Fréttablaðið - 07.03.2019, Side 35
Um langa tíð hafa umhverfis-mál verið mikilvægur þáttur í starfsemi Landsvirkjunar
og á síðastliðnum árum hefur
einnig verið lögð aukin áhersla á
samstarf við samfélagið, heilsu-,
öryggis- og starfsmannamál og
miðlun þekkingar. Fram undan er
vinna sem felur í sér endurskoðun
á stefnunni til þess meðal annars
að taka mið af nýjum áskorunum,
þróun fyrirtækisins og væntingum
hagsmunaaðila.
„Með samfélagsábyrgð skapar
Landsvirkjun eigendum sínum
arð, fer vel með auðlindir lands
og umhverfi, og stuðlar að því að
þekking og jákvæð áhrif af starf-
semi fyrirtækisins skili sér til sam-
félagsins,“ segir Jóhanna Harpa
Árnadóttir, verkefnisstjóri sam-
félagsábyrgðar hjá Landsvirkjun.
Meðal nýrra stefnuáherslna á
sviði samfélagsábyrgðar Lands-
virkjunar er upptaka alþjóðlega
GRI-staðalsins og stuðningur
við Heimsmarkmið Sameinuðu
þjóðanna. GRI stendur fyrir
Global Reporting Initiative og er
samræmd aðferðafræði til að mæla
árangur fyrirtækja og stofnana í
átt að sjálf bærri þróun.
„Landsvirkjun ákvað að styðjast
við staðalinn til að styrkja upp-
lýsingagjöf um samfélagslega
ábyrgð fyrirtækisins sem og mark-
miðasetningu og skilgreiningu
áherslna. Samhliða þessari vinnu
mun eiga sér stað ákveðin endur-
mörkun á samfélagsábyrgðar-
stefnu fyrirtækisins.“
Landsvirkjun styður við
Heimsmarkmið (HM) Sameinuðu
þjóðanna og leggur sérstaka
áherslu á þrjú þeirra sem falla vel
að starfsemi fyrirtækisins: HM 5
um jafnrétti kynjanna, HM 7 um
sjálf bæra orku fyrir alla og HM 13
um aðgerðir í loftslagsmálum.
Áhersla á jafnréttismál
„Landsvirkjun setur nú mikinn
kraft í jafnréttisvinnu og er það í
samræmi við stuðning fyrirtækis-
ins við Heimsmarkmið SÞ númer
5 um jafnrétti. Einnig fórum við að
skoða markmið okkar í jafnréttis-
málum í víðara samhengi sem og
að ákveðin grasrót innan fyrir-
tækisins vildi sjá auknar aðgerðir.
Ráðist var í viðamikla úttekt á
stöðu jafnréttismála og kallað
eftir hugmyndum frá starfsfólki
haustið 2017. Fyrir ári kynntum
við þriggja ára aðgerðaáætlun
jafnréttis með sautján umbóta-
verkefnum sem færa munu fyrir-
tækið nær markmiðum sem sett
hafa verið í jafnréttismálum,“ upp-
lýsir Jóhanna Harpa en umbóta-
verkefnin snerta á ólíkum þáttum
starfseminnar og styðja við þróun
vinnustaðarins.
„Við beinum sjónum meðal
annars að jafnrétti þegar kemur
að ráðningu nýrra starfsmanna
og er fræðsla um jafnrétti hluti af
nýliðaþjálfun í fyrirtækinu. Nú
er að ljúka vinnu við greiningu
á vinnuumhverfinu með til-
liti til þess hvernig það höfðar
til kynjanna og í vinnustaða-
greininguna hefur verið bætt vísi
sem er ætlað að mæla jafnrétti og
samskipti kynjanna. Þá höfum
við lokið við endurskoðun og
kynningu á nýrri viðbragðsáætlun
um kynferðislega og kynbundna
áreitni eða of beldi,“ nefnir
Jóhanna sem dæmi.
