Morgunblaðið - 01.12.2018, Qupperneq 35

Morgunblaðið - 01.12.2018, Qupperneq 35
MINNINGAR 35 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. DESEMBER 2018 ✝ SigríðurNúmadóttir fæddist í Reykjavík 30. janúar 1948. Hún lést á Land- spítalanum 23. nóv- ember 2018. Sigríð- ur var dóttir hjónanna Núma Þorbergssonar og Mörtu Maríu Þor- bjarnardóttur. Sigríður hóf bú- skap í Miðgarði í Stafholt- stungum 1968 með sambýlis- manni sínum Erni Einarssyni, f. 31.12. 1947, d. 20.10. 2005. Börn þeirra eru 1) Guðrún, maki Sig- urður Kr. Sigurðsson, dóttir hennar er Sara Böðvarsdóttir 2) Þórdís, maki Sigurþór Krist- jánsson, dóttir þeirra er Sif 3) Einar Örn, maki Dagmar M. Harðardóttir, börn þeirra eru Örn, Rikka Emilía og Hörður 4) Sigríður, maki Dav- íð Sigurðsson, synir þeirra eru Kristó- fer Daði, Sigurður Örn og Skarphéð- inn Karl. Sigríður var nemandi í hús- mæðraskólanum í Varmalandi vet- urinn 1966-67. Starfsmaður Varmalandsskóla, nú Grunnskóla Borgarfjarðar Varmalandsdeild sem skólaliði, en lengst af sem starfsmaður í mötuneyti Hún lagði stund á hrossa- og sauðfjárrækt ásamt fjölskyldu sinni. Ung lagði hún stund á kappreiðar, var mikil áhugakona um útreiðar og þjálf- un hrossa. Útför hennar fer fram frá Reykholtskirkju í dag, 1. desem- ber 2018, klukkan 12. Hún mamma mín var einstök kona. Dugnaðarforkur sem vildi allt fyrir börnin sín, svo ekki sé talað um barnabörnin gera. Við mamma vorum alltaf miklar vinkonur og gerðum margt saman. Við hlógum, sögðum sögur og stundum kýttum við örlítið, en ég var svo heppin að fá þann hæfileika frá mömmu að geta aldrei verið í fýlu lengi, ef við fórum í fýlu hvor út í aðra þá stoppaði það yfirleitt það stutt að fýlan var búin áður en við náðum að fara hvor í sitt húsið. Hún mamma vildi allt fyrir drengina mína og barnabörnin sín gera. Alltaf var ömmufang og ömmuhús opið, í skápum sínum geymdi hún góðgæti sem var í uppáhaldi hjá hverjum og einum hverju sinni. Barnabörnin áttu að fá það besta og það sem þau langaði í. Drengirnir mínir þrír voru og eru allir miklir ömmuprinsar eins og hún kallaði þá, ég veit að þeir sakna hennar mjög mikið en þeir munu hjálpa hver öðrum að minnast hennar og halda í allar góðu minning- arnar. Mamma var mikill partígrís, þótti gaman að fara með okkur á skemmtanir og í gleðskap. Þá var hún í miklu stuði og passaði upp á að fjölskyldan skemmti sér vel. Oft á skemmtunum kom hún allt í einu til manns, sló í mann með olnboganum, nikkaði til manns og sagði: „Hva, það er bara skemmtileg- ast hjá okkur,“ hló svo dátt. Þannig var mamma, markmiðið var alltaf að hafa gaman. Hún vildi alltaf allt fyrir mig gera og reyndist mér mjög vel. Alltaf tilbúin til að aðstoða og hjálpa með þau verkefni sem framundan voru, þá skipti engu máli hvort ég var 4 ára eða 34 ára. Þegar ég byrjaði í fæðingarorlofi í vor grínuðumst við mamma oft með það við værum báðar í fæðingarorlofi og þess vegna værum við svona mikið saman. Þannig gat hún verið með mér í öllu sem varð- aði yngsta drenginn minn, hún var með í fyrstu heimsókn ljós- móður, með í fyrsta baðinu og þegar fyrsti grauturinn var smakkaður og mörgu öðru. Ég er mjög þakklát í dag fyrir að hafa fengið þennan tíma með henni og hugsa í dag oft til stundanna okkar saman í fæðingarorlofinu okkar. Elsku mamma, þakka þér fyrir allt. Þín Sigríður. Elsku Sigga. Sorgina er ekki hægt að tjá með orðum. Ástríki, umhyggja og fórnfýsi voru þér í blóð bor- in. Það er svo margt sem kem- ur upp í hugann þegar ég hugsa til þín. Þú varst alltaf tilbúin að koma og aðstoða ef okkur vantaði aðstoð. Ég man góðu stundirnar sem við áttum þegar þú komst til okkar til Danmerkur. Þegar þú komst til að vera hjá okkur þegar Rikka Emilía var að fæð- ast. Þú varst svo yndisleg að taka þér frí frá