Fréttablaðið - 07.03.2019, Síða 10
Þarma flóran hefur
áhrif á meltingar
veginn og meltinguna sjálfa,
en einnig á taugakerfi
okkar, ónæmiskerfið,
innkirtlakerfið og hormóna
kerfið. Þannig er auðvelt að
draga þá ályktun að þarma
flóran hafi áhrif á hvernig
okkur líður.
Birna G. Ásbjörns
dóttir, doktors
nemi í heilbrigðis
vísindum við
Háskóla Íslands
Þarmar ok kar gegna mikil vægu hlutverki l ík t og heilinn og hjartað enda má rekja fjölmarga sjúkdóma til ójafnvægis í meltingar-
veginum og örverubúskapar hans.
Örverurnar í þörmunum gegna
ýmsum lykilhlutverkum í líkam-
anum. Þær framleiða orku, aminó-
sýrur, B- og K-vítamín og lífrænar
stuttar fitusýrur. Einnig hjálpa þær
við upptöku á vítamínum og stein-
efnum, þjálfa ónæmiskerfið og
keppa við sýkla. Örverurnar vega
um það bil jafn mikið og heilinn og
jafnast á við heilt líffæri.
Þarmaflóran er í stöðugri þróun
út lífið. Þegar við fæðumst fáum við
í okkur örverur frá líkama móður
okkar og úr umhverfinu. „Áður
var talið að fóstur væri með steríla
görn en við vitum í dag að fóstrið
fær örverur frá móður í meðgöngu
en meðgangan hefur einnig áhrif
á þarmaflóru móður,“ segir Birna
G. Ásbjörnsdóttir, doktorsnemi í
heilbrigðisvísindum við Háskóla
Íslands. Hún hefur rannsakað og
skoðað þarmaflóruna og heldur úti
síðunni jorth.is.
„Fóstur er þó með mjög tak-
markað magn af örverum í melt-
ingarvegi í móðurkviði en fær í raun
„stóra skammtinn“ í fæðingunni. Í
fæðingarvegi móður lifa örverur
sem fóstrið gleypir í fæðingunni.
Þannig fara örverur úr móður yfir
í meltingarveg nýfædda barnsins.
Ef hins vegar þarf að taka barn með
keisara þá fer barnið í raun á mis
við þessa örveruinngjöf. Fyrstu
örverur verða þá örverur af húð
móður og úr umhverfinu sem er þá
að öllum líkindum skurðstofa. Það
hefur mögulega þær afleiðingar að
barnið gæti orðið útsettara fyrir
ofnæmum, astma eða exemi eins
og rannsóknir benda til. Einnig
hafa rannsóknir sýnt fram á auknar
líkur á glútenóþoli eða celiac-sjúk-
dómi hjá börnum sem eru tekin
með keisara.“
Birna segir að það sem hafi mest
áhrif á þarmaf lóruna og þróun
hennar eftir fæðinguna sé hvort
barn fer á brjóst eða fær þurrmjólk.
Í brjóstamjólk eru fjölmörg mikil-
væg efni sem ef la þarmaf lóruna,
svo sem fásykrur og örverur frá
meltingarvegi móður til viðbótar
við þá ónæmis- og vaxtarþætti sem
koma með brjóstamjólk almennt.
„Rannsóknir á þarma f lóru hjá
börnum sem eru á brjósti á móti
börnum sem fá þurrmjólk sýna
mun á örveruinnihaldi. Börn á
brjósti eru með hærra hlutfall af
Bacteroidetes en lægra af Firmi-
cutes, en þær síðarnefndu hafa
verið tengdar við auknar líkur á
ofþyngd,“ segir Birna.
„Síðan hefur fæðið auðvitað
mikið að segja og sú vinna sem er
sett í vandað og næringarríkt fæði
skilar heilbrigðari þarmaflóru hjá
barninu sem hefur að öllum líkind-
um jákvæð áhrif á heilsu, mögulega
til frambúðar. En auðvitað kemur
Fyrstu þúsund dagarnir mikilvægastir
Röskun á þarmaflóru truflar taugakerfið
Þegar myndast hefur ójafnvægi í örveru
búskap meltingarvegar er gjarnan talað um
dysbiosis. Það er margt sem getur raskað
þessum örverubúskap og benda rannsóknir
til þess að fæðið hafi þar mikil áhrif. Fæði sem
er mikið unnið eins og pakkamatur, sælgæti,
gosdrykkir og þess háttar er líklegt til að koma
þarmaflórunni úr jafnvægi og mögulega leiða
til dysbiosis í þörmum. Eins er mikil sykur
neysla slæm og getur haft sambærileg áhrif.
„Það gleymist stundum að veita athygli
því sem ekki er borðað, en það hefur einnig
áhrif. Við eigum ekki eingöngu að horfa á það
sem við borðum, sama hvort það er gott eða
slæmt, við þurfum einnig að að velta fyrir
okkur hverju við erum að sleppa eða borða of
lítið af,“ segir Birna.
„Það má oft auka verulega neyslu á græn
meti og ávöxtum án þess að fara í of miklar
hugleiðingar um hvað ætti að forðast. En slík
nálgun reynist fólki oft auðveldari, bara að
bæta við því góða. Þegar við ákveðum að forð
ast eitthvað fær það gjarnan aukna athygli og
við endum oft á að borða meira af því fyrir
vikið.“
Næst á eftir fæðunni nefnir Birna sýklalyf.
Þau geta haft verulega skaðleg áhrif á þarma
flóruna þar sem þau þurrka út mikið magn af
örverum í þörmunum, bæði hagstæðum og
óhagstæðum, og skilja þannig oft eftir hálf
gerða eyðimörk.
„Ef ekkert er gert til að rækta upp hagstæða
þarmaflóru í kjölfarið er hætta á að óhagstæð
um örverum fjölgi og þannig stuðla sýklalyf
gjarnan að dysbiosis í þörmum. Ef hægt er að
komast hjá því að taka inn sýklalyf þá er það
betri kostur. En auðvitað þarf stundum að
taka lyfin og þá er mikilvægt að taka einnig
inn mjólkursýrugerla, bæði með og í kjölfar
lyfjagjafar, til að draga úr skaðlegum áhrifum
lyfjanna,“ segir Birna en rannsóknir sýna
að mjólkursýrugerlar draga úr líkum á að fá
niðurgang og ýmis óþægindi af sýklalyfjum.
„Rannsóknir sýna einnig að mjólkursýru
gerlarnir draga úr líkum á að fá alvarlegar
sýkingar í kjölfar sýklalyfjanotkunar.“
Fleiri lyf hafa áhrif á þarmaflóruna og segir
Birna að verið sé að rannsaka margt í því sam
hengi. Einnig eru vísindamenn í auknum mæli
að skoða hvaða þátt þarmaflóran á í virkni
ýmissa lyfja. „Rannsóknir sýna að þarma flóran
hefur áhrif á þróun krabbameina og eins
hvernig meðferðir virka. Það er margt sem er
verið að skoða á þessu sviði og mjög áhuga
vert að fylgjast með,“ segir Birna. „Streita er
einnig skaðleg fyrir þarmaflóruna og melt
ingarveginn sjálfan. Örverur í þörmunum hafa
áhrif á taugakerfið okkar og þess vegna getum
við hæglega lent í vítahring þegar við búum
við mikla og langvarandi streitu.“
Samhengi milli ójafnvægis í
þarmaflóru og geðraskana
Þegar þarmaflóran er dysbiotic til langs tíma
getur það haft afleiðingar bæði í meltingar
veginum en einnig fyrir utan hann (e. syst
emic). Slæm eða óhagstæð þarmaflóra hefur
áhrif á gegndræpi smáþarma og getur þannig
aukið líkur á að ýmsir þættir ræsi ónæmis
kerfið. Það getur leitt af sér langvinnar bólgur
og haft áhrif á heila og taugakerfi. Birtingar
myndin getur verið líkamleg einkenni og/eða
andleg. Langvarandi ójafnvægi í örverubúskap
þarmanna getur til dæmis aukið líkur á kvíða
og depurð. Rannsóknir sýna samhengi milli
dysbiosis og ýmissa geðraskana. Vísindamenn
hafa einnig tengt aukið gegndræpi smáþarma
við ýmsa sjúkdóma, en dysbiosis eykur líkur
á að gegndræpið aukist. Rannsóknir sýna að
ýmsir sjúklingahópar mælast með hækkað
magn af zonulini í blóði og hægðum, en zon
ulinmagn er mælikvarði á gegndræpi þarma.
fleira til, svo sem lyfjagjafir og álag,
þá bæði hjá barni og móður. Lyf
geta haft margþætt áhrif á þarma-
f lóruna og ef barn er á brjósti þá
geta sum lyf sem móðir þarf að taka
haft áhrif á f lóru barnsins. Eins
ef barn þarf að taka sýklalyf, sér-
staklega ef um endur tekningar er
að ræða, getur það haft gríðarleg
áhrif á örverubúskap þarmanna.
Rannsóknir sýna að slík röskun á
þarmaflórunni getur haft áhrif til
frambúðar og jafnvel koma áhrifin
ekki í ljós strax. Eitt af því sem hefur
verið rannsakað er tengsl sýklalyfja-
notkunar og líkamsþyngdar. Rann-
sóknir sýna okkur að börn sem hafa
fengið mikið af sýklalyfjum eru lík-
legri til að verða of þung, jafnvel
síðar á lífsleiðinni, en þau börn sem
hafa fengið sýklalyf í mjög takmörk-
uðum mæli.“
Fyrstu 1.000 dagar í lífi barns eru
mikilvægir. Meðganga móður, sem
fyllir nánast fyrsta ár barnsins, fæð-
ingin sjálf og síðan næringin. Æski-
legt er að nefna sýkingar og streitu
í þessu samhengi líka. Allir þessir
þættir hafa áhrif á meltingarveg
barns og þarmaflóruna.
„Í dag hefur verið gefinn út
fjöldinn allur af ritrýndum vís-
indagreinum og vönduðum rann-
sóknum varðandi hlutverk þarma-
f lórunnar í tengslum við heilsu
manna. Þarma f lóran hefur áhrif
á meltingarveginn og meltinguna
sjálfa, en einnig á taugakerfi okkar,
ónæmiskerfið, innkirtlakerfið og
hormónakerfið. Þannig er auðvelt
að draga þá ályktun að þarmaflóran
hafi áhrif á hvernig okkur líður,“
segir Birna.
„Það er mikilvægt að muna að
þarmaflóran jafnast á við heilt líf-
færi og við ráðum miklu um hvernig
hún er samsett. Við erum með hag-
stæðar og óhagstæðar örverur í
bland en viljum halda okkur réttum
megin við borðið og hafa þessar hag-
stæðu í meirihluta. Þannig græðum
við einnig efni sem þessar örverur
framleiða fyrir okkur, en mörg af
þeim hafa einnig verið rannsökuð
varðandi heilsu. Það er góð regla að
velja sér fæði sem ræktar þennan
jarðveg sem er í þörmunum okkar.
Við erum alltaf að borða fyrir okkur
OG örverurnar.“
Í meltingarvegi okkar
eru flestar örverur
líkamans, örverur sem
telja trilljónir. Þessar
örverur köllum við
þarma flóru en um
10.000 tegundir hafa
verið skilgreindar á og
í mannslíkamanum. Af
þeim mikla fjölda teg-
unda sem lifa í þörmum
okkar eru sumar heil-
næmar fyrir líkamann
en aðrar ekki.
TILVERAN
7 . M A R S 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R10 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
0
7
-0
3
-2
0
1
9
0
4
:3
7
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
7
F
-D
3
E
8
2
2
7
F
-D
2
A
C
2
2
7
F
-D
1
7
0
2
2
7
F
-D
0
3
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
9
B
F
B
0
7
2
s
_
6
_
3
_
2
0
1
9
C
M
Y
K