Árangur á sviði jafnlauna
Frá því verkefnið fór af stað árið
2017 hefur jafnréttisáhersla Lands-
virkjunar vaxið að umfangi en
Jóhanna Harpa segir að eftir því
sem vinnunni hafi miðað áfram
hafi orðið ljóst að mikið verk væri
óunnið. Góður árangur hefur
náðst á sviði jafnlauna en um
áramót fékkst staðfest að Lands-
virkjun hefði hlotið jafnlauna-
vottun en jafnlaunakerfið stuðlar
að því að starfsmenn njóti jafnra
launa fyrir jafnverðmæt störf.
„Breið nálgun er lykill að árangri
á þessu sviði og því er leitast við
að nálgast jafnréttismálin með því
að skoða launa- og kynjahlutföll
en líka menningu, fyrirmyndir,
vinnuumhverfi, stefnu og skipu-
lag. Við höfum áður unnið með
hugmynd um framtíðarvinnu-
staðinn Landsvirkjun og í ár er
jafnréttismenning ein af þremur
stefnuáherslum fyrirtækisins,“
upplýsir Jóhanna.
Mannauðs- og jafnréttisstefna
Landsvirkjunar var nýverið endur-
skoðuð til þess að taka mið af
nýjum áherslum í málaflokknum.
Sjálfbær orka fyrir alla
„Heimsmarkmið Sameinuðu
þjóðanna númer 7 fjallar um
að tryggja skuli öllu mannkyni
aðgang að öruggri og sjálf bærri
orku á viðráðanlegu verði eigi
síðar en 2030. Innan þess mark-
miðs falla þau undirmarkmið að
hlutfall endurnýjanlegrar orku af
orkugjöfum heimsins verði aukið
verulega og að alþjóðleg samvinna
verði aukin í því skyni að auðvelda
aðgengi að rannsóknum og tækni
á sviði umhverfisvænnar orku,“
útskýrir Jóhanna.
Sérstaða í orkumálum
Ísland hefur sérstöðu þegar kemur
að aðgengi að endurnýjanlegum
orkugjöfum í heiminum og vinna
Íslendingar nærri 100 prósent
allrar raforku með endurnýjan-
legum orkugjöfum. Þar af vinnur
Landsvirkjun þrjá fjórðu hluta
þeirra orku. Landsvirkjun leitast
við að finna leiðir til þess að miðla
af þekkingu sinni á erlendri
grundu til þess að auka aðgengi
heimsbyggðarinnar að sjálf bærri
orku.
Landsvirkjun hefur á síðastliðn-
um árum starfað með samtökun-
um SEforALL – Sustainable Energy
for All, eða Sjálf bær orka fyrir alla,
en samtökin voru stofnuð á vegum
Sameinuðu þjóðanna árið 2011.
„SEforALL hafa á síðastliðnum
þremur árum aukið umsvif sín
verulega til að nálgast HM 7 um
sjálf bæra orku fyrir alla. Í fyrra
hóf göngu sína hraðall í samstarfi
við Landsvirkjun og fleiri aðila
en vinnustofa til undirbúnings
hraðalsins var haldin á vegum
Landsvirkjunar í Kröflu sumarið
2017. Hraðlinum er ætlað að auka
áherslu á kynjajafnrétti, sam-
félagsþátttöku og valdeflingu
kvenna, auk þess að kortleggja
hagsmunaaðila og mynda banda-
lög sem stuðla að kerfisbreyting-
um,“ útskýrir Jóhanna.
Útflutningur á þekkingu
Landsvirkjun Power, dótturfélag
Landsvirkjunar, var stofnað fyrir
áratug til að sinna verkefnum
Landsvirkjunar á erlendri grundu.
„Landsvirkjun Power veitir
erlendum aðilum ráðgjöf og á í
samstarfi um þróun vatnsafls-
og jarðvarmavirkjana yfir alla
virðiskeðju slíkra verkefna, frá
frumhönnun og fýsileikakönnun
í upphafi yfir í útboð, byggingu og
að lokum rekstur,“ segir Jóhanna.
