Morgunblaðið - 01.12.2018, Page 47
MENNING 47
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. DESEMBER 2018
Öskur nefnist
ljósmyndasýning
Friðriks Arnar
sem opnuð verð-
ur í Listhúsi
Ófeigs í dag kl.
15. Á henni sýn-
ir hann ljós-
myndir sem
hann tók af eld-
gosinu í Eyja-
fjallajökli árið 2010. „Hingað til
höfum við nánast eingöngu séð
heimildarmyndir af eldgosinu í
Eyjafjallajökli. Ljósmyndirnar á
sýningunni segja þó aðrar sögur
og gefa fólki möguleika á að njóta
ægifegurðar innan ógnvænlegs
augnabliks og virkja ímyndunar-
aflið,“ segir um sýninguna í til-
kynningu. Myndirnar tók Friðrik í
þyrlu og var því í miklu návígi við
hamfarirnar.
Ljósmyndir Friðriks Arnar eru
svokallaðar samhverfur en í þeim
er ljósmyndarinn á höttunum eftir
fegurðinni og hinu undirfurðulega
í gosstróknum, segir í tilkynningu.
Öskur hjá Ófeigi
Friðrik Örn
Griff Rollefson,
prófessor og
fyrirlesari við
tónlistardeild há-
skólans í Cork á
Írlandi, Univers-
ity College Cork,
hefur hlotið
tveggja milljóna
evra styrk frá
Rannsóknarráði
Evrópu til rannsókna á hip hop tón-
list og mun rannsóknin taka fimm
ár. Mun þetta vera fyrsta rannsókn
sinnar tegundar á heimsvísu, að því
er fram kemur á vef háskólans, þar
sem hún nær til sex heimsálfa.
Hópur fólks mun starfa með Rollef-
son að rannsókninni.
Hip hop rannsakað
í sex heimsálfum
Griff Rollefson
Listskautahópurinn Le Patin Libre
frá Kanada sýnir sýninguna Glide í
Skautahöllinni í Laugardal í dag,
laugardag, kl. 17.30. „Sýningar-
hópurinn kemur frá Montreal og er
skipaður fimm fyrrverandi afreks-
skauturum, þeim Taylor Dilley,
Jasmin Boivin, Pascale Jodoin, Alex-
andre Hamel og Samory Ba. Þau
hafa ferðast til fjögurra heimsálfa
með sýningar sínar og fengið mjög
góðar móttökur gagnrýnenda. Stíll-
inn er nútímalegur og hefur verið
líkt við nútímadans á svelli,“ segir í
tilkynningu frá skipuleggjendum.
Sýningin sem fram fer í dag mun
vera blanda af bestu atriðum hóps-
ins. Vegna sýningarinnar verður
Skautahöllin opin fyrir almenning á
öðrum tíma í dag en venjulega, þ.e.
frá kl. 13 til 16.30. Le Patin Libre-
hópurinn verður með gestum á svell-
inu kl. 13.30, 14.30 og 15.30 í 20-30
mínútur í hvert sinn. Miðar á sýn-
inguna eru seldir á tix.is og við inn-
ganginn.
Hæfileikarík Listskautahópurinn Le Patin Libre sýnir listir sínar í Reykjavík í dag.
Le Patin Libre í Skautahöll Reykjavíkur
TÓNLIST
Arnar Eggert Thoroddsen
arnareggert@arnareggert.is
Stilluppsteypa hóf störf árið1992, þá sem pönksveit í andaCrass, The Ex, Conflict og
áþekkra, anarkískra sveita (eins og
samnefnd sveigtomma, gefin út
sama ár, ber fagurt vitni). Fljótlega
þróaðist hún yfir í að verða að til-
raunakenndri óhljóðasveit, og
stýrðu þá sveitinni þeir Heimir
Björgúlfsson, Helgi Þórsson og Sig-
tryggur Berg Sigmarsson. Mikill
fjöldi platna af því taginu kom út á
tíunda áratugnum; breiðskífur, sjö-
tommur, kass-
ettur, deiliplötur
o.s.frv., á mektar-
merkjum eins og
Chocolate Monk,
Ritornell, Mort
Aux Vaches og
þeirra eigin
merki, FIRE.inc. Sveitin gaf m.a. út
með Melt-Banana og The Hafler
Trio og varð fljótlega að gildandi
stærð í alþjóðlegum heimi tilrauna-
kenndrar tónlistar, sökum tíðra út-
gáfna og nokkuð þéttriðins tengsl-
anets sem sveitin kom sér upp. Árið
2003 yfirgaf Heimir Björgúlfsson
sveitina og hefur hún verið dúett
síðan. Starfsemi hefur ekki verið
mikil, Helgi Þórsson hefur einbeitt
sér að myndlist á meðan Sigtryggur
hefur verið á þeim slóðum sömuleið-
is, auk þess að gefa út tónlist, bæði
með öðrum og sem einyrki.
Stilluppsteypa gaf síðast út
samnefnda plötu á japanska merk-
inu Atak árið 2004 og rauf svo loks
þögnina í ár með plötunni Beach
Jolanda. Tónlistin er jafn óáþreifan-
leg og óútskýranleg og áður –
sleppur undan öllum skilgrein-
ingum í raun. Stilluppsteypa lærði
snemma að festast ekki í neinum
ramma og þeir náðu að koma á
óvart með hverri útgáfu, teygðu á
forminu af mikilli list, tóku u-
beygjur og gáfu aðdáendum sjaldn-
ast það sem þeir hefðu viljað sjá og
Alger steypa ... og þó
Morgunblaðið/Golli
Ytri mörk Sigtryggur Berg Sigmarsson og Helgi Þórsson skipa dúettinn Stilluppsteypu í dag.
heyra. Á plötunni nýju detta þeir fé-
lagar kannski í skruðningsbundið
„ambient“ en snúa sér svo óforvar-
andis að sýrulegnum tónum, súr-
kálsskotnum og jafnvel hippalegum
en þýsku áferðina má skýra með því
að meðlimir hafa dvalið langdvölum
ýmist þar eða í Hollandi. Ef það er
skýring yfirleitt! Eitt af því sem
sveitin hefur ávallt nýtt sér líka er
kímni, eitthvað sem fer oft framhjá
fólki. Lagatitlarnir bera þess merki,
og vísa í stundum sólbakaða (en vel
sýrða) stemninguna („Coco Butter
Locomotione“, „Fried Omiley
Marbles“ og uppáhaldið mitt,
„Make It Snappy Pool Boy“).
Platan kemur út á vegum Ultra
Eczema merkisins, sem gerir út frá
Antwerpen, Belgíu. Upplagið er 400
eintök. Samkvæmt upplýsingablaði
eru upptökur frá 2006–2017 og
gestir eru BJ Nilsen, Oren Amb-
archi, Þorsteinn Eyfjörð, Gerard
Herman og Kristín Anna. Í viðtali
við neðanjarðartónlistarmiðilinn
It’s Psychedelic Baby (Stillupp-
steypa er að fá slatta af umfjöll-
unum í slíkum miðlum) segir Sig-
tryggur að þeir félagar hafi síst
setið auðum höndum undanfarin ár
og hann sé til að mynda búinn að
gera um tíu plötur með BJ Nilsen,
hann og Helgi hafi þá lengi vel ekki
búið í sama landinu og vinna við
nýja Evil Madness plötu hafi þá líka
tafið fyrir, en Evil Madness er nokk-
urs konar ofursveit íslenskra
óhljóðalistamanna og tengdra aðila.
Sveitin hafi þá aldrei hætt og
samstarfinu lýsa þeir sem auðveldu.
Hinn annars hljóði Helgi nefnir að
hann og Sigtryggur séu æskuvinir
og vinna við tónlistina sé venjulega
fremur auðveld og skjót. Sig-
tryggur segir að plata þessi hafi
komið til vegna þrýstings frá eig-
anda Ultra Eczema, sem hafi óskað
eftir því að fá að gefa þá út. Það hafi
gefið þeim spark í rassinn með að
klára og blessunarlega er önnur
plata í farvatninu og giska langt
komin meira að segja. Hægt er að
nálgast tóndæmi á Soundcloud en
Ultra Eczema leggur áherslu á að
tónlistin komi fyrst og síðast út á
efnislegu formi. Það þarf því að
hafa fyrir Stilluppsteypu, og þá
ekki bara hlustunarlega séð.
»Hinn annars hljóðiHelgi nefnir að hann
og Sigtryggur séu æsku-
vinir og vinna við tónlist-
ina sé venjulega fremur
auðveld og skjót.
Beach Jolanda er ný breiðskífa eftir óhljóðasveitina Stilluppsteypu en hljótt hefur verið um
hljómsveitina í meira en áratug, eins þversagnakennt og það hljómar nú.
Í ár eins og undanfarin 17 ár opna myndlistarmennirnir
Aðalheiður S. Eysteinsdóttir og Jón Laxdal vinnustofur
sínar um aðventuhelgar kl. 14-18. Frá árinu 2004 hafa
vinnustofurnar verið í Freyjulundi sem er 17 km norður
af Akureyri við Dalvíkurveg. Freyjulundur er líka heim-
ili fjölskyldunnar og er gestum boðið í kaffi og meðlæti
af gömlum og góðum sveitasið.
Vinnustofur í Freyjulundi
Aðalheiður S.
Eysteinsdóttir
FOSSBERG
Dugguvogi 6 • 104 Reykjavík • www.fossberg.is • 5757600
og vinnuljós fyrir íslen
skan vetur!
Vandaðir vetrarhanskar í úrvali
ICQC 2018-20