Fréttablaðið - 07.03.2019, Page 37
Norræna umhverfismerkið Svanurinn er opinbert umhverfismerki Norður
landanna. Á 30 ára starfstíma
hefur Svanurinn haft áhrif á að
fyrirtæki vinni markvisst að því
að draga úr umhverfisáhrifum
sínum. Í júní 2017 opnaðist síðan
sá möguleiki fyrir fjárfesta að hafa
óbein áhrif á fyrirtæki gegnum
Svansvottaða fjárfestingar sjóði
en þar er krafti fjármagns og
eignarhalds beitt til að stýra fyrir
tækjum í átt að sjálf bærari fram
tíð. „Í dag eru mörg þúsund sjóðir
starfræktir á norrænum markaði
og því nú hægt að nota Svans
vottunina sem vegvísi fyrir þá sem
vilja fjárfesta á sjálf bærari hátt.
Kröfur umhverfismerkisins fyrir
vottaðar vörur og þjónustu eru
strangar en jafnframt raunhæfar,
þetta á sérstaklega vel við um fjár
festingarsjóði og geta fjárfestar
því verið öruggir með að Svans
vottaðir sjóðir uppfylli strangar
sjálf bærnikröfur,“ segir Sebastian
Högnabba, sérfræðingur á
skrifstofu norræna um hverfis
merkisins Svansins í Svíþjóð.
Aðspurður hvers vegna sjálf
bær fjármál séu mikilvæg fyrir
umhverfið segir hann að ólíkt
öðrum framleiðsluvörum eða
þjónustu sem getur hlotið Svans
vottun séu sjóðir í grundvallar
atriðum samansafn af verð
bréfum sem í sjálfu sér hafi ekki
neikvæð umhverfisáhrif.
„Í tilfelli sjóða er því markmið
Svansins að draga úr fjármagni
sem fer í starfsemi sem er skaðleg
umhverfi og samfélagi og beina
frekar fjármagni til fyrirtækja
sem standa sig vel með tilliti til
umhverfismála. Til lengri tíma
litið trúum við að þetta muni
stýra fjármagni í sjálf bærari starf
semi og hvetja atvinnulífið til að
færa sig í auknum mæli í átt að
sjálf bærri þróun.“
Nú þegar geta norrænir fjár
festar fundið fjölbreytta blöndu
af mismunandi sjóðum með
vottun, bæði hlutabréfasjóði,
fjárfestingarsjóði og blandaða
sjóði sem stjórnað er af þekktum
aðilum svo sem Handelsbanken,
KLP, Nykredit og SEB. Pareto
Global Corporate Bond er dæmi
um Svansvottaðan sjóð sem er
aðgengilegur íslenskum fjár
festum. Sjóðinum er stjórnað af
norska eignarstýringaraðilanum
Pareto sem fjárfestir á alþjóða
vettvangi í fyrirtækjaskulda
bréfum í samræmi við kröfur
Svansins.“
Sebastian segir Svansvott
aða sjóði þurfa að uppfylla 25
skyldukröfur á nokkrum sviðum
sjálf bærra fjárfestinga. Til dæmis
útilokar sjóðurinn fjárfestingar til
ósjálf bærs iðnaðar og fyrirtækja,
svo sem vinnslu jarðefnaelds
neytis, framleiðslu á vopnum
og tóbaki. „Svansvottaðir sjóðir
leggja áherslu á fjárfestingar til
fyrirtækja með sterkan sjálf
bærniprófíl og er rík áhersla á
gegnsæi og miðlun upplýsinga um
eignarhlut og umhverfisáherslur.“
Til viðbótar við skyldukröfur
eru einnig settar stigakröfur, en til
að fá Svansvottun þarf sjóðurinn
að ná lágmarks stigafjölda. Mögu
legt er að fá stig meðal annars með
því að vera virkur eigandi og með
því að fjárfesta í fyrirtækjum sem
starfa á vettvangi endurnýjan
legrar orku, mengunarvarna eða
úrgangsmeðhöndlunar.
Hann segir sívaxandi áhuga
á sjálf bærum fjárfestingum á
heimsvísu. Á sama tíma eru fjár
festar í auknum mæli að kalla eftir
óháðu mati á sjálf bærniáherslum
virkra sjóða á markaði. „Norræna
umhverfismerkið Svanurinn er
áreiðanlegt merki sem yfir 84%
af íslenskum neytendum þekkja,
vottunin er einföld og skýr leið
til að miðla því að Svansvottaðir
sjóðir standist strangar kröfur um
sjálf bærar fjárfestingar.“
Viðmiðin fyrir fjárfestingar
sjóði voru sett á laggirnar í júní
2017 og hefur verið mikill áhugi á
þeim allar götur síðan samkvæmt
Sebastian. Fyrsti Svansvottaði
sjóðurinn var kynntur í október
sama ár og eru í dag samtals 23
sjóðir sem bera Svaninn. „Við
erum vongóð og búumst við að sjá
áframhaldandi aukningu á vott
uðum sjóðum á komandi árum.“
Svansvottaðar fjárfestingar
Norræna umhverfismerkið Svanurinn kynnti árið 2017 umhverfismerkta fjárfestingasjóði til
að ýta undir sjálfbærar fjárfestingar. Nauðsynlegt að fjármálageirinn taki virkan þátt.
Frá fyrstu
leyfis-
veitingu
Svansvott-
aðra sjóða
árið 2017.
Í tilfelli sjóða er
því markmið
Svansins að draga úr
fjármagni sem fer í
starfsemi sem er skaðleg
umhverfi og samfélagi.
Sebastian
Högnabba
KYNNINGARBLAÐ 9 F I M MT U DAG U R 7 . M A R S 2 0 1 9 SAMFÉLAGSÁBYRGÐ FYRIRTÆKJA
EKKI VELJA
HVAÐ SEM ER
FRÁ HVERJUM
SEM ER
svanurinn.is
Veljum Svansmerkta þjónustu og vörur
sem eru framleiddar í sátt við umhverfið.
Það er það minnsta sem við getum gert.
0
7
-0
3
-2
0
1
9
0
4
:3
7
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
7
F
-9
D
9
8
2
2
7
F
-9
C
5
C
2
2
7
F
-9
B
2
0
2
2
7
F
-9
9
E
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
7
2
s
_
6
_
3
_
2
0
1
9
C
M
Y
K