Fréttablaðið


Fréttablaðið - 07.03.2019, Qupperneq 30

Fréttablaðið - 07.03.2019, Qupperneq 30
Útgefandi: Torg ehf Veffang: frettabladid.isÁbyrgðarmaður: Kristín Þorsteinsdóttir Sölumaður auglýsinga: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Loftslagsmarkmið OR og dótturfélaga til ársins 2030 95% minni losun með því að bora með rafmagni í stað olíu. 90% minni losun bílaflotans, m.a. með fjölgun rafbíla. 70% minni losun starfsfólks vegna ferða í og úr vinnu. 90% minni losun með minni matarsóun. 10% minni losun vegna flugferða starfsfólks á vegum fyrirtækjanna. 70% minni losun jarðhitaloft tegunda með hagnýtingu þeirra. 100% endur heimt votlendis á athafna­ svæði OR. 20% minni losun við framkvæmdir og viðhald veitukerfa. 35% minni losun með því að breyta jarðhitaloft­ tegundum í grjót með CarbFix og SulFix. 25% meiri binding með landbótum. 90% minni losun frá skrifstofum. 10% minni losun með því að endurvinna úrgang betur. Framleiðsla og farartæki Samgöngur Úrgangur Binding og nýting Að skipta yfir í raf bíl er ekki ósvipað skiptum yfir í hitaveitu úr olíukynd- ingunni. Járnblendinu á Grundartanga áður en hann hóf störf í orkugeiranum, fyrst hjá Landsvirkjun og síðan hjá OR. „Það er talsverð losun gróður- húsalofts frá stóriðjunni í landinu, sérstaklega kísilverunum en líka frá álvinnslunni. Þessi fyrirtæki gætu hugsanlega nýtt sér CarbFix- aðferðina til að draga úr losun hjá sér. Sum iðjuverin eru afar vel í sveitt sett til að nýta sér hana, með góðan aðgang að vatni og basalt- hrauni. Þetta er einhver ódýrasta aðferð sem við þekkjum til kol- efnisbindingar og það væri alveg til fyrirmyndar ef hún nýttist til að draga úr þeim hátt í fimm millj- ónum tonna sem við Íslendingar losum árlega af gróðurhúsalofti.“ Getum öll lagt hönd á plóg Innreið rafbíla á Íslandi er hafin fyrir alvöru. Allt frá því dóttur- fyrirtæki OR, Orka náttúrunnar, tók til starfa í ársbyrjun 2014, hefur fyrirtækið verið leiðandi í uppbyggingu innviða fyrir orku- skipti í samgöngum. „Við viljum draga úr losun gróðurhúsalofts frá okkar eigin starfsemi en líka að gera öðrum það kleift. Þar skipta hlöðurnar okkar höfuðmáli,“ segir Bjarni. Hann hefur sjálfur ekið rafbíl undanfarin ár og í gegnum störf sín í orkugeiranum komið að mörgum þeirra frumkvöðlaverk- efna í orkuskiptum í samgöngum sem orkufyrirtækin hafa staðið að. „Að skipta yfir í rafbíl er ekki ósvipað skiptum yfir í hitaveitu úr olíukyndingunni. Það er fjár- festing í upphafi en til lengri tíma sparar það okkur stórfé – bæði sem einstaklingum og þjóðinni í heild – fyrir utan hin jákvæðu loftslagsáhrif. Ísland er einstaklega hentugt fyrir rafbíla. Við vinnum meira rafmagn á hvern íbúa en nokkur önnur þjóð í veröldinni, rafmagn er hreint og tiltölulega ódýrt hér á landi, svalt loftslagið er hentugt fyrir líftíma rafhlaðanna og flestar bílferðir okkar eru mjög stuttar. Allt hjálpast þetta að við að gera Ísland að kjörlendi rafbílsins,“ segir Bjarni. „Við höfum gefið út þá spá að árið 2030 verði rafbílar hér á landi orðnir 100.000 talsins. Við höfum líka sett okkur áfanga að þessu marki og ætlum að þeir verði orðnir 40.000 árið 2023. Við ráðum því auðvitað ekki því það er almenn- ingur sem kaupir bílana en ekki við. Hins vegar viljum við leggja okkar af mörkum til að greiða fyrir orkuskiptunum. Þetta er metnaðarfullt, en markmið okkar í loftslagsmálum verða að vera það. Minna dugar ekki.