Morgunblaðið - 01.12.2018, Síða 42
42 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. DESEMBER 2018
Söfn • Setur • Sýningar
LISTASAFN ÍSLANDS
Þjóð verður til – Menning og samfélag í 1200 ár
grunnsýning Þjóðminjasafnsins
Heiðnar grafir í nýju ljósi
– sýning um fornleifarannsókn á Dysnesi við Eyjafjörð
Alfreð D. Jónsson – Hver er á myndinni? Greiningarsýning í Myndasal
Hjálmar R. Bárðarson – Aldarminning á Vegg
Leitin að klaustrunum í Horni
Safnbúð fjölbreytt úrval gjafavöru
Kaffitár ljúfar veitingar í fallegu umhverfi
Sjónarhorn - Ferðalag um íslenskan myndheim fyrr og nú
grunnsýning Safnahússins
Jónsbók, kirkjulist, skjöl, samtímalist, alþýðulist, plötuumslög,
ljósmyndir, landakort, vaxmynd og margt fleira
Bókverk og Kveisustrengur
úr Landsbókasafni Íslands - Háskólabókasafni
Fræðslurými og skemmtilegt fræðsluefni fyrir alla fjölskylduna
Safnbúð Bækur og gjafavörur í úrvali
Júlía & Julia ljúfar veitingar í fallegu umhverfi
Safnahúsið er hluti af Þjóðminjasafni Íslands
Hverfisgata 15, 101 Reykjavík, s. 530 2210
www.safnahusid.is - https://www.facebook.com/safnahusid/
Opið þriðjud.-sunnud. kl. 10-17
SAFNAHÚSIÐ VIÐ HVERFISGÖTU
ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS
Suðurgata 41, 101 Reykjavík, s. 530 2200,
www.thjodminjasafn.is • www.facebook.com/thjodminjasafn
Opið þriðjud.-sunnud. kl. 10-17
Fullveldisdagurinn 1. desember. Ókeypis aðgangur frá kl. 10–19.
Sunnudagsleiðsögn sýningarstjóra um Véfréttir
– Karl Einarsson Dunganon, 2. desember kl. 14.
VÉFRÉTTIR – KARL EINARSSON DUNGANON
LÍFSBLÓMIÐ - FULLVELDI ÍSLANDS Í 100 ÁR
FJÁRSJÓÐUR ÞJÓÐAR Valin verk úr safneign
BÓKFELL eftir Steinu í Vasulka-stofu
SAFNBÚÐ – Listrænar gjafavörur
Fríkirkjuvegi 7, 101 Reykjavík, sími 515 9600, www.listasafn.is.
Listasafn Íslands er opið alla daga nema mánudaga frá kl. 10-17
LISTASAFN SIGURJÓNS ÓLAFSSONAR
TENGINGAR – SIGURJÓN ÓLAFSSON OG NOKKRIR SAMFERÐAMENN HANS
Opið allar helgar frá kl. 13-17. Laugarnestanga 70, sími 553 2906, www.lso.is
Kaffistofa – heimabakað meðlæti
SAFN ÁSGRÍMS JÓNSSONAR
- HEIMILI LISTAMANNS OG SÝNINGAR
KORRIRÓ OG DILLIDÓ - ÞJÓÐSAGNAMYNDIR ÁSGRÍMS JÓNSSONAR
Opið alla daga nema mánudaga frá kl. 13-17.
Bergstaðastræti 74, sími 515 9625, www.listasafn.is
„Með afmælissöngnum viljum við
vekja athygli á mikilvægi kórsöngs
og bjóða öllum að koma og hlusta án
endurgjalds,“ segir Margrét Bóas-
dóttir, formaður Landssambands
blandaðra kóra (LBK) sem stendur
fyrir tónleikum í Hörpu í dag,
laugardag, milli kl. 13.30 og 17.30.
Tilefni tónleikanna er að í ár fagnar
LBK 80 ára starfsafmæli.
„Á sínum tíma var það mjög fram-
sækið að stofna Landssamband
blandaðra kóra, en þetta er lang-
elsta kórasamband landsins,“ segir
Margrét og rifjar upp að af
stofnkórunum sé Sunnukórinn á Ísa-
firði enn starfandi. Alls koma tólf
aðildarkórar fram á tónleikum dags-
ins, sem er um þriðjungur aðildar-
kóra LBK.