Meðal nýlegra verkefna má
nefna þróun og fýsileikakönnun
fyrir vatnsaflsvirkjanir í Georgíu,
undirbúning og framkvæmd
útboðs í tengslum við öflun gufu
fyrir jarðvarmavirkjun í Eþíópíu,
aðstoð við undirbúning og rýni
útboðsgagna fyrir vatnsafls-
virkjun í Ástralíu og stuðning
við rekstur og viðhald vatnsafls-
virkjana á Grænlandi og fræðslu
tengda því.
Aðgerðir í loftslagsmálum
Loftslagsbreytingar eru ein helsta
áskorunin sem heimsbyggðin
stendur frammi fyrir. Kröfur eru
gerðar til fyrirtækja um að leggja
sitt af mörkum til að sporna við
hlýnun jarðar.
„Nýleg skýrsla IPCC sýnir
afdráttarlaust nauðsyn þess að
halda hlýnun jarðar í skefjum.
Takist að halda hlýnun jarðar í
1,5°C verða áhrif af hitabylgjum,
þurrkum, flóðum og áhrif á líf-
fræðilegan fjölbreytileika mun
minni en ef hitastig hækkar um
2°C. Til að ná markmiðinu um
1,5°C þarf að draga úr losun
gróðurhúsalofttegunda á heims-
vísu um 45 prósent fyrir árið 2030
og kolefnishlutleysi þarf að nást
árið 2050. Uppbygging á endur-
nýjanlegri raforku er því nauð-
synleg til að ná þessu markmiði.“
Framlag Landsvirkjunar til lofts-
lagsmála er einkum tvíþætt. Ann-
ars vegar vinnur fyrirtækið orku
úr endurnýjanlegum orkugjöfum
og hins vegar leggur það áherslu á
að draga úr losun gróðurhúsaloft-
tegunda í starfsemi sinni.
Þátttaka á COP24 í Póllandi
Rögnu Árnadóttur, aðstoðarfor-
stjóra Landsvirkjunar, var boðið
að taka þátt í aðalpallborði COP24,
24. þings aðildarríkja Ramma-
samnings Sameinuðu þjóðanna
um loftslagsbreytingar, sem
fram fór í Katowice í Póllandi í
desember 2018.
„Í framsögu sinni sagði Ragna
frá raforkusögu íslensku þjóðar-
innar og framtakinu að nýta
jarðvarma til hitunar. Megin-
verkefni fundarins var að ganga
frá samkomulagi um innleiðingu
Parísarsamningsins 2015. Í lok
fundar var reglugerð samþykkt
sem skyldar öll ríki heims til að
fylgja sömu stöðlum á mælingu á
losun gróðurhúsalofttegunda og
skilgreina stefnu sína í loftslags-
málum. Ríki heims voru einnig
hvött til að herða aðgerðir sínar
gegn losun fyrir loftslagsfundinn
2020,“ segir Jóhanna.
Rafbílavæðing
Ný skýrsla Samorku um þjóðhags-
leg áhrif raf bílavæðingar á Íslandi
var gefin út í október.
„Samkvæmt niðurstöðum
skýrslunnar mun raf bílavæðing
verða hagkvæm fyrir Ísland til
lengri tíma litið og mikilvægur
þáttur í að markmiðum Parísar-
samkomulagsins um minnkun
útblásturs gróðurhúsalofttegunda
verði náð fyrir 2030. Raf bíla-
væðing hefur fleiri jákvæð, óbein
áhrif sem snerta þjóðarhag, svo
sem minni loftmengun og aukið
orkuöryggi,“ upplýsir Jóhanna.