vinnu til að koma og aðstoða okkur. Við biðum eftir henni í tvær vikur, en við áttum svo góðar stundir saman. Ég man daginn sem hún fæddist, þá vöktum við þig um miðja nótt og þú lædd- ist inn í svefnherbergi til Arnar og kúrðir hjá honum. Þegar Einar kom heim um morguninn þá lást þú hálf inni í skiptiborð- inu vegna þess að þú vildir ekki vekja Örn. Ég man hvað við hlógum mikið að þessu. Þú varst mér alltaf svo góð þegar ég missti móður mína og mér fannst þú vera svo miklu meira en tengdamóðir. Fyrir það verð ég þér ævinlega þakk- lát. Amma er orð sem vekur allt- af mikla lukku heima hjá mér. Þú ert og verður alltaf heims- ins besta amma. Þú gerðir allt fyrir barna- börnin þín og þau munu alltaf minnast ástúðar og umhyggju þinnar. Þeim fannst alltaf svo gott að vera hjá ömmu og þeim fannst skrýtið ef við fórum ekki á föstudögum í sveitina til að gista hjá þér. Ég er svo þakklát fyrir að þau skyldu eiga þig sem ömmu. Takk fyrir allar stundirnar sem við höfum átt saman, miss- ir okkar allra er mikill. Ég kveð þig, elsku Sigga, með þessum línum Með ástarþökk ertu kvödd í hinsta sinni hér og hlýhug allra vannstu er fengu að kynnast þér. Þín blessuð minning vakir og býr í vinahjörtum á brautir okkar stráðir þú, yl og geislum björtum. (Ingibjörg Sigurðardóttir) Dagmar Mýrdal Harðardóttir. Allt hefur sinn tíma. Fimmtíu ára ferðalagi okkar er lokið. Minningar hrannast upp. Minningar um sól, heyskap, baggaburð og já líka sauðburð, smalamennskur, réttir og ein- staka reiðtúra. Alltaf var glatt á hjalla enda húsmóðirin hrókur alls fagnað- ar. Nú er litla húsið í Miðgarði tómt. Kaffibollinn bíður ekki lengur á borðinu eftir bústaða- kerlunni. Húsráðandinn er fluttur. „Sigga í sveitinni“, konan sem staðið hafði af sér storma og él, varð að lúta í lægra haldi fyrir síðasta vágestinum. Með söknuð í hjarta þakka ég fyrir hvað hún var mér, börnunum mínum og barna- börnum. Samúðarkveðjur til allra ætt- ingja og vina. Þorbjörg Einarsdóttir (Obba). Sigríður Númadóttir ✝ RagnheiðurBjörk Guðjóns- dóttir, Ranný, fæddist í Blesugróf í Reykjavík 22. mars 1957. Hún lést 6. nóvember 2018 á líknar- deildinni. Foreldrar henn- ar eru hjónin Guð- jón Jónsson frá Þrándarstöðum á Héraði, rafvirki, f. 1925, og Erna Hafdís Berg Krist- insdóttir frá Reyðarfirði, verkakona, f. 1935, d. 1994. Alsystkini eru Borgar Þór, f. 5. febr. 1953, og Bergþóra Berta, f. 5. september 1955. Hálfbróðir hennar var Geir Viðar Guðjónsson, f. 10. júlí 1948, d. 3. júlí 2015. Ranný lauk fóstrunámi í Malmö, Svíþjóð, og starfaði í fram- haldi á leikskól- anum Grænuborg í Reykjavík. Síðar fékkst hún við hin ýmsu verslunar- störf. Einnig var hún meðstofnandi Art 67, listagallerís á Laugavegi, en málaralistin átti hug hennar allan síðustu árin. Ranný giftist Ómari Örvars- syni stýrimanni. Þau skildu síð- ar. Hinn 1. apríl 1996 eign- uðust þau dótturina Önnu Líf. Fyrir átti Ranný soninn Róbert Jóhannsson, f. 14. nóvember 1975. Útförin fór fram í kyrrþey. Elsku vinkona mín hún Ranný er farin til englanna eins og Nína dóttir mín segir. Það á svo vel við hana því hún var og er engill. Það er skrítið að hugsa til þess að ég þekkti Ranný bara í stuttan tíma en tíminn er afstæður þegar kem- ur að vináttu. Ég kynntist Ranný fyrir fimm árum þegar ég fór heim til hennar með kjól sem hún var að spá í að kaupa af mér. Hún hafði fundið mig á netinu. Þegar hún opnaði fyrir mér dyrnar að heimili sínu í Hlíð- unum og bauð mér inn var eins og ég stigi inn í himnaríki, himnaríki í Hlíðunum. Íbúðin hennar var svo björt, allt hvítt, stílhreint og smekklegt eins og hún. Hún var alltaf svo fín og falleg enda ein best klædda kona sem ég hef hitt. Þetta var vinátta og kær- leikur við fyrstu sýn. Það var eins og við hefðum alltaf þekkst. Við urðum