„Kórastarfið hérlendis er mjög
fjölbreytt og mikið af bæði karla- og
kvennakórum sem eðli málsins sam-
kvæmt heyra ekki undir Lands-
samband blandaðra kóra,“ segir
Margrét og bendir á að á þeim 80 ár-
um sem liðin eru frá stofnun sam-
bandsins hafi verið unnið mjög
mikilvægt starf. „Það að Landssam-
bandið sé til styrkir starfið í gras-
rótinni og auðveldar því að dafna.
Landssambandið vinnur bæði fé-
lagsleg og faglegt starf,“ segir Mar-
grét og bendir á að kórsöngur sé lík-
lega fjölmennasta félagsstarf á
landinu. „Kórstarf er mikilvægt
menningarstarf um allt land. Allir
aldurshópar syngja saman í kór,
óháð stétt og stöðu. Þetta er einstakt
í listrænu starfi og auk þess er kór-
söngurinn mikil almannagæði. Fólk
sem syngur í kór á það sameiginlegt
að vera mjög félagslynt,“ segir Mar-
grét og bendir á að ótal rannsóknir
hafi sýnt hversu hollt það sé fyrir
bæði líkama og sál að syngja í kór.
„Kórastarf og kórsamfélag er mjög
sterkt félagslegt atriði. Við vitum að
bæði í gleði og sorg hefur kórinn
stutt sína kórfélaga ómetanlega.“
Að sögn Margrétar er afmælis-
söngurinn í dag liður í alþjóðlegum
degi kórsöngs, World Choral Day
sem alþjóðlegu kórasamtökin IFCM
standa að, en LBK er aðili að bæði
norrænu kórasamtökunum og al-
þjóðlegum kórasamtökunum.
„Landssambandið hefur sinnt al-
þjóðlegu kórasamstarfi. Sem dæmi
má nefna að norræna kóramótið
Nordklang er haldið á þriggja ára
fresti og verður næst haldið 2019.
Þrír íslenskir kórar ætla að taka
þátt í því móti, ekki síst vegna þess
að Landssambandið gat boðið þrjá
ferðastyrki til mótsins,“ segir Mar-
grét og tekur fram að það sé mikil-
vægt að geta með þessu móti kynnt,
hvatt og stutt til samstarfs út fyrir
landsteinana.
Þess má að lokum geta að af-
mælissöngurinn verður í Hörpu-
horni á 2. hæð og mun hver kór
syngja í 15 mínútur, en kórarnir sem
fram koma eru Rokkkór Íslands,
Samkór Reykjavíkur, Kammerkór
Hafnarfjarðar, Kór Kópavogskirkju,
Óperukórinn, Óháði kórinn, Söng-
fjelagið, Sönghópurinn Norðurljós,
Samkór Kópavogs, Góðir grannar og
Flensborgarkórinn. „Við gerum
okkur auðvitað vonir um að Margrét
Danadrottning heyri í nokkrum kór-
um, en hún snæðir hádegismat í
Hörpu,“ segir Margrét að lokum.
„Mikil almannagæði“
Landssamband blandaðra kóra býður til afmælistónleika
í Hörpu í dag kl. 13.30 80 ár frá stofnun sambandsins
Formaður Margrét Bóasdóttir.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Listaskáld Sigurborg hugsar klippimyndir sínar eins og tónverk sem hún skáldar með pappír, formum og litum.
Myndlistarkonan Sigurborg Stef-
ánsdóttir sýnir klippimyndir og bók-
verk í forkirkju Hallgrímskirkju
Valgerður Þ. Jónsdóttir
vjon@mbl.is
Listsýning Sigurborgar Stefáns-
dóttur, Aðrir sálmar, verður opnuð í
forkirkju Hallgrímskirkju á morgun,
sunnudag, við messulok kl. 12.15.
Sýningin er á vegum Listvinafélags
Hallgrímskirkju og sýningarstjóri er
Rósa Gísladóttir.
„Ég hef einu sinni áður sýnt í
kirkju, en það var í Danmörku um
miðjan níunda áratuginn, rétt eftir
að ég útskrifaðist frá teikni- og
grafíkdeild Skolen for Brugskunst -
Danmarks designskole í Kaup-
mannahöfn, þar sem ég hafði einnig
stundað eins árs nám við textíldeild-
ina,“ segir Sigurborg.
