjöf.
Gagnrýni hefur verið uppi í Noregi
á gæði gagna sem stofnmat ICES
grundvallast á og hefur verið fallist
á að fara yfir gögnin í vetur. Ekki
er vitað hvort og hversu mikil áhrif
það hefur á ráðgjöfina.
Stjórnvöld í Noregi, ESB og
Færeyjum tilkynntu í fyrradag að
náðst hefði samkomulag þeirra um
stjórnun makrílveiða út árið 2020.
Jafnframt var samið um að heild-
arkvótinn á næsta ári yrði 653.438
tonn sem er 20% minni kvóti en rík-
in skiptu með sér í ár. Heildarkvót-
inn sem þessir þrír samningsaðilar
miða við er meira en tvöfalt meiri
en felst í ráðgjöf ICES.
Ríkin taka frá 15,6% heildarkvót-
ans fyrir ríki sem utan hans standa,
það er að segja Ísland, Grænland
og Rússland. Allir aðilar hafa gert
sér grein fyrir því að þetta er allt of
lág prósenta enda hefur Ísland eitt
tekið sér 16,5% heildarkvótans und-
anfarin ár. Stefnir því í að veiðar
verði langt umfram ráðgjöf ICES,
eins og raunar hefur verið á und-
anförnum árum. Íslendingar hafa
lagt á það áherslu að fylgt verði
ráðgjöf vísindamanna við ákvörðun
heildarafla.
Kristján Þór Júlíusson segir að
þessi þróun mála sé mikil vonbrigði
og áhyggjuefni þegar ríkin við
Norðaustur-Atlantshaf segist vera í
forystu í stjórnun veiða á grunni
vísindalegrar ráðgjafar. „Það eru
vonbrigði að ríkin skuli ganga fram
með þessum hætti,“ segir Kristján
Þór.
Hann segir að áfram verði lögð
áhersla á að Ísland fái aðild að þess-
um samningum. Það verði þó ekki
gert nema Íslendingar fái ásætt-
anlega hlutdeild í makrílstofninum.
„Við höfum tekið frumkvæðið í
þessum málum og reynt að þoka
áfram samningum strandríkja um
norsk-íslenska síld og kolmunna,
auk makríls, og munum haldi því
áfram þótt öllum sé ljóst að þessi
samningur þeirra mun ekki gera
það starf auðveldara. „Það er í raun
óskiljanlegt að þeir skuli ekki vilja
ná samstöðu meðal allra strandríkj-
anna um þennan stofn sem á undir
högg að sækja,“ segir sjávarútvegs-
ráðherra.
Kvótinn yrði 108 þúsund tonn
Spurður um kvóta Íslendinga
segist Kristján Þór reikna með því
að unnið verði að þeim málum á
svipaðan hátt og undanfarin ár en
tekur fram að engar ákvarðanir hafi
verið teknar. Íslendingar hafa í
sömu stöðu undanfarin ár tekið sér
einhliða kvóta sem svarar til 16,5%
af heildarkvóta sem svokallaður
strandríkjahópur gefur út. Það yrði
á næsta ári 108 þúsund tonn í stað
135 þúsund tonna í ár. Það er sam-
dráttur upp á 27 þúsund tonn.
Makrílkvóti tvöfalt
meiri en ráðgjöf
Ekki aðild að makrílsamningum strandríkjahópsins
Kristján Þór
Júlíusson
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Makríll Afli um borð í Vigra.