strax miklar vinkonur og treystum hvor annarri fyrir öllu. Við áttum okkar vikulegu vinkonustund eftir þetta. Við töluðum um allt sem skipti okk- ur máli, mest fór þó fyrir sam- eiginlegum áhugamálum okkar, tísku og tilfinningum. Við átt- um margar góðar stundir á Kjarvalsstöðum þar sem við drukkum kaffi, spjölluðum saman og Ranný fékk sér köku- sneið. Stundum fórum við á flóamarkað í leit að einhverju fallegu eða héldum okkur heima hjá henni í himnaríkinu í Hlíðunum. Það hékk alltaf yfir vináttu okkar að Ranný var að berjast við illvígan sjúkdóm. Við rædd- um dauðann og ég spurði hana hvort hún væri hrædd, hún sagði að hún væri alveg viss um að það væri eitthvað meira og annað sem tæki við, þetta gæti ekki verið allt búið eftir þetta líf. Ég vona það svo sannarlega og að við fáum að hittast aftur, drekka kaffi og fara á trúnó um tilfinningar og tísku og allt annað sem skiptir máli. Ég vil votta fjölskyldu og að- standendum hennar samúð mína. Hugur minn er hjá Önnu dóttur hennar. Ranný talaði mikið um Önnu sína og var svo stolt af henni. Ég heyri enn röddina hennar og hláturinn og sé fallegu brúnu augun hennar. Ég á eftir að sakna þín mikið, elsku Ranný. Hvíl í friði, elsku vinkona, takk fyrir allt. Þín alltaf Elma Lísa Gunnarsdóttir. Ragnheiður Björk Guðjónsdóttir Við önnumst alla þætti undirbúnings og fram- kvæmd útfarar ásamt vinnu við dánarbússkiptin. Við þjónum með virðingu og umhyggju að leiðarljósi og af faglegum metnaði. Við erum til staðar þegar þú þarft á okkur að halda Lára Árnadóttir, umsjón útfara Útfararþjónusta & lögfræðiþjónusta Vesturhlíð 2 Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is Með kærleik og virðingu Útfararstofa Kirkjugarðanna Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð, vináttu og hlýju við andlát og útför elskulegrar eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður og ömmu, VALGERÐAR HÖNNU SIGURÐARDÓTTUR, Njarðarvöllum 6, Njarðvík. Sérstakar þakkir til starfsfólks Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja fyrir einstaka umönnun og hlýtt viðmót. Árni Júlíusson Anna Birna Árnadóttir Arnar Ingólfsson Sigurður Einar Árnason Ásborg Guðmundsdóttir Ingvar Örn Árnason Sonya Árnason og barnabörn Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við fráfall ARNAR ÆVARS MARKÚSSONAR lyfjafræðings. Halla Valdimarsdóttir Ragnheiður Elfa Arnardóttir Guðjón Ketilsson Snorri Björn Arnarson Aðalheiður Svanhildardóttir Halla Sigrún Arnardóttir Hannes Birgir Hjálmarsson og fjölskyldur Okkar ástkæra móðir, tendamóðir og amma, VALGERÐUR KRISTÍN GUÐMUNDSDÓTTIR, varð bráðkvödd á heimili sínu 2. nóvember. Útför hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Þökkum auðsýnda samúð og kærleika. Eva Einarsdóttir Eldar Ástþórsson Freyja Ásgeirsdóttir Gauti Ásgeirsson barnabörn og aðrir ástvinir Ástkær pabbi minn, tengdapabbi og afi, BENEDIKT GUNNARSSON, listmálari og fyrrverandi dósent í myndlist við KHÍ, Kastalagerði 13, Kópavogi, lést á líknardeild Landspítalans fimmtudaginn 22. nóvember. Útför hans fer fram frá Háteigskirkju þriðjudaginn 4. desember klukkan 15. Valgerður Benediktsdóttir Grímur Björnsson Gunnar Grímsson Sóley Grímsdóttir Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, PÁLÍNA GUÐMUNDSDÓTTIR kennari, verður jarðsungin frá Hallgrímskirkju miðvikudaginn 5. desember klukkan 13. Sigrún Sigurðardóttir Halldór M. Gunnarsson Anna Svanhildur Sigurðard. Guðrún Rósa Sigurðardóttir Kjartan Sigurðsson Særún Jónasdóttir Haraldur Sigurðsson barnabörn og barnabarnabörn Sonur okkar, ÚLFAR MÁNI FRIÐJÓNSSON, lést fimmtudaginn 15. nóvember á líknardeild Bispebjerg Hospital í Kaupmannahöfn. Fyrir hönd aðstandenda, Friðjón Hilmir Þórarinsson Bippe Mork

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.