“ Höfum bylt orkumálum áður Bjarni minnir líka á að uppbygging hitaveitna á síðustu öld hafi verið eitthvert heilladrýgsta spor sem Íslendingar hafa stigið, bæði efna- hagslega og umhverfislega. „Við höfum gjarna horft á nýtingu jarð- hitans til húshitunar sem framfara- skref fyrir efnahag heimilanna. Það er vissulega rétt. Ef við lítum til nágrannalandanna þá þurfa fjöl- skyldur á öðrum Norðurlöndum að verja mun stærri hluta ráðstöf- unartekna sinna til húshitunar en hér á landi. Þegar við skoðum stöðuna í dag – gróðurhúsaáhrifin og efnahagsleg áhrifa þeirra – þá er hugsanlegt að ábatinn af því að draga úr losun gróðurhúsalofts með hitaveitunum skipti meira máli en orkureikningarnir þegar til lengri tíma er litið,“ segir Bjarni. „Það hefur verið reiknað út að hitaveitan á höfuðborgarsvæðinu hafi sparað okkur 125 milljóna tonna útblástur af koltvíoxíði frá því að hún tók til starfa. Þetta er há tala og til að setja hana í samhengi þá nálgast árleg losun Íslands í dag 5 milljónir tonna. Þar eru allir bílar taldir með, allur iðnaður bæði almennur og stóriðjan, land- búnaður og fiskiskip. Hitaveitan í Reykjavík ein og sér hefur því sparað okkur ígildi allrar losunar landsins í aldarfjórðung, 25 ár!“ bendir Bjarni á. Ársskýrsla OR er skýrsla um samfélagsábyrgð Á næstu dögum kemur Ársskýrsla Orkuveitu Reykjavíkur út fyrir árið 2018. Skýrsla OR er rafræn – kemur bara út á netinu – og í henni er fylgt alþjóðlegum leiðbeiningum um gerð samfélagsskýrslna fyrirtækja. „Við höfum fylgt alþjóðlegum viðmiðum í gerð skýrslunnar um árabil,“ segir Bjarni og bendir á mikilvægi þess að fyrirtæki hand- velji ekki atriði úr rekstri sínum til að telja fram í slíkum skýrslum. „Við fylgjum svokölluðum ESG- viðmiðum, sem hafa verið þróuð í samstarfi kauphalla og Sam- einuðu þjóðanna og sýnum fram á með hvaða hætti starfsemi OR og dótturfyrirtækjanna allra styður við heimsmarkmiðin um sjálfbæra þróun,“ segir Bjarni. Að lokum bendir hann á að Heimsmarkmiðin, þar sem loftslagsmarkmiðin vega mjög þungt, séu víðtækasti sáttmáli sem mannkynið hefur komið sér saman um. „Ætli fyrirtæki sér að standa undir ábyrgð í samfélagi þjóðanna þá finnst mér þau verða að taka afstöðu til heimsmarkmið- anna með einhverjum hætti,“ segir Bjarni Bjarnason, forstjóri Orku- veitu Reykjavíkur. Bjarni Bjarnason tók við forstjórastarfinu hjá Orkuveitu Reykjavíkur á miklum umbrotatímum í sögu fyrirtækisins. MYND/STEFÁN 10.000 9.000 8.000 7.000 6.000 5.000 4.000 3.000 2.000 1.000 0 ✿ Fjöldi hlaða Orku náttúrunnar og tengjanlegra rafbíla 2014–2018 50 40 30 20 0 ❚ Fjöldi hlaða ON – hægri ás❚ Fjöldi tengjanlegra rafbíla – vinstri ás 10 jan.’14 júlí ’14 jan.’15 júlí ’15 jan.’16 júlí ’16 jan.’17 júlí ’17 jan.’18 júlí ’18 jan.’19 Framhald af forsíðu ➛ 2 KYNNINGARBLAÐ 7 . M A R S 2 0 1 9 F I M MT U DAG U RSAMFÉLAGSÁBYRGÐ FYRIRTÆKJA 0 7 -0 3 -2 0 1 9 0 4 :3 7 F B 0 7 2 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 4 3 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 2 7 F -D 8 D 8 2 2 7 F -D 7 9 C 2 2 7 F -D 6 6 0 2 2 7 F -D 5 2 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 0 7 2 s _ 6 _ 3 _ 2 0 1 9 C M Y K
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.