Árið 2013 keypti Landsvirkjun
fyrstu raf bílana til að nota í starf-
semi fyrirtækisins og er hlutfall
þeirra um 20% af bílaeign fyrir-
tækisins. Á síðastliðnu ári var svo
fjárfest í fyrsta vetnisknúna
raf bílnum en kaupin eru liður í
orkuskiptum fyrirtækisins. „Engin
mengun stafar af notkun þeirra
og fyrirtækið stefnir á að taka
fleiri slíka bíla í notkun á komandi
árum,“ segir Jóhanna.
Útgáfa grænna skuldabréfa
Í mars 2018 varð Landsvirkjun
fyrsta íslenska fyrirtækið til að
standa að útgáfu grænna skulda-
bréfa.
„Útgefandi grænna skulda-
bréfa fær lán frá fjárfestum
þar sem þriðji aðili vottar að
andvirði skuldabréfsins verði
ráðstafað í verkefni sem hafa
jákvæð umhverfisáhrif, svo sem
til endurnýjanlegrar og sjálf-
bærrar orkuvinnslu eins og í tilfelli
Landsvirkjunar. Grænu skulda-
bréfin voru gefin út á Bandaríkja-
markaði og var mjög vel tekið.
Alls bárust tilboð fyrir yfir 700
milljónir Bandaríkjadala, en það
samsvarar sjöfaldri eftirspurn,
þar sem upphaflega var stefnt að
útgáfu skuldabréfa að andvirði 100
milljónir Bandaríkjadala,“ upp-
lýsir Jóhanna.
Það er ánægjulegt að segja frá
því að síðastliðinn þriðjudag hlaut
Landsvirkjun verðlaun fyrir að
vera brautryðjandi á sviði grænna
skuldabréfa (e. Green Bond
Pioneer Award) á árlegri ráðstefnu
Climate Bonds í London.
„Brautryðjendaverðlaun fyrir
græn skuldabréf eru árleg viður-
kenning sem veitt eru til samtaka,
fjármálastofnana, ríkisstjórna
og einstaklinga sem hafa sýnt
frumkvæði með útgáfu grænna
skuldabréfa. Útgefendur hafi þar
með sýnt jákvætt fordæmi um
umhverfisvænar fjárfestingar með
lítið kolefnisspor á alþjóðlegum
svæðum og mörkuðum,“ segir
Jóhanna.
„Verðlaunin í ár eru með sér-
staka áherslu á smáar þjóðir, enda
berum við öll ábyrgð á því að grípa
til aðgerða vegna loftslagsmála.
Landsvirkjun er brautryðjandi
á Íslandi þegar kemur að grænni
fjármögnun og hefur rutt leiðina
fyrir aðra. Fyrirtækið er vel að
verðlaununum komið,“ er haft eftir
Sean Kidney, framkvæmdastjóra
Climate Bonds Initiative.
Sjá nánar á landsvirkjun.is.
Landsvirkjun
styður við þrjú af
Heimsmarkmiðum
Sameinuðu þjóðanna;
HM 5 um jafnrétti
kynjanna, HM 7 um
sjálf bæra orku fyrir alla
og HM 13 um aðgerðir í
loftslagsmálum.
Viljum alltaf gera betur
Frá stofnun Landsvirkjunar hefur rík áhersla verið lögð á starfsemi í sátt við samfélagið og
umhverfi en fyrirtækið markaði sér sérstaka stefnu um samfélagsábyrgð árið 2012.
Jóhanna Harpa Árnadóttir hjá Landsvirkjun. MYND/ANTON BRINK
KYNNINGARBLAÐ 7 F I M MT U DAG U R 7 . M A R S 2 0 1 9 SAMFÉLAGSÁBYRGÐ FYRIRTÆKJA
0
7
-0
3
-2
0
1
9
0
4
:3
7
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
2
7
F
-A
2
8
8
2
2
7
F
-A
1
4
C
2
2
7
F
-A
0
1
0
2
2
7
F
-9
E
D
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
7
2
s
_
6
_
3
_
2
0
1
9
C
M
Y
K