Henni finnst forkirkja Hallgríms-
kirkju henta vel fyrir listsýningar,
enda séu þar engir aukahlutir sem
taki athyglina frá verkunum. „Þau
njóta sín í rýminu þar sem er hátt til
lofts, hvítir veggir og dökkar flísar á
gólfi,“ segir hún. Listsýning Sigur-
borgar samanstendur af sextán mis-
stórum klippimyndum og þremur
bókverkum og eru öll verkin unnin
sérstaklega fyrir sýninguna. Þar
sem hún var með málverkasýningu í
Gallerí Gróttu í byrjun árs segir hún
að sig hafi ekki langað til að sýna
málverk svona fljótt aftur heldur
tefla fram annars konar listaverkum.
Í ljósi þess að sýningin er haldin í
kirkju er Sigurborg spurð hvort
klippimyndirnar og bókverkin hafi
trúarlega skírskotun.
Trúartákn og tónverk
„Ég er svolítið með trúartákn í
klippimyndunum, en annars eru þær
aðallega abstrakt á meðan bókverkin
tengjast meira hinu vitræna að því
leyti að í þeim felst meiri merking en
í klippimyndunum. Þær hugsa ég
eins og tónverk, sem ég skálda með
pappír, formum og litum.“
Sigurborg vinnur með alls kyns
efni í klippimyndum sínum. Guja
Dögg Hauksdóttir lýsir í sýningar-
skrá hvernig umhorfs er á vinnu-
stofu listakonunnar: „Á vinnuborði
listamannsins eru staflar af efni; ein-
litur pappír, handgerður pappír úr
efniskenndri kvoðu, stakar síður úr
gömlum heftum, prentaðar blaðsíður
úr aflögðum bókum, mynstraðar
pappírsarkir ... svart blek hefur
fundið sér leið og liggur í tilrauna-
kenndum pollum yfir reglulegar lín-
ur prentaðs texta á gulleitum blað-
síðum, mjúk blýantslína reikar yfir
hlýbláan flöt ... efnið bíður þess að
vera skorið niður á myndflöt eða
brotið saman í bókverk af mikilli alúð
og vandvirkni.“ Sigurborg hefur tek-
ið þátt í ýmsum listnámskeiðum í
Bandaríkjunum og Japan og starfaði
um nokkurra ára skeið sem kennari
við Myndlista- og handíðaskóla Ís-
lands og Listaháskóla Íslands, en
vinnur nú eingöngu að eigin mynd-
list á vinnustofu sinni. Aðrir sálmar
er 17. einkasýning hennar, en auk
þess að sýna hér heima hefur hún
sýnt í Danmörku og Ítalíu og tekið
þátt í fjölda samsýninga. Sýningin
stendur til 3. mars og er opin alla
daga kl. 9 til 17.
Aðrir sálmar í messulok
Kór Neskirkju ásamt hljómsveit og
einsöngvurum flytur óratoríuna
Messías eftir Georg Friedrich
Händel í Neskirkju á morgun,
sunnudag, kl. 17. Einsöngvarar eru
Hallveig Rúnarsdóttir, Hildigunnur
Einarsdóttir, Þorbjörn Rúnarsson
og Fjölnir Ólafsson, en stjórnandi
Steingrímur Þórhallsson.
„Þetta einstaka verk hreyfir við
áheyrendum frá upphafi til enda og
fyrir marga er það fastur liður á að-
ventunni að hlusta á Messías. Meira
en 270 ár eru liðin frá frumflutningi
Messíasar, en verkið stendur enn
óhaggað sem ein af stærstu tákn-
myndum evrópskrar tónlistar og
verkið heldur áfram að tala til millj-
óna áheyrenda um allan heim, á öll-
um menningarsvæðum og af öllum
trúarbrögðum,“ segir í tilkynningu.
Verkið, sem er ástsælasta og vin-
sælasta verk Händel, var samið á 24
dögum sumarið 1741 og frumflutt á
góðgerðartónleikum í Dublin á vor-
mánuðum 1742. „Í flestum órat-
oríum Händels eru einsöngvarar í
aðalhlutverkum og kórinn syngur
eingöngu stutta kafla. Í Messíasi,
segir Laurence Cummings, stjórn-
andi London Handel Orchestra,
knýr kórinn verkið áfram með til-
finningaþrungnum og uppörvandi
hætti. Það er líklega vegna þessa
sem Messías er í miklu uppáhaldi
hjá kórum um allan heim.“
Messías eftir Händel í Neskirkju
Fjölnir
Ólafsson
Hallveig
Rúnarsdóttir