Fréttablaðið


Fréttablaðið - 07.03.2019, Qupperneq 31

Fréttablaðið - 07.03.2019, Qupperneq 31
Skilgreint hlutverk EFLU verkfræðistofu er að koma fram með lausnir sem stuðla að framförum viðskiptavina og efla samfélög. Fyrir vikið er sam- félagsleg ábyrgð samofin tilgangi fyrirtækisins og hefur þessi leiðar- vísir verið fyrirtækinu dýrmætur á vegferð þess á síðustu árum að sögn Guðmundar Þorbjörnssonar, framkvæmdastjóra EFLU. „EFLA hlaut árið 2018 viðurkenningu frá CreditInfo fyrir að vera framúr- skarandi fyrirtæki í samfélagslegri ábyrgð og var það mikil viður- kenning fyrir okkur. Sérhvert fyrirtæki þarf að svara því hvað samfélagsleg ábyrgð þýðir fyrir það, hvaða áherslur það velur, fyrir hvað það vill standa og hvar það getur lagt mest af mörkum. Spyrja spurninga á borð við: „til hvers er fyrirtækið til?“ og „hvers vegna á fyrirtækið rétt á sér í samfélag- inu?“.“ Loftslagsmálin í brennidepli EFLA var brautryðjandi í sam- félagslegri ábyrgð upp úr síðustu aldamótum með innleiðingu eigin innri stjórnkerfa í umhverfis- stjórnun. Síðan þá hefur fyrir- tækið unnið markvisst að ráðgjöf í umhverfis- og loftslagsmálum, t.d. við innleiðingu á umhverfis- stjórnun hjá viðskiptavinum, í tengslum við nýtingu á sjálf bærri orku og í þróun umhverfisvænna lausna á fjölmörgum sviðum bætti Guðrún Jónsdóttir, hljóðverkfræð- ingur M.Sc. við, en hún situr einnig í stjórn EFLU. „Loftslagsmálin eru nú mjög í brennidepli og öll fyrir- tæki þurfa að vera þátttakendur í framtíðarlausnum á því sviði. Nú er svo komið að umhverfismál eru tekin til skoðunar í öllum verkefn- um EFLU. En fyrirtækið er einnig að víkka sjóndeildarhringinn og vill skoða samfélagslega ábyrgð í víðari skilningi í öllum verkefnum, þar sem auk umhverfismála er litið til hagrænna, félagslegra og sið- ferðilegra þátta. Þetta mun EFLA gera í eigin starfsemi, en horfir einnig til þess að vera viðskipta- vinum til stuðnings í þeirra fram- þróun eins og verið hefur raunin í umhverfismálunum til þessa.“ Heilsteypt fyrirtæki EFLA er þekkingarfyrirtæki sem veitir sérfræðiráðgjöf en rúmlega 400 starfsmenn starfa hjá fyrir- tækinu hér á landi og erlendis. Guðmundur segir samfélagslega ábyrgð, að mati EFLU, ganga í grunninn út á að starfrækja heilsteypt fyrirtæki sem skilar jákvæðum afrakstri til samfélags- ins. „Fyrirtækið starfar um allt samfélagið á fjölþættum sviðum og hefur því mikil tækifæri til að láta gott af sér leiða. Má þar til viðbótar nefna að EFLA hefur verið í forystu um þróun á vist- vænum byggingum, útreikningi á kolefnisspori mannvirkja og framkvæmda, þá höfum við verið með ráðgjöf í orkuskiptum og vist- vænum samgöngum.“ Auðveldar forgangsröðun Einnig má nefna að EFLA er þátttakandi í Global Compact, sáttmála Sameinuðu þjóðanna um samfélagslega ábyrgð bætir Guð- rún við. „Þar tökum við þátt til að ná heildarmynd á okkar nálgun og mátum okkur einnig við sautján heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna um sjálf bæra þróun. Auk þess erum við þátttakendur í loftslagsmarkmiðum Parísarsátt- málans, eitt af um 100 íslenskum fyrirtækjum. Við höldum einnig úti grænu bókhaldi og gefum út árlega samfélagsskýrslu þar sem markmiðum og árangri í starf- seminni er lýst. Öll þessi umgjörð er fyrirtækinu mikilvæg og auð- veldar yfirsýn og forgangsröðun.“ Þau eru sammála um að ör samfélagsþróun veki spurningar um nýjar áherslur í samfélagslegri ábyrgð. „Fram undan er ör tækni- þróun og stafrænar umbreytingar og verða siðferðisleg álitamál fyrirferðameiri í þeirri þróun. Nýjar kynslóðir setja líka ný viðmið, sem fyrirtæki verða að taka tillit til. Ungt starfsfólk í dag horfir til samfélagslegrar ábyrgðar fyrirtækja þegar verið er að velja sér starfsvettvang. Ef fyrirtæki er samfélagslega meðvitað gerir fólk ráð fyrir að koma inn í heilbrigt umhverfi þar sem tækifæri er til að þróast og vaxa. Viðhorf til vinnu og frítíma hefur breyst og kröfur til starfsumhverfis aukist um leið.“ Kröfurnar hafa aukist Um leið hafa kröfur samfélagsins stöðugt verið að aukast, upplýs- ingaflæði gegnumlýsir samfélagið, hraði breytinga er miklu meiri en áður, og tækniþróun, sjálfvirkni og gervigreind hafa sífellt meiri áhrif. Þessari þróun fylgja mikil tækifæri en einnig óvissa að þeirra sögn. „Framtíðin er nær en áður. Í slíku umhverfi er ekki alltaf hægt að gera raunhæfar áætlanir til ein- hvers tíma. Því má færa rök fyrir því að vel skilgreindur tilgangur fyrirtækis, gildi þess og menning verði mikilvægustu þættir sam- félagslegrar ábyrgðar fyrirtækja framtíðarinnar og grundvöllur ákvörðunartöku í viðskipta- umhverfi á f leygiferð.“ Samfélagsleg ábyrgð er samofin starfsemi EFLU Vel skilgreindur tilgangur fyrir­ tækis, gildi þess og menning verða mikil­ vægustu þættir samfélags­ legrar ábyrgðar fyrirtækja fram­ tíðarinnar og grundvöllur ákvörðunar­ töku í viðskipta­ umhverfi á fleygiferð. Snæfellsstofa á Skriðuklaustri hlaut vistvæna vottun fyrir fullbúna bygg- ingu skv. BREEAM-vottunarkerfinu. EFLA sá um ráðgjöf verkefnisins. Guðmundur Þorbjörnsson er framkvæmdastjóri EFLU og Guðrún Jónsdóttir er hljóðverkfræðingur og situr í stjórn EFLU. MYNDIR/SIGTRYGGUR ARI KYNNINGARBLAÐ 3 F I M MT U DAG U R 7 . M A R S 2 0 1 9 SAMFÉLAGSÁBYRGÐ FYRIRTÆKJA 0 7 -0 3 -2 0 1 9 0 4 :3 7 F B 0 7 2 s _ P 0 4 7 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 4 2 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 2 7 F -C A 0 8 2 2 7 F -C 8 C C 2 2 7 F -C 7 9 0 2 2 7 F -C 6 5 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 B F B 0 7 2 s _ 6 _ 3 _ 2 0 1 9 C M Y K
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.