Morgunblaðið - 01.12.2018, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 01.12.2018, Qupperneq 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. DESEMBER 2018 Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Upplýst var á fundi borgarráðs í fyrradag að kostnaður af fram- kvæmdum við nýja innsiglingarvit- ann við Sæbraut myndi fara allt að 100% fram úr áætlun. Jafnframt kom fram að verkið hefði tafist um- talsvert. Nýi vitinn kemur í stað vita í turni Sjómannaskólans. Vigdís Hauksdóttir, áheyrnar- fulltrúi Miðflokksins í borgarráði, lagði fram átta spurningar varðandi siglingavitann á fundi 4. október sl. og svörin voru birt í fyrradag. Í svari umhverfis- og skipulags- sviðs borgarinnar kemur fram að nú sé áætlað að kostnaður Reykja- víkurborgar vegna vitans verði 150 milljónir króna en áður hafi verið kynnt í borgarráði (25.1. 2018) að kostnaður borgarinnar yrði 75 millj- ónir króna. Faxaflóahafnir sf. greiða svo 25 milljónir vegna land- fyllingar og grjótvarna auk þess að greiða fyrir smíði vitahúss, ljósbún- að o.fl. Heildarkostnaður við verkið stefnir því í að verða 175 milljónir króna. Umfang verksins meira Hækkunin er tilkomin vegna hærra tilboðs en áætlanir gerðu ráð fyrir auk þess sem umfang við land- fyllingu, grjótvarnir og gerð hjá- leiða var meira en áætlað var. Í samkomulagi Reykjavíkur- borgar og Faxaflóahafna var tiltek- ið að borgin myndi greiða fyrir framkvæmdir við undirstöður vit- ans, lagnavinnu, uppsteypu og frá- gang á útsýnispalli, lýsingu, að- lögun að núverandi stigakerfi o.fl. Þá greiðir borgin fyrir þann hluta framkvæmda við landfyllingu og grjótvörn, sem er umfram 25 millj- óna hlut Faxaflóahafna. Fastlega er gert ráð fyrir að útsýnispallurinn við nýja vitann verði vinsæll við- komustaður ferðamanna, líkt og Sólfarið. Vitinn er staðsettur við Sæbraut, nálægt Höfða. Upphaflega var gert ráð fyrir að framkvæmdum yrði lokið í júní sl. Þær hafa hins vegar gengið hægar en menn ætluðu. Landgerð og grjótröðun tók lengri tíma en áætl- að var og nokkur töf varð á því að gengið yrði til samninga að undan- gengnu útboði. Tvö tilboð bárust í verkið og voru þau opnuð 30. maí sl. Lægstbjóð- andi uppfyllti ekki kröfur útboðs- gagna og var samið við fyrirtækið Spöng ehf. sem átti næst lægsta boðið. Það tilboð var 14,5% yfir kostnaðaráætlun og hljóðaði upp á 88,8 milljónir króna. Nú er stefnt að því að vitinn og handrið verði sett upp um miðjan desember n.k. en fullnaðarfrágang- ur bíður næsta vors. Starfsmenn Faxaflóahafna smíðuðu vitann og hann er tilbúinn til uppsetningar í bækistöð Faxaflóahafna í Örfirisey. Fyrir borgarráð voru einnig lögð svör fjármálaskrifstofu borgar- innar. Skrifstofan hefur tekið sam- an reikninga sem skráðir eru í bók- haldi Reykjavíkurborgar á verkefnið „Viti við Sæbraut“. Skrif- stofan staðfestir að 13. nóvember sl. höfðu verið gjaldfærðar 96 milljónir vegna verkefnisins. Afrit af reikn- ingunum eru birt með svarinu en upplýsingar sem snerta einstak- linga hafa verið afmáðar. Nýi vitinn 100% framúr áætlun  Það stefnir í að kostnaður Reykjavíkurborgar við nýjan siglingavita við Sæbraut verði 150 milljónir  Verkið hefur tafist umtalsvert  Nú er stefnt að því að setja vitann upp um miðjan næsta mánuð Tölvumynd/Yrki arkitektar Nýr innsiglingarviti Nýi vitinn og útsýnispallurinn eru við Sæbraut, rétt austan við hið sögufræga hús Höfða. Enn og aftur er verkefni að fara fram úr áætlun. Í þessu tilfelli um 100%. Þetta sögðu borgarráðsfulltrúar Sjálfstæð- isflokksins í bókun á fundi borgarráðs. „Vegna mistaka í skipulagi borgarinnar var nauðsynlegt að setja upp nýtt siglingaljós. Upphaflega var borgarráði kynnt að Reykjavíkurborg þyrfti að greiða 75 milljónir. Nú er gert ráð fyrir að kostnaður borgarinnar verði 150 milljónir, en auk þess greiða Faxaflóa- hafnir a.m.k. 25 milljónir. Sam- tals 175 milljónir hið minnsta. Verkinu er langt í frá lokið en því átti að vera lokið í júní 2018.“ Borgarráðsfulltrúar Samfylk- ingar, Viðreisnar og Vinstri grænna bókuðu eftirfarandi: „Kostnaðaráætlun 1 sem lögð er fram í fjárfestingar- áætlun fyrir árið 2018 hljóðaði upp á 100 m.kr. Kostnaðar- áætlun 1 ber að jafnaði með sér -25% til +35% skekkju- mörk. Í ágústmánuði sl. var lögð fram kostnaðaráætlun 2 upp á 150 m.kr. með skekkju- mörkin +/- 10%.“ Enn og aftur farið fram úr SJÁLFSTÆÐISMENN Jólamarkaður Norræna hússins 2. desember kl. 12–17 Sæmundargötu 11, 101 Reykjavík, Sími 551 7030, www.nordichouse.is Gefðu umhverfisvæna jólagjöf sem eykur ímyndunarafl þess sem þiggur! Hönnuðir, listamenn og umhverfisvænar netverslanir koma saman í Norræna húsinu og bjóða upp á umhverfisvænar vörur fyrir jólin og í jólapakkann. Vertu velkomin í huggulega og sjálfbæra stemningu í Norræna húsinu. Jólaglögg, tónlist, fróðleikur og innblástur. NÁNARI DAGSKRÁ Á NORRAENAHUSID.IS

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.