Fréttablaðið


Fréttablaðið - 07.03.2019, Qupperneq 18

Fréttablaðið - 07.03.2019, Qupperneq 18
Það gengur allt mjög vel og við erum búin að ná þátttöku- þröskuldinum í þremur verkfallsboðunum af sjö. Viðar Þorsteinsson, framkvæmdastjóri Eflingar Veldu Panodil® sem hentar þér! Verkjastillandi og hitalækkandi Panodil filmuhúðaðar töflur, Panodil Zapp filmuhúðaðar töflur, Panodil Junior mixtúra, dreifa, Panodil Hot mixtúruduft, lausn til inntöku, Panodil Brus freyðitöflur. Inniheldur paracetamól. Við vægum verkjum. Hitalækkandi. Til inntöku. Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is. Panodil-LB-5x10 copy.pdf 1 06/11/2018 11:46 Vikan Yfirvofandi verkföll, leit í Ölfusá og Hatari á leið í Eurovision var meðal þess sem bar hæst í liðinni viku. Mislingar eru þó það sem flestir hafa áhyggjur af. Lagið Hatrið mun sigra verður því framlag Íslands í Eurovision sem haldin verður í Ísrael í maí. Leitinni hefur verið hætt í bili en verður haldið áfram þann 16. mars næstkom- andi. Meira en 90 prósent Íslendinga eru bólusett og telja læknar því litla hættu á mislingafaraldri. Fjögur mislingasmit Fjögur mislingasmit greindust hér á landi undanfarna viku, er það alvarlegasta staðan í áratugi. Mislingar eru bráðsmitandi og geta valdið dauða. Meira en 90 prósent Íslendinga eru bólusett og telja læknar því litla hættu á faraldri. Bólusett er við mislingum við 18 mánaða aldur og eru það helst ung börn sem eiga á hættu að smitast. Fyrsta smitið greindist á laugardaginn, um var að ræða 11 mánaða barn sem var í sama flugi og einstaklingur sem smitaðist erlendis. Í fyrstu var útlit fyrir að það yrðu einu tilfellin. Síðar kom í ljós að annað barn hefði smitast í sama flugi, það barn fór á leik- skóla. Sérstakt eftirlit er nú með öllum börnum yngri en 18 mánaða af leikskólanum til að koma í veg fyrir útbreiðslu sjúkdómsins. Leit að Páli hélt áfram Leit hélt áfram að Páli Mar Guð- jónssyni sem talið er að hafi ekið út í Ölfusá fyrir neðan Hótel Sel- foss á mánudaginn í síðustu viku. Við leitina var notast við flygildi ásamt gönguhópum og bátum. Leitinni hefur verið hætt í bili en verður haldið áfram þann 16. mars næstkomandi. Þá mun Björgunar- félag Árborgar, sérsveit ríkislög- reglustjóra og sérfræðingar Landhelgisgæslunnar framkvæma mælingar á lögun og dýpi gjárinn- ar neðan brúar yfir Ölfusá. Bæði verður notaður búnaður þessara aðila auk búnaðar í einkaeigu við mælingarnar. Vonir standa til að þá verði hægt að staðsetja flak bifreiðarinnar. Greint var frá því síðasta sunnudag að leitin að Páli, sem var í bílnum, hefði engan árangur borið. Verkföll á næstunni Búið er að ná lágmarkshlutfalli kosningar í þremur af þeim sjö verkföllum sem stéttarfélagið Efling hefur boðað til á tíma- bilinu 18. mars til loka apríl. Kosning hófst klukkan tólf síðasta mánudag og lýkur á laugardaginn, klukkan 23.59. „Það gengur allt mjög vel og við erum búin að ná þátttöku- þröskuldinum í þremur verk- fallsboðunum af sjö,“ segir Viðar Þorsteinsson, framkvæmdastjóri Eflingar stéttarfélags, í samtali við Fréttablaðið. Hann sagðist eiga von á því að ná þátttökuþröskuldi í öllum sjö verkfallsboðunum áður en kosningu lýkur næsta laugardag. Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, segir að á hádegi í gær hafi félagið náð að uppfylla lágmarks- þátttökuskilyrði fyrir þeim verk- föllum sem félagið hefur einnig boðað til á sama tíma og Efling. Hatari til Ísraels Hljómsveitin Hatari kom, sá og sigraði í Söngvakeppni Sjónvarps- ins síðustu helgi. Lagið Hatrið mun sigra verður því framlag Íslands í Eurovision sem haldin verður í Ísrael í maí. Hatari hefur gefið það út að hljómsveitin muni nota dagskrárvaldið til að gagn- rýna framgöngu Ísraels gagn- vart Palestínumönnum. Sveitin hefur fengið óblíðar móttökur í ísraelsku pressunni fyrir vikið. Hún hefur einnig verið gagnrýnd af bæði málsvörum Palestínumanna og Ísraelsmanna hér á landi. Hins vegar á Hatari stóran aðdá- endahóp hér á landi og tóku mörg börn upp á því að klæða sig upp í takt við klæðnað hljómsveitar- meðlima á öskudaginn í gær. TILVERAN 7 . M A R S 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R18 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 0 7 -0 3 -2 0 1 9 0 4 :3 7 F B 0 7 2 s _ P 0 7 0 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 5 5 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 2 7 F -9 3 B 8 2 2 7 F -9 2 7 C 2 2 7 F -9 1 4 0 2 2 7 F -9 0 0 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 0 7 2 s _ 6 _ 3 _ 2 0 1 9 C M Y K
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.