Fréttablaðið - 07.03.2019, Síða 36

Fréttablaðið - 07.03.2019, Síða 36
Arion Banki legg- ur ríka áherslu á að starfa með ábyrgum hætti og í sátt við sam- félag og um- hverfi. Samfélagsábyrgð fyrirtækja hefur þróast mikið á undan­förnum árum og krafan um gagnsæi er alltaf að verða meiri. Arion banki var skráður á markað, bæði hér heima og í Svíþjóð, á síðasta ári og við finnum fyrir því að alþjóðlegir fjárfestar hafa í auknum mæli áhuga á ófjárhags­ legum upplýsingum,“ segir Hlédís Sigurðardóttir, verkefnastjóri sam­ félagsábyrgðar hjá Arion banka. Hún segir að áherslur bankans á stafræna þjónustu og umhverfis­ vernd eigi góða samleið þar sem stafræn þjónusta dregur verulega úr pappírsnotkun auk þess sem viðskiptavinir hafi möguleika á að sinna bankaviðskiptum sínum þegar og þar sem þeim hentar án ferðalaga í bankaútibú. Bankinn hvetji einnig viðskiptavini sína til að afpanta útprentuð yfirlit og önnur skjöl sem hægt er að fá rafrænt. „Annað dæmi sem hefur jákvæð áhrif út í samfélagið er að eignastýring bankans hefur lokið greiningu á þeim fyrirtækjum sem eru skráð á markað hérlendis út frá samfélagsábyrgð og ófjárhags­ legum upplýsingum og átt mjög gagnleg samtöl við fulltrúa fyrir­ tækjanna. Með þessu ýtir bankinn við frekari þróun og framgangi samfélagsábyrgðar fyrirtækja hér á landi sem mörg hver eru að standa sig vel á meðan önnur eru að taka fyrstu skrefin,“ segir Hlédís. Bankinn leggur ríka áherslu á að starfa með ábyrgum hætti og í sátt við samfélag og umhverfi. Sam­ félagsábyrgð fyrirtækja er víðtæk og snýr í raun bæði inn á við, þ.e. hvernig fyrirtæki standa að sínum rekstri, t.d. koma fram við starfsfólk sitt, hvernig stjórnarhættir eru og hvað gert er til að draga úr beinum neikvæðum umhverfisáhrifum, svo dæmi séu nefnd. „Svo snýr samfélagsábyrgð einnig að þeim áhrifum sem fyrirtæki hafa á samfélagið og umhverfið með hegðun sinni, svo sem með innkaupum, þeim vörum sem þau bjóða og fjárfestingum og lánveit­ ingum. Við hjá Arion banka leggjum áherslu á báðar þessar hliðar eða alla virðiskeðjuna, viljum vanda til verka í allri okkar starfsemi, taka upplýstar ákvarðanir og gera stöðugt betur í dag en í gær. Þannig er menningin innan bankans.“ Hlédís bendir á að jafnréttis­ málin hafi verið tekin föstum tökum innan bankans og nefnir að Arion hafi verið fyrsti bankinn til að hljóta Jafnlaunavottun VR árið 2015 og hlaut á haustmánuðum 2018 jafnlaunamerki velferðarráðu­ neytisins. „Við lítum svo á að svona stór vinnustaður eins og Arion banki hafi hreinlega þá skyldu að vera í fararbroddi þegar kemur að jafnréttismálum og erum afar stolt af okkar árangri. Síðustu ár höfum við unnið markvisst í umhverfis­ málum í rekstri bankans og ég held að það sé óhætt að segja að það hafi verið vitundarvakning meðal starfs­ fólks um umhverfismál. Aðgerðir sem hvetja starfsfólk til að nýta sér umhverfisvænni fararmáta, draga úr sóun, flokka meira, minnka plastnotkun og þess háttar virðast einnig skila sér heim til starfsfólks og það er ánægjulegt.“ Mikilvægt að hafa jákvæð áhrif Hlédís Sigurðardóttir, verkefnastjóri samfélagsábyrgðar hjá Arion banka. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Nánari upplýsingar á sorpa.is SORPA | Gylfaflöt 5 | 112 Reykjavík | 520 2200 | sorpa.is Ómetanleg auðæfi Metanbifreiðar eru frábær kostur fyrir sveitarfélög, fyrirtæki og heimili sem vilja draga úr sótspori sínu. SORPA hefur framleitt metan sem ökutækjaeldsneyti úr ruslinu þínu frá árinu 2000. Spöruð gróðurhúsaáhrif eru um 400.000 tonn af CO² frá því að verkefnið hófst. Metan fékk Svansvottun árið 2016 og er eina umhverfisvottaða eldsneytið á Íslandi. 8 KYNNINGARBLAÐ 7 . M A R S 2 0 1 9 F I M MT U DAG U RSAMFÉLAGSÁBYRGÐ FYRIRTÆKJA 0 7 -0 3 -2 0 1 9 0 4 :3 7 F B 0 7 2 s _ P 0 5 2 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 2 7 F -9 D 9 8 2 2 7 F -9 C 5 C 2 2 7 F -9 B 2 0 2 2 7 F -9 9 E 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 0 7 2 s _ 6 _ 3 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.