Morgunblaðið - 01.12.2018, Page 52
Karlakórinn Fóstbræður og Gamlir
Fóstbræður efna til hádegistón-
leika í anddyri Hörpu, Hörpuhorni, í
dag í tilefni af fullveldisdeginum og
syngja íslensk lög sem hæfa tilefn-
inu og hafa fylgt kórnum í gegnum
tíðina. Undir lok tónleikanna munu
Fóstbræður flytja danska konungs-
sönginn „Kong Christian stod ved
højen mast“ bæði á íslensku og
dönsku og í lokin syngja kórarnir
saman þjóðsöng Íslendinga.
Tónleikarnir hefjast klukkan 12.
Fóstbræður og Gamlir
Fóstbræður í Hörpu
LAUGARDAGUR 1. DESEMBER 335. DAGUR ÁRSINS 2018
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Í lausasölu 1.108 kr.
Áskrift 6.960 kr. Helgaráskrift 4.346 kr.
PDF á mbl.is 6.173 kr. iPad-áskrift 6.173 kr.
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Íslendingar sem búa erlendis og Ís-
lendingar á ferðalagi geta hitt þannig
á að þeir eigi þess kost að sjá sam-
landa sína spila með erlendum fé-
lagsliðum. Greinarhöfundur fór að sjá
þá Bjarka Má Elísson, landsliðsmann í
handknattleik, og Martin Hermanns-
son, landsliðsmann í körfuknatt-
leik, spila með liðum sínum Füchse
Berlin og Alba Berlin. »2-3
Farið á leiki hjá Íslend-
ingunum í Berlín
Í tilefni af aldarafmæli fullveldis Ís-
lands mun Árbæjarsafn bjóða gest-
um safnsins upp á kaffi og uppi-
stand með Ara Eldjárn í dag kl. 13.
Ari mun fjalla um fullveldið, sam-
band Íslendinga og Dana og ýmis-
legt fleira með sínum einstaka
hætti og mun uppistandið fara fram
í safnhúsi því sem kallast Landakot.
Allir eru velkomnir á
meðan húsrúm
leyfir og að-
göngumiði að
safninu gildir
sem aðgöngu-
miði á uppi-
standið.
Uppistand með Ara
Eldjárn á Árbæjarsafni
ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Lovísa Christiansen heldur upp-
teknum hætti og býður fjölskyldu og
vinum upp á fullveldispönnukökur í
dag. „1. desember var alltaf stór dag-
ur í huga afa og síðan 1918 hefur fjöl-
skyldan komið saman þennan dag og
borðað heimabakaðar fullveldis-
pönnukökur,“ segir hún.
Jóhannes J. Reykdal, athafna-
maður í Hafnarfirði og afi Lovísu,
fæddist 1874, „var einn af þjóð-
hátíðarbörnunum, eins og hann sagði
sjálfur“, segir Lovísa. Hún getur þess
að hann hafi verið í Reykjavík 1.
desember 1918, heillast af atburðum
dagsins og þegar hann hafi komið
uppnuminn heim að Setbergi um
kvöldið hafi hann viljað halda upp á
daginn. „Nú hafa merkilegir atburðir
gerst og nú verða bakaðar pönnukök-
ur fyrir alla, fullveldispönnukökur,“
sagði hann við ömmu, Þórunni
Böðvarsdóttur. Mamma sagði mér að
hann hefði sagt hverjum sem heyra
vildi að þetta væri hátíðisdagurinn
hans.“
Sama uppskriftin
Ekki var látið sitja við orðin tóm
heldur hafist handa við baksturinn og
pönnukökunum rúllað upp með mikl-
um sykri. „Úr varð ógleymanleg
veisla og við höfum haldið hefðinni
eftir sömu uppskrift síðan,“ segir
Lovísa. Hún leggur áherslu á að hin-
ar eiginlegu fullveldispönnukökur
séu venjulegar pönnukökur með
miklum sykri, en stundum hafi
rjómapönnukökur líka verið á boð-
stólum. „Bróðir minn var mikill
rjómapönnukökumaður í gamla daga
og gat borðað ótrúlega margar
hverju sinni, en nú halda menn í við
sig, bæði í sykri og rjóma.“
Þórunn og Jóhannes eignuðust 12
börn. Síðustu árin bjó Þórunn hjá
Kristínu Reykdal, elstu dótturinni,
hún tók við fullveldiskeflinu og hélt
siðnum gangandi þar til Lovísa, elsta
dóttir hennar og elsta barnabarn
Þórunnar og Jóhannesar, tók við
bakstrinum um miðjan tíunda ára-
tuginn.
„Fullveldispönnukökubaksturinn
hefur aldrei fallið niður í 100 ár,“
áréttar Lovísa. Hún segir að oft hafi
verið fullt út úr dyrum en í fyrra hafi
verið fámennt í kotinu. Nú sé hins
vegar von á fjölmenni. „Eins og geng-
ur stendur misjafnlega á hjá fólki, en
1. desember er fastur í tilverunni og
þá bökum við fullveldispönnukökur,
hvað sem á dynur. Þegar mamma var
á Sólvangi fór ég til dæmis með
pönnukökur til hennar 1. desember.“
Lovísa lærði ung að baka pönnu-
kökur hjá ömmu sinni og nú er komið
að Ísabellu Maríu Ólafsdóttur, yngsta
barnabarninu, að taka við keflinu.
Veiga Dís Hansdóttir, frænka
hennar, verður varamaður. „Þær eru
yngstu ömmustelpurnar mínar og
það kemur í þeirra hlut að sjá til þess
að hefðinni verði viðhaldið næstu 100
árin.“
Morgunblaðið/RAX
Tímamót Lovísa Christiansen, Veiga Dís Hansdóttir og Ísabella María Ólafsdóttir búa sig undir baksturinn í dag.
Fullveldispönnukökur
1. desember í 100 ár
Fjölskyldan hefur fagnað tímamótunum eins árlega frá 1918