Fréttablaðið - 07.03.2019, Page 40

Fréttablaðið - 07.03.2019, Page 40
Ágúst og Viktoría eru sammála um að aukið gagnsæi og aðferðir í samræmi við markmið um sjálfbæra þróun séu lykilatriði. MYND/ ANTON BRINK Samfélagsábyrgð á að sjálfsögðu að tengjast kjarnastarfsemi fyrirtækjanna og helst vera órjúfanlegur hluti hennar Ágúst Angantýsson Nú snýst þetta ekki lengur bara um siðferði og hug-sjónir því að lagaumhverfið setur fyrirtækjum sífellt strangari skorður, t.d. með kröfum um ófjárhagslega upplýsingagjöf í árs- reikningi og á f leiri sviðum,“ segir Viktoría. „Ungt fólk í dag velur í auknum mæli vörumerki með hreina virðiskeðju og hæft starfs- fólk velur frekar að vinna fyrir ábyrg fyrirtæki sem hlúa sérstak- lega að umhverfi og samfélagi,“ bætir hún við. Ágúst tekur undir þetta og bendir á að aðgerðir sem gripið sé til núna skapi samkeppnisforskot eftir örfá ár. „Þetta er spurning um fjárfestingu en ekki kostnað. Þeir sem ekki bregðast við í tíma geta lent í meiriháttar áskorunum innan fárra ára þegar þeir komast ekki hjá því að fást við auknar lagalegar og siðferðislega kröfur til hliðar við allt annað,“ segir hann. Aðspurður um umhverfismálin telur Ágúst að að sumu leyti hafi umræðan þroskast mikið á undan- förnum árum. „Samhengið er svo miklu stærra en það hvort fyrir- tæki noti prentarana sína aðeins minna eða flokki plast. Til að ná raunverulegum árangri verða þau að einblína á umhverfis- og sam- félagsáhrif í kjarnastarfsemi sinni. Það leiðir til betri nýtingar á fjár- munum, minni sóunar og dregur úr áhættu í rekstri.“ „Það sama á við um samfélags- ábyrgð,“ segir Viktoría. „Sumir halda að hún snúist um að gefa sem mest til góðgerðarmála en við viljum meina að viðskipti og fjár- festingar sem stuðla að verðmæta- sköpun og góðu siðferði þar sem t.d. komið er í veg fyrir spillingu skipti auðvitað höfuðmáli.“ Þarna segist Ágúst vera algjörlega sammála. „Samfélagsábyrgð á að sjálfsögðu að tengjast kjarnastarfsemi fyrir- tækjanna og helst vera órjúfanlegur hluti hennar,“ segir hann. „Við sjáum öra þróun í mála- flokknum og mörg fyrirtæki sinna þessu málefni af miklum metnaði. Mörg önnur eru öll af vilja gerð en Sjálfbærni og samfélagsábyrgð snýst um kjarnastarfsemi Hlýnun jarðar og breytingar í loftslagi eru ógnanir sem fyrirtæki þurfa að bregðast við. Viktoría Valdimarsdóttir, forsvarsmaður Ábyrgra lausna, og Ágúst Angantýsson hjá KPMG eru sammála um að aukið gagnsæi og aðferðir í samræmi við markmið um sjálfbæra þróun séu þar lykilatriði. Sjálfbær þróun í þinni kjarnastarfsemi Nánari upplýsingar veitir Ágúst Angantýsson í síma 545 6029 og aangantysson@kpmg.is vantar e.t.v. sérfræðiþekkingu til að komast af stað.“ segir Ágúst. „Nýlegt dæmi um jákvæða þróun er útgáfa grænna skuldabréfa sem gefa fag- fjárfestum tækifæri til þess að upp- fylla kröfur sem þeir hafa undir- gengist um ábyrgar fjárfestingar.“ Aðspurð um fyrstu skref fyrir- tækja í átt að sjálf bærni þá segja þau bæði að þar geti verið um talsverðan frumskóg að ræða. „Aðferðir geta tengst heimsmark- miðum Sameinuðu þjóðanna um sjálf bæra þróun, ESG-viðmiðum, GRI o.f l. en mikilvægt er að greina lykilþætti í starfseminni og sinna þeim vel frekar en færast of mikið í fang,“ segir Viktoría. „Vel rekin fyrirtæki með skýra stefnu þekkja auðvitað sín markmið og sitt viðskiptalíkan best en við búum yfir haldgóðum upplýsingum um hvaða lykilstærðir henta mis- munandi starfsemi og aðstoðum gjarnan við innleiðingu.“ Aðkoma Ábyrgra lausna og KPMG að slíkum verkefnum spannar vítt svið, allt frá stefnumótun og undirbúningi, innleiðingu og þjálfun, yfir í staðfestingarvinnu af fjölbreyttu tagi. Ágúst og Vikt- oría státa af þekkingu og reynslu á þessu sviði auk sterkra alþjóðlegra tengsla og hvetja alla sem vilja kanna þessa vegferð að hafa sam- band við fyrsta tækifæri. 12 KYNNINGARBLAÐ 7 . M A R S 2 0 1 9 F I M MT U DAG U RSAMFÉLAGSÁBYRGÐ FYRIRTÆKJA 0 7 -0 3 -2 0 1 9 0 4 :3 7 F B 0 7 2 s _ P 0 4 9 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 2 7 F -B 6 4 8 2 2 7 F -B 5 0 C 2 2 7 F -B 3 D 0 2 2 7 F -B 2 9 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 B F B 0 7 2 s _ 6 _ 3 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.