Morgunblaðið - 01.12.2018, Page 24
24 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. DESEMBER 2018
MOZART REQUIEM
Í LANGHOLTSKIRKJU
ÓPERUKÓRINN Í REYKJAVÍK
ÁSAMT SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT
OG EINSÖNGVURUM
STJÓRNANDI: GARÐAR CORTES
Miðasala: midi.is / sími 552 7366 / í Langholtskirkju 1 klst. fyrir tónleikana
TÓNLEIKARNIR ERU HELGAÐIR MINNINGU MOZARTS OG
ÍSLENSKRA TÓNLISTARMANNA SEM LÉTUST Á ÁRINU SEM ER AÐ LÍÐA:
Kristinn Daníelsson / Júlíus Sigurðsson / Þorsteinn Kragh
Ingibjörg Ólafsdóttir / Björgúlfur Egilsson / Sveinn Rúnar Björnsson
Guðmundur Haraldsson / Esther Garðarsdóttir / Gauja Guðrún Magnúsdóttir
Tómas Magnús Tómasson / Þórir Magnússon / Jóhann Jóhannsson
Heimir Klemenzson / Björn Stefán Guðmundsson / Már Magnússon
Grétar Magnús Grétarsson / Bjarni Marteinsson / Sigríður Einarsdóttir
Bjarni Sigurðsson / Birgir Einarsson / Helga Guðrún Helgadóttir
Njáll Þórðarson / Sigríður Þórunn Fransdóttir / Ragnar Ásgeir Óskarsson
Hafliði Jósteinsson / Engilráð Óskarsdóttir / Jón Sigurðsson
Arnfinnur Friðriksson / Louise Kristín Theodórsdóttir
Jóhanna Guðrún Gunnarsdóttir / Brynjólfur Sigurður Árnason
Árni Ísleifsson / Guðmundur H. Norðdahl / Brynja Tryggvadóttir
Hallveig
Rúnarsdóttir
Viðar
Gunnarsson
Garðar Thór
Cortes
Sesselja
Kristjánsdóttir
Garðar
Cortes
Þriðjudaginn 4. des. 2018 kl. 00.30
– húsið er opið frá 23.50 –
Tveggja daga leiðtogafundur G20-
ríkjanna hófst í Argentínu í gær í
skugga spennu í samskiptum Rússa
og Úkraínumanna, viðskiptastríðs
Bandaríkjanna og Kína og deilna
um loftslagsmál. Athyglin beindist
einnig að Mohammed bin Salman,
krónprins Sádi-Arabíu, sem situr
fundinn eftir að hafa verið sakaður
um að hafa fyrirskipað morð á sádi-
arabíska blaðamanninum Jamal
Khashoggi í ræðisskrifstofu lands-
ins í Istanbúl 2. október.
Fundinn sitja leiðtogar G20-
ríkjanna: Argentínu, Ástralíu,
Bandaríkjanna, Brasilíu, Bretlands,
Frakklands, Indlands, Indónesíu,
Ítalíu, Japans, Kanada, Kína,
Mexíkó, Rússlands, Sádi-Arabíu,
Suður-Afríku, Suður-Kóreu, Tyrk-
lands og Þýskalands, auk fulltrúa
Evrópusambandsins.
Forseti Argentínu, Mauricio
Macri, setti fundinn í Buenos Aires.
Skömmu áður hafði Vladimír Pútín
Rússlandsforseti sett tóninn með
því að gagnrýna Donald Trump
Bandaríkjaforseta án þess að nefna
hann á nafn og fordæma „ólöglegar
einhliða refsiaðgerðir“ og „aðgerðir
verndartollasinna, sem ganga í ber-
högg við stofnsáttmála Sameinuðu
þjóðanna, reglur Alþjóðaviðskipta-
stofnunarinnar og alþjóðlega viður-
kenndar viðskiptavenjur“. Trump
hafði skýrt frá því að hann hefði
hætt við að eiga sérstakan fund
með Pútín í tengslum við leiðtoga-
fundinn í Buenos Aires til að mót-
mæla því að Rússar hertóku tvö
úkraínsk varðskip og dráttarbát á
sunnudaginn var.
Pútín og Mohammed bin Salman
heilsuðust hlæjandi með því að slá
saman höndum eins og perluvinir
sem hittast eftir langan aðskilnað,
að sögn AFP. Fréttaveitan segir að
forsetinn og sádiarabíski krón-
prinsinn hafi áður samið um að
beita sér fyrir því að OPEC, sam-
tök olíuútflutningsríkja, nái sam-
komulagi um að minnka olíu-
framleiðsluna á fundi í Vín 6.
desember til að stuðla að hærra
olíuverði.
Mohammed bin Salman sást
einnig spjalla við Donald Trump og
heilsa Emmanuel Macron Frakk-
landsforseta, sem kvaðst hafa rætt
við krónprinsinn um morðið á
Khashoggi og hernað Sáda í Jemen
þar sem hungursneyð vofir yfir
milljónum manna. Theresa May,
forsætisráðherra Bretlands, kvaðst
einnig ætla að ræða þessi mál við
krónprinsinn.
Gert er ráð fyrir því að Donald
Trump ræði í dag við Xi Jinping,
forseta Kína, um viðskiptadeilur
tveggja mestu efnahagsvelda
heims. Áður en G20-fundurinn
hófst í gær undirrituðu Trump og
leiðtogar Mexíkó og Kanada nýjan
viðskiptasamning Norður-Ameríku-
ríkjanna, USMCA.
Viðskiptastríð Bandaríkjanna og Kína, erjur Rússa og Úkraínumanna og loftslagsmál á meðal umræðuefna á leiðtogafundi
Deilur setja
mark sitt á
G20-fund
AFP
Leiðtogafundur Vladimír Pútín Rússlandsforseti, Donald Trump Bandaríkjaforseti, Paul Kagame, forseti Rúanda (sem var boðið á fundinn sem formanni
Afríkusambandsins), Michel Temer, forseti Brasilíu, og Mohammed bin Salman, krónprins Sádi-Arabíu, á fundinum í Buenos Aires í Argentínu í gær.
Stjórnvöld í Úkraínu tilkynntu í gær
að rússneskum karlmönnum á aldr-
inum 16 til 60 ára yrði ekki hleypt
inn í landið. Gerðar yrðu þó undan-
tekningar á banninu „af mannúðar-
ástæðum“, til að mynda vegna
jarðarfara.
Áður hafði þing Úkraínu sam-
þykkt herlög í landinu eftir að Rúss-
ar hertóku tvö úkraínsk varðskip og
dráttarbát og handtóku 24 skipverja
í Kertsjsundi á sunnudaginn var.
Sundið er á milli Rússlands og Krím-
skaga, sem var innlimaður í landið
árið 2014, og skip þurfa að fara um
það til að komast til úkraínskra
borga við Azovshaf. Úkraínumenn
saka Rússa um að hafa brotið al-
þjóðalög með hertöku skipanna en
Rússar segja að þau hafi siglt í óleyfi
inn í landhelgi Rússlands með úkra-
ínska leyniþjónustumenn.
Petró Pórósénkó, forseti Úkraínu,
hefur sagt að Rússar séu að undir-
búa innrás í landið, meðal annars
með því að fjölga hermönnum og
skriðdrekum í herstöðvum í grennd
við landamæri ríkjanna. Hann segir
að markmiðið með banninu við komu
rússneskra karlmanna til Úkraínu sé
að hindra að Rússar myndi „einka-
hersveitir“ í landinu. Hann skírskot-
aði til þess að aðskilnaðarsinnar í
austurhéruðum Úkraínu mynduðu
hersveitir með aðstoð Rússa til að
gera uppreisn sem hófst árið 2014 og
hefur kostað rúmlega 10.000 manns
lífið.
Herlögin gilda í 30 daga í tíu hér-
uðum Úkraínu. Þar af eru fimm við
landamærin að Rússlandi og tvö við
Trans-Dnéstríu, uppreisnarhérað í
Moldóvu þar sem rússneskir her-
menn eru með bækistöðvar.
AFP
Heræfing Úkraínskur hermaður á æfingu í grennd við borgina Maríupol í
austanverðri Úkraínu, nálægt yfirráðasvæði uppreisnarmanna.
Banna komu
rússneskra karla
Stjórnvöld í Úkraínu